Fréttablaðið - 13.07.2013, Síða 8

Fréttablaðið - 13.07.2013, Síða 8
13. júlí 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8 MENNING „Viðtökur og stuðningur áheyr- enda hefur verið slíkur að hópurinn hefur nær tvöfaldast síðan við fluttum í Hörpu,“ segir Arna Kristín Einarsdóttir, nýráðin framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Nú fyrir skemmstu var dagskrá nýs starfsárs Sinfóníunnar kynnt. „Ég hef afar sterka sýn á það hvernig hljómsveitir eigi að nota krafta sína til að gera sig gildandi og láta til sín taka í sam- félaginu, eins og til dæmis með auknu vægi fræðsluverkefna af ýmsum toga. Tónlistin er svo sterkt afl. Hún setur fólk í samband við tilfinningar sínar,“ bætir Arna Kristín við. „Slíkt afl er hægt að nota mjög víða í samfélaginu til góðs. Mitt markmið er að hljómsveitin snerti strengi í hjörtum sem flestra,“ útskýrir Arna Kristín. Ljóst er að Sinfóníuhljómsveitin bygg- ir á breiðum grunni. Á næsta starfsári munu rússneskir meistarar á borð við Dimitri Kitajenko og Vladimir Ashke- nazy stjórna hljómsveitinni auk þess sem hún tekur þátt í Airwaves-hátíðinni í annað sinn, svo eitthvað sé nefnt, þannig að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. - ósk Miklar breytingar hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands eftir flutningana í nýja tónlistarhúsið: Áheyrendahópurinn tvöfaldaðist í Hörpu SKATTUR Íslendingum sem yfirgefa skattaskjólin og gera sjálfviljugir grein fyrir eignum sínum og fjár- munum í útlöndum hefur fjölgað, að sögn Steinþórs Haraldssonar, skrif- stofustjóra hjá Ríkisskattstjóra. „Það er orðið erfiðara að geyma eignirnar erlendis þótt það opnist að vísu alltaf nýjar gáttir. Ég veit til þess að „sómakærir“ fram- teljendur, sem eru hreinlega í vand- ræðum með eignir sem hafa „lent“ á aflandsreikningum, hafi leitað til sérfræðinga um hvernig eigi að koma þessum peningum aftur í umferð án þess að bíða tjón af. Okkar hlutverk er að fylgjast með þessu og einnig þeim sem sjá að sér,“ greinir Steinþór frá. Að sögn Steinþórs er ekki hægt að segja til um hversu margir hafi sjálfviljugir ákveðið að telja allt fram. „Við höfum ekki haldið kerfis bundið utan um fjöldann. Þessi mál geta auk þess verið mjög flókin,“ segir hann. Ríkisskattstjóra er heimilt að bæta 25 prósenta álagi við endur- útreikninga á vantöldum skatt- stofnum þegar menn koma úr felum. Upphæðirnar sem um er að ræða eru í mörgum tilvikum veru- lega háar, að því er Steinþór segir. Steinþór getur þess að auðvitað sé það oftast að frumkvæði skatta- yfirvalda sem menn opna sínar bækur. „Þá er þetta meira á skatt- rannsóknarstigi og athugað hvernig menn hafa eignast fjármunina. Við tökum auðvitað skýringar gildar ef menn hafa greitt tekjuskatt annars staðar og ef inneign hefur myndast með eðlilegum hætti. Það fer eftir eðli máls hvort skattsektum eða almennum refsiúrræðum er beitt.“ Alþjóðleg samvinna í skatta- málum til þess að koma í veg fyrir undanskot frá skatti fer vaxandi, að því er Steinþór bendir á: „Alþjóð- lega samfélagið er farið að horfa öðruvísi á þetta en áður. Sú til- hneiging nær hingað til lands með einhverjum hætti.“ ibs@frettabladid.is Fleiri úr felum skattaskjóla Erfiðara er að geyma eignir erlendis segir skrifstofustjóri hjá Ríkisskattstjóra. Upphæðir eru oft mjög háar. Fólk reynir að koma peningum í umferð án þess að bíða tjón af. Alþjóðleg samvinna í skattamálum fer vaxandi. SJÁVARÚTVEGUR Börkur NK kom til löndunar í Neskaupstað í gær með 680 tonn af makríl og síld. Veiði hafði verið heldur treg frá því að skipin sem landa í fiskiðjuver Síldarvinnslunnar hófu vertíðina en hefur verið að glæðast verulega síðustu daga. Nú hefur rúmlega þrjú þús- und tonnum af makríl og síld verið landað til vinnslu í fisk- iðjuverinu og mun framleiðslu- starfsemin hafa gengið vel. - ósk Veiði hafði verið heldur treg: Vertíðin glæðist fyrir austan NOREGUR Framkvæmdastjóri lág- gjaldaflugfélagsins Norwegian, Bjørn Kos, trúir á áframhaldandi vöxt fyrirtækisins, sem er að verða tíunda stærsta flugfélagið í Evrópu. Stækkun fyrirtækis- ins verður hins vegar á kostnað annarra, að hans mati. Hann telur að allir muni keppa við alla. Litlu flugfélögin muni hverfa. Í viðtali á fréttavef Dagens Næringsliv spáir Kos því að mörg flugfélög muni verða gjaldþrota finni þau ekki nýjar leiðir við reksturinn. Að mati framkvæmdastjórans mun jafnvægi ekki nást fyrr en eftir tvö til þrjú ár. - ibs Norwegian stækkar áfram: Flugfélögum er spáð gjaldþroti GRÆNLAND Danir eiga ekki að ákveða hvernig Grænlendingar lifa og borða, segir Karl Lyberth, sjávarútvegsráðherra Græn- lands, í aðsendri grein í Politiken. Lyberth segir að danska utan- ríkisráðuneytið hafi krafist þess að Grænlendingar leggi fyrir Alþjóðahvalveiðiráðið nýja tillögu um hvalveiðikvóta sem sé undir ráðgjöf sjávarlíffræðinga um hversu mörg dýr megi veiða. Ráðherrann bendir á að margir Evrópubúar lifi í samfélögum þar sem menn fari í stórmarkað og kaupi innpakkað kjöt af ræktuð- um dýrum. Grænlendingar veiði sér hins vegar til matar. - ibs Grænlenskur ráðherra: Danir ákveði ekki mataræði Grænlendinga Það er orðið erfiðara að geyma eignirnar erlendis þótt það opnist að vísu alltaf nýjar gáttir. Steinþór Haraldsson skrifstofustjóri hjá Ríkisskattstjóra. SKATTASKJÓL Íslendingar hafa átt mikla fjár- muni í Lúxemborg. Margir eigendur aflandsreikninga reyna nú að koma sínum málum á hreint gagnvart Ríkisskattstjóra. Eftir eðli mála fer hvort refsingum er beitt. VILL SNERTA STRENGI Í HJÖRTUM SEM FLESTRA Arna Kristín Einarsdóttir er nýráðinn framkvæmda- stjóri Sinfóníu- hljómsveitar Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR LÁGGJALDAFLUGFÉLAG Stækkun Norwegian verður á kostnað annarra. www.rafhjol.is Sími: 588 4567 LÍKNARMÁL Ofurhlaupararnir Anna Sigríður Sigur- jónsdóttir og vinkonur hennar, þær Christine Bucholz og María Jóhannesdóttir, hlaupa nú norður Kjöl og suður Sprengisand til styrktar MS félaginu. Anna hefur verið með hugmyndina í kollinum síðast liðin tvö ár, þar sem sjúkdómurinn tengist henni persónulega. Greindist systir hennar með hann fyrir átján árum. Þetta segir Sólveig M. Jóns- dóttir, upplýsingafulltrúi hópsins, en hún fylgir þeim stöllum eftir á ferð þeirra. „Veðrið hefur ekki leikið við þær og því hefur ekki verið skemmtilegt að tjalda. En það hefur alls staðar verið tekið svakalega vel á móti okkur og við höfum fengið fría gistingu,“ segir hún glöð í bragði. „Anna Sigríður vill að það náist inn fimm milljónir,“ segir Sólveig en segist ekki gera sér neina grein fyrir því hvað safnast hafi nú þegar. „MS félagið hefur þá ósk að eyrnamerkja þennan sjóð sem safnast í að gefa fólki tækifæri til að ferðast.“ Stöllurnar hlaupa um fimm klukkustundir á dag án þess að nema staðar. „Þær rétt stoppa til að drekka vatn, varla hægt að kalla það stopp,“ segir Sólveig. Söfnunarhlaupinu lýkur 15. júlí þegar þær hlaupa inn í hálendismiðstöðina Hrauneyjar. Verða þær þar um fjögurleytið. - nej Ofurhlauparinn Anna fékk tvær vinkonur sínar með sér í styrktarför: Hlaupa til styrktar MS-félaginu HLAUPIÐ FYRIR MS Anna Sigríður, Christine og María hlaupa í fimm klukkustundir á dag án þess að stoppa.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.