Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.09.2013, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 20.09.2013, Qupperneq 16
20. september 2013 FÖSTUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is HELGAREFNI: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Sara McMahon sara@frettabladid.is VÍSIR: Kristján Hjálmarsson, kristjan@visir.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Óskar R. Harðarson hdl. og löggiltur fasteignasali Verð: 38,9 millj. Nánari upplýsingar veitir Jórunn Skúladóttir, Sölufulltrúi jorunn@miklaborg.is sími: 845 8958 Hvassaleiti 58 VR blokkin Glæsileg 4ra herbergja Endaíbúð á 6.hæð Afþreying Þjónusta innanhúss Frábær staðsetning 103 Reykjavík 63+ Lokka að fjárfestingu „Ríkisstjórn mín skilur að kraftmikið viðskiptalíf og iðnaður eru undir- staða vaxtar og velferðar.“ Þetta sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra í ræðu á fjárfestinga- ráðstefnu í Lundúnum í gær og vísaði í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Í niðurlagi ræðunnar sagðist hann vonast til þess að sjá þá hugsanlegu fjárfesta sem á hlýddu (og peningana þeirra) á Íslandi. Sjá á eftir fólki og fyrir- tækjum Hins vegar skýtur eilítið skökku við að sama dag skuli Svana Helen Björnsdóttir, for- maður Samtaka iðnaðarins, rita grein í Fréttablaðið þar sem hún talar um vaxandi fjölda þeirra fólks og fyrirtækja í tækni- og hugverka- iðnaði sem flýja aðstæður hér á landi. „Þessari þróun þarf að snúa við,“ segir Svana. „Við höfum þegar tapað allt of mörgum fyrirtækjum og allt of mörgum dýrmætum einstaklingum úr landi. Þá skiptir öllu máli að hafa gjaldmiðil án hafta sem gjaldgengur er á alþjóðamarkaði, sam- keppnishæft starfsumhverfi og virk tengsl við helstu markaðssvæði.“ Það er vonandi að flóttafólk- ið hafi heyrt ræðu Sigmundar og snúi umsvifalaust aftur heim. „… ekkert á móti múslímum …“ Borgarráð samþykkti í gær að úthluta Félagi múslíma á Íslandi lóð undir mosku. Sú ákvörðun var ekki tekin í flýti. Fjórtán ár eru síðan trúfélögum í borginni var lofað lóðum en fyrir einhverjar sakir hefur mál múslíma tafist miklu lengur en annarra hópa. Hvernig ætli standi á því? Ég er ekki að saka alla þá sem hafa dregið fætur í þessu máli um mismunun, en … hins vegar hefur umræðan um hugsanlega mosku opinberað ákveðinn tendens í almennri orðræðu sem er ef til vill best lýst með frasanum „ég hef ekkert á móti múslimum en…“ Nú ætti þessi skemmtilega lítt-víðsýni (og óþægilega fjölmenni) hópur að fá tækifæri til láta ljós sitt skína, vonandi í síðasta skipti. thorgils@frettabladid.is Á fundi Viðskiptaráðs og í viðtali í Við- skiptablaðinu nýlega kom fram lýsing Andra Guðmundssonar, framkvæmda- stjóra H.F. Verðbréfa, á íslenska fjár- málaheiminum í dag. Sú lýsing vakti sérstaka athygli mína. Það sem eykur á þunga orða Andra er að hann er sjálfur í forsvari fyrir fyrirtæki innan íslenska fjármálageirans. Andri fullyrðir að starfsmenn fjár- málafyrirtækja séu sjálfir enn að „víla og díla“ með sinn persónulega fjárhag í þessum útboðum, eins og Andri orðar það. Andri heldur áfram: „Ekki nóg með að bankarnir eigi þessi fyrirtæki, láni þessum fyrirtækjum og kaupi fyrirtæk- in að einhverju leyti eða aðilar á þeirra vegum eru starfsmenn bankanna líka að fjárfesta og taka þátt í þessum útboðum. Þetta er eitthvað sem mér finnst að við hefðum átt að læra af reynslunni 2008.“ Þá segir Andri fulltrúa fjármálageir- ans koma fram með hroka og að hluta- fjárútboð sem ráðist hefur verið í eftir hrun séu ekki til þess fallin að auka tiltrú fólks á markaðnum. Auðvitað er þetta bara ein rödd og athyglisvert að heyra frá fleirum innan fjármálaheims- ins um þessa þróun. Í kosningabaráttunni í vor lagði ég áherslu á eftirfarandi í mínum málflutn- ingi: Það þarf að skera upp herör gegn græðgi, sjálfhygli og óheiðarleika og þeirri áráttu, sem því miður alltof margir eru haldnir í okkar þjóðfélagi, að maka krókinn, hvar og hvenær sem þeir komast í aðstöðu til þess og yfirleitt alltaf á kostnað annarra. Hér er þörf á hugarfarsbreytingu hjá þjóðinni og þar á Sjálfstæðisflokkurinn að vera í farar- broddi. Mér hefur fundist mjög gott að leita í smiðju forystumanna okkar á fyrri tímum, hvernig litu þeir á málin. Jón Þorláksson, formaður Sjálfstæðis- flokksins, sagði til dæmis: „Sá sem vill leita eftir efnalegri velgengni fyrir sjálf- an sig verður að gjöra það með því fyrst og fremst að leitast við að fullnægja sem bezt þörfum annarra.“ Ég hvet bæði Alþingi og ríkisstjórn að setja fjármálastofnunum þær leikregl- ur í eitt skipti fyrir öll sem duga til þess að við stefnum ekki þjóðarhag í hættu á nýjan leik eins og 2008. Að „víla og díla“ FJÁRMÁL Elín Hirst alþingismaður ➜ Hér er þörf á hugarfarsbreytingu hjá þjóðinni og þar á Sjálfstæðis- fl okkurinn að vera í fararbroddi. S igmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hét okkur því á dögunum að í undirbúningi væru „róttækustu aðgerðir stjórnvalda nokkurs staðar í veröldinni í þágu skuldsettra heimila“. Þarna er ef eitthvað er tekið enn dýpra í árinni en Framsóknarflokkurinn gerði í kosningabaráttunni. Það væri synd að segja að ríkisstjórnin reyndi að dempa væntingar fólks um peningagjafirnar sem eru í vændum. Samt er málið allt enn þá sveipað óvissu. Frosti Sigurjóns- son, formaður efnahags- og við- skiptanefndar Alþingis, sagði á þingi fyrr í vikunni að hann teldi að þeir sem hefðu þegar fengið leiðréttingu á lánum sínum, til dæmis með 110% leiðinni, ættu ekki að fá fulla skuldaleiðrétt- ingu á við aðra. Sem er út af fyrir sig rökrétt ef gæta á einhvers jafnræðis. Það sama hlýtur þá að eiga við um þá sem hafa ekki þurft á 110% leiðinni að halda en samt samið við bankann sinn um höfuðstólslækkun – eða hvað? Það hefur enginn sagt okkur skýrt. Raunar er ótalmargt í óvissu um það hvernig skuldaniðurfell- ingin verður útfærð. Hún gagnast alveg klárlega ekki öllum heim- ilum í landinu. Ekki til dæmis þeim sem eiga skuldlaust húsnæði, sem er um það bil þriðjungur fjölskyldna. Ekki heldur þeim sem búa í leiguhúsnæði, sem er ríflega fjórðungur. Og varla þeim sem tóku myntkörfu lán og hafa þegar fengið ríflega leiðréttingu sinna mála. Það er stór hópur. Hætt er við að vonbrigðin verði mikil þegar í ljós kemur hversu lítill hópur mun í raun njóta róttækustu aðgerða í öllum heiminum – og að tekjuhæstu hóparnir, sem skuldsettu sig mest, munu að öllum líkindum fá stærstu peninga- gjafirnar. Þessi partur af málinu er í óvissu. Sama má segja um það hvaða áhrif er líklegt að skuldaniðurfærslan muni hafa. Frosti Ólafsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, skrifaði grein í Fréttablaðið í gær og gagnrýndi hversu ógagnsæ umræðan um málið væri. Ein af höfuðástæðum þess væri sú beina tenging sem hefði verið búin til milli uppgjörs við kröfuhafa gömlu bankanna og skuldaniður- færslunnar. Eins og Frosti bendir á er sú tenging óþörf og felur í sér hættu á að samningsstaða Íslands gagnvart kröfuhöfunum veikist, þar sem fyrir fram er búið að ráðstafa hugsanlegum ávinningi af samningum í hina stórkostlegu skuldaniðurfellingu. Hagfræðingar hafa bent á hættuna á því að skuldaniðurfelling myndi hafa þenslu- og verðbólguhvetjandi áhrif, öfugt við það sem myndi gerast ef ávinningi ríkisins af samningum við kröfuhafa yrði til dæmis varið til að borga niður skuldir ríkissjóðs. Eins og Frosti Ólafsson bendir á liggur ekki fyrir nein almennileg greining af hálfu stjórnvalda á efnahagslegum áhrifum skulda- niðurfellingarinnar. Ítrekuð loforð um róttækustu aðgerðir í heimi, án skýrrar útfærslu og greiningar á afleiðingunum, búa til óvissu sem sízt af öllu er þörf á í íslenzkum þjóðarbúskap við núverandi aðstæður. Það er engin leið að verjast þeirri hugsun að þetta geti orðið stórkostlegasta klúður í heimi. Margt óljóst um útfærslu og áhrif skuldalækkunar: Róttækasti óvissu- þáttur í heimi Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.