Fréttablaðið - 27.08.2013, Side 6
27. ágúst 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Hvað heitir þyrla Landhelgis-
gæslunnar sem er í leiguverkefnum
erlendis?
2. Hvað heitir sá hluti Reykjavíkur-
hafnar þar sem fl est skemmtiferðaskip
leggja að?
3. Hvar ætlar vatnsfyrirtækið Iceland
Glacier Water að taka þátt í átaki í
umferðarmálum?
SVÖR
Prófaðu Sensodyne vörurnar og finndu muninn.
Sensodyne fyrir viðkvæmar tennur
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
NÝ OG BE
TRI
HÖNNUN
!
TANNBURSTAR OG
TANNKREM FYRIR
VIÐKVÆM SVÆÐI
SÝRLAND Rannsóknarteymi á
vegum Sameinuðu þjóðanna kom
í gær á vettvang í úthverfi Damas-
kus þar sem fullyrt er að stjórnar-
herinn í Sýrlandi hafi beitt efna-
vopnum með þeim afleiðingum að
hundruð manna létu lífið.
Engan sakaði þegar skotið var
á bifreið teymisins í gær en bif-
reiðin er mikið skemmd. Hópur-
inn, sem kom til Sýrlands fyrir
rúmri viku til að rannsaka fyrri
ásakanir um notkun efnavopna í
borgarastríðinu, hélt áfram för
sinni þegar búið var að útvega
aðra bifreið.
Niðurstöður teymisins geta
reynst afdrifaríkar þar sem þrýst-
ingur á hernaðaríhlutun alþjóða-
samfélagsins mun tvímæla-
laust aukast ef sannað þykir að
stjórnar her Assads forseta hafi
beitt efnavopnum.
Assad sjálfur þvertekur fyrir
allt slíkt. Í viðtali sem birtist í
rússneska dagblaðinu Izvestia í
morgun segir hann að ásakanirnar
á hendur stjórnarhernum séu
þvættingur sem sprottinn sé af
pólitískum rótum.
Þrátt fyrir það virðast allmörg
ríki vera farin að íhuga alvar-
lega að hlutast til um borgara-
styrjöldina í Sýrlandi, sem hefur
nú þegar kostað á annað hundrað
þúsund manns lífið og hrakið
milljónir manna, kvenna og barna
af heimilum sínum.
„Hvað Sýrland varðar eru
Bandaríkin að skoða alla mögu-
leika,“ sagði Chuck Hagel, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna, í
samtali við fjölmiðla í gær. Hann
útilokaði þó að Bandaríkin færu út
í einhliða aðgerðir.
Mörg ríki, þar á meðal Frakk-
land, Bretland, Ísrael og Þýska-
land, hafa hvatt til hernaðar-
aðgerða gegn Assad ef sannað
þykir að efnavopnum hafi verið
beitt. Utanríkisráðherra Tyrk-
lands lýsti því yfir nú í morgun að
Tyrkland væri tilbúið í að grípa
til aðgerða gegn Sýrlandsstjórn,
hvort sem samþykki SÞ fengist
eður ei, og að hópur rúmlega þrjá-
tíu ríkja væri að ræða mögulegar
lausnir í þeim efnum.
Sergei Lavrov, utanríkisráðherra
Rússlands sem er helsti stuðnings-
maður Sýrlandsstjórnar, sagði í
dag að engar sannanir hefðu enn
komið fram um hlutverk stjórnar-
hersins í árásunum í síðustu viku.
Líkti hann framvindu mála nú við
aðdraganda Íraksstríðsins árið
2003 og ítrekaði skoðun sína um að
ef utanaðkomandi hernaðaríhlutun
byggðist ekki á ályktun Öryggis-
ráðs Sameinuðu þjóðanna væri um
að ræða skýrt brot á alþjóðalögum.
thorgils@frettabladid.is
Rannsókn er hafin á efna-
vopnaárásinni í Sýrlandi
Æ fleiri ríki hvetja til hernaðaraðgerða gegn Assad Sýrlandsforseta, komi í ljós að stjórnarher hans beri ábyrgð á
efnavopnaárás sem kostaði hundruð manna lífið í síðustu viku. Skotið var á bifreið vopnaeftirlitsmanna í gær.
RANNSÓKN HAFIN Rannsóknarteymi frá Sameinuðu þjóðunum byrjaði á að ræða við lækna á sjúkrahúsi, sem tekið hafði á
móti fólki eftir árásina. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
AFLEIÐINGARNAR Ættingjar gráta yfir
líkum fórnarlamba eiturefnaárásarinnar
í úthverfi Damaskus fyrir helgi. Myndin
er frá sýrlensku stjórnarandstöðunni.
NORDICPHOTOS/AFP/SHAAM NEWS NETWORK
Hvað Sýrland varðar
eru Bandaríkin að skoða
alla möguleika.
Chuck Hagel,
varnarmálaráðherra Bandaríkjanna
1. TF-Sif.
2. Skarfabakki.
3. Soldánsdæminu Óman.
NÍGERÍA, AP Unglingspiltur,
þrettán til fjórtán ára, smyglaði
sér inn í flugvél á flugvelli í
Benin-borg í Nígeríu.
Drengurinn faldi sig í hjóla-
búnaði vélarinnar og lifði af 35
mínútna langt innanlandsflug til
borgarinnar Lagos.
Í borginni sáu flugmenn svo
drenginn hlaupa frá vélinni, en
hann var handtekinn stuttu síðar.
Mikill kuldi er í háloftunum og
hafa örlög margra sem reynt hafa
að gerast laumufarþegar með
þessum hætti orðið þau að frjósa
í hel. - gb
Piltur faldi sig í hjólabúnaði:
Lifði af flugið
VIÐSKIPTI „Við erum að vinna í því
núna að finna út úr því hvaða áhrif
þetta hefur á okkur og lágmarka
það tjón sem hugsanlega gæti orðið
gagnvart okkar starfsmönnum og
viðskiptavinum.“
Þetta segir Kolbeinn Kolbeinsson,
framkvæmdastjóri Ístaks, um gjald-
þrot danska verktakarisans Pihl &
Søn en fyrirtækið er móðurfélags
Ístaks.
„Við erum óháð fyrirtæki sem
hefur gengið ágætlega en þetta
hefur náttúrlega einhver áhrif. Pihl
& Søn áttu í erfiðleikum eins og árs-
reikningar 2011 og 2012 báru með
sér en ég taldi að þeir væru að vinna
sig út úr því. Það hefur greinilega
ekki tekist.“
Samningaviðræður verktaka-
risans við banka stóðu fram á
sunnudag en án árangurs, að því er
segir í frétt Børsen.
Í fréttatilkynningu frá fyrir-
tækinu sagði að fyrirsjáanlegt væri
að afleiðingar ákvörðunarinnar
myndu verða víðtækar.
Í maí síðastliðnum var íslenskum
forstjóra Pihl & Søn, Halldóri P.
Ragnarssyni, sagt upp störfum. Þá
var greint frá tapi verktakafyrir-
tækisins upp á tæplega 10 milljarða
íslenskra króna. - ibs
Móðurfélag Ístaks, verktakarisinn Pihl & Søn, óskar eftir gjaldþrotaskiptum:
Ístak lágmarkar hugsanlegt tjón
HOTEL D´ANGLETERRE Vegna erfið-
leika Pihl & Søn voru endurbætur á
hótelinu stöðvaðar í júní síðastliðnum.
BANDARÍKIN, AP Skógareldarnir við
norðurenda Yosemite-þjóðgarðsins
í Bandaríkjunum hafa geisað frá
17. ágúst og eru meðal þeirra allra
erfiðustu og stærstu sem orðið
hafa í Kaliforníu.
Nærri 600 ferkílómetra skóg-
lendi hefur orðið eldinum að bráð
og þúsundir slökkviliðsmanna
eiga í mestu vandræðum með að
ráða við hamfarirnar. Fjalllendið
er erfitt yfirferðar, skraufþurrt
er í veðri og hvassir vindar auka
enn á vandann. „Við glímum við
erfiðar aðstæður og einstaklega
ögrandi veðurfar,“ segir Bjorn
Frederickson, talsmaður skógar-
eftirlits Bandaríkjanna. - gb
Enn brenna skógarnir:
Glímt við elda í
roki og þurrki
ELDARNIR LOGA Í gær var reynt að
koma í veg fyrir að lítil fjallaþorp yrðu
eldunum að bráð. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FERÐAMÁL Þótt nú styttist í lok
ágústmánaðar og mörgum finn-
ist sem sumri sé tekið að halla
er enn fullur gangur í komu
skemmtiferðaskipa til landsins.
Þannig eru nítján skemmtiferða-
skip skráð til hafnar í Reykjavík
frá og með næsta sunnudegi allt
fram til 1. október, þegar Carnival
Legend mun leggja að bryggju.
Risaskipin Adventure of the Seas
og Cari bbean Princess verða
hér 4. og 5. september. Alls eru
83 skemmtiferðaskip skráð hjá
Faxaflóa höfnum þetta árið. - gar
Sumarið er ekki búið:
Enn von á 19
farþegaskipum
VEISTU SVARIÐ?