Fréttablaðið - 24.08.2013, Page 22

Fréttablaðið - 24.08.2013, Page 22
24. ágúst 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 22 Þau eru að syngja og spila úti um allar trissur, ýmist ein og sér eða í grúppum, eins og Sísý Ey, svo það er göldrum líkast að ná þeim saman í spjall, Eyþóri Gunnarssyni, Ellenu Kristjáns- dóttur og börnum þeirra fjórum, Sigríði, Elísabetu, Elínu og Eyþóri Inga. Aðeins einu sinni segjast þau hafa komið öll fram á sömu tón- leikum, og ekki í sama lagi. Það var í Óperunni,“ rifjar Eyþór upp. Eyþór Ingi: „Þá var ég 11 ára og spilaði á trommur í einu lagi.“ Beta: „Við stelpurnar sungum eitthvað. Ég var komin níu mánuði á leið en það sat læknir á fremsta bekk, viðbúinn fæðingu.“ Leiðin inn í bransann Eyþór og Ellen eru búin að vera saman frá því þau voru unglingar. „Við vorum bæði í hljómsveit sem hét Tívolí og var dansiballahljóm- sveit. Við kynntumst þar,“ segir Eyþór og heldur áfram. „Það var leiðin inn í bransann á þessum tíma að æfa inni í bílskúr og fara svo að spila á böllum fyrir dauðadrukkið fólk, til dæmis í Stapa í Keflavík, Festi í Grindavík eða Klúbbnum í Reykjavík. Ég var byrjaður að spila í Klúbbnum 16 ára.“ „Við höfðum ekki aldur til að vera inni á stöðunum,“ tekur Ellen undir og rifjar upp að þau hafi líka verið bæði í hljóm sveitunum Manna kornum og Ljósunum í bænum. Þótt einkalíf stjörnupara sé oft milli tannanna á fólki minnist blaðamaður þess ekki að hafa heyrt talað um vesen hjá þeim hjónum. Er sú raunin að sambandið hafi gengið snurðulaust frá því þau voru unglingar? Eyþór: „Það kemur alltaf eitthvað upp á hjá öllum en þá bara leysir maður það. Það eiga allir sína upp- og niðurtúra í löngu sam- bandi. En heildin er vel réttu megin við strikið.“ „Fólk þroskast sem betur fer,“ segir Ellen og brosir sínu fallega brosi. Fjölskyldan hefur búið á höfuð- borgarsvæðinu í áratugi, ef frá er talið eitt og hálft ár sem þau hjónin voru í Englandi þegar Mezzoforte var sem vinsælust. Skyldi ekkert vera erfitt fyrir svo marga lista- menn að vera saman á heimili eða hvernig hefur samkomulagið verið? Ellen: (hlæjandi) „Við erum eins og ítölsk fjölskylda, dálítið ör og auk þess öll með athyglisbrest. En okkur hefur gengið ótrúlega vel að búa undir sama þaki.“ Ekki fyrir að trana sér fram „Það er svolítið langt á milli okkar barnanna þannig að við fæddumst á mismunandi tónlistartímabilum. Þegar ég var lítil var mamma að hlusta á Whitney Houston og ég elskaði Micael Jackson,“ byrjar Sigríður þegar talið berst að tónlistar uppeldinu. Hún kveðst hafa byrjað í flautunámi sex ára og á píanó sjö ára í Tónskóla Sigursveins en alltaf átt svolítið erfitt með að gera það sem henni var sagt. „Ég var lengi að lesa nótur og vildi frekar spila af fingrum fram. Svoleiðis nemendur eru ekki í uppáhaldi hjá kennurum. En þegar ég fékk sjálf áhuga á nótnalestri, orðin tuttugu og eitt- hvað, þá kom þetta.“ Eyþór: „Þannig var þetta líka hjá mér. Ég átti ekkert auðvelt með þetta hefðbundna tónlistarnám sem var boðið upp á á þeim tíma. Lærði lítið sjálfur og við Ellen höfum ekkert ýtt okkar börnum út í akademískt tónlistarnám. En ef fólk hefur mikinn áhuga á tónlist þá leitar það þangað. Finnur sinn farveg með tímanum.“ Elísabet: „Ég lærði á píanó sem barn. Fór svo í FÍH í söng, hljóm- fræði og tónfræði og þótti gaman.“ Elín: Ég lærði smá á klassískan gítar, það var alveg ferlega leiðin- legt. Svo fékk ég áhuga á gítarnum seinna en hef í raun ekki haldist í neinu námi. Bara lært af pabba og mömmu.“ Eyþór Ingi kveðst hafa verið í Suzukiskólanum hjá Hönnu Valdísi Guðmundsdóttur og einnig prófað að læra á píanó hjá Tómasi Guðna Eggertssyni. „En mest hef ég lært af pabba, bara heima fyrir,“ segir hann. „Ég ætla að finna mér eitt- hvert hljóðfæri að læra á þegar ég byrja í Fjölbraut Ármúla í haust, kannski bassa, kontrabassa.“ Sigríður: „Ég held við höfum öll lært mest af foreldrum okkar. Ég er í Listaháskólanum í tónsmíðum og ber enn hlutina undir pabba og mömmu.“ Ellen segir Elínu hafa komið virkilega á óvart þegar hún, tíu ára og rétt byrjuð að gutla á gítar, kom fram á skólaskemmtun með frum- samið lag. „Við höfðum ekki hug- mynd um að hún væri byrjuð að semja.“ Elísabet: „Hún vildi heldur aldrei syngja með okkur þegar hún var yngri. Svo heyrði maður í henni inni í herbergi eða klósetti og þá söng hún rosalega vel. En aldrei fyrir framan við okkur.“ „Svo var hún eiginlega fyrst barnanna til að hasla sér völl á sínum eigin forsendum, yngst af systrunum,“ segir faðirinn stoltur en Elín brosir bara. Sigríður: „Ég held að ekkert okkar sé haldið þörf fyrir að trana sér fram.“ Elísabet: „Því miður. Það væri kannski bara plús ef við hefðum aðeins meira af slíkri þörf.“ Ellen: „Þér þótti samt gaman að koma fram þegar þú varst lítil, Beta.“ Elísabet: „Já, þá var ég athyglis- sjúk af því ég var miðjubarn.“ John Grant fjölskylduvinur Talsverður munur er á því fyrir tónlistarfólk að koma sér á fram- færi nú og þegar Eyþór og Ellen voru að byrja ferilinn. Eyþór: „Það er miklu auðveldara að koma tónlist í útgáfuhæft form nú en áður og vekja athygli á sér sjálfur gegnum netið. Á móti kemur að það er mun meira fram- boð. Þegar við Ellen vorum ung var maður kominn í blöðin ef maður stofnaði hljómsveit. Þá var bara ein útvarpsstöð og ein sjónvarpsstöð og þeir sem komu fram þar fengu athygli allrar þjóðarinnar. Nú eru komnir ótal miðlar og almenningur velur hvert hann vill horfa.“ Sigríður: „Mér finnst bara svo mikið framboð af góðri tónlist á Íslandi. Þess vegna er erfiðara að koma sér á framfæri.“ Elísabet: „Já, maður þarf að hafa mikla trú á sjálfum sér og geta tranað sér svolítið fram.“ Ellen: „Ég held að það sé að koma meira af heilsteyptri og einlægri tónlist upp úr öllu þessu leiðinda- peningapoppi sem hefur verið gegnum gangandi.“ Sigríður: „Það eru margir frá- bærir tónlistarmenn á Íslandi.“ Eyþór: „Það er rétt. Útlendingar taka eftir því og velta fyrir sér hvað valdi.“ Bandaríski söngvarinn John Grant hefur stundum sést í fylgd fjölskyldunnar. Sigríður útskýrir hvernig þau kynni hafi komið til. „Ég kynntist John á Eyrarbakka. Þá var ég að spila með manninum mínum í hljómsveit sem kallar sig Pikknikk. John var svo hrifinn að hann keypti helminginn af plötunum okkar til að senda sínu fólki. Upp frá því hófst vinskapur sem varð til þess að hann kom með fjölskyldunni austur á Seyðisfjörð eina páska og svo hittum við hann á Bræðslunni á Borgarfirði eystra í sumar.“ Ellen: „John er yndislegur og eins og hann hafi alltaf verið einn af fjölskyldunni.“ Sigríður: „Hann nennti að minnsta kosti að keyra með mér og þremur börnum mínum í bæinn alla leið frá Seyðisfirði, í níu klukkutíma.“ Við hvað vinnurðu svo? Það er brjálað að gera í tónlistinni hjá öllu þessu fólki. Eyþór er að ljúka fimm tónleikum tilheyrandi djasshátíð, þau hjónin syngja á Eyrarbakka á föstudagskvöld og Ellen í Fríkirkjunni á menningar- nótt. Stelpurnar allar í Sísý Ey eru búnar að vera úti í Barselóna í sumar og Eyþór Ingi að spila raf- tónlist í Hjartagarðinum af og til. Hann kveðst hafa túrað með föður sínum og hljómsveit hans, Mezzo- forte, um alla Evrópu í fyrra. Fleira er á döfinni hjá unga fólkinu. Elín: „Við stelpurnar í Sísí Ey erum að fara út til Noregs í byrjun september á einhverjar hátíðir. Svo verðum við líka í Danmörku og spilum á Íslandsbryggju. Eyþór Ingi fer með okkur þangað en við erum að bíða eftir að hann verði aðeins eldri og geti farið að spila með okkur. Við ætlum að spila á menningarnótt líka. Það er ekki alveg komið í ljós hvar.“ Eins og fram hefur komið er eiginmaður Sigríðar einnig í tón- list. Sá er Þorsteinn Einarsson, kenndur við Hjálma. Hann er núna að túra með bróður sínum, Ásgeiri Trausta. Ellen: „Börnin okkar þekkja ekki annað en að pabbi þeirra sé að túra úti um allan heim. Nú eiga börnin hennar Siggu líka svoleiðis foreldra og barnsfaðir Betu er Árni Grétar, sem kallar sig Futuregrapher. Hann er að gera það gott í raftónlist og er til dæmis að fara út til Kanada.“ Eyþór: „Yngsta kynslóðin er alin upp við að það sé bara eðli- legt að lifa svona lífi. En þegar við Ellen vorum með börnin okkar ung fundum við fyrir því að vera svolítið á jaðri samfélagsins af því við vorum ekki í vinnu þar sem við þurftum að mæta klukkan átta.“ Sigríður: „Nú er ég í skóla með börnin mín þar sem margir for- eldrar eru listamenn, hjá Hjalla- stefnunni, þannig að það er mikill skilningur á stöðu þeirra.“ Ellen: „Hún heyrist ekki lengur þessi gamla spurning: „Við hvað vinnurðu svo?““ Erum eins og ítölsk fjölskylda Ævintýrið byrjaði í dansiballahljómsveitinni Tívolí á 8. áratugnum. Þar kviknaði ást stjörnuparsins Ellenar Kristjánsdóttur og Eyþórs Gunnarssonar. Ávöxtur þeirrar ástar er fjögur börn, sem öll hafa fundið sinn farveg í tónlist eins og foreldrarnir. Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is TÓNLISTARFJÖLSKYLDAN Þau Elín, Elísabet, Eyþór Ingi, Sigríður, Ellen og Eyþór hafa einu sinni komið fram á sömu tónleikum en aldrei í sama lagi. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Yngsta kynslóðin er alin upp við að það sé bara eðlilegt að lifa svona lífi. En þegar við Ellen vorum með börnin okkar ung fundum við fyrir því að vera svolítið á jaðri samfélagsins af því við vorum ekki í vinnu þar sem við þurftum að mæta klukkan átta. Eyþór Gunnarsson
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.