Fréttablaðið - 20.09.2013, Síða 4

Fréttablaðið - 20.09.2013, Síða 4
20. september 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 1.400.000 kvik-mynda- húsagestir sóttu almennar sýningar íslenskra kvikmynda- húsa á árinu 2012. Það jafngildir því að hver landsmaður hafi 4,5 sinnum sótt kvikmyndasýn- ingar á árinu. Heimild: Hagstofa Íslands. VARNARMÁL „Þau kusu að koma ekki inn og það er þeirra val,“ sagði Knud Bartels, formaður hermála- nefndar NATO, um hóp mótmæl- enda sem beið fyrir utan Norræna húsið í gær þegar hann kom þang- að til að flytja fyrirlestur um stöðu og þróun Atlantshafsbandalagsins. Hann gaf sig á tal við hópinn og bauð honum að koma inn að hlusta á fyrirlesturinn og taka þátt í umræðum. Hann segir Nato vera opin, gegnsæ og ábyrg samtök: „Þess vegna finnst mér fullkomlega eðli- legt að sýna mótmælendum virð- ingu og bjóða þeim til þátttöku í umræðum,“ sagði hann við Frétta- blaðið. „Það er vegna þess að nýjar hugmyndir og ný sjónarmið mót- ast með því að hlusta á þá sem eru ósammála manni.“ Einn aðstoðarmanna hans, Dan B. Termanson, gaf sig einnig á tal við talsmann mótmælenda og segist hafa átt góðar samræður við hann. Bartels kom víða við í fyrir- lestri sínum og svörum við spurn- ingum úr sal, ræddi meðal ann- ars um vandamál sem koma upp vegna hlutverkaskiptingar milli herstjórnarvalds annars vegar og borgaralegra stjórnvalda hins vegar. Þá sagði hann að margvís- legir erfiðleikar stöfuðu af óljósri hlutverkaskiptingu milli NATO, Evrópusambandsins og Sameinuðu þjóðanna. Hvað varðar Sýrland og hugsan- lega aðild NATO að hernaðarað- gerðum þar tók hann fram í stuttu spjalli við Fréttablaðið að engin áform væru um slíkt af hálfu NATO. „Við höldum auðvitað áfram að fylgjast mjög vandlega með ástandinu. Verði óskað eftir frek- ari aðgerðum mun það ekki gerast fyrr en NATO-ráðið hefur skoðað það mjög vandlega.“ Hann sagði engan vafa leika á því að miklar breytingar væru í vændum á norðurskautinu vegna loftslagsbreytinga. Þetta myndi örugglega hafa mikil áhrif á öll ríki norðurskautssvæðisins. „Mörg þessara ríkja eru aðildar- ríki NATO, sum ekki. En frá sjónar- hóli NATO viljum við fylgjast með því hvað aðildarríkin eru að gera.“ Hann sagði NATO tilbúið til að veita aðildarríkjunum aðstoð en sá ekki fyrir sér neitt virkt hlutverk fyrir bandalagið á norðurslóðum. gudsteinn@frettabladid.is Segir NATO fylgjast með norðurslóðum Knud Bartels sér ekki fyrir sér að NATO hafi miklu hlutverki að gegna á norður- slóðum á næstunni. Hann segir NATO vera opin og gegnsæ samtök. Þess vegna hafi hann boðið mótmælendum að taka þátt í samræðum, sem ekki var þegið. BAUÐ MÓTMÆLENDUM INN TIL VIÐRÆÐNA Danski herforinginn Knud Bartels ræddi um NATO í Norræna húsinu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Knud Bartels hefur verið formaður hermálanefndar Atlantshafsbandalags- ins (NATO) frá ársbyrjun 2012. Bartels er danskur, fæddur árið 1952, og gekk í danska herinn árið 1972. Starfsferill hans hefur að mestu verið innan danska hersins, þar sem hann hækkaði í tign jafnt og þétt með árunum. Frá 2009 til 2011 var hann yfirmaður danska heraflans og helsti hernaðarráðgjafi dönsku stjórnarinnar. Knud Bartels og hermálanefnd NATO STJÓRNSÝSLA „Garðabær hefur fullan hug á að semja við fyrir- tækið Sinnum um áframhaldandi starfsemi fyrirtækisins í Holtsbúð 87,“ segir Guðfinna B. Kristjáns- dóttir, upplýsingastjóri Garða- bæjar, í tilefni fréttar Fréttablaðs- ins um fyrirhuguð kaup bæjarins á Holtsbúð 87 af St. Jósefssystrum. Kaupin eiga að verða er húsa- leigusamningur við hjúkrunar- og heimaþjónustufyrirtækið Sinnum ehf. rennur út í mars 2014. „Garða- bær leigir nú húsið af St. Jósefs- systrum og framleigir hluta þess til Sinnum. Engin áform eru um annað en að endurnýja leigusamn- ing við fyrirtækið eftir að Garða- bær verður eigandi hússins svo það geti haldið áfram starfsemi sinni í húsinu,“ segir Guðfinna. - gar Notkun ekki breytt við kaup: Aldraðir áfram í Holtsbúð 87 HÚS ST. JÓSEFSSYSTRA Verður áfram hjúkrunarheimili. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ÞORLÁKSHÖFN Ekki opið fram á nótt Vegna andstöðu íbúa í nágrenninu hefur bæjarráð Ölfuss synjað veitinga- staðnum Viking-pizza í Þorlákshöfn um að lengja afgreiðslutímann og hafa opið til eitt á nóttunni virka daga og til klukkan þrjú um helgar. VESTMANNAEYJAR Slæmt ástand útilistaverka Ástand og viðhald útilistaverka Vest- mannaeyjabæjar er sagt ekki gott. Menningarfulltrúi og tæknideild bæjarins munu meta ástandið og þörf á hugsanlegum úrbótum. DÓMSMÁL Hæstiréttur þyngdi í gær dóm héraðsdóms yfir Aroni Karlssyni, úr tveggja ára fangelsi í tvö og hálft, fyrir fjársvik við söluna á stórhýsi við Skúlagötu til kínverska ríkisins. Þar er sendiráð Kínverja nú til húsa. Aron var fundinn sekur um að hafa blekkt banka sem áttu veð í húsinu með því að kynna þeim falskt tilboð og láta þá aflétta veð- böndum, þegar annað mun hærra tilboð frá Kínverjunum lá fyrir. - sh Tveggja og hálfs árs fangelsi: Dómur yfir Aroni þyngdur SAMGÖNGUR Mikill meirihluti landsmanna, eða 80 prósent, vill að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram í Vatnsmýrinni, þetta kemur fram í nýrri skoðana- könnun MMR. Á landsbyggðinni sögðust níu af hverjum tíu vilja óbreytt ástand og átta af hverjum tíu íbúum á höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur vildu að völlur- inn yrði áfram í Vatnsmýri. Heldur færri, eða sjö af hverj- um tíu íbúum, í Reykjavík sögð- ust vilja að völlurinn yrði áfram á sama stað. Afstaða kynjanna til málsins er ólík, 76 prósent karla svöruðu játandi en 87 prósent kvenna. 942 tóku þátt í könnun- inni. Þar af tóku tæplega 90 pró- sent afstöðu. - jme Mikill meirihluti sammála: Vilja ekki flytja flugvöllinn ÞYNGRI DÓMUR Aron fékk tvö ár í hér- aði en Hæstiréttur taldi það ekki nóg. STJÓRNMÁL „Vonandi sé ég ykkur og peningana ykkar á Íslandi,“ sagði Sigmundur Davíð Gunn- laugsson forsætisráðherra og upp- skar hlátur í lok erindis síns á Iceland Investment Forum á hótel Waldorf Hilton í London í gær. Á ráðstefnunni var til umfjöll- unar fjárfestingar- og efnahags- umhverfið á Íslandi í dag. Að sögn Sigmundar er ríkisstjórnin samhent í að bæta fjárfestingar- umhverfi landsins þannig að auka mætti erlenda fjárfestingu. - óká Forsætisráðherra í London: Uppskar hlátur ráðstefnugesta STJÓRNMÁL Sjálfstæðismenn í Reykjavík ætla að halda prófkjör vegna borgarstjórnarkosninganna næsta vor, 16. nóvember næstkomandi. Þetta var ákveðið á fundi fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í borginni í gærkvöldi. Flokksmenn hafa síðustu daga deilt um hvernig ætti að raða á lista fyrir borgarstjórnarkosningarnar. Stjórn Varðar hafði ákveðið að láta kjósa um tvær leiðir, leið- togaprófkjör og hefðbundið prófkjör. Til að ná sáttum var ákveðið að falla frá hugmynd- um um leiðtogaprófkjör og halda þess í stað hefðbundið prófkjör. Í því munu flokksfélagar velja með hefðbundn- um hætti fulltrúa í sæti á framboðslista. Kjörnefnd sér síðan um að velja aftari sæti listans líkt og venja hefur verið. - jme Sjálfstæðismenn í Reykjavík falla frá hugmyndum um leiðtogaprófkjör: Prófkjör um miðjan nóvember ÞÉTT SETIÐ Á meðal þeirra sem mættu til fundarins voru Kjartan Gunnarsson og ráðherrarnir Illugi Gunnars- son og Hanna Birna Kristjánsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sigurður Helgi Grímsson sigurdurhg@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ Veðurspá Sunnudagur Fremur hægur vindur HAUSTLEG HELGI Úrkoma einkum á NV-verðu landinu á morgun en bjart SA- og A-til. Vindur fremur hægur og snýst í norðanátt á sunnudag. Hiti 2-10 stig. 8° 3 m/s 8° 6 m/s 7° 6 m/s 7° 12 m/s Á morgun 3-8 m/s Gildistími korta er um hádegi 8° 7° 7° 6° 4° Alicante Basel Berlín 27° 22° 14° Billund Frankfurt Friedrichshafen 16° 17° 17° Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas 17° 17° 26° London Mallorca New York 17° 27° 25° Orlando Ósló París 31° 17° 21° San Francisco Stokkhólmur 19° 16° 6° 4 m/s 8° 3 m/s 10° 4 m/s 8° 6 m/s 7° 5 m/s 9° 5 m/s 2° 6 m/s 8° 4° 5° 10° 7° Snjólaug Ólafsdóttir veðurfréttamaður Jólaferð til Parísar 5. - 8. desember Fararstjóri: Laufey Helgadóttir Verð: 109.900 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Komdu með í skemmtilega jólaferð til Parísar, ljósadýrð aðventunnar er töfrandi á þessum tíma og mikil jólastemning er um alla borg.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.