Fréttablaðið - 12.07.2013, Síða 42
12. júlí 2013 FÖSTUDAGUR| SPORT | 30
Ég grínast ekki
þegar ég segi að ég hafi
fengið martraðir um það
nokkrum sinnum.
Margrét Lára Viðarsdóttir
EVRÓPUDEILDIN
FORKEPPNI, 1. UMFERÐ
GLENTORAN - KR 0-3
0-1 Gary Martin (24.), 0-2 Jónas Guðni Sævarsson
(65.), 0-3 Jónas Guðni Sævarsson (92.).
KR vann samanlagt, 3-0, og mætir Standard Liège
frá Belgíu í 2. umferð.
FC SANTA COLOMA - BREIÐABLIK 0-0
Breiðablik vann samanlagt, 4-0, og mætir Sturm
Graz frá Austurríki í 2. umferð.
HB - ÍBV 0-1
0-1 Arnar Bragi Bergsson, víti (90.).
ÍBV vann samanlagt, 2-1, og mætir Rauðu
stjörnunni frá Serbíu í 2. umferð.
Óskar Ófeigur Jónsson
ooj@frettabladid.is
Skrifar frá Svíþjóð
EM KVENNA
2013
EM
KVENNA
2013
B-RIÐILL
ÞÝSKALAND - HOLLAND 0-0
STAÐAN
Ísland 1 0 1 0 1-1 1
Noregur 1 0 1 0 1-1 1
Holland 1 0 1 0 0-0 1
Þýskaland 1 0 1 0 0-0 1
LEIKIR DAGSINS
C-RIÐILL:
FRAKKLAND - RÚSSLAND KL. 16.00
ENGLAND - SPÁNN KL. 18.30
Mörkin: 1-0 Kristine Hegland (26.), 1-1 Margrét
Lára Viðarsdóttir, víti (87.).
ÍSLAND (4-3-3):
Guðbjörg Gunnarsdóttir 7
Dóra María Lárusdóttir 6
Sif Atladóttir 6
(62. Glódís Perla Viggósdóttir 5)
Katrín Jónsdóttir 7
Hallbera Guðný Gísladóttir 7
Fanndís Friðriksdóttir 4
(62. Harpa Þorsteinsdóttir 6)
*Sara Björk Gunnarsdóttir 8
Dagný Brynjarsdóttir 6
(82. Katrín Ómarsdóttir -)
Hólmfríður Magnúsdóttir 7
Rakel Hönnudóttir 5
Margrét Lára Viðarsdóttir 6
Skot (á mark): 13-15 (4-9) Horn: 4-1
Aukaspyrnur fengnar: 11-5 Rangstöður: 4-2
Varin skot: Hjelmeseth 8 - Guðbjörg 3
1-1 Katalin Kulcsár, Ungverjalandi
Mörkin: 1-0 Halldór Orri Björnsson (25.), 1-1 Atli
Guðnason (89.), 2-1 Gunnar Örn Jónsson (94.).
STJARNAN (4-4-2): Arnar Darri Pétursson 6 -
Jóhann Laxdal 6, Martin Rauschenberg 6, Daníel
Laxdal 6, Robert Sandnes 6 - Kennie Chopart
6, Michael Præst 6, Atli Jóhannsson 7, Halldór
Orri Björnsson 8 - Veigar Páll Gunnarsson 6 (82.
Gunnar Örn Jónsson -), Garðar Jóhannsson 5 (60.
Tryggvi Sveinn Bjarnason 5).
FH (4-3-3): Róbert Örn Óskarsson 6 - Jón Ragnar
Jónsson 6, Pétur Viðarsson 4, Freyr Bjarnason
5, Sam Tillen 6 - Dominic Furness 5 (43. Albert
Brynjar Ingason 6), Björn Daníel Sverrisson 5,
Emil Pálsson 5 - Ólafur Páll Snorrason 4 (60.
Ingimundur Níels Óskarsson 5 ), Atli Guðnason 7,
Kristján Gauti Emilsson 5 (75. Atli Viðar Björnsson
-).
Skot (á mark): 14-11 (7-5) Horn: 5-4
Aukaspyrnur fengnar: 12-4 Rangstöður: 2-2
Varin skot: Arnar Darri 4 - Róbert Örn 5
2-1
Stjörnuvöllur
Áhorf: 1.383
Kristinn
Jakobsson (6)
FÓTBOLTI Sara Björk Gunnars-
dóttir, miðjumaður íslenska liðs-
ins, átti flottan leik í gær þegar
íslensku stelpurnar náðu í sitt
fyrsta stig á Evrópumóti í sögunni.
„Við erum rosalega ánægð-
ar með þetta stig en við vildum
að sjálfsögðu frá öll þrjú stigin í
leiknum. Við erum samt sáttar
með eitt stig,“ sagði Sara Björk
Gunnarsdóttir, besti maður vall-
arins í gær. Eftir brösóttan fyrri
hálfleik óx íslenska liðinu ásmeg-
in.
„Við töluðum um það í hálf-
leiknum að við vorum með liðið of
aftar lega og gerðum okkur þetta
svolítið erfitt fyrir. Ég veit ekki
hvort við vorum eitthvað stress-
aðar eða eitthvað. Við ákváðum að
breyta þessu í seinni hálfleik og
við gerðum það,“ sagði Sara Björk.
„Við komum fullar af sjálfs-
trausti inn í seinni hálfleikinn,
vorum nær hvorri annarri, unnum
fleiri bolta og sköpuðum fleiri
færi,“ sagði Sara Björk.
„Mér fannst þær vera orðnar
svolítið þreyttar í seinni hálfleik
og þá keyrðum við einmitt á þær.
Við hefðum getað skorað fleiri
mörk. Ég er ekki að segja að ég sé
óánægð með eitt stig en það hefði
ekki verið ósanngjarnt að fá öll
þrjú stigin,“ sagði Sara.
„Ég er mjög ánægð með mína
frammistöðu. Fyrir leikinn ákváðu
allir leikmennirnir að gefa allt sitt
og við gerðum það. Við sýndum
það inni á vellinum og það var allt
skilið eftir á vellinum í dag,“ sagði
Sara. En hvað með verðlaun sem
hún fékk í leikslok?
„Það er heiður að fá þessi verð-
laun en það sem skipti mig mestu
máli var stigið sem við fengum,“
sagði Sara Björk. Hún fiskaði vítið
sem skilaði jöfnunarmarkinu en
var hún eitthvað að skipta sér af
því hver tæki vítið? „Við vitum
alveg að Margrét er vítaskytt-
an,“ sagði Sara, en var þetta víti?
„Það held ég, enda sáum við þetta
nokkrum sinnum í endursýningu,“
sagði Sara.
„Ég var búin að vera meira í
varnarhlutverki en mér líður vel
þegar ég fæ að fara eitthvað fram-
ar á völlinn til að reyna að búa eitt-
hvað fyrir liðið,“ sagði Sara um
hlaupið sem skilaði vítinu en tvö
önnur hlaup höfðu komið henni í
skotfæri í teignum.
„Þetta stig skiptir miklu máli
það yrði frábært að ná í stig eða
þrjú stig út úr næsta leik. Við
erum komnar inn í mótið og það
fylgir því mjög góð tilfinning að
vera búnar að ná í fyrsta stigið á
Evrópumóti,“ sagði Sara. - óój
Hefði ekki verið ósanngjarnt að fá öll stigin
Sara Björk Gunnarsdóttir var valin besti maður vallarins af mótshöldurum á EM í Svíþjóð.
MAÐUR LEIKSINS Sara Björk með
viðurkenningu sína eftir leikinn í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKARÓ
FÓTBOLTI Stelpurnar okkar stigu
sögulegt skref í gær í fyrsta leik
sínum á EM í Svíþjóð. Íslenska
liðið gerði þá 1-1 jafntefli við
Noreg og liðið er því strax búið að
gera betur á sínu öðru Evrópumóti
en fyrir fjórum árum í Finnlandi
þegar allir þrír leikirnir töpuðust.
Úrslitastund leiksins var víta-
spyrna sem Sara Björk Gunnars-
dóttir fékk fjórum mínútum fyrir
leikslok. Á punktinn steig Margrét
Lára Viðarsdóttir og skoraði af
öryggi og hreinsaði hugann endan-
lega af fortíðardraugum.
Fékk martraðir eftir vítaklikkið
„Þetta víti er búið að sitja mikið
í mér og mér fannst ég skulda
stelpunum þetta. Ég var mjög
miður mín eftir vítið á EM 2009
og ég grínast ekki þegar ég segi
að ég hafi fengið martraðir um það
nokkrum sinnum. Ég lét það ekki á
mig fá og var bara mjög einbeitt,“
sagði Margét Lára Viðarsdóttir um
vítaspyrnuna sem hún lét verja frá
sér í 1-3 tapi á móti Frakklandi í
fyrsta leik á EM 2009.
„Margrét Lára tók víti á móti
Frakklandi í fyrsta leik fyrir fjór-
um árum og klikkaði. Hún hefur
örugglega hugsað um það í ein-
hverja mánuði á eftir. Það var
virkilega ljúft að sjá hana setja
boltann örugglega í netið. Hún
sagði í viðtölum að hún þyrfti að
kenna Svíunum hvernig ætti að
taka vítin því þeir klúðruðu tveim-
ur vítum á móti Dönum,“ sagði Sig-
urður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari
íslenska liðsins. Margrét Lára
lærði vissulega af mistökum Sví-
anna.
„Ég sá hvernig Svíarnir brugð-
ust við vítaspyrnunum sem þær
fengu í gær. Þær voru taugaveikl-
aðar þegar þær fóru á punktinn.
Ég vissi að myndavélarnar væru
á mér og ákvað að brosa og vera
létt. Ég hef tekið víti á þessa
stelpu áður. Það er bara að hugsa
ekki neitt og einbeita sér að því að
njóta mómentsins. Þegar maður er
kominn með svona mikla reynslu
þá eru þetta mómentin sem maður
vill fá. Ég hafði mjög gaman af
þessu,“ sagði Margrét Lára. Sig-
urður Ragnar var ekki eins róleg-
ur. „Ég var örugglega miklu
stressaðari en hún. Hún leysti
þetta ótrúlega vel,“ sagði Sigurð-
ur Ragnar.
Gott að koma til baka
Íslenska liðið var í vandræðum
í fyrri hálfleik en kom öflugt til
baka og tók öll völd í seinni hálf-
leiknum.
„Þetta var slysalegt mark sem
við fengum á okkur en við sýndum
virkilega góðan karakter að koma
til baka. Við erum á stórmóti og
það er svolítið pressa á okkur. Mér
fannst við sýna reynsluna í þessu
liði. Fyrir fjórum árum hefðum við
örugglega dottið í stress og ég er
ekki viss um að við hefðum unnið
okkur út þessum aðstæðum þá,“
sagði Margrét Lára og bætti við:
„Mér fannst við keyra yfir þær í
seinni hálfleik, erum í miklu betra
formi en þær og vorum að búa til
flottar sóknir. Það vantaði svolít-
ið að reka smiðshöggið á þetta en
við vinnum í þeim þáttum núna.
Vonandi getum við komið svolítið
á óvart á móti Þjóðverjum,“ sagði
markaskorarinn.
Liðið tók mörg stór skref í gær
að mati landsliðsþjálfarans. „Þetta
var frábær seinni hálfleikur. Við
fengum reyndar á okkur þetta
mark í fyrri sem ég var ósáttur
með en við unnum okkur inn í leik-
inn á móti góðu liði í lokakeppni.
Þetta voru allt stór skref fyrir
okkur,“ sagði Sigurður Ragnar.
Ég skuldaði stelpunum þetta
Margrét Lára Viðarsdóttir tryggði Íslandi sögulegt stig í Kalmar í gær þegar hún skoraði jöfnunarmarkið
gegn Noregi í gær. Hún bætti þar með fyrir vítið sem hún klúðraði í fyrsta leiknum á EM fyrir fj órum árum.
STÓÐ Í STRÖNGU Hólmfríður Magnúsdóttir er hér í baráttu við hina norsku Maren Mjelde í leiknum í gær. Hólmfríður var lífleg
í sóknarleik íslenska liðsins. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Öll íslensku liðin komust
áfram í aðra umferð forkeppni
Evrópudeildar UEFA en síðari leikirnir
fóru fram í gær. KR, ÍBV og Breiðablik
höfðu öll betur gegn andstæðingum
sínum en þetta er í fyrsta sinn síðan
Ísland fékk þátttökurétt fyrir þrjú lið í
keppninni að öll komist áfram.
Breiðablik kláraði skylduverkið
gegn FC Santa Coloma í Andorra og
vann samanlagt, 4-0, eftir markalaust
jafntefli í gær. Þá vann KR afar sann-
færandi sigur gegn Glentoran, 3-0,
á útivelli en fyrri leiknum lauk með
markalausu jafntefli.
Sigur ÍBV á HB í Færeyjum var öllu
dramatískari en eftir 1-1 jafntefli
í fyrri leiknum þurfti ÍBV mark á
útivelli. Það kom úr vítaspyrnu á
lokamínútum leiksins. Arnar Bragi
Bergsson skoraði úr vítinu en hann
lék í gær sinn fyrsta leik fyrir ÍBV.
„Þetta gerist varla sætara,“ sagði
þjálfarinn Hermann Hreiðarsson.
„Menn höfðu fulla trú á þessu og
gáfu allt sem þeir áttu. Þá fá þeir
verðlaunin sín á endanum.“
KR mætir belgíska liðinu Standard
Liège í næstu umferð, Breiðablik
leikur gegn Sturm Graz frá Austurríki
og ÍBV við gamla stórveldið Rauðu
stjörnuna frá Serbíu. - esá
Sögulegur árangur íslensku liðanna
SIGUR Í BELFAST Kjartan Henry
Finnbogason í baráttu við leikmann
Glentoran. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FRJÁLSAR Aníta Hinriksdóttir byrjaði vel í undanrásum í 800
m hlaupi kvenna á HM U-17 sem fer nú fram í Donetsk í
Úkraínu. Hún náði besta tíma dagsins er hún hljóp á 2:04,79
mínútum sem er þó rúmum fjórum sekúndum frá Íslands-
meti hennar.
Aníta keppir í undanúrslitum í dag en hún þykir
meðal allra sigurstranglegustu keppenda greinar-
innar, ekki síst þar sem hin bandaríska Mary Cain
ákvað að taka ekki þátt í mótinu. Hún er sú eina
sem hefur náð betri tíma í greininni á þessu ári
í þessum aldursflokki.
Hilmar Örn Jónsson kastaði í sleggjukasti í
gær og hafnaði í 17. sæti með kasti upp á 71,5 m.
Þá var einnig keppt á EM U-22 í Finnlandi í gær
en Blake Thomas Jakobsson keppti í kringlukasti og
kastaði 48,63 m. Hann hafnaði í 26. sæti. - esá
Aníta fl jótust allra í undanrásunum
PEPSIDEILDIN 2013
NÆSTU LEIKIR
KEFLAVÍK - BREIÐABLIK SUN. KL. 16.00
ÞÓR - ÍBV SUN. KL. 16.00
FRAM - KR SUN. KL. 21.00
FYLKIR - ÍA MÁN. KL. 19.15
VALUR - VÍKINGUR Ó. MÁN. KL. 19.15
SPORT