Fréttablaðið - 12.07.2013, Side 25
FRÉTTABLAÐIÐ
LÍFIÐ 12. JÚLÍ 2013 • 5
Myndaalbúmið
Kanada, Japan, Hollandi og Bret-
landi núna í haust. Hún verður til
sölu í mun fleiri verslunum næsta
vor ef marka má hvernig gengur
að selja í París.“
Nú varstu að koma af tísku-
vikunni í París, hvernig gekk
það? Er þetta í fyrsta sinn sem
þú sýnir þína hönnun á tískuvik-
unni? „Það gekk mjög vel. Við
völdum þá leið að vera með einka
„showroom“ í tískuvikunni. Það
er það sem metnaðarfull fyrir-
tæki gera. Þetta var í annað
skipti sem ég sýni línuna KAR-
BON by Boas Kristjanson en ég
sýndi prjónalínu fyrir nokkrum
árum sem var ekki ætluð í sölu
eða framleiðslu.“
Hefur þú alltaf verið meðvit-
aður um tísku og hönnun? „Nei,
það var aldrei sérstaklega mikill
partur af mínu lífi framan af svo
það var ekki beint eitthvað sem
ég hafði áhuga á. Ég lagði meira
fyrir mig tónlist og íþróttir þegar
ég var yngri. Ég var meðal ann-
ars í kór og söngnámi.“
Mikill vöxtur í herrafatnaði
Hvaða íslensku og erlendu
hönnuðir þykir þér gera f lotta
hluti? „Það er gríðarlega mikið
af góðum hönnuðum á Íslandi.
Það er frábært að nýlega hafa
þeir fengið aukna athygli í gegn-
um Reykjavík Fashion Festival
og HönnunarMars. Ég veit ekki
betur en að þrjú til fjögur fyrir-
tæki hafi verið að sýna í París á
tískuvikum að undanförnu. Það
hefur verið mikill vöxtur undan-
farin ár í hátískukarlmanna-
fötum erlendis og sá markaður er
hvað mest í sókn. Eitt áhugavert
dæmi er til dæmis Boris Bidjan
Saberi.“
Hefur þú fengið góða fjárfesta
til að styðja við bakið á þér?
„Fyrirtækið hefur fengið góðan
stuðning frá vinafólki en enga
umtalsverða fjárfestingu að svo
stöddu. Fyrir okkur skiptir máli
að komast eins langt á eigin úr-
ræðum áður en við tökum inn
fjárfesta. Þessi síðasta tískuvika
í París sýndi okkur að áætlan-
ir okkar voru byggðar á góðum
grunni og varan stóðst ákveðið
gæðapróf frá kaupendum búð-
anna sem fer fram í „showro-
om-i“ eins og því sem við settum
upp. Mamma er fjármálastjóri
fyrirtækisins svo hún heldur vel
utan um hlutina og kemur með á
allar sýningar.“
Hverjir eru framtíðardraum-
arnir? „Ég er að vinna mikið með
íslenskt hráefni og tengi mína
hönnun mikið við Ísland. Ég sé
fyrir mér að hafa alltaf ákveðið
aðsetur á Íslandi og vinna bæði
með fatahönnun og hönnun al-
mennt og bæta við mig verkefn-
um sem hafa með íslenska nátt-
úru að gera. Ég hef áhuga á að
teikna hús og gera húsgögn og
vinna með íslenska orku. Ég hef
mikið verið að rannsaka það und-
anfarin ár og það er því svona
framtíðarverkefni. Annars lang-
ar mig að gera KARBON by Boas
Kristjanson að þekktu vörumerki
í tísku, taka þátt í opinberri dag-
skrá tískuvikunnar í París og
selja í virtustu verslunum um
allan heim.“
Það koma margir
sterkir hönnuðir
úr þessum skóla
sem ég var í en
bæði yfirhönnuður
herralínu Dior og
fyrrum yfirhönn-
uður Hugo Boss
lærðu þar.
Bóas á ferðalagi um Evrópu ● Kærustuparið í París á fallegri stundu ● Margrét Bóasdóttir er fjármálastjóri fyrirtækisins ● Jónatan Grétarsson ásamt Bóasi í sýningarsalnum í París
Total Effects 7in1 hlaut nýverið vottun
& gæðastimpil SKIN HEATH ALLIANCE
1. Verndar húðina og er andoxunarríkt
2. Dregur úr hrukkum og fínum línum
3. Gefur heilbrigðan og jafnan húðlit
4. Fjarlægir dauðar húðfrumur
5. Dregur saman svitaholur
6. Næringaríkur rakagjafi
7. SPF 15-20 sólarvörn
Fríhöfnin Keflavíkurflugvelli. Kringlunni, Skeifunni & Smáralind. Austurveri,
Eiðistorgi, Hringbraut, Kringlunni. Apótek Garðabæjar, Apótek Hafnarfjarðar, Lyfjaborg, Nana Hólagarði & Urðarapótek.
Glerártorgi, Hveragerði og Vestmannaeyjum. KS Sauðarkróki.
Olay er á meðal stærstu húðkremaframleiðenda í heimi og eru fremstir á
sviði þróunar á virkum andlitskremum í samanburði við önnur dýrari krem.
medico.is