Fréttablaðið - 13.07.2013, Síða 28
Um er að ræða fjölbreytt, gefandi og krefjandi starf sem snertir margar hliðar frístundastarfs. Unnið er í
samstarfi við frístunda- og menningarfulltrúa og eldri borgara í Vogum að skipulagi og framkvæmd félagsstarfs.
Meðal verkefna:
• Umsjón með skipulagi og þátttaka í starfi í Álfagerði
• Umsjón með hádegisverð virka daga í Álfagerði
• Samskipti og samstarf við öldungaráð
• Samskipti við starfsfólk í félagsstarfi aldraðra í öðrum sveitarfélögum
Hæfni:
• Færni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði
• Íslenskukunnátta
• Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi.
• Skipulagshæfileikar
• Sveigjanleiki
• Hæfni til að vinna sjálfstætt
Um starfið:
• Starfshlutfall er 70%. Vinnutími er kl. 11:00 – 17:00 mánudaga – fimmtudaga og kl. 11 – 13 á föstudögum.
• Starfstími er frá 1. september til 10. júní.
• Umsækjandi þarf að vera 30 ára eða eldri
• Starfið heyrir undir frístunda- og menningarfulltrúa
Um framtíðarstarf er að ræða. Reiknað er með að viðkomandi hefji störf 15. ágúst. Upplýsingar um starfið gefur
Stefán Arinbjarnarson, frístunda- og menningarfulltrúi, í síma 440 6225 eða á netfangi stefan@vogar.is
Laun fara eftir samningum Starfsmannafélags Suðurnesja og Launanefndar sveitarfélaga.
Umsóknafrestur er til og með 31. júlí, 2013. Umsóknum skal skilað á netfangið stefan@vogar.is
Sveitarfélagið Vogar auglýsir laust til umsóknar
starf við félagsstarf aldraðra í Álfagerði.
MATRÁÐUR ÓSKAST
Laus er staða matráðs í Barnaskóla
Hjallastefnunnar og Leikskólanum
Öskju sem staðsettir eru við rætur
Öskjuhlíðar í 101 Reykjavík.
Viðkomandi þarf að kunna að elda
fjölbreytta og næringarríka fæðu,
vera flink/ur í gerð grænmetisrétta
og fylgja þróun hollustustefnu
skólanna þar sem allur matur er
unninn frá grunni úr gæðahráefni.
Áhugasamir eru hvattir til að hafa
samband við Dóru í síma 699 0513
eða Kristínu í síma 897 2654.
Fjarðabyggð
Framkvæmdasvið Fjarðabyggðar leitar að öflugu starfsfólki
til starfa hjá ört vaxandi sveitarfélagi.
Eigna- og framkvæmdafulltrúi
Hefur umsjón og eftirlit með öllum fasteignum Fjarðabyggðar og heldur utan um viðhalds- og nýframkvæmdir
sveitarfélagsins í samvinnu við mannvirkjastjóra.
Leitað er að aðila með verkfræði, tæknifræði eða sambærilega menntun á háskólastigi.
Aðstoðarmaður skipulags- og byggingafulltrúa
Sinnir verkefnum á sviði skipulags- og byggingamála í samvinnu við skipulags- og byggingarfulltrúa.
Leitað er að aðila með verkfræði, tæknifræði eða sambærileg menntun á háskólastigi.
Þjónustufulltrúi á framkvæmdasviði
Dagleg umsjón með skjala- og teikningavörslu.
Leitað er að aðila með menntun sem nýtist í starfi og almenna tölvukunnáttu
Nánari starfslýsingar eru á vefforsíðu fjardabyggd.is undir „Laus störf“.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum LN við viðkomandi stéttarfélag.
Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um störfin.
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Elíasson, mannvirkjastjóri, í síma 470 9019.
Umsóknir skulu sendar á netfangið gudmundur.eliasson@fjardabyggd.is merkt umsókn um starf á framkvæmdasviði.
Umsóknarfrestur er til og með 21. júlí 2013.
Mjóifjörður Norðfjörður Eskifjörður Reyðarfjörður Fáskrúðsfjörður Stöðvarfjörður
Fjarðabyggð er vaxandi sveitarfélag á Austurlandi og það fjölmennasta með ríflega 4.600 íbúa. Bæjarkjarnar þess eru sex talsins eða Mjóifjörður, Neskaupstaður, Eskifjörður, Reyðar-
fjörður, Fáskrúðsfjörður og Stöðvarfjörður. Framkvæmdasvið Fjarðabyggðar vinnur að fjölbreyttum verkefnum í hverjum þeirra í samstarfi við stjórnsýslunefndir bæjarins og opinberar
fagstofnanir. Í mannauðsstefnu Fjarðabyggðar er áhersla lögð á vandaða stjórnsýsluhætti við ráðningar, gott starfsumhverfi og jöfn tækifæri karla og kvenna.
Ert þú röskur og lífsglaður sölusnillingur sem
hefur áhuga á heilbrigðu líferni? Í boði er starf
á líflegum vinnustað í jákvæðu starfsumhverfi.
Á meðal verkefna er að annast tilboðsgerð
og frágang sölusamninga auk þess að annast
viðhald viðskiptatengsla og öflun nýrra
viðskiptavina. Vinnutími er 11-19 mán til fim
og 09-17 á fös. Viðkomandi þarf að uppfylla
eftirfarandi hæfniskröfur:
Hefur reynslu af sölustörfum
Er samviskusamur og metnaðarfullur
Býr yfir framúrskarandi þjónustulund og hæfni í
mannlegum samskiptum
Hefur frumkvæði og á gott með að vinna í teymi
Er reyklaus
Áhugasamir sendi umsókn ásamt ferilskrá
með mynd og upplýsingum um meðmælendur á
netfangið hreyfing@hreyfing.is fyrir 22. júlí.
SÖLUSNILLINGUR
Rafkaup hf - Ármúla 24 - 108 Reykjavík - www.rafkaup.is
Rafkaup er þjónustufyrirtæki sem
sérhæfir sig í sölu og þjónustu á
lömpum, lampabúnaði, ljósaperum
og innlagnaefni.
Rafkaup er umboðsaðili þekktra
vörumerkja eins og SYLVANIA,
DELTA LIGHT og IGUZZINI.
Rafkaup var stofnað árið 1982.
Sölumaður í verslun
Rafkaup óskar eftir sölumanni í verslun sína við Ármúla
Starfslýsing:
Almenn verslunarstörf, s.s. sölumennska, vöruframsetning, innkaup,
áfylling og fleira. Vinnutími er alla virka daga frá kl. 10:00 - 18:00 og
tveir laugadagar í mánuði frá kl. 11:00 - 16:00.
Hæfniskröfur:
Reynsla af verslunarstörfum, sjálfstæð vinnubrögð, góð þjónustulund,
stundvísi og gott skipulag.
Einungis reyklausir einstaklingar eldri en 25 ára koma til greina.
Æskileg er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir ásamt
ferilskrá skal senda til atvinna@rafkaup.is fyrir 19. júlí.
Trésmiðir / Kranamenn
Smiðir og kranamenn óskast til starfa sem fyrst
vegnaaukinna verkefna fyrirtækisins.
Hægt er að sækja um á heimasíðu Eyktar. eykt@eykt.is
Nánari upplýsingar veitir Heiðdís Búadóttir
alla virka daga milli kl 09:00 -16:00 í síma 822-4415
Eykt ehf. Stórhöfða 34-40. 110 Reykjavík S: 595-4400