Fréttablaðið - 13.07.2013, Síða 2

Fréttablaðið - 13.07.2013, Síða 2
13. júlí 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2 Ingunn Wernersdóttir rataði í fjölmiðla í vikunni þar sem bræður hennar voru ákærðir vegna 4,8 milljarða greiðslna til hennar úr fjárfestingarfélaginu Mile- stone. FIMM Í FRÉTTUM BARÁTTUKONUR, FORSETI OG HANDTAKA ➜ Katrín Ómarsdóttir, leikmaður Liverpool og íslenska landsliðsins, hefur smitað landann af tilhlökkun sinni fyrir EM í Svíþjóð sem nú er hafið. Kvennalandsliðið hefur fyrir löngu hreiðrað um sig við hjartarætur landsmanna með góðum árangri og vaskri framgöngu. HESTHÚS FREKAR EN ÓPERUHÚS 12 Hlín Pétursdóttir Behrens yfi rgaf óperuhúsin í Þýskalandi fyrir hesthúsin á Íslandi. Eigin- mann hennar dreymir þó um að gera hana að fl uguveiðimanni. NÝTT OG BETRA LÍF 16 Jóhann Traustason og Guðbjörg Inga Guðjónsdóttir hafa verið edrú í rúm tvö ár og líf þeirra tekið algjörum stakkaskiptum. ALLIR JAFNIR 22 Kaffi stofa Samhjálpar gerir ekki mannamun. Þar eru allir velkomnir enda koma þangað rúmlega hundrað manns á hverjum degi. PARADÍS Í SKÁLANESI 20-21 Ólafur Pétursson hefur komið á fót fj ölhliða ferða- og rannsóknarmiðstöð í Skálanesi við Seyðisfj örð. SAMRÝMDAR SYSTUR 44 Margrét Lára og Elísa Viðarsdætur leika báðar með íslenska kvenna- landsliðinu á EM í Svíþjóð. LOTNINGIN FYRIR VÉFRÉTTINNI 10 Þorsteinn Pálsson um forsetann og staðfestingu laga. ENGAR AFSAKANIR 10 Það er skrítið að forsætisráðherra sé vandræðalegur yfi r því að viðurkenna að fækka þurfi starfsfólki hjá ríkinu til að ná fram markmiðum um sparnað, segir í leiðara Ólafs Stephensen. VERTU SÆLL OG BLESSAÐUR 34 Hildur Sverrisdóttir veltir fyrir sér íslenskum kveðjum í bakþönkum dagsins og segir það sniðugt að fámenn þjóðin hafi búið til kerfi fyrir kveðjurnar. ALÞINGISKONA GÆSUÐ 42 Þingkonan Björt Ólafsdóttir var gæsuð af vinkonum sínum um síðustu helgi. Björt segir daginn hafa verið yndislegan í faðmi bestu vinkvennanna. GRUNAÐIR UM ÞRJÁR ÁRÁSIR 4 Stefán Sívarsson og fj órir aðrir menn sem nú sæta gæsluvarðhaldi eru grunaðir um þrjár hrottafengnar líkamsárásir á síðustu dögum og vikum. Stefáns er enn leitað. MALALA LÉT EKKI ÞAGGA NIÐUR Í SÉR 6 „Þeir héldu að byssukúlan myndi þagga niður í okkur. En þeim tókst það ekki,“ sagði Malala Júsafsaí, sem ávarpaði æskulýðsþing Sameinuðu þjóðanna á sextán ára afmælisdegi sínum. ÁHEYRENDAHÓPURINN TVÖFALDAÐIST 8 Eft ir að Sinfóníuhljómsveit Íslands fl utti í Hörpu hefur áhorfendafj öldi hljómsveitarinnar tvöfaldast. YFIRGEFA SKATTASKJÓLIN 8 Íslendingum sem yfi rgefa erlend skattaskjól og gera hreint fyrir sínum dyrum hjá Ríkis- skattastjóra fer fj ölgandi. Sífellt erfi ðara er að geyma fé erlendis. RÚSSLAND „Siðleysi verður ekki siðlegt fyrir tilstilli leynilegra laga,“ sagði bandaríski uppljóstrarinn Edward Snowden í gær og vísaði í Nürnberg-yfir- lýsinguna frá 1945: „ Einstaklingum ber skylda til að brjóta landslög til að koma í veg fyrir að glæpir gegn friði og mannkyni séu framdir.“ Þetta sagði Snowden í yfirlýsingu á blaðamanna- fundi á flugvellinum í Moskvu, þar sem hann hitti fulltrúa mannréttindasamtaka. Þar sagðist hann hafa óskað eftir því við rússnesk stjórnvöld að þau veittu honum hæli í Rússlandi tímabundið þangað til hann gæti fengið hæli annars staðar og ferðast löglega á milli landa. Hann sagðist ekki sjá eftir því að hafa ljóstrað upp um víðtækar njósnir Bandaríkjamanna, þótt það hefði orðið sér dýrkeypt: „Fyrir rétt rúmum mánuði átti ég fjölskyldu og heimili í paradís og bjó við mikil þægindi. Ég gat líka án dóms úrskurðar leitað að, lagt hald á og lesið samskipti ykkar.“ Hann situr nú fastur á flugvellinum í Moskvu, vegabréfalaus. Sarah Harrison frá Wikileaks tók þátt í fund- inum í Moskvu í gær og segir hún að sendiherra Bandaríkjanna í Rússlandi hafi haft samband við sig til að ítreka að Bandaríkin líti ekki á Snowden sem uppljóstrara, heldur lögbrjót. - gb Snowden hefur óskað eftir hæli í Rússlandi þar til hann getur ferðast annað: Bar skylda til að brjóta landslög SNOWDEN Í MOSKVU Sarah Harrison frá Wikileaks, Edward Snowden og ónefndur þýðandi. NORDICPHOTOS/AFP NÁTTÚRA „Við fáum mörg símtöl á dag frá fólki sem hefur fundið unga eða treystir sér ekki til að taka ábyrgð á ungum. Ef við tækjum við þeim öllum, þá gerðum við ekki annað,“ segir Stella Kristjánsdóttir, dýrahirðir í Húsdýragarðinum. „Þegar fólk hringir og segir okkur að það hafi fundið unga segjum við því oftast að láta þá bara í friði, vegna þess að oftast kemur móðirin að leita að unga num sínum þegar fólkið fer,“ útskýrir Stella. „Dýrin verða hrædd við fólk og láta sig hverfa. Svo fara þau kannski aftur að leita að ungunum sínum þegar mann- fólkið er farið. Það er þá leiðin- legt að búið sé að hirða ungann,“ bætir Stella við. „Náttúran sér alveg um sína,“ útskýrir hún. Nokkrir krakkar úr Vinnu- skólanum lögðu leið sína á Hólms- heiði þar sem þau höfðu verið við vinnu um nokkurt skeið. Þar rákust þau á brandugluhreiður. Krakkarnir höfðu séð uglupar með unga í hreiðri – en í fyrra- dag höfðu allir farið úr hreiðrinu nema þessi eini ófleygi ungi, sem virtist einn og yfirgefinn í hreiðrinu. „Í dýraríkinu er það þannig að foreldrar yfirgefa oft afkvæmi sín ef eitthvað er að. Þegar dýrin eru að koma til okkar kemur oft í ljós hvað er að þeim,“ segir Stella jafnframt. „Yfirleitt er best að láta dýr vera í svona aðstæðum, leyfa náttúrunni að sjá um þau, nema unginn sé vængbrotinn eða eitthvað álíka. Þá þarf auðvitað að koma honum til aðstoðar,“ útskýrir Stella. „Við munum að sjálfsögðu koma þessari uglu á legg, en hún þarf að læra að afla sér matar. Við getum ekki kennt henni það,“ bætir Stella við. „En ég sagði þeim bara að koma með ungann og hann tekur allavega vel við mat hjá okkur og er alveg afskaplega hress,“ segir Stella. Aðspurð segist Stella ekki sjá neitt að brandugluunganum enn sem komið er. „En við eigum eftir að sjá það betur,“ útskýrir Stella . - ósk Björgun branduglu varð bjarnargreiði Krakkar í Vinnuskólanum rákust á brandugluunga sem virtist hafa týnt foreldrum sínum á Hólmsheiði í vikunni. Þau afhentu Húsdýragarðinum ungann. Dýrahirðir segir það oftast ekki æskilegt að taka unga frá foreldrum sínum í náttúrunni. EINN OG YFIRGEFINN Ef eitthvað er að ungum eru þeir oft skildir eftir af for- eldrum sínum í náttúrunni og þurfa að gera tilraun til að bjarga sér sjálfir. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Yfirleitt er best að láta dýr vera í svona að- stæðum. Leyfa náttúrunni að sjá um þau. Stella Kristjánsdóttir, dýrahirðir í Húsdýragarðinum. Þorvaldur Davíð Kristjánsson gladdi landsmenn í vikunni þegar fréttir bárust þess efnis að hann hefði tryggt sér hlutverk í Hollywood-kvikmyndinni Dracula. Mikið hefur mætt á Snorra Magnússyni, formanni Landssambands lögreglu- manna, eftir að umdeild handtaka á Laugaveginum fór vítt og hratt um net- heima. Ver hann sinn lögreglumann, sem frétti af brottvikningu sinni á fésbókinni. Þorleifur Gunnlaugsson, varaborgarráðs- fulltrúi Vinstri grænna, lét í sér heyra þegar sala á skuldabréfum Magma í Orkuveitu Reykjavikur fór fram. Sagði hann óeðlilega mikla leynd yfir söluferlinu. ÁTJÁN ÁRA ALDURSMUNUR 36 Katrín Jónsdóttir og Glódís Perla Viggósdóttir spiluðu saman í hjarta íslensku varnarinnar gegn Noregi á EM í Svíþjóð á fi mmtudagskvöldið. SPILAÐ NÁNAST ALLAR STÖÐUR 37 Dóra María Lárusdóttir á bara eft ir að spila í stöðu miðvarðar og markvarðar í íslenska landsliðinu. FRÉTTIR 2➜8 SKOÐUN 10 HELGIN 12➜28 SPORT 36➜37 MENNING 32➜44 www.fronkex.is Súkkulaðibitakökur kemur við sögu á hverjum degi

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.