Fréttablaðið - 13.07.2013, Page 54
13. júlí 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 34
BAKÞANKAR
Hildar
Sverrisdóttur
Borið hefur á auknum áhuga á þríþrautarkeppnum
undan farin ár á Íslandi en þann 14. júlí fer fram Íslands-
meistaramót í þríþraut. Keppnin, Herbalife
hálfur Járnmaður er einn stærsti íþrótta-
viðburður sinnar tegundar í Hafnarfirði
og er þetta í sjöunda sinn sem keppnin er
haldin. „Þetta er frábær skemmtun fyrir
alla að horfa á og margt af okkar besta
íþróttafólki mætir til leiks en þar munu
meðal annars Ólympíufararnir Kári Steinn
og Jón Margeir taka þátt í liðakeppninni
og líka Marta Ernstsdóttir, sem er
einn frægasti langhlaupari lands-
ins,“ segir Svana Huld Linnet,
formaður 3SH. Keppt verður í
þríþraut í vegalengdinni hálfur
Járnmaður sem er 1.900 metra
sund, 90 km hjólreiðar og svo er hlaupið
21,1 km, sem er hálfmaraþon. Skráðir
keppendur eru 66 talsins en skráning
er opin öllum. Í liðakeppninni taka 24
þátt. Keppnin hefst kl. níu í Hafnar-
firði, nánar tiltekið í Ásvallalaug og hjól-
að verður meðfram Krísuvíkurvegi
og svo er hlaupið um vell-
ina. Að baki keppninni
stendur þríþrautarfélagið
3SH sem er hluti af Sundfélagi
Hafnarfjarðar og er Herba-
life-styrktaraðili
ásamt öðrum
velunnur-
um. - mmm
Vinsældir þríþrautarkeppna aukast
Íslandsmeistaramótið Herbalife hálfur Járnmaður er haldið í sjöunda sinn
þann 14. júlí við Ásvallalaug í Hafnarfi rði
SVANA HULD LINNET
Í íslenskum kveðjum eru klassískar óskirnar um blessun guðs, en fallegasta
kveðjan finnst mér vera vertu sæll. Komdu
sæll gæti hins vegar skilist eins og það
megi ekki vera leiður, sem hlýtur að vera
frekar tilætlunarsamt um líðan annarra –
eins og spurningin hvað segir þú gott?
HJÁ fámennri þjóð er sniðugt að hafa
búið til kerfi þar sem það er nógu
kurteist að nikka höfði til kunningja
sinna á förnum vegi. Annað væri bara
of tímafrekt. Þegar aðstæður kalla á að
meira púður sé lagt í hittinginn örlar
þó oft á skemmtilega áhugaverðum
vandræðagangi í því hverjar etikett-
urnar eru.
ÉG þekki konu sem kyssir alla á
munninn, en flestir láta sér nægja að
smella kossi á kinn. Við höfum þó ekki
enn búið til kerfi um hvor kinnin er
kysst. Báðir aðilar stefna þá oft í sömu
átt með þeim afleiðingum að rekast
á og fara nánast í sleik þótt það hafi
alls ekki verið á dagskrá. Við nefni-
lega látum ekki nægja að notast við
létta kossa út í loftið eins víða erlendis.
Hér duga engin slík vettlingatök og er koss-
inum því smellt kyrfilega á með smelli og
tilheyrandi. Greyið sóttvarnalæknir.
KANNSKI er það út af norðanáttinni að
við splæsum bara tíma í einn koss en ekki
fleiri. Einhverjir hafa þó búið eitt sumar í
París og finnst einhverra hluta vegna ekk-
ert sjálfsagðara en að taka kossa venjurnar
með sér heim og brúka hiklaust á ósiglda
samlanda sína. Maður lendir því líka nánast
í sleik við heimkomna Parísar búann þegar
hann heldur óvænt áfram leið sinni á kinn
númer tvö. Ballið byrjar svo þegar koss-
arnir verða óvænt þrír eða jafnvel fjórir frá
þeim sem bjuggu sko mörg sumur við Mið-
jarðarhafið.
ÞAÐ er auðvitað hressandi að lenda óvart
í misskildum sleik á Laugaveginum og
kannski engin ástæða til að ferla einhverjar
hefðir til að koma í veg fyrir svona krúttleg
vandræðalegheit. Kannski er það bara jafn
íslenskt eins og að segja jæja – bara viðeig-
andi að þegar við heilsumst geti það verið
jafn óútreiknanlegt og veðrið.
VERIÐI sæl.
Blessuð!
SPARBÍÓ
KL. 13 SMÁRABÍÓ
KL. 15 HÁSKÓLABÍÓ
MEÐ
ÍSLENSKU
TALI
2D3D KL. 15.10 HÁSKÓLABÍÓ Í 2D
KL. 13 SMÁRABÍÓ Í 2DKL. 13 SMÁRA
BÍÓ Í 2D OG 3D
MEÐ
ÍSLENSKU
TALI
2D
KL. 15 HÁSKÓLABÍÓ
FRÁ HÖFUNDUM SUPERBAD
KL. 15.20 HÁSKÓLABÍÓ Í 3D
ÞÆR VILJA BARA TÓRA
NÓGU LENGI TIL AÐ
DREPA HVOR AÐRA
DAGSKRÁIN ER Á WWW.BIOPARADIS.IS OG MIDI.IS
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
AKUREYRI
MERKTAR MEÐ GRÆNU OG APPELSÍNUGULU Í BÍÓAUGLÝSINGUM
SAMBÍÓA KR. 1000 Á GRÆNT OG KR. 750 Á APPELSÍNUGULT
SPARBÍÓ
EMPIRE
H.S.S. - MBL
WORLD WAR Z 2 - 8 - 10.30
THE HEAT 2 - 5 - 8 - 10.30
THIS IS THE END 8 - 10.20
THE ICEMAN 5
THE PURGE 6
EPIC 2D 2 - 4
Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu.
EKKERT EYÐILEGGUR GOTT
PARTÝ EINS OG HEIMSENDIR!
5%
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
WORLD WAR Z 3D KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
WORLD WAR Z 3D LÚXUS KL. 3 - 5.30 - 8 - 10.30 12
THE HEAT KL. 1 (TILBOÐ) -3 - 5.30 - 8 -10.30 12
THIS IS THE END KL. 5.30 - 8 - 10.30 16
THE LONE RANGER KL. 5 - 8 12
WHITE HOUSE DOWN KL. 11 16
EPIC 2D ÍSL.TAL KL. 1 (TILBOÐ) - 3.15 L
EPIC 3D ÍSL.TAL KL. 1 (TILBOÐ) - 3.15 L
THE CROODS 2D Í SL.TAL KL. 1 (TILBOÐ) L
THE HEAT KL. 3 (TILBOÐ) - 5.30 - 8 - 10.30 12
THIS IS THE END KL. 3 (TILBOÐ) - 5.30 - 8 - 10.30 16
WHITE HOUSE DOWN KL. 8 - 10.50 16
THE PURGE KL. 10.35 16
THE INTERNSHIP KL. 5.25 - 8 7
EPIC 3D ÍSL.TAL KL. 3.20 (TILBOÐ) - 5.45 L
THE CROODS 2D ÍSL.TAL KL. 3.10 (TILBOÐ) L
THE HEAT KL. 5.40 - 8 -10.10 12 / THIS IS THE END KL. 8 - 10.10 16
WHITE HOUSE DOWN KL. 5.40 16
EPIC 2D / EPIC 3D KL. 3.40 (TILBOÐ) L
D.M.S, MBL
T.V., S&H S.G.S., MBL
Miðasala á: og