Fréttablaðið - 27.08.2013, Page 23
| FÓLK | 3HEILSA
ARNA MARÍA SMÁRADÓTTIR
Hvernig leið þér áður en þú
fórst í detox?
Ég var ósátt við sjálfa mig og
komin á þann stað að ég varð
að gera eitthvað. Ég átti erfitt
með að tileinka mér heilbrigð-
ari lífsstíl og burðaðist með
þungar byrðar lífsreynslu sem
ég er enn að vinna úr. Lífið þaut
áfram og mér fannst ég vera að
missa af því. Ég var með verki um allan líkamann,
var hætt að þola nána snertingu og alltaf þreytt.
Á andlega sviðinu lék ég leikrit út á við; var glaða
Pollýanna sem alltaf sýndi brosið en reið og döpur
hið innra. Ég hafði litla stjórn á tilfinningum mínum
og var iðulega illa haldin af mígreni.
Hefur þú einhverja sjúkdóma? Ég er með
vefjagigt og nánast alla hennar fylgikvilla; síþreytu,
þunglyndi og mígreni.
Breyttist lyfjanotkun í kjölfar detox-með-
ferðar? Já, ég hef tekið verkja- og mígrenilyf í ára-
raðir og flogaveikislyf vegna vefjagigtar. Einnig
þunglyndislyf. Ég var ákveðin í að minnka eða
hætta á lyfjunum áður en ég fór með Jónínu til Pól-
lands og minnkaði lyfjainntökuna smátt og smátt.
Mér leið strax betur og er lyfjalaus í dag.
Lærðirðu mikið af þessari reynslu? Ég lærði
fyrst og fremst að vera sátt við sjálfa mig. Í dag
líður mér dásamlega, ég hreyfi mig á hverjum degi
og borða eingöngu það sem ég má. Svefninn er
góður og ég vakna úthvíld. Það var áskorun að fara
ein til Póllands en mér kom á óvart hve hugarfarið
breyttist fljótt. Ég fann viljann til að taka til í eigin
lífi, læra að hlusta á líkamann og hjálpa honum að
lækna sig, en einnig að lifa í núinu og njóta þess
vera ég sjálf, sátt í eigin skinni.
Hvað tókstu með þér heim eftir detox-með-
ferðina? Ég er nýkomin heim eftir tveggja vikna
dvöl í Póllandi þar sem ég hreinsaði líkama, huga
og sál með ótrúlegri konu sem var ávallt til staðar,
stóð þétt við bakið á sínu fólki, gaf því góð ráð og
hvatti það til að lifa fyrir daginn í dag. Ég kom heim
allt önnur kona; fimm kílóum léttari, laus við verki,
mígreni og þreytu. Í dag tek ég engin lyf og er að
kynnast tilfinningum mínum upp á nýtt. Ég er lif-
andi sönnun þess að detox-meðferðin virkar.
ÁSTHILDUR BJ.
SNORRADÓTTIR
Hvernig leið þér áður en
þú fórst í detox? Áður en ég
fór í meðferðina var ég eigin-
lega komin í þrot. Síðasta ár
hafði verið mjög erfitt vegna
persónulegra aðstæðna og
mikils álags, sem hafði þau
áhrif að ég þyngdist mikið og
streita olli því að ég átti erfitt
með svefn og ég var með mikla vöðvabólgu og
sogæðabólgu. Þetta hafði auðvitað líka mikil áhrif á
andlega líðan.
Hefur þú einhverja sjúkdóma? Það er mikið
um hjartasjúkdóma í minni fjölskyldu og ég var
komin með hækkaðan blóðþrýsting og er á blóð-
þrýstingslyfjum.
Breyttist lyfjanotkun í kjölfar detox-með-
ferðar? Blóðþrýstingur lækkaði mikið og ég gat
minnkað notkun á blóðþrýstingslyfjum. Ég hafði
líka tekið inn svefnlyf en hætti því alveg í meðferð-
inni. Einnig léttist ég um rúmlega sjö kíló og vöðva-
bólga og sogæðabólga lagaðist mikið.
Lærðirðu mikið af þessari reynslu? Ég lærði
um mikilvægi þess að hugsa betur um sjálfa mig
og leggja meiri áherslu á slökun, rétt mataræði og
hreyfingu. Auðvitað vissi ég mikið um þetta áður
en meðferðin í Póllandi hjálpaði mér að ná betri
tökum á lífi mínu, læra slökun og gerði mér ljóst
mikilvægi þess að hreyfa mig á hverjum degi, rækta
mig andlega og hugsa jákvætt.
Hvað tókstu með þér heim eftir detox-með-
ferðina? Ég tók með mér vitund um það að við
erum það sem við borðum og hrein fæða er það
besta sem við setjum ofan í okkur. Einnig að ég
þarf að taka meiri ábyrgð á eigin heilsu og get haft
mikil áhrif á heilsu mína og vellíðan með réttum
ákvörðunum varðandi lífsstíl og andlega vellíðan.
Ég lít á það sem forréttindi að hafa fengið að taka
þátt í detox-meðferðinni og nú er bara að halda
áfram með breyttan lífsstíl þannig að árangurinn
sem ég náði verði viðvarandi.
ÁRANGUR FYRIR LÍKAMA OG SÁL
DETOX JÓNÍNU BEN KYNNIR Á hausti og vetri komanda stendur Jónína Ben fyrir lúxus detox- og dekurmeðferðum í samvinnu við
heimilislækni á Hótel Örk í Hveragerði og í Gdansk í Póllandi. Árangurinn er einstakur eins og vitni bera vott um.
JÓNÍNA BEN
Margir upplifa ýmis óþægindi eða jafnvel
langtímaveikindi án þess að vita af hverju
þau stafa. Oft er um fæðuóþol að ræða.
Boðið verður upp á óþolsmælingar sem
hjálpa fólki að þekkja og finna hvaða fæðu-
tegundir hafa slæm áhrif á heilsu og líðan.
Þessar mælingar hafa hjálpað mörgum að
losna við höfuðverk, þembu, þreytu, svefn-
leysi og fleira sem engar skýringar eru á,
en þó sér í lagi vefjagigt og bólgur.
ÓÞOLSMÆLINGAR
MEÐ BLÓÐSÝNI
DETOX 2013 OG 2014
13.-27. september á Hótel Örk
15.-29. nóvember á Hótel Örk
3.-17. janúar á Hótel Örk
14.-28. febrúar á Hótel Örk
12.-26. apríl páskaferð til
Gdansk, Póllandi
24. maí til 7. júní, Gdansk,
Póllandi (unglingahópur)
24. maí til 7. júní, Gdansk,
Póllandi
23. ágúst til 6. september,
Gdansk, Póllandi
15.- 29. nóvember á Hótel Örk
Skráning hjá joninaben@nordic-
health.is eða í síma 8224844
Æ FLEIRI FÁ FRÍA TANNLÆKNAÞJÓNUSTU
Samningur Sjúkratrygginga Íslands og Tannlæknafélags Íslands um tannlækningar barna tók gildi 15. maí síðastliðinn. Markmið samningsins er að
börn yngri en 18 ára fái nauðsynlega tannlæknaþjónustu óháð efnahag foreldra.
Tannlæknaþjónusta barna verður innleidd í áföngum. Í upphafi tók samningurinn til 15, 16 og 17 ára barna. Þann 1. september munu 3, 12, 13 og 14
ára börn bætast við.
Í áföngum munu öll börn falla undir samninginn.
Þau börn sem samningurinn tekur ekki strax til eiga áfram rétt á greiðsluþátttöku vegna tannlæknakostnaðar í samræmi við endurgreiðslugjaldskrá
Sjúkratrygginga Íslands.
Samningurinn mun aftur á móti taka til allra barna í bráðavanda sem búa við erfiðar félagslegar aðstæður þótt þau falli ekki undir aldursmörk
samningsins á hverjum tíma.
S k e i f a n 3 j | S í m i 5 5 3 8 2 8 2 | w w w . h e i l s u d r e k i n n . i s
Opið hús kynningarvika 27.-31. ágúst
3. Betra blóðstreymi
Með sérstökum öndunaræfingum getur þú aukið
súrefnisflæði í líkamanum.
4. Dregur úr spennu
Með því að minnka viðbrögð við spennuvekjandi álagi.
Hjálpar gegn þráhyggu- og áráttuhegðun, þunglyndi
og kvíða og persónuleikaeinkennum af A-gerð.
5. Byggir upp sjálfsvirðingu
Með því að leyfa þér að líða vel og þægilega.
1. Aukin vellíðan og lífsþróttur
Minnkar blóðþrýsting, bætir hjarts- og æðastarfsemi,
jafnar hjartsláttartíðni og minnkar kólesteról.
2. Dregur úr þrálátum sársauka
Með hjálp sjónar og stjórn hugar og líkama getur
þú dregið úr þrálátum sársauka frá liðagigt.
Skráning
í síma
553 82825 helstu ástæður þess að iðka heilsu qigong
Qigong (borið fram “tsí-gong”) er yfir 5.000 ára gamalt æfingakerfi í heilsurækt þar sem saman fer qi,
sem merkir “lífskraftur”, og gong, sem merkir “nákvæmar æfingar”.