Fréttablaðið - 24.08.2013, Page 46

Fréttablaðið - 24.08.2013, Page 46
| ATVINNA | MÚRBÚÐIN LEITAR STARFSMANNA Múrbúðin óskar að ráða í eftirtalin störf: Starfsmaður á kassasvæði, 70-100% starf. Leitað er að einstaklingi til að afgreiða á kassa og sjá um kassasvæði. Samsvisku- semi, metnaður og þjónustulund. Starfsmaður til að sjá um viðgerðir á vélum og tækjum 5-10 tímar í viku. Reynsla og geta til að sjá um tækja- viðgerðir. Tilvalið fyrir eftirlaunaþega! Umsóknir ásamt ferilsskrá óskast sendar á netfangið: sala@murbudin.is GAGNANÖRD MEÐ XML ÞEKKINGU Fjármálaeftirlitið óskar eftir að ráða sérfræðing á upplýsingatæknisvið til liðs við öflugt þróunarteymi. Við leitum að duglegum og lærdómsfúsum einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á viðskiptagreind og hagnýtingu gagna. FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ THE FINANCIAL SUPERVISORY AUTHORITY, ICELAND Upplýsingatæknisvið Fjármálaeftirlitsins sér um þróun eftirlitshugbúnaðar og rekstur tölvukerfa, ásamt því að þjónusta starfsfólk og eftirlitsskylda aðila við notkun kerfanna. Einnig hefur sviðið eftirlit með upplýsingatæknikerfum eftirlitsskyldra aðila og sinnir rannsóknarhlutverki. Samstarf er við bæði innlendar og erlendar eftirlitsstofnanir um ýmis verkefni. Í boði er krefjandi starf í lifandi og skemmtilegu umhverfi. Starfssvið • Skilgreining á gagnamódelum, gæðareglum og skemum (XML schema) • Innleiðing á gagnaskilum til eftirlits með XML og XBRL staðli • Þróun á gagnaskilakerfi FME • Þróun á vöruhúsi gagna • Önnur tilfallandi og tengd verkefni Menntunar- og hæfniskröfur • Viðeigandi háskólapróf í verkfræði, tölvunarfræði eða önnur sambærileg menntun • Þekking og reynsla af gagnagrunnum • Þekking og/eða reynsla af XML • Reynsla og þekking á aðferðarfræði við mat á gæðum gagna • Reynsla af fjármálamarkaði er kostur • Jákvæðni, nákvæmni og skipulögð vinnubrögð • Áhugi á að vinna í Agile vinnukerfi með góðu teymi sem sífellt leitar leiða til að bæta sig Fjármálaeftirlitið er lykilstofnun í íslensku efnahagslífi og samfélagi. Innan þess fer nú fram mikið uppbyggingar- og umbótastarf sem miðar að því að styrkja eftirlit og taka þannig þátt í að byggja upp traust og trúverðugt fjármálakerfi á Íslandi. Umsjón með ráðningu hafa Jón Andri Sigurðarson framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs (jonandri@fme.is) og Erla Traustadóttir sérfræðingur á mannauðssviði (erlat@fme.is). Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins, www.fme.is, eða á Starfatorgi, www.starfatorg.is. Umsóknarfrestur er til og með 9. september. Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Atvinnuleitendur Flest auglýst störf í landsfjölmiðlum má finna á einum stað í lista á vefsíðu STARFs www.starfid.is Starfagátt STARFs STARF – vinnumiðlun og ráðgjöf ehf. er fyrirtæki í eigu Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins og var stofnað vorið 2012 til að halda utan um tilraunaverkefni um þjónustu við atvinnuleitendur sem eru félagar í tilteknum stéttarfélögum. Þjónustan fer fram í fjórum þjónustumiðstöðvum og þar starfa m.a. 14 atvinnuráðgjafar STARFs. Þungamiðja þjónustunnar er vinnumiðlun og jafnframt er atvinnuleitendum liðsinnt við margvísleg vinnumarkaðsúrræði – markmiðið er að koma fleiri atvinnuleitendum aftur til starfa. Nánari upplýsingar um STARF má finna á vefsíðu félagsins: www.starfid.is KÓPAVOGSBÆR Sérfræðingur í fjármáladeild Kópavogsbær óskar eftir sérfræðingi í fjármáladeild. Fjármáladeild er hluti af stjórnsýslusviði Kópavogsbæjar, en stjórnsýslusviðið annast öll sameiginleg verkefni fyrir stofnanir bæjarins. Í fjármáladeild er unnið allt bókhald bæjarins, fjárhagslegar greiningar, áætlanir, ársuppgjör og árshlutauppgjör. Fjármáladeild sér einnig um innheimtu á kröfum bæjarins, fjármögnun hans og fjárstýringu. Þar er leitast við að nota hagkvæmustu tækni til að tryggja skilvirkni og öryggi í meðhöndlun gagna. Nú leitum við að samstafsmanni, sem vill takast á við krefjandi verkefni af fagmennsku og jákvæðni með samhentum hópi lífsglaðra einstaklinga. Frekari upplýsingar Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KVH Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst 2013. Upplýsingar gefur Ingólfur Arnarson, fjármála- og hagsýslustjóri í síma 570-1500, eins má beina fyrirspurnum á póstfang: ingolfura@kopavogur.is Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið. Menntunar og hæfniskröfur sveitarfélaga kostur. www.kopavogur.is Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is 24. ágúst 2013 LAUGARDAGUR4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.