Fréttablaðið - 13.07.2013, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 13.07.2013, Blaðsíða 56
13. júlí 2013 LAUGARDAGUR| SPORT | 36 1. DEILDIN 2013 VÖLSUNGUR - VÍKINGUR 1-3 0-1 Sigurður Egill Lárusson (17.), 1-1 Halldór Orri Hjaltason (53.), 1-2 Dofri Snorrason (55.), 1-3 Sigurður Egill Lárusson (89.). TINDASTÓLL - HAUKAR 2-1 1-0 Steven Beattie (11.), 1-1 Hilmar Geir Eiðsson (39.), 2-1 Elvar Páll Sigurðsson (76.). ÞRÓTTUR - KA 0-1 0-1 Ivan Dregicevic (21.). STAÐAN Grindavík 10 7 1 2 25-11 22 Víkingur 10 5 4 1 20-12 19 Haukar 10 5 3 2 18-14 18 Fjölnir 10 4 3 3 12-14 15 BÍ/Bolungarv. 9 5 0 4 17-20 15 Selfoss 10 4 2 4 18-16 14 KA 10 4 2 4 12-14 14 Leiknir 9 3 4 2 14-12 13 Tindastóll 10 2 5 3 11-14 11 KF 10 2 4 4 12-13 10 Þróttur 10 2 2 6 9-14 8 Völsungur 10 0 2 8 7-21 2 Óskar Ófeigur Jónsson ooj@frettabladid.is Skrifar frá Svíþjóð EM KVENNA 2013 HANDBOLTI „Leikmannamarkað- urinn er frekar þunnur og ekki margir sem eru tilbúnir að koma og spila frítt,“ segir Alexander Arnarson, varaformaður hand- knattleiksdeildar HK. Fjölmargir sterkir leikmenn hafa yfirgefið liðið að undanförnu, en aðeins rúmt ár er síðan HK fagnaði Íslands- meistaratitlinum. Tandri Már Konráðsson er farinn í atvinnumennsku líkt og Bjarki Már Gunnarsson. Þá leikur hornamaðurinn Bjarki Már Elísson með FH á næstu leiktíð og Arnór Freyr Stefánsson er farinn í ÍR, svo helstu nöfnin séu nefnd. „Arnór fór aftur heim í ÍR, sem var viðbúið, og Bjarki Már Elísson er auðvitað frábær leikmaður og kannski ekki alveg tilbúinn í þetta. Átti auðvitað inni laun hjá okkur þannig að maður skilur þreytu í leikmönnum.“ Alexander segir veturinn hafa verið erfiðan fjárhagslega. Enn sé verið að glíma við gamla drauga frá þeim tíma þegar hrunið skall á. Þá voru sjö erlendir leikmenn á mála hjá félaginu sem þurfti að greiða laun. „Þá vorum við með erlenda leik- menn sem voru með 3.000 evrur á mánuði,“ segir Alexander. Í kjöl- far hrunsins hafi sú upphæð svo til tvöfaldast í íslenskum krónum. Fór úr um 250 þúsund krónum í nærri hálfa milljón. „Þetta hefur haft áhrif á rekstur- inn og við höfum reynt að finna leiðir. Þar af leiðandi ákváðum við að leggja meiri metnað í umgjörð og þjálfun,“ segir Alexander. Þeir séu samt bjartsýnir og hópurinn sé ágætur þótt hann sé vissulega ekki breiður. „Við erum með ágætan hóp og vonandi getum við byggt á þess- um hópi og eflt hann til muna. Við erum ennþá stærsta handknatt- leiksdeildin á landinu þó svo að nokkrir leikmenn yfirgefi okkur.“ Hann segir þá leikmenn sem voru á launaskrá í vetur eiga laun inni en upphæðirnar séu misháar. Erfitt sé að sjá á eftir strákunum. „Þetta eru strákar sem urðu Íslandsmeistarar fyrir árið 2012 og félagið á þeim mikið að þakka. Við vonum bara að þeir geri góða hluti hvar sem þeir eru.“ - ktd Margir leikmenn eiga inni laun hjá okkur Leikmenn karlaliðs HK á næstu leiktíð spila án þess að þiggja laun. Margir lykilmenn hafa yfi rgefi ð félagið. MEISTARAR 2012 „Við tókum stóra ákvörðun í vor að taka út allar launagreiðslur. Þá lá fyrir að leikmenn yrðu annaðhvort áfram og spiluðu launalaust eða myndu leita á önnur mið,” segir Alexander. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FRJÁLSAR „Þetta var erfiður hálftími en það endaði með því að dómarinn dró þessa ákvörðun til baka,“ sagði Gunnar Páll Jóakimsson, þjálfari Anítu Hinriksdóttur, eftir viðburðar- ríkan dag á HM U17 í Úkraínu í gær. Aníta keppti í undanúrslitum í 800 m hlaupi og kom langfyrst í mark af öllum keppendum á 2:02,44 mínútum sem er tæpum tveimur sekúndum frá Íslandsmeti hennar. Hún blés varla úr nös eftir hlaupið í gær. Skömmu eftir að keppni lauk í greininni bárust fregnirnar af því að Aníta hafi verið dæmd úr leik fyrir að stíga á línuna en hlauparar verða að halda sig á sinni braut fyrstu 100 metrana. „Svo fór ég fram á að fá að skoða myndbandið og þá kom í ljóst að það var vonlaust að greina hvort hún hefði stigið á línuna,“ sagði Gunnar Páll við Fréttablaðið. Aníta á besta tíma allra keppenda sem eru komnir í úrslitahlaupið en það fer fram á morgun. Hún verður því að teljast sigurstrangleg en Gunnar Páll fer varlega í allar yfir- lýsingar. „Það er ekkert öruggt en ég myndi segja að hún ætti meira en helmings- líkur á sigri,“ segir hann. - esá, ktd Aníta dæmd úr leik en fær að hlaupa í úrslitunum SLAPP FYRIR HORN Aníta fær að keppa í úrslitum þrátt fyrir allt. EM KVENNA 2013 C-RIÐILL FRAKKLAND - RÚSSLAND 3-1 1-0 Marie-Laure Delie (21.), 2-0 Marie-Laure Delie (33.), 3-0 Eugénie Le Sommer (67.), 3-1 Elena Morozova (84.). ENGLAND - SPÁNN 2-3 0-1 Verónica Boquete (4.), 1-1 Eniola Aluko (8.), 1-2 Jennifer Hermoso (85.), 2-2 Laura Bassett (89.), 2-3 Alexia Putellas (93.). STAÐAN Frakkland 1 1 0 0 3-1 3 Spánn 1 1 0 0 3-2 3 England 1 0 0 1 2-3 0 Rússland 1 0 0 1 1-3 0 LEIKIR DAGSINS A-RIÐILL: ÍTALÍA - DANMÖRK KL. 16.00 FINNLAND - SVÍÞJÓÐ KL. 18.30 GOLF Íslenska karlalandsliðið í golfi situr í öðru sæti að loknum tveimur hringjum af þremur á Challenge Trophy-mótinu sem er undankeppni fyrir Evrópu- mót karlalandsliða. Okkar menn spiluðu næstbest allra í gær. Þrjú efstu liðin vinna sér inn þátttökurétt á Evrópumótinu og voru okkar menn þriðju eftir fyrsta dag. Þeir spiluðu enn betur í gær og enginn betur en Andri Þór Björnsson úr GR sem var í banastuði. Hann spilaði á 68 höggum eða fjórum undir pari eftir fimm fugla og einn skolla. Hann er í öðru sæti yfir alla kylf- ingana sextíu. Belgía er í fyrsta sæti með nokkuð hraustlegt tíu högga for- skot á Íslendinga. Í þriðja sæti er Slóvakía sex höggum á eftir Íslandi, en lokahringurinn fer fram á morgun. - ktd Kylfi ngarnir í sterkri stöðu FÓTBOLTI Kenny Jackett, knattspyrnustjóri enska C-deildar- liðsins Wolves, staðfesti við fjölmiðla ytra í gær að félagið væri í viðræðum við Eggert Gunnþór Jónsson um riftun á samningi hans við félagið. „Við viljum þakka Eggerti fyrir hans þjónustu og óskum honum alls hins besta í fram- tíðinni,“ sagði Jackett. Eggert kom frá skoska liðinu Hearts í janúar í fyrra en þá lék liðið í ensku úrvalsdeildinni. Stuttu eftir komu hans var Mick McCarthy sagt upp sem stjóra liðsins. Svo fór að Eggert spilaði aðeins sjö leiki með aðalliði Wolves en liðið fallið um tvær deildir á tveimur árum. Fjölmargir leikmenn hafa yfirgefið félagið síðan í vor og enn aðrir eru á sölulista. Eggerti, sem er 24 ára gamall, er því frjálst að finna sér nýtt félag. Hann á að baki nítján leiki með A-landsliði Íslands og fjölda leikja með yngri landsliðum. - esá Eggert Gunnþór laus allra mála SPORT Óska eftir að kaupa enskt english course tungumálnámskeið. Vantar 2 námskeið. Ég borga 30.000 fyrir námskeiðið Upplýsingar í 865-7013 FÓTBOLTI Þegar Glódís Perla Viggósdóttir fæddist í lok júní 1995 var Katrín Jónsdóttir komin í stórt hlutverk í efstu deild, búin að spila fimm A-landsleiki og hafði verið útnefnd efnilegasta knattspyrnu- kona landsins. Nú, átján árum síðar, spila þær stöllur hlið við hlið í miðri vörn íslenska landsliðsins. Glódís leysti Sif Atladóttur af síðasta hálftímann á móti Noregi, en íslenska liðið náði frábærum endaspretti í leiknum og tókst að tryggja sér sögulegt stig. „Ég var óvenjufljót að sofna miðað við það að vera að spila svona seint og þá spennu sem var tengd því að spila,“ segir Katrín en ekki alveg sömu sögu var að segja af Glódísi. Lengi að sofna „Ég var reyndar svoítið lengi að sofna, sem er kannski bara eðli- legt. Það var ekki auðvelt að koma inn á. Ég hugsaði bara um að þetta væri tækifærið mitt,“ segir Glódís Perla. Hún var næstum því búin að skora sjálfsmark í lokin en slapp. Glódís fer að hlæja vandræðalega þegar það er rifjað upp en fyrirlið- inn kemur henni strax til bjargar. „Það var aldrei nein hætta,“ segir Katrín. Fyrirliðinn er ánægð með nýja miðvörðinn. „Við erum búnar að spila svolítið saman í ár og hún hefur líka spilað með Sif. Hún er búin að standa sig rosalega vel, sem er alveg frá- bært,“ segir Katrín en er næsta Kata komin? „Ég segi bara að það sé næsta Glódís komin,“ segir Katrín létt. Þær Katrín og Glódís eiga svo sannarlega margt sameiginlegt. Báðar byrjuðu þær að sparka bolta í Kópavoginum (Katrín með Breiðabliki og Glódís Perla með HK), skiptu síðan yfir í Stjörn- una (Katrín lék með Stjörnunni sumarið sem Glódís fæddist) og voru kosnar efnilegustu leikmenn deildarinnar árið sem þær fengu bílprófið (Katrín 1994 og Glód- ís Perla 2012). Þær spiluðu sinn fyrsta landsleik þegar þær voru á sautjánda aldursári og báðar léku þær fyrsta landsleikinn sinn á móti Skotum. Þær eiga það einnig sam- eiginlegt að hafa spilað á bæði miðju og í framlínu þótt Glódís Perla hafi miklu miklu fyrr fært sig aftar á völlinn. Les leikinn mjög vel „Við eigum það líka sameiginlegt að okkur finnst bjúgu rosalega góð,“ segir Katrín og Glódís Perla tekur undir það skellihlæjandi. En hvað segir Katrín um Glódísi? „Hún er gríðarlega efnileg og er í raun bara orðin mjög góð. Hún hefur margt sem þarf til að vera góður varnarmaður. Hún er sterk í návígi, góð í skallaboltum og les leikinn vel, sem er afar mikilvægt sem miðvörður,“ segir Katrín um Glódísi. En hvað hefur Glódís lært mest af Katrínu þann tíma sem þær hafa verið saman í landslið- inu? „Ég held að ég sé búin að læra allt sem ég get af Kötu, bæði hvað varðar fótboltann og hvernig karakter hún geymir. Það væri alls ekki leiðinlegt að eiga svona feril,“ segir Glódís. „Hún þorir ekkert að segja neitt annað,“ heyrist í Katr- ínu, en Glódís ætti að eiga í henni fullkomna fyrirmynd. „Ég held að stefnan sé bara að vera jafnlengi í þessu,“ segir Glódís brosandi. Katrín ætlar að kveðja í haust og verður ekki aftur snúið úr þessu. „Auðvitað væri ég alveg til í að spila þangað til ég verð fimmtug en maður verður að fara að hlusta á líkamann sinn,“ segir Katrín, sem nýtur síðustu leikjanna til fulln- ustu. En er Glódís orðin leið á umræðunni um hversu ung hún er? „Mér finnst ég ekki vera svo ung lengur. Við getum sagt að ég sé búin að vinna mér inn ein- hverja reynslu og það mun nýtast mér. Það losaði aðeins um stressið að fá að koma inn á gegn Noregi,“ segir Glódís, klár í næsta leik og jafnvel í næstu átján ár í íslenska landsliðinu. Það verður samt verð- ugt og vandasamt verkefni að skila jafnmiklu til íslenska kvennalands- liðsins og hin eina og sanna Katrín Jónsdóttir. Átján ára aldursmunur Katrín Jónsdóttir og Glódís Perla Viggósdóttir spiluðu saman í hjarta íslensku varnarinnar síðasta hálft í- mann í sögulegu jafntefl i Íslands og Noregs í fyrrakvöld. Þær eiga margt sameiginlegt þegar betur er að gáð. ÖFLUGT MIÐVARÐAPAR Katrín og Glódís Perla á æfingu íslenska landsliðsins í Växjö í gær. Þær spiluðu saman síðusta hálftímann gegn Noregi. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKARÓ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.