Fréttablaðið - 13.07.2013, Page 46
13. júlí 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 26
Heilabrot
Teikningar og texti: Bragi Halldórsson
52
„Er þetta ekki talnavölundarhúsið þar sem við eigum að byrja
á bláu tölunni neðst og með því að fylgja bara sléttum tölum
lárétt og lóðrétt en ekki á ská, finna leið upp á topp
teningsins, bláu tölunnar sex?,“ spurði Kata. „Jú,“ sagði
Lísaloppa. „Við eigum að fylgja sléttu tölunum 2, 4, 6, og 8.“
„Mig minnti það,“ sagði Kata. „Mér gekk nú ekkert of vel síðast
þegar við glímdum við svona þraut en nú skal það ganga betur,“
sagði hún ákveðin og keppnisskapið leyndi sér ekki.
Getur þú fundið leiðina í gegnum teninginn með því að fylgja
sléttu tölunum lárétt og lóðrétt?
8 6 2 5 3 7 8 6 2 5 7 9
2 5 2 4 1 8 4 3 7 8 3 2
6 8 5 6 4 2 5 4 2 6 7 6
5 4 8 1 7 4 5 9 3 8 2 4
2 5 2 2 6 5 2 3 6 3 5 6
3 4 2 3 5 1 2 6 4 2 8 4
4 6 4 2 5 2 9 1 3 6 2 9
7 6 7 3 1 3 7 3 2 8 7 8
5 8 9 4 8 4 2 5 4 3 9 2
6 8 5 2 1 3 6 8 6 4 2 6
2 1 6 4 3 7 3 2 8 2 7 2
2 6 4 7 8 6 8 4 5 1 5 6
1. Þrír menn komu á bæ.
Þeir voru spurðir að heiti:
Fyrsti sagðist heita það sem hann var.
Annar sagðist heita það sem hann er.
Þriðji sagðist heita það sem hann verður.
Hvað hétu þeir?
2. Rómverskur riddari reið
inn í Rómaborg rændi og
ruplaði rabarbara og rófum.
Hvað eru mörk R í því?
3. Maður byggir sér hús. Allar
fjórar hliðar þess snúa í
suður. Björn gengur fram
hjá húsinu. Hvernig er hann
á litinn?
SVÖR:
1. a) Sveinn, b) Gestur, c) Karl 2. Það er ekkert R í ÞVÍ 3. Hvítur. Húsið
stendur á norðurpólnum.
Hvað heitir þú fullu nafni og
hvað ertu gömul? Íris Björk
Ágústsdóttir og er 11 ára.
Hvenær lærðir þú að lesa?
Þegar ég var sex ára.
Hvað er skemmtilegt við að
lesa bækur? Það sem gerist í
þeim gerist sjaldnast í alvörunni.
Manstu eftir fyrstu bókinni
sem var í uppáhaldi hjá þér?
Það var Palli var einn í heim-
inum.
Hvers lags bækur þykja þér
skemmtilegastar? Skáldsögur.
Aðallega um vampírur.
Hvaða bók lastu síðast og
hvernig var hún? Artemis Fowl
og hún var mjög skemmtileg.
Í hvaða hverfi býrð þú? Hlíð-
unum.
Í hvaða skóla gengur þú? Hlíða-
skóla.
Hvaða námsgrein er skemmti-
legust? Bókasafnstímar.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Bara fótbolti.
Bókaormur vikunnar
ÍRIS BJÖRK „Skemmtilegast að lesa um vampírur,“ segir hún.
Hvað heitir þú fullu nafni og
hversu gamall ertu? „Ég heiti
Mímir Bodinaud og er 15 ára.“
Ertu búinn að vera lengi í
Vinnuskóla Reykjavíkur? „Ég
er bara búinn að vera í nokkra
daga.“
Lærir þú mikið þar sem þú
kunnir ekki áður og þá hvað?
„Nei, ég læri nú ekki mikið.“
Sérðu umhverfið með öðrum
augum eftir að þú fórst að
vinna í Vinnuskólanum? „Já, ég
sé umhverfið öðruvísi eftir að
fara í Vinnuskólann, núna veit ég
hvað er arfi og hvað er ekki arfi.“
Hvað ertu helst að gera? „Ég er
mest að hreinsa arfa allan dag-
inn og það er ekkert spennandi.“
Hvaða verk er skemmtilegast
og hvers vegna? „Mér finnst
skemmtilegast að slá grasið, þá
er ég ekki að reyta arfa.“
Hefurðu verið í Vinnuskólan-
um áður? „Nei, þetta er í fyrsta
skipti.“
Gætir þú hugsað þér að verða
verkstjóri í Vinnuskólanum?
„Nei, ég yrði ömurlegur verk-
stjóri.“
Er fjör í vinnunni? „Já, já,
stundum.“
Hvað vinnur þú marga klukku-
tíma á dag og í hversu margar
vikur? „Ég vinn frá 8.30 til 15.30
í þrjár vikur.“
Hvað er best við Vinnuskólann?
„Það eru pásurnar.“
En hvað er verst? „Að vinna í
rigningu.“
Pásurnar eru bestar
Mímir Bodinaud er einn þeirra fj ölmörgu unglinga landsins sem tekur til hend-
inni við að prýða umhverfi ð. Hann er nýlega byrjaður í Vinnuskóla Reykjavíkur
og var að hreinsa beð við Laugalækjarskóla þegar hann var gómaður í spjall.
VINNUMAÐUR Mímir Bodinaud er að taka sín fyrstu skref á vinnumarkaðinum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Ég sé umhverfið öðruvísi eftir
að fara í Vinnuskólann, núna veit
ég hvað er arfi og hvað er ekki arfi.Á Vísi er hægt að horfa
myndskreyttan upplest
úr þessum sígildu
ævintýrum.
Hlustaðu á Dísu ljósálf
og Alfinn álfakóng á Vísi
á
ur
Ævintýrið um Dísu ljósálf kom fyrst út á íslensku árið 1928
í þýðingu Árna Óla og hefur margsinnis verið endurprentað.
Dísa ljósálfur er ein klassískra sagna hollenska meistarans
G.T. Rotman, sem fylgt hafa íslenskum börnum í tugi ára.