Fréttablaðið - 20.09.2013, Side 13

Fréttablaðið - 20.09.2013, Side 13
FÖSTUDAGUR 20. september 2013 | FRÉTTIR | 13 Fylgi Gullin dögun fékk sjö prósent atkvæða í síðustu kosningum, sem haldnar voru sumarið 2012, og er með 18 fulltrúa á gríska þjóð- þinginu. Samkvæmt skoðanakönnunum hefur fylgið verið að styrkjast jafnt og þétt og mælist nú allt upp í 17 prósent. Gullin dögun gæti því orðið þriðji stærsti stjórnmála- flokkur Grikklands yrði gengið til kosninga á næstunni, setji morðið á Fissas ekki strik í þann reikning. Stefna Gullin dögun er flokkur harð- skeyttra þjóðernissinna sem vilja losa Grikkland við útlendinga til að verja gríska þjóð gegn því að blandast aðkomufólki. „Við berjumst fyrir Grikklandi sem til- heyrir Grikkjum,“ segir í stefnu- skrá flokksins. Forystumenn Gullinnar dögunar hafna sjálfir öllum tengslum við nasisma en fjölmiðlum og fræði- mönnum ber saman um að skyld- leikinn sé það mikill að undan þessari tengingu verði ekki vikist. Aðferðir Aðferðir flokksmanna minna töluvert á aðferðir þýskra nasista á millistríðsárunum. Liðsmenn Gullinnar dögunar hafa ítrekað orðið uppvísir að ofbeldi gegn útlendingum, minnihlutahópum og pólitískum andstæðingum sínum. Þeir sjást iðulega ganga um götur vopnaðir bareflum og ógna hverjum þeim sem hefur útlenskulegt útlit eða vogar sér að mótmæla orðum þeirra eða gjörðum. Þeir hafa valdið meiðslum og eignaspjöllum. GULLIN DÖGUN ER ÞRIÐJI STÆRSTI FLOKKURINN VÍGALEGUR Liðsmaður Gullinnar dögunar stendur í fylkingarbroddi sam- flokksmanna sinna. NJÓTTU VEL MEÐ HIMNESKRI HOLLUSTU Náðu þér í frítt veglegt uppskriftahefti við vörulínu Himneskrar Hollustu í öllum helstu matvöruverslunum. Yggdrasill heildsala | yggdrasill.isHeilbrigð skynsemi Byrjaðu daginn á Himneskri Hollustu DÓMSMÁL Pillar Securitisation, þrotabú Kaupþings í Lúxemborg, hefur að sögn belgískra fjölmiðla krafið knattspyrnumanninn Eið Smára Guðjohnsen um fimm millj- ónir evra, eða um 811 milljónir króna. Belgíski fjölmiðillinn De Morgen greindi frá því í gær að skuldin væri vegna lána sem Eiður Smári tók vegna fjárfestinga hér á landi á árunum fyrir efnahags- hrunið. De Morgen segir að þrotabú bankans hafi hvatt Eið til að greiða skuldina en að tilraunir þess efnis hafi ekki skilað árangri. Málið er sagt hafa tekið nýja stefnu í janúar á þessu ári þegar Eiður hóf að spila fyrir belgíska knattspyrnufélagið Club Brugge. Þá gat bankinn dregið málið fyrir belgíska dómstóla, sem gerðu Eiði skylt að greiða hluta af laun- um sínum hjá Club Brugge upp í skuldina. Forsvarsmenn Club Brugge segja í viðtali við De Morgen að Eiður hafi verið fórnarlamb falls Kaupþings banka. - hg Þrotabú Kaupþings í Lúxemborg sagt fá hluta af launum Eiðs Smára: Eiður krafinn um 800 milljónir LIÐSMAÐUR CLUB BRUGGE Eiður er sagður greiða hluta af launum sínum upp í skuldina. NORDICPHOTOS/GETTY DANMÖRK Dönsk sveitarfélög geta sparað sér jafngildi tuga milljarða íslenskra króna með því að nota nútímatækni við fundar- höld. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá ráðgjafafyrirtæki einu sem DR segir frá. Þar segir að sveitarfélögin verji um 140 milljörðum íslenskra króna til fundarhalda. Meðal annars fara drjúgar fjárhæðir í ferðalög milli fundastaða, sem mætti koma í veg fyrir með því að nýta sér fjarfundabúnað. - þj Bruðl í danskri stjórnsýslu: Tugmilljarðar til spillis í fundi

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.