Fréttablaðið - 20.09.2013, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 20.09.2013, Blaðsíða 10
20. september 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10 FERÐAÞJÓNUSTA Nýr framtaks- sjóður á vegum Landsbréfa hefur fjárfest í tveimur stórum verk- efnum í ferðaþjónustu; hestamið- stöð í Ölfusi og ísgöngum í Lang- jökli. Þetta eru fyrstu verkefnin sem sjóðurinn, sem ber nafnið Icelandic Tourism Fund (ITF I), fjárfestir í. Hluthafar eru Ice- landair Group, Landsbankinn og nokkrir lífeyrissjóðir. Helgi Júlíusson sjóðstjóri segir að sjóðurinn hafi verið stofn- aður á vordögum og hafi það að markmiði að auka fjölbreyti- leika og styrkja ferðaþjónustu á Íslandi. Sjóðurinn mun fjárfesta í afþreyingartengdri ferðaþjón- ustu og verður megináherslan á heilsársverkefni, þar sem slík verkefni stuðla að betri nýtingu á innviðum ferðaþjónustunnar yfir vetrartímann. Áhersla er lögð á færri en stærri verkefni en hámarks- stærð einstakrar fjárfestingar nemur 20 prósentum af áskriftar- loforðum sjóðsins. Aðstandendur sjóðsins sjá fyrir sér að fjárfesta í fimm til tíu verkefnum, en fjár- festingargetan er 2,1 milljarður króna. Frá stofnun hefur tíminn verið nýttur til að skoða fjárfestingar- tækifæri, að sögn Helga. „Þegar hefur verið tekin ákvörðun um fjárfestingu í tveimur verkefn- um, en fjölmörg önnur áhuga- verð verkefni eru til skoðunar, þó að vinna við þau sé mislangt á veg komin. Bæði kemur til greina að koma að verkefnum sem enn eru á hugmyndastigi og fjárfesta í minni fyrirtækjum sem við teljum hafa burði til að vaxa og dafna.“ Spurður hvort sjóðurinn sé nýmæli í fjárfestingum í ferða- þjónustunni segir Helgi það ekki fjarri lagi. „Ég held að þetta sé eini sjóðurinn sem gefur sig út fyrir að fjárfesta í ferðaþjónust- unni eingöngu. Á sama tíma er umtalað að það vanti fjárfestingu í ferðaþjónustu til að mæta þeim aukna fjölda ferðamanna sem hingað kemur. Það er því nokk- uð sérstakt að fleiri séu ekki að einbeita sér að fjárfestingu sem þessari,“ segir Helgi og tekur fram að vissulega séu margir að fjárfesta í hótelbyggingum, bílaleigum og fleiru. „En það er annað og fellur ekki undir fjár- festingarstefnu sjóðsins.“ svavar@frettabladid.is Ísgöng og hestamiðstöð fyrstu skref Icelandic Tourism Fund, nýr framtakssjóður í eigu Icelandair Group, Landsbankans og nokkurra lífeyrissjóða, hefur fjárfest í tveimur stórum verkefnum í afþreyingu fyrir ferðamenn. Fjárfestingargeta sjóðsins er 2,1 milljarður króna. Frekari fjárfestingar eru á teikniborðinu. ● Starfsemi hestamiðstöðvarinnar verður á Ingólfshvoli í Ölfusi og byggir á hestasýningum sem höfða munu til allrar fjölskyldunn- ar en auk þess verður á staðnum starfrækt veitingaþjónusta og verslun. Ráðgert er að starfsemi hefjist í desember. ● Gert er ráð fyrir að jafnaði einni hestasýningu á dag þar sem byggt er á sérstöðu og hæfileikum ís- lenska hestsins og hlutverki hans í sögu byggðar. Lögð verður áhersla á skemmtanagildið. ● Guðmar Þór Pétursson stýrir upp- setningu á sýningunum en hann hefur búið í Bandaríkjunum í átta ár og staðið þar fyrir fjölmörgum sýningum á íslenska hestinum. ● Tíu til ellefu manns taka þátt í hverri sýningu og rúmlega 20 hestar. ● Margmiðlun, ljós og hljóð munu gegna stóru hlutverki í sýningun- um með áherslu á tengsl hestsins og íslenskrar náttúru. ● Reyndir framleiðendur, tæknifólk og leikhúsfólk mun koma að upp- setningu sýninganna. ● Hægt verður að taka á móti allt að 850 gestum á hverja sýningu. Einnig verður rekinn fullkominn veitingastaður og verslun í tengslum við miðstöðina. ● Áætlanir gera ráð fyrir um 40 þúsund gestum á fyrsta heila rekstrarárinu. ➜ Hestamiðstöð í Ölfusi ● Mikill áhugi er á jöklum meðal erlendra ferðamanna og sem dæmi um það fara árlega allt að átta þúsund ferðamenn á Langjökul með ferðaþjón- ustufyrirtækjum sem þar eru með starfsemi. ● Ísgöngum í Langjökli er ætlað að bjóða ferðamönnum upp á upplifun á heimsmælikvarða þar sem hægt er að skoða jökulinn að innan og hin einstöku litbrigði sem þar má sjá auk þess sem gestir verða fræddir um myndun jökla, möguleg áhrif af hlýnun jarðar og fleira. ● Ferðamenn munu fara á jökulinn á sérútbúnum farartækjum að mynni ganganna og geta síðan gengið inn í jökulinn sjálfan. ● Göngin munu geta tekið við allt að 400 gestum á dag. Áætlanir gera ráð fyrir rúmlega 27 þúsund gestum á ári. ● Verkfræðistofan Efla hefur unnið að hönnun ganganna en framkvæmdir hefjast síðar á árinu. ÍSGÖNG Í LANGJÖKLI UNDIR JÖKLI Boðið verður upp á veitingar og leiðsögn þegar komið er inn í ísgöng- in. Ferðin að jöklinum verður einnig mikil upplifun fyrir ferðamennina. MYND/ITF Bæði kemur til greina að koma að verkefnum sem enn eru á hugmynda- stigi og fjárfesta í minni fyrirtækjum sem við teljum hafa burði til að vaxa og dafna. Helgi Júlíusson, sjóðstjóri NISSAN QASHQAI NISSAN QASHQAI DÍSIL 4WD VERÐ FRÁ 4.990 ÞÚS. KR. KAUPAUKI AÐ ANDVIR 500 ÞÚS. KR. · Vetrardekk · Dráttarbeisli · iPad 32 GB BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is 500 ÞÚS. KR. KAUPAUKI FYLGIR QASHQAI Þeir sem kaupa Qashqai eru að leita að fallegum fjórhjóla- drifnum bíl sem er hagkvæmur í rekstri og góður í endursölu. Qashqai eyðir einungis frá 4,6 l/100 km Qashqai 1,6 dCi beinsk. Verð: 4.990 þús. kr. Qashqai+2 1,6 dCi beinsk. 7 manna Verð: 5.390 þús. kr. Qashqai 2,0 bensín, sjálfsk. Verð: 5.790 þús. kr. Qashqai 2,0 dCi sjálfsk. Verð: 6.090 þús. kr. iPad 32GBfylgir með ásamt veglegri hlífðartösku ÐI GE bílar Reykjanesbæ www.bilahusid.is 421 8808 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 E N N E M M / S ÍA / N M 5 8 9 14
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.