Fréttablaðið - 20.09.2013, Blaðsíða 8
20. september 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
➜ Hefur þú einhvern
tíma notað kannabisefni?
➜ Hefur þú neytt kannabisefna
reglulega?
➜ Hversu oft hefur þú neytt
kannabisefna í ár?
Já
35,9%
Nei
64,1%
Já
6,5%
Aldrei prófað
64,1%
Nei
29,4%
10-19
sinnum
0,4%
20-39
sinnum
3,1%
1-2 sinnum
11,5%
6-9 sinnum
1,4%
3-5 sinnum
1,9%
Aldrei
81,7%
KANNABISNEYSLA Á ÍSLANDI
Lau. 28. sept. 2013 » 14:00
Lau. 28. sept. 2013 » 16:00
Jóhann G. Jóhannsson
Tónlist úr
Skilaboðaskjóðunni
Bernharður Wilkinson
hljómsveitarstjóri
Eyþór Ingi Gunnlaugsson,
Jóhanna Vigdís
Arnardóttir,
Sigríður Thorlacius og
Örn Árnason söngvarar
Gradualekórar
Langholtskirkju
Jón Stefánsson kórstjóri
Heillandi, litrík og fjörug
tónlistin úr ævintýrasöng-
leiknum Skilaboðaskjóðunni
verður flutt á upphafstón-
leikum Litla tón sprotans.
Skilaboðaskjóðan eftir
Þorvald Þorsteinsson með
tónlist eftir Jóhann G.
Jóhannsson var frumsýnd
í Þjóðleikhúsinu í nóvem-
ber 1993 og fékk fádæma
góðar viðtökur. Tónlistin
hefur lifað sjálfstæðu lífi
utan leikhússins og verður
nú flutt í nýrri útsetningu
tónskáldsins fyrir Sinfóníu-
hljómsveit Íslands.
Skilaboðaskjóðan
Miðasala » www.sinfonia.is » www.harpa.is » Sími: 528 5050
Save the Children á Íslandi
Rúmlega þriðjungur Íslendinga á aldrinum 18 til 67 hefur prófað kannabisefni á lífsleiðinni, samkvæmt nýrri könnun.
Fáir teljast þó til virkra reglulegra neytenda.
➜ Önnur efni ➜ Áfengisneysla síðustu 30 daga
Amfetamín
10,8%
Kókaín
8,8%
Sveppi
6%
E-pillu
5%
LSD, sýru
2,4%
Annað
0,9%
Hef aldrei prófað þessi efni
86,6%
Drekk ekki
17%
Bjór
61,6%
Léttvín
55,6%
Sterkt
28,9%
Heimabrugg
4,3%
➜ Viðhorf til lögleiðingar kannabisefna ➜ Hversu líklegt er að þú munir prófa
kannabisefni ef þau verða leyfð með lögum?
2003
Hlynnt/ur
Í meðallagi
Andvíg/ur
9,3%
3,5%
87,2%
Hlynnt/ur
Í meðallagi
Andvíg/ur
11,3%
10,7%
78%
Líklegt
Hvorki né
Ólíklegt
2,6%
2,6%
94,7%
2003
Líklegt
Hvorki né
Ólíklegt
4,5%
4,7%
90,7%
20122012
Nokkuð hefur dregið úr andstöðu við lögleiðingu kannabisefna frá því að spurt var um sama efni árið 2003.
Rúmlega 13 prósent svarenda segjast hafa prófað
önnur vímuefni en kannabisefni, sem er nokkur aukning
frá könnuninni árið 2003. Flestir hafa prófað amfetamín.
Rúmlega 80 prósent svarenda könnunarinnar segjast
hafa drukkið áfengi á síðustu 30 dögum.
HEILBRIGÐISMÁL Rúm 80 prósent
þeirra sem einhvern tíma hafa
neytt kannabisefna neyttu þeirra
ekki á síðustu tólf mánuðum. Þetta
er meðal þess sem kemur fram í
nýrri könnun sem fyrirtækið Mask-
ína gerði fyrir Landlæknisembætt-
ið í lok síðasta árs og greint var frá
í talnabrunni þess í gær.
Í úrtakinu var alls 1.751 einstak-
lingur á aldrinum 18-67 ára af öllu
landinu. Svarhlutfall var 58,3%.
Samkvæmt könnuninni hefur
rúmur þriðjungur Íslendinga á
aldrinum 18 til 67 ára einhvern
tíma á ævinni neytt kannabisefna,
sem er aukning upp á um ellefu
prósentustig frá árinu 2003.
Sveinbjörn Kristjánsson, sér-
fræðingur hjá Landlækni, segir að
þrátt fyrir þá aukningu sé margt
jákvætt að finna í könnuninni.
„Það sem kemur okkur hvað mest
á óvart er að af þessum 35 pró-
sentum sem hafa neytt kannabis-
efna einhvern tímann hafa fæstir
notað þessi efni á síðustu tólf mán-
uðum og eru þar af leiðandi hættir
neyslu. Af hinum sem eftir standa
hafa langflestir bara prófað einu
sinni eða tvisvar síðasta ár og þá
erum við með 3-4 prósent sem hafa
prófað efnin tuttugu sinnum eða
oftar.“
Sveinbjörn segir að samkvæmt
þessum tölum megi sjá að hópur
fólks sem notar kannabisefni reglu-
lega yfir langan tíma sé ekki ýkja
stór og standi í stað milli kann-
ana. Það sem geti meðal annars
skýrt stökkið úr 25% yfir í 36% er
að í fyrri úrtökum hafi verið fólk
af kynslóðum sem komust aldrei í
snertingu við kannabisefni.
Sveinbjörn segir að þessi staða
sem birtist í könnunum gefi aðra
mynd en opinber umræða, þar sem
mikið er rætt um sprengingu í notk-
un kannabisefna hér á landi.
„Þau gögn sem við höfum sýna
okkur að kannabisneysla hefur held-
ur dalað í grunnskólunum síðustu
ár, þrátt fyrir að umræðan gefi til
kynna að allt sé að fara á versta veg.
Það er nefnilega mjög mikilvægt
að gera ekki of mikið úr þessu og
tala eins og allir séu að reykja þessi
efni því að þá er maður að „normal-
ísera“ ástandið og það er hættulegt
í sjálfu sér. Ef unglingar fá það á til-
finninguna að allir séu að prófa eru
þeir líklegri til þess að prófa.“
Sveinbjörn segist alls ekki vera
að gera of lítið úr ástandi mála en
besta leiðin til að koma í veg fyrir
að unglingar leiðist út í neyslu sé
að koma betri upplýsingum til fag-
fólks, þar á meðal kennara, og for-
eldra sem svo geti rætt málin við
börn og unglinga.
„Krakkarnir eru skynsamir og
hlusta ekki á neinn hræðsluáróður.
Þeir vilja upplýsingar og að full-
orðna fólkið í kringum þá geti talað
við þá um kannabis. Til þess að það
sé hægt þurfa foreldrar að geta rætt
um málin á skynsamlegan hátt. Það
þarf ekkert að mála skrattann á
vegginn,“ segir Sveinbjörn.
thorgils@frettabladid.is
35% Íslendinga hafa
prófað kannabis
Ný könnun á kannabisneyslu Íslendinga sýnir að rúmur þriðjungur landsmanna
upp að 67 ára hefur neytt slíkra efna á ævinni. Sérfræðingur hjá Landlækni sér
hins vegar jákvæð teikn. Mikilvægt sé einnig að gera ekki of mikið úr vandanum.
Krakk-
arnir eru
skynsamir og
hlusta ekki á
neinn hræðslu-
áróður. Þau
vilja upplýsing-
ar og að fullorðna fólkið í
kringum þau geti talað við
þau um kannabis.
Sveinbjörn Kristjánsson, sérfræðingur hjá
Landlæknisembættinu.