Fréttablaðið - 20.09.2013, Qupperneq 10
20. september 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
FERÐAÞJÓNUSTA Nýr framtaks-
sjóður á vegum Landsbréfa hefur
fjárfest í tveimur stórum verk-
efnum í ferðaþjónustu; hestamið-
stöð í Ölfusi og ísgöngum í Lang-
jökli. Þetta eru fyrstu verkefnin
sem sjóðurinn, sem ber nafnið
Icelandic Tourism Fund (ITF I),
fjárfestir í. Hluthafar eru Ice-
landair Group, Landsbankinn og
nokkrir lífeyrissjóðir.
Helgi Júlíusson sjóðstjóri segir
að sjóðurinn hafi verið stofn-
aður á vordögum og hafi það að
markmiði að auka fjölbreyti-
leika og styrkja ferðaþjónustu á
Íslandi. Sjóðurinn mun fjárfesta
í afþreyingartengdri ferðaþjón-
ustu og verður megináherslan
á heilsársverkefni, þar sem slík
verkefni stuðla að betri nýtingu á
innviðum ferðaþjónustunnar yfir
vetrartímann.
Áhersla er lögð á færri en
stærri verkefni en hámarks-
stærð einstakrar fjárfestingar
nemur 20 prósentum af áskriftar-
loforðum sjóðsins. Aðstandendur
sjóðsins sjá fyrir sér að fjárfesta
í fimm til tíu verkefnum, en fjár-
festingargetan er 2,1 milljarður
króna.
Frá stofnun hefur tíminn verið
nýttur til að skoða fjárfestingar-
tækifæri, að sögn Helga. „Þegar
hefur verið tekin ákvörðun um
fjárfestingu í tveimur verkefn-
um, en fjölmörg önnur áhuga-
verð verkefni eru til skoðunar,
þó að vinna við þau sé mislangt á
veg komin. Bæði kemur til greina
að koma að verkefnum sem enn
eru á hugmyndastigi og fjárfesta
í minni fyrirtækjum sem við
teljum hafa burði til að vaxa og
dafna.“
Spurður hvort sjóðurinn sé
nýmæli í fjárfestingum í ferða-
þjónustunni segir Helgi það ekki
fjarri lagi. „Ég held að þetta sé
eini sjóðurinn sem gefur sig út
fyrir að fjárfesta í ferðaþjónust-
unni eingöngu. Á sama tíma er
umtalað að það vanti fjárfestingu
í ferðaþjónustu til að mæta þeim
aukna fjölda ferðamanna sem
hingað kemur. Það er því nokk-
uð sérstakt að fleiri séu ekki að
einbeita sér að fjárfestingu sem
þessari,“ segir Helgi og tekur
fram að vissulega séu margir
að fjárfesta í hótelbyggingum,
bílaleigum og fleiru. „En það er
annað og fellur ekki undir fjár-
festingarstefnu sjóðsins.“
svavar@frettabladid.is
Ísgöng og hestamiðstöð fyrstu skref
Icelandic Tourism Fund, nýr framtakssjóður í eigu Icelandair Group, Landsbankans og nokkurra lífeyrissjóða, hefur fjárfest í tveimur stórum
verkefnum í afþreyingu fyrir ferðamenn. Fjárfestingargeta sjóðsins er 2,1 milljarður króna. Frekari fjárfestingar eru á teikniborðinu.
● Starfsemi hestamiðstöðvarinnar
verður á Ingólfshvoli í Ölfusi og
byggir á hestasýningum sem
höfða munu til allrar fjölskyldunn-
ar en auk þess verður á staðnum
starfrækt veitingaþjónusta og
verslun. Ráðgert er að starfsemi
hefjist í desember.
● Gert er ráð fyrir að jafnaði einni
hestasýningu á dag þar sem byggt
er á sérstöðu og hæfileikum ís-
lenska hestsins og hlutverki hans í
sögu byggðar. Lögð verður áhersla
á skemmtanagildið.
● Guðmar Þór Pétursson stýrir upp-
setningu á sýningunum en hann
hefur búið í Bandaríkjunum í átta
ár og staðið þar fyrir fjölmörgum
sýningum á íslenska hestinum.
● Tíu til ellefu manns taka þátt í
hverri sýningu og rúmlega 20
hestar.
● Margmiðlun, ljós og hljóð munu
gegna stóru hlutverki í sýningun-
um með áherslu á tengsl hestsins
og íslenskrar náttúru.
● Reyndir framleiðendur, tæknifólk
og leikhúsfólk mun koma að upp-
setningu sýninganna.
● Hægt verður að taka á móti allt
að 850 gestum á hverja sýningu.
Einnig verður rekinn fullkominn
veitingastaður og verslun í
tengslum við miðstöðina.
● Áætlanir gera ráð fyrir um 40
þúsund gestum á fyrsta heila
rekstrarárinu.
➜ Hestamiðstöð
í Ölfusi
● Mikill áhugi er á jöklum meðal erlendra ferðamanna og sem dæmi um
það fara árlega allt að átta þúsund ferðamenn á Langjökul með ferðaþjón-
ustufyrirtækjum sem þar eru með starfsemi.
● Ísgöngum í Langjökli er ætlað að bjóða ferðamönnum upp á upplifun á
heimsmælikvarða þar sem hægt er að skoða jökulinn að innan og hin
einstöku litbrigði sem þar má sjá auk þess sem gestir verða fræddir um
myndun jökla, möguleg áhrif af hlýnun jarðar og fleira.
● Ferðamenn munu fara á jökulinn á sérútbúnum farartækjum að mynni
ganganna og geta síðan gengið inn í jökulinn sjálfan.
● Göngin munu geta tekið við allt að 400 gestum á dag. Áætlanir gera ráð
fyrir rúmlega 27 þúsund gestum á ári.
● Verkfræðistofan Efla hefur unnið að hönnun ganganna en framkvæmdir
hefjast síðar á árinu.
ÍSGÖNG Í LANGJÖKLI
UNDIR JÖKLI Boðið verður upp á veitingar og leiðsögn þegar komið er inn í ísgöng-
in. Ferðin að jöklinum verður einnig mikil upplifun fyrir ferðamennina. MYND/ITF
Bæði
kemur til
greina að
koma að
verkefnum
sem enn eru á
hugmynda-
stigi og fjárfesta í minni
fyrirtækjum sem við
teljum hafa burði til að
vaxa og dafna.
Helgi Júlíusson, sjóðstjóri
NISSAN
QASHQAI
NISSAN QASHQAI DÍSIL 4WD
VERÐ FRÁ 4.990 ÞÚS. KR.
KAUPAUKI AÐ ANDVIR
500 ÞÚS. KR.
· Vetrardekk
· Dráttarbeisli
· iPad 32 GB
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
500 ÞÚS. KR. KAUPAUKI FYLGIR QASHQAI
Þeir sem kaupa Qashqai eru að leita að fallegum fjórhjóla-
drifnum bíl sem er hagkvæmur í rekstri og góður í endursölu.
Qashqai eyðir einungis frá 4,6 l/100 km
Qashqai 1,6 dCi beinsk.
Verð: 4.990 þús. kr.
Qashqai+2 1,6 dCi beinsk. 7 manna
Verð: 5.390 þús. kr.
Qashqai 2,0 bensín, sjálfsk.
Verð: 5.790 þús. kr.
Qashqai 2,0 dCi sjálfsk.
Verð: 6.090 þús. kr.
iPad 32GBfylgir með ásamt veglegri hlífðartösku
ÐI
GE bílar
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
421 8808
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
8
9
14