Fréttablaðið - 27.08.2013, Page 16

Fréttablaðið - 27.08.2013, Page 16
27. ágúst 2013 ÞRIÐJUDAGUR| TÍMAMÓT | 16TÍMAMÓT „Þetta leiðinlega veður í sumar hefur komið sér ágætlega þar sem þetta hefur verið eitt allsherjar vinnu- sumar hjá mér. Mér telst til að þegar þessari „törn“ lýkur hafi ég lokið við fimmtíu nýjar myndir,“ segir listmál- arinn Hjalti Parelius sem opnaði sína elleftu einkasýningu í Reykjavík Art Gallery, Skúlagötu 30, á menningar- nótt. Sýningin stendur yfir til 7. sept- ember en á sama tíma er Hjalti upp- tekinn við að undirbúa aðra sýningu sem hann opnar á Ljósanótt, 5. septem- ber, á vinnustofu sinni í Hafnargötu í Reykjanesbæ, ásamt myndlistarfólk- inu Óttu og Stefáni Williamson. „Það er hálfgerð geðveiki að vera búinn að opna eina sýningu meðan maður er að klára verk fyrir aðra, en svona er þetta bara stundum,“ segir Hjalti. Sýning Hjalta í Reykjavík Art Gall- ery sem opnuð var á menningarnótt ber heitið „And now for something comple- tely different“, eða „Og nú yfir í eitt- hvað allt annað“ og samanstendur af fimmtán nýjum verkum í öðrum stíl en listamaðurinn hefur tamið sér hin síðari ár. „Hingað til hef ég að mestu einbeitt mér að troðnum teiknimynda- verkum í svipuðum stíl og Erró hefur verið að gera, en hann hefur verið mín helsta fyrirmynd í mörg ár. Fyrir þessa sýningu langaði mig að breyta til en jafnframt að halda þessum sterku litum sem ég hef svo gaman af. Ég hóf að kynna mér verk tveggja meistara, Karls Kvaran og Þorvalds Skúlasonar, tók formfræðina frá Karli og litafræði Þorvaldar, og langaði til að sjá hvort ég gæti lært þeirra tungumál, því hver listamaður hefur sitt tungumál. Báðir hafa þeir Karl og Þorvaldur fengist við óáþreifanlega hluti eins og tilfinningar en mig langaði til að sjá hvort ég gæti látið þetta tungumál fjalla um kven- líkamann. Allar myndirnar á sýning- unni eru nektarstúdíur,“ útskýrir Hjalti og bætir við að áherslubreytingin sé í raun heilar 180 gráður frá því sem áður var. „Ég er ekki hættur í teikni myndunum en það er gaman að ögra sjálfum sér örlítið með nýjum áherslum og sanna um leið að maður getur gert fleira en að mála teiknimyndir,“ segir Hjalti að lokum. kjartan@frettabladid.is Kynnti sér tvo meistara Listmálarinn Hjalti Parelius hefur opnað sína elleft u einkasýningu í Reykjavík Art Gallery. Samhliða undirbýr hann opnun annarrar sýningar í Reykjanesbæ. UPPTEKINN Hjalti Parelius hefur í nógu að snúast þessa dagana, enda opnaði hann sýningu um helgina og undirbýr aðra sem opnar 5. september. Elskuleg systir okkar, DAGBJÖRT GUÐRÍÐUR ÞÓRÐARDÓTTIR hjúkrunarfræðingur frá Hergilsey, lést á Hrafnistu, Boðaþingi 5, Kópavogi, laugardaginn 17. ágúst sl. Útför hennar fer fram frá Digraneskirkju miðvikudaginn 28. ágúst kl. 13.00. Systkini hinnar látnu. Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN PÁLSDÓTTIR (DÚRA) sjúkraliði, andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir að morgni sunnudagsins 25. ágúst. Útförin verður gerð frá Grafarvogskirkju mánudaginn 2. september kl. 13.00. Þröstur Sigtryggsson Margrét Þrastardóttir Sigurður Hauksson Bjarnheiður Þrastardóttir Sigurjón Árnason Sigtryggur Þrastarson Þröstur Jóhannsson Sigtryggur Sigurðsson Rúna Björg Sigurjónsdóttir Ellen Sigurjónsdóttir Árni Sigurjónsson Þröstur Sigtryggsson Guðjón Sigtryggsson Hlynur Sigtryggsson og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN HELGA ÞÓRARINSDÓTTIR Skúlagötu 40, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut laugardaginn 24. ágúst sl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Þórarinn Gíslason Bryndís Benediktsdóttir Guðný Gísladóttir Sigurgeir Guðmundsson Guðmundur Ingi Gíslason Vigdís A. Gunnlaugsdóttir Hrafnkell V. Gíslason Björg Eysteinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN ÞÓRÐARDÓTTIR (DÚNA) verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 29. ágúst kl. 15.00. Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki 3. hæðar norður á hjúkrunarheimilinu Eir fyrir ómetanlegan stuðning, hlýju og umönnun. Þóra Kristinsdóttir Árni Ingólfsson Guðrún Kristinsdóttir Jóhann Guðmundsson Erna Kristinsdóttir Elías Bragi Sólmundarson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, BORGHILDUR SVANLAUG ÞORLÁKSDÓTTIR frá Veiðileysu, lést á deild 3B, Hrafnistu Hafnarfirði, föstudaginn 23. ágúst sl. Jarðarförin verður auglýst síðar. María Sveinbjörnsdóttir Steen Jörgensen Trausti Sveinbjörnsson Margrét Ólöf Sveinbjörnsdóttir Þórir Steingrímsson Ásta Sveinbjörnsdóttir Ólöf Þóra Sveinbjörnsdóttir Erla Sveinbjörnsdóttir Grétar Páll Stefánsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona, stjúpmóðir, tengdamóðir, amma, systir, mágkona og frænka, ÁSDÍS KJARTANSDÓTTIR frá Bakka á Seltjarnarnesi, Suðurgötu 56, Siglufirði, lést 12. ágúst sl. á Sjúkrahúsi Siglufjarðar. Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 31. ágúst kl. 14. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á styrktarfélagið Göngum saman sem styrkir brjóstakrabbameinsrannsóknir, www.gongum saman.is eða síma Krabbameinsfélagsins 540-1990. Björn Jónasson Rakel Björnsdóttir Thomas Fleckenstein María Lísa Thomasdóttir Björn Thomasson og aðstandendur hinnar látnu. Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, FINNUR SVEINBJÖRN BJÖRNSSON flugvirki, Sléttuvegi 17, sem lést föstudaginn 16. ágúst að Droplaugarstöðum verður jarðsunginn miðvikudaginn 28. ágúst frá Bústaðakirkju og hefst athöfnin kl. 13.00. Valdís Ella Finnsdóttir Jónas Ólafsson Ólafur Jónasson Finnur Jónasson Elvar Finnur Grétarsson Heiðar Kristján Grétarsson Hannar Sindri Grétarsson Tindur Bergmann Heiðarsson Elskulegur eiginmaður minn, stjúpfaðir, tengdafaðir og bróðir, JÓN KRISTINSSON Fannafold 119, 112 Reykjavík, lést laugardaginn 24. ágúst á líknardeild Landspítalans. Sigríður Eysteinsdóttir Eysteinn Sigurðsson Elísabet Árnadóttir Pjetur Sigurðsson Sólveig Kristinsdóttir Faðir minn, sambýlismaður og bróðir, FRIÐGEIR STEFÁNSSON Guðrúnargötu 2, lést 19. ágúst. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskapellu 28. ágúst kl. 13.00. Halldór Friðgeirsson Marilene Ramos Pinto Anna, Guðrún og Borghildur Stefánsdætur. Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu sem sýndu stuðning og vináttu vegna andláts ástkærs sambýlismanns, föður, sonar, bróður og tengdasonar, PÁLS STEINDÓRS STEINDÓRSSONAR flugstjóra, Pílutúni 2, Akureyri. Sérstakar þakkir fá ættingjar, vinir, samstarfsmenn, Bílaklúbbur Akureyrar, vélhjólamenn og slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn fyrir þá virðingu sem þeir sýndu honum við útför hans. Sigríður María Hammer Guðný Birta Pálsdóttir Sara Elísabet Pálsdóttir Guðný Pálsdóttir Hafþór Rósmundsson María Elísabet Behrend Bjarni Debess Hammer systkini og fjölskyldur. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVAVAR BRAGI BJARNASON Grænlandsleið 40, áður Villingaholti II, er látinn. Jarðarförin auglýst síðar. Lóa Svavarsdóttir Maniscalco Robert Maniscalco Margrét Svavarsdóttir Magnús Narfason Elvar Ingi Ágústsson Guðmundur Gunnlaugsson Hafdís Svavarsdóttir Emil Hilmarsson Sigfús Bergmann Svavarsson barnabörn og barnabarnabarn. Elskulegur maðurinn minn, pabbi okkar, tengdapabbi og afi, DANÍEL HALLDÓRSSON bifreiðastjóri og verslunarmaður, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánudaginn 26. ágúst. Útförin verður auglýst síðar. Aðstandendur. Hjartkær frænka okkar, LÁRA JÓHANNESDÓTTIR frá Herjólfsstöðum, síðast til heimilis á Hrafnistu í Reykjavík, lést á Hrafnistu föstudaginn 23. ágúst. Útförin fer fram frá Áskirkju föstudaginn 30. ágúst kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Þorsteinn, Jóhannes og Lárus Viggóssynir.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.