Fréttablaðið - 27.08.2013, Side 31

Fréttablaðið - 27.08.2013, Side 31
ÞRIÐJUDAGUR 27. ágúst 2013 | MENNING | 23 Fimm vikur eru í að tíunda RIFF-hátíðin (Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykja- vík) hefjist. Hátíðin hefst fimmtudaginn 26. september og lýkur tíu dögum síðar, sunnu- daginn 6. október. Fjölmargar nýjar myndir af öllum stærðum og gerðum, bæði leiknar og heim- ildarmyndir, verða á dagskrá. Tíu myndir hafa verið staðfestar á hátíðina. Á meðal þeirra eru hin gríska Miss Violence, sem er hrollvekjandi og hárbeitt drama, Mistaken for Strangers, sem fjallar um Tom Bernigner, söngvara hljómsveitarinnar The National, og bróður hans á tónleika- ferðalagi, og myndin My Afghanistan – Life in the Forbidden Zone, sem sýnir almenna afganska borgara kvikmynda líf sitt á þriggja ára tímabili. Miðasalan á hátíðina er hafin á Riff.is. Hátíðarpassi sem gildir á allar hefðbundnar kvikmyndasýningar RIFF kostar 9.500 kr en klippikort sem gildir á átta sýningar og hægt er að deila kostar 8.000 kr. Tíu myndir staðfestar á RIFF-hátíðina Fimm vikur eru í að tíunda RIFF-hátíðin verði haldin í Reykjavík. Fjölbreytt úrval mynda að venju. MISTAKEN FOR STRANGERS Myndin fjallar um Tom Berninger úr The National og bróður hans á tónleikaferðalagi hljómsveitarinnar. Kevin Spacey hefur varað yfir- menn sjónvarpsstöðva við því að iðnaðurinn muni hrynja ef þeir gefa fólki ekki tækifæri til að horfa á sjónvarpsþætti hvenær sem það vill. Óskarsverðlaunahafinn var ræðumaður á alþjóðlegri sjón- varpsráðstefnu í Edinborg þar sem hann lét þessi orð falla. Spacey sagðist óttast að sjónvarpsiðnaður- inn hljóti sömu örlög og tónlistar- iðnaðurinn og tapa gríðarlegum fjármunum, nema hann aðlagist markaðinum. „ Áhorfendurnir vilja stjórna sjálfir, þeir vilja frelsið. Sjónvarpsstöðvar sem hunsa þessar óskir munu dragast aftur úr. Og ef þær vilja ekki hlusta á þessar viðvörunarraddir munu áhorfendur þróast hraðar áfram en þær,“ sagði hann. „Látið fólkið fá það sem það vill, þegar það vill og í því formi sem það vill. Ef verðið fyrir það er sanngjarnt er fólkið líklegra til að borga fyrir það í staðinn fyrir að stela því.“ Fólkið verður að ráða KEVIN SPACEY Leikarinn var ræðu- maður á sjónvarpsráðstefnu í Edinborg. Ástralska fyrirsætan Robyn Lawley segir slagorðið „alvöru konur eru með ávalar línur“ vera niðrandi og neikvætt. „Þetta slagorð er mjög ósann- gjarnt gagnvart grannvöxnum konum, líkt og systur minni. Að kalla grannar konur ljótar er engu réttlætanlegra en að kalla feitar konur ljótar. Mér finnst öll þessi umræða um þyngd ýta undir útlitsáráttu kvenna. Hvað með að ræða frekar um gáfna- far og styrk kvenna? Við eigum að taka á launamismun og öðru óréttlæti. Þess í stað er endalaust verið að hamra á því að konur séu annaðhvort ekki nógu grannar eða of grann- ar,“ sagði fyrirsætan í viðtali við The Guardian. Vill umræðu um gáfnafar kvenna ÓSÁTT Robyn Lawley er þreytt á umræðu um þyngd kvenna. NORDIC- PHOTOS/GETTY ÞJÓÐLEIKHÚSKORT Á VILDARKJÖRUM Arion banki býður viðskiptavinum í Vildarþjónustu Leikhúskort Þjóðleikhússins á sérstökum vildarkjörum. Veldu þér fjórar sýningar af spennandi efnisskrá Þjóðleikhússins og settu þær á Leikhúskortið þitt. Almennt kort 11.900 kr. – fullt verð er 13.900 kr. Ungmennakort fyrir 25 ára og yngri 5.900 kr. – fullt verð er 7.900 kr. Gildir á sýningar á miðvikudögum. Afslátturinn gildir ef greitt er með greiðslukorti frá Arion banka. Gildir til og með 4. september nk. Leikhúskortin fást í miðasölu Þjóðleikhússins. Miðasalan er opin alla daga milli 12 og 18 og síminn er 551 1200. Þú finnur allt um efnisskrána á leikhusid.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.