Fréttablaðið - 24.07.2013, Page 19
365 MIÐLAR | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Jónas Unnarsson
HÆFILEIKA-
MAÐURINN CERA
Michael Cera leikur George Michael í Arrested Development. Þrátt fyrir ungan
aldur er ferill Cera afar aðdáunarverður.
Michael Cera er aðeins 25 ára
gamall en á nú þegar langan leik-
listarferil að baki.
Cera er kanadískur en leiklistar-
áhuginn kviknaði þegar hann var
aðeins þriggja ára og veikur af
hlaupabólu. Þá horfði hann á mynd-
ina Ghostbusters aftur og aftur,
þar til hann hafði lagt öll samtölin
á minnið.
Fyrsta hlutverk hans var ólaunuð
auglýsing fyrir sumarbúðir en í
kjölfarið fylgdi Pillsbury-auglýs-
ing, fyrsta hlutverk hans með tali.
Þar með var boltinn farinn
að rúlla og hvert hlutverkið rak
annað. Cera fékk hlutverk í ýmsum
sjónvarpsþáttum en hæst ber hlut-
verk hans sem George Michael
Bluth í verðlaunaþáttunum Arrest-
ed Development. Þættirnir stóðu
yfir í þrjár þáttaraðir áður en hlé
var gert á þeim í sex ár. Margir
tóku gleði sína þegar tilkynnt var
um fjórðu þáttaröðina, sem nú er
sýnd á Stöð 2, enda hafa þættirnir
ákveðinn „költ-status“.
Kvikmyndaferill Cera hófst
fyrir alvöru þegar hann lék á móti
Jonah Hill í myndinni Superbad frá
2007. Sama ár lék hann í krúttlegu
myndinni Juno á móti Ellen Page.
Cera hlaut verðlaun sem besti nýi
leikarinn það árið á verðlaunahátíð
kvikmyndagagnrýnenda.
Aðrar þekktar myndir sem Cera
hefur leikið í eru Scott Pilgrim vs.
the World og Magic Magic, sem
kemur út á þessu ári. Þá er kvik-
mynd sem gerð er eftir þáttunum
Arrested Development í bígerð.
Cera lætur sér ekki nægja að
leika í myndum heldur stendur
sjálfur að ýmsum verkefnum, bæði
stuttmyndum og þáttum á netinu.
Hann hefur gefið út smásögur og
er auk þess fjölhæfur tónlistar-
maður.
ARRESTED
DEVELOPMENT
kl. 19.40 föstudaga
OZ er samkvæmt nýjustu tölum sumarþjónustan í ár. „Það er
augljóst að Íslendingar eru að nota OZ í sumarfríinu yfir 3G-
og 4G-farnetið,“ segir Steingrímur Árnason hjá OZ.
Starfsmenn þjónustuvers Stöðvar 2 hafa einnig orðið varir
við mikinn áhuga. Barnafólk virðist til að mynda duglegt
að nýta þjónustuna og safnar barnaefni frá Stöð 2 og Stöð 2
Krakkar í stórum stíl. Börnin geta svo horft á það hvar og hve-
nær sem er.
„Það hefur greinilega komið að góðum notum sólarlausa daga
í sumar. Þegar þreytan segir til sín á ferðalögum eða þegar
veðrið býður ekki upp á mikla útiveru fellur það börnunum vel
að kíkja á barnaefnið í OZ-inu,“ segir Ásta Reynisdóttir, for-
stöðumaður þjónustu- og áskriftardeildar Stöðvar 2. Kostur-
inn við OZ-ið er svo ekki síður sá að ekki þarf að stilla öllum
upp fyrir framan sjón varpið og láta börnin þannig leggja undir
sig aðalrýmið í sumar bústaðnum eða þar sem er dvalið hverju
sinni. Þess í stað geta þau horft á OZ-ið í iPad-inum uppi í koju,
á notalegu svefnlofti eða jafnvel úti á palli ef vel viðrar.
„Einn viðskiptavinur okkar sagði dóttur sína horfa á Latabæ
uppi í trjákofa. Það hlýtur að vera spennandi og segir kannski
meira en mörg orð um hversu notendavæn þessi þjónusta er,“
segir Ásta. „Það er mjög gaman að heyra slíkar sögur. Þá hafa
sumir sent myndir af aðstæðum þar sem OZ-ið virðist koma að
góðum notum. Það er til dæmis alveg ljóst að einhverjir vilja
vera með puttann á púlsinum þegar kemur að Pepsi-deildinni
eða fréttum. Það að geta horft á dagskrána hvar sem er, við
hvaða aðstæður sem er, yfir farnet 3G og 4G virðist greinilega
nýtast áskrifendum mjög vel. Sérstaklega þeim sem vilja fá
allt á rauntíma og fylgjast með á meðan hlutirnir eru að gerast.
Aðrir taka hins vegar dagskrána upp og horfa við betra tæki-
færi.“
Af myndum sem Stöð 2 hefur borist er ljóst að áskrifendur
eru að upplifa eitthvað alveg nýtt. Þar má meðal annars sjá
veiðimann við árbakkann að horfa á beina útsendingu frá leik í
Pepsi-deildinni og grillmeistara sem missir ekki af neinu úti á
palli.
OZ-IÐ ER ALLS STAÐAR
Íslendingar nota OZ-appið í sumarfríinu um land allt og er ljóst að áskrifendur Stöðvar 2 eru að upplifa eitthvað
nýtt. Börnin horfa í bústaðnum, grillmeistarinn við grillið og veiðimenn við árbakkann svo dæmi séu nefnd.
Hér má sjá veiðimann í Soginu sem fylgist með beinni útsendingu úr leik FH og Fram í Pepsi-deildinni. Áskrifandi sá sig knúinn
til að senda myndina og þakka kærlega fyrir frábæra þjónustu.