Fréttablaðið - 27.08.2013, Side 21
AU G L Ý S I N G : K V I K K Þ J Ó N USTA N K Y N N I R
Volkswagen hefur framleitt R-útgáfu af Golf-bílnum í háa herrans tíð,
en þetta er alöflugasta gerð bílsins og ávallt mun öflugri en GTI-gerð
hans. Nýr Golf R verður sýndur almenningi í bílasýningunni í Frankfürt
sem hefst eftir hálfan mánuð. Þetta er órða kynslóð R-bílsins og nú
með 296 hestafla vél sem aðeins hefur tveggja lítra sprengirými og er
ögurra strokka. Fyrsta kynslóðin var með 237 hestafla vél, önnur 247 og
sú þriðja 261 hestafl. Því hefur aflaukningin á milli kynslóða aldrei verið
meiri en nú, eða 35 hestöfl. Bíllinn er aðeins 4,9 sekúndur í hundraðið
en eyðir samt bara 6,9 lítrum á hverja hundrað kílómetra. Hámarkshraði
bílsins er takmarkaður við 250 km/klst. Sem fyrr verður bíllinn með
Haldex- órhjóladrifi , en það hafa allar kynslóðir hans verið. Hann má
fá með sex gíra beinskiptingu eða sex gíra sjálfskiptingu með tveimur
kúplingum. Golf R stendur 2 sentimetrum neðar en hefðbundinn Golf,
en aðeins 0,5 cm neðar en Golf GTI. Kaupendur geta valið á milli fallegra
18 og 19 tommu felga undir bílinn. Lítið er enn uppgefi ð um innra byrði
bílsins en þó munu líklega bjóðast Nappa-leðursæti og Alcantara-klædd
sæti.
Nýr Golf R er 296 hestafla
Bíllinn er fi mur í
akstri og búinn alls
kyns þægindum.
Samkeppnis-
aðilarnir Audi og
BMW mættu að
mati reynsluöku-
manns fara að vara
sig.
manni kleift að sleppa stýrinu í
nokkrar sekúndur í langakstri
og bíllinn heldur teinréttri línu. Í
heildina litið er þessi nýi E-Class
bíll ferlega vel heppnaður bíll
sem í grunnútfærslu kostar ekki
svo ýkja mikið, eða 7.790.000
kr. Reynsluaksturs bíllinn með
öflugari dísilvél og fjórhjóla-
drifi er reyndar kominn upp í
10.080.000 kr. Samkeppnisbíl-
arnir Audi A6 og BMW 5-línan
mega vara sig á þessu ágæta
útspili Mercedes Benz.
Kvikk þjónustan er rótgróið fyrirtæki sem
býður upp á alla almenna pústþjónustu
auk minniháttar bílaviðgerða. Fyrirtækið
var stofnað árið 1992 og fagnaði því 20
ára afmæli á síðasta ári. Sigurður Hall-
dórsson, stofnandi, aðaleigandi og fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, segir fyrir-
tækið þó fyrst og fremst sérhæfa sig í
viðgerðum og þjónustu í tengslum við
pústkerfi bifreiða. „Við bjóðum upp á fjöl-
breytta þjónustu á þessu sviði og getum
þjónustað alla hefðbundna fólksbíla, jeppa
og breytta bíla.“ Að sögn Sigurðar á fyrir-
tækið pústkerfi á lager fyrir flesta bíla og
því geti starfsmenn þjónustað flesta bíl-
eigendur bæði hratt og örugglega. „Yfir-
leitt eigum við viðkomandi varahluti á
lager hjá okkur. Það er helst með þessa
stærri jeppa, suma ameríska og breytta
bíla að við þurfum að sérsmíða fyrir þá.“
Góð tengsl við birgja
Í þeim tilfellum sem þarf að sérsmíða
lausnir eru varahlutir ekki til á landinu.
„Það er ákveðið vandkvæði fólgið í því að
vera með alla þessa flóru bíla á landinu.
Þeir hafa ólíkar vélar og boddílag og yfir-
leitt hver með sitt pústkerfi. Það skiptir
auðvitað gríðarlega miklu máli upp á
lager hald að gera. Síðan sýnist mér við Ís-
lendingar vera með allar gerðir fjórhjóla-
drifinna bíla sem hafa verið framleiddar.
Það getur skapað vandamál því í sumum
tilfellum er vandkvæðum bundið að fá
varahluti í þá hér í Evrópu.“ Í þeim til-
fellum þurfa starfsmenn Kvikk þjónust-
unnar að sérsmíða lausnir en njóta góðs
af birgjum sínum í Bretlandi og Portúgal.
„Þeir eru viljugir til að taka til fram-
leiðslu ný kerfi eftir sýnishornum sem við
sendum þeim, sem hefur gengið vel upp
hingað til og aukið framboð okkar.“
Stórir í innflutningi
Kvikk þjónustan er auk þess stór aðili í
innflutningi og endursölu á pústkerfum.
„Við eigum fyrirliggjandi pústkerfi í
flestar gerðir bifreiða. Við flytjum inn
kerfi frá Fabriscape í Portúgal og Euroflo
og Klarius í Bretlandi. Þetta eru allt viður-
kenndir framleiðsluaðilar í Evrópu og
gæðavörur. Auk þess erum við að byggja
upp lager af ballanstangarendum, stýris-
endum, spindilkúlum og spyrnum. Einnig
má nefna að við seljum svo kallaða TPMS
skynjara (e. tyre pressure monitor system)
og tölvur til að forrita þá fyrir dekkjaverk-
stæði. Einnig er hægt að kaupa skynjara
hjá okkur sem við forritum í viðkomandi
bíl eftir gamla skynjaranum.“
Viðskiptavinir geta sjálfir pantað púst-
viðgerðir á heimasíðu Kvikk þjónustunnar,
á www.kvikk.is, og valið þann tíma sem
hentar þeim best.
Allar nánari upplýsingar má finna á
www.kvikk.is.
GÓÐ GÆÐI OG
ÞJÓNUSTA Í
FARARBRODDI
Þegar kemur að sérhæfingu í viðgerðum og þjónustu í
tengslum við pústkerfi búa fáir yfir jafnmikilli reynslu og
starfsmenn Kvikk þjónustunnar. Fyrirtækið hefur tvær
starfsstöðvar, eina í Reykjavík og aðra minni í Hafnarfirði.
Reynslumiklir starfsmenn Kvikk þjónustunnar, Hörður Ottó Friðriksson til vinstri og Arnar Sigurðs-
son. MYND/GVA
Arnar Sigurðsson, einn eigenda fyrirtækisins, lítur undir bíl viðskiptavinar. Brynjar Gylfason er ær.
BÍLAR
FRÉTTABLAÐIÐ
327. ágúst 2013 ÞRIÐJUDAGUR
● Ytra sem innra útlit
● Akstursgeta
● Lítil eyðsla
● Hávær dísilvél
● Hegðun aflstýris
● Sóllúga of aftarlega