Fréttablaðið - 13.07.2013, Page 62
13. júlí 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 42
„Þetta byrjaði þannig að ég fékk
símtal frá Helga Seljan eitt kvöldið
þegar ég var á þinginu þar sem
hann bað mig um að koma í Viku-
lokin. Eftir á að hyggja sé ég alveg
skítaglottið á honum í anda,“ segir
þingkona Bjartrar framtíðar, Björt
Ólafsdóttir, sem var gæsuð af vin-
konum sínum um síðustu helgi.
Björt mun ganga að eiga unnusta
sinn Birgi Viðarson síðar í sumar
en þau hafa verið par í tíu ár og
eiga saman einn son.
Björt segir að vegna anna á
þinginu hafi hún ekki haft ráðrúm
til að gruna einhvern um græsku
vegna komandi brúðkaups og
því gleypt við bláköldum lygum
Helga Seljan sem hafði verið feng-
inn til að hringja í Björt og ginna
hana upp í Útvarpshús þar sem
vinkonur hennar ætluðu að koma
henni á óvart. „Ég reyndar spurði
hann hvort hann væri byrjaður
að sjá um Vikulokin og hvort þau
væru vanalega tekin upp á laugar-
dagsmorgnum. Hann sagðist vera
í afleysingum og að það væri
búið að breyta upptökutímanum á
þættinum. Þannig að ég bara sam-
þykkti að mæta.“
Björt segist hafa verið frekar
þreytt og illa fyrirkölluð morg-
uninn sem útvarpsviðtalið átti
að eiga sér stað og aldrei þessu
vant mætt of seint. „Það var búið
að vera brjálað að gera á þinginu
fram á nótt og ég var ekkert
að nenna að setja mig í þennan
pólitíkusa-gír. En ég komst ekki
lengra en í anddyrið þar sem vin-
konur mínar tóku á móti mér,
bíðandi með kampavín.“
Björt varð að eigin sögn mjög
hissa yfir móttökunum. „Þetta
kom algjörlega á óvart og var mjög
skemmtilegt. Við byrjuðum á að
drekka kampavín uppi á RÚV og
spjalla og hlæja. Síðan tók eigin-
lega við eitt dekrið á eftir öðru
ásamt öðrum skemmtilegum uppá-
komum. Vinkonur mínar sögðu
mér að vinnuheitið á gæsaplan-
inu hafi verið „drepum hana með
dekri“, og það stóð fyllilega undir
nafni,“ segir Björt hlæjandi.
Dagskráin endaði síðan í matar-
boði heima hjá einni vinkonu
Bjartar þar sem Heiðar snyrtir
kom og lagði þeim lífreglurnar
í hinum ýmsu málum. „Það var
mikið hlegið, faðmast og kysst. Það
var svo dýrmætt að eiga þennan
dag saman og það hefði ekki þurft
að hafa neina sérstaka dagskrá.
Bara að fá að eyða deginum með
mínum yndislegu vinkonum er nóg
fyrir mig.“ hannarut@365.is
Þingkona Bjartrar
framtíðar gæsuð
Björt Ólafsdóttir hélt hún væri á leið í útvarpsviðtal en endaði í eigin gæsaveislu.
„Sem leikari, er það
ekkert mál að finna 400
manns sem finnst þú vera
heimskur, feitur og ljótur.“
LEIKKONAN AMY POEHLER
ÞYKIR EIN SKEMMTILEGASTA
LEIKKONAN Í HOLLYWOOD UM
ÞESSAR MUNDIR. HÚN GERÐI
GARÐINN FRÆGAN Í SATURDAY
NIGHT LIVE EN LEIKUR NÚ
AÐALHLUTVERKIÐ Í HINUM
BRÁÐSKEMMTILEGU ÞÁTTUM
PARKS AND RECREATION.
SÆL GÆS Björt Ólafsdóttir gengur í það heilaga síðar í sumar og var af því tilefni
gæsuð af vinkonum sínum síðastliðna helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR.
➜ Björt Ólafsdóttir er fædd
árið 1983 og er 1. þingmaður
Reykjavík norður. Hún er
með BA í sálfræði frá HÍ og
M.Sc. í mannauðsstjórnun frá
háskólanum í Lund í Svíþjóð..
BRYNJAR MÁR
Á VON Á STÚLKU
Brynjar Már Valdimarsson
tónlistarmaður á von á sínu fyrsta
barni með Önnu Christine Aclipen en
þau giftu sig fyrir stuttu. Brynjar birti
sónarmynd á Facebook-síðu sinni og
gaf upp kyn barnsins sem mun vera
stúlka. Það vakti athygli að
hjónakornin eru þegar
búin að nefna barnið
sem nú er 17 vikna,
en hún heitir
Bryanna Heaven
Aclipen. Fyrra
nafnið er samsett
úr nöfnum þeirra
hjóna.
- mmm
„Þetta eru fyrst og fremst skemmti-
þættir en um leið viljum við sýna
að á bak við hvern einasta fisk sem
er veiddur er hold og blóð,“ segir
Bubbi Morthens, sem vinnur nú að
gerð nýrrar sjónvarpsþátta raðar
sem hefur fengið nafnið Beint frá
messa. Að sögn Bubba eru þættir-
nir byggðir upp á svipaðan hátt og
þættirnir Beint frá býli, sem sýndir
voru á Stöð 2 síðastliðinn vetur.
Beint frá messa gengur út á að
taka hljómsveitir og tónlistar-
menn út úr sínu eðlilega umhverfi,
en flutningurinn fer fram í messa,
sem er annað orð yfir borðsal í
togara. „Við vorum á Reyðarfirði
í gær, þar sem Stuðmenn spiluðu
fyrir fjölskyldu og áhöfn á einum
af okkar stóru togurum, Aðalsteini
Jónssyni. Þetta var alveg æðislegt,“
segir Bubbi og bætir við að mikil
þörf sé á að sýna þjóðinni aðra hlið
á sjómennskunni en komi iðulega
fram í fjölmiðlum. „Það eina sem
við heyrum er áróður um að kvóta-
greifar séu glæpamenn og moki
milljörðum í vasann en á endanum
snýst þetta allt um fólkið í landinu.“
Þættirnir, sem verða fimm
talsins, verða á dagskrá Stöðvar 2
í haust. - hó
Tónlist og innsýn í líf sjómannsins
Bubbi Morthens snýr aft ur á skjáinn í haust með þáttinn Beint frá messa
Í STUÐI Stuðmenn eru ein þeirra
hljómsveita sem koma fram í þáttaröð
Bubba Morthens.
LISTAHÁTÍÐIN LUNGA
Listahátíðin LungA fer fram dagana
14.-21. júlí á Seyðisfirði. Um er að
ræða hátíð þar sem sköpun, listum og
menningu er fagnað með námskeiðum,
fyrirlestrum og öðrum viðburðum, en
henni lýkur með sýningum og
tónleikum. Ýmsir metnaðar-
fullir fatahönnuðir
halda hönnunarsýningu
föstudaginn 18. júlí kl. 22
í Norðursíld, en þar ber að
nefna Öglu Stefánsdótt-
ur, Björgu Skarphéðins-
dóttur, Elísabetu
Karlsdóttur, Lærke
Koldskov og Ziska
sem Harpa Einars-
dóttir stendur á bak
við. - mmm
BIRTING LÝSINGAR
Útgefandi: KLS, fagfjárfestasjóður, kennitala
700113-9810, Borgartúni 19, 105 Reykjavík
KLS, fagfjárfestasjóður, hefur birt lýsingu í tengslum við umsókn um að
flokkur eignavarinna skuldabréfa væri tekinn til viðskipta á skipulegum
verðbréfamarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. Lýsingin er dagsett 12. júlí
2013 og staðfest af Fjármálaeftirlitinu, gefin út á íslensku og gefin út
rafrænt og birt á vefsíðu Stefnis hf. sem er rekstraraðili sjóðsins, nánar
tiltekið á slóðinni www.stefnir.is/kaupholl. Lýsinguna má nálgast á
vefsíðunni næstu 12 mánuði. NASDAQ OMX Iceland hf. tilkynnir opin-
berlega ef skuldabréfin eru tekin til viðskipta og þá hvenær fyrsti
mögulegi viðskiptadagur með bréfin er á hinum skipulega verðbréfa-
markaði, en NASDAQ OMX Iceland hf. tilkynnir slíka dagsetningu með
að lágmarki eins viðskiptadags fyrirvara.
Skuldabréfin eru gefin út af KLS sem er fagfjárfestasjóður rekinn af
Stefni hf. Upphafleg höfuðstólsfjárhæð útgefinna skuldabréfa, sem öll
hafa verið seld, og heildarheimild útgáfu nemur 5.700.000.000 kr. að
nafnverði. Bréfin eru gefin út rafrænt í kerfi Verðbréfaskráningar
Íslands hf. Auðkenni flokksins er KLS 13 1. ISIN-númer skuldabréfanna
er IS0000022788. Bréfin eru gefin út í íslenskum krónum og er hver
eining skuldabréfanna 1 kr. að nafnverði. Tilgangur með því að fá skulda-
bréfin tekin til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði NASDAQ OMX
Iceland hf. er að tryggja fjárfestum að starfshættir og upplýsingagjöf
um m.a. fjárhagsstöðu útgefanda séu í samræmi við Reglur fyrir
útgefendur fjármálagerninga, útgefnar af NASDAQ OMX Iceland hf., eins
og þær eru á hverjum tíma, svo og að auka markaðshæfi skuldabréfanna.
Nánari upplýsingar um KLS og skuldabréfaflokkinn KLS 13 1 má finna
í lýsingu sjóðsins. Fyrirtækjaráðgjöf Fjárfestingabankasviðs Arion
banka hf. hafði umsjón með því ferli að fá skuldabréfin tekin til viðskipta
í Kauphöllinni.
Reykjavík, 12. júlí 2013
Stjórn Stefnis hf.
TIL SÖLU
Til sölu tvær lausar kennslustofur ásamt tengibyggingu.
Húsin standa við Smáraskóla, Dalsmára 1 Kópavogi.
Kaupandi sér um og kostar flutning á stofunum.
Húsin eru samtals 233m2. (Utanmál á stofunum er ca. 17,6x 6,25m).
Nánari upplýsingar veitir eignadeild Kópavogsbæjar sími 5701500
Kauptilboðum skal skila í þjónustuver Kópavogsbæjar Fannborg 2 eða
á netfang eignadeild@kopavogur.is fyrir 31. Júlí 2013.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
ÆSISPENNANDI
VIÐUREIGN
Í dag takast á grínistinn Rökkvi Vésteins-
son og Geir Ólafsson söngvari, ekki í
söng eða gríni heldur í glímu. Bardag-
inn fer fram í Mjölni og er talsverður
skjálfti í herbúðum kappanna. Rökkvi er
hærri og þyngri en Geir sem á móti er
harður í horn að taka og
snaggaralegur. Veðja má á
sigurvegarann hjá veð-
málafyrirtækinu Betsson
og sé litið til stuðla búast
veðmálasérfræðing-
arnir við æsispennandi
viðureign; líkur eru
metnar jafnar. Báðir
eru þeir með veð-
stuðulinn 1.90.
-jbg