Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.09.2013, Qupperneq 17

Fréttablaðið - 20.09.2013, Qupperneq 17
FÖSTUDAGUR 20. september 2013 | SKOÐUN | 17 Ímyndið ykkur hvað hægt væri að byggja upp stórkostlegt sam- félag, bara ef ríkið vissi allt um alla: „Áttu í fjárhagsvand- ræðum? Þú færð aðstoðarmann sem skipuleggur útgjöldin með fjölskyldunni. Hefurðu fitnað mikið að undanförnu? Sundkort dettur inn um lúguna. Þarftu að fara með bílinn í skoðun? Það er búið að panta tíma. Og láta vinnuveitandann vita. Ekkert að þakka!“ Það er vinsælt að biðja fólk um að fórna friðhelgi einka- lífsins fyrir meint öryggi. En æ algengara er að menn biðji fólk um að fórna friðhelginni fyrir einhver þægindi. Stundum eru þetta okkar þægindi en oftast samt þægindi hins opinbera. Til dæmis: Ef ríkið vill gefa fólki pening í massavís þá er þægi- legra að það viti hvað hver eigi mikinn pening fyrir. Eru ekki allir fullir skilnings? Mamma passar Í flestum sæmilegum ríkjum getur hið opinbera ekki valsað inn á heimili fólks án ástæðu. Vissulega geta lögreglumenn fengið að koma inn til að rann- saka glæp, að fengnu leyfi dóm- ara, en þeir labba ekki bara inn til að „skoða sig um“ eða sjá „hvort ekki sé allt með felldu“. Sömu lögmál ættu að gilda í net- heimum. Vill einhver skoða net- notkun grunaðs manns? Þá á að þurfa dómsúrskurð. Já, það er vesen en vesen er einmitt lykil- orðið. Það á að vera vesen að fá að ganga á mannréttindi fólks. Og það á ekki að tortryggja þá sem vilja ekki að gengið sé á mannréttindin. Þetta snýst ekki um hver hefur hvað að fela. Það má heldur ekki gleyma því að oft er stutt frá hvers kyns kröfum um ótakmarkað eftirlit til krafna um bönn. Menn fara að heimta klámsíur, pókersíur, niðurhals síur og lokanir á kred- itkort eftir löndum. Sumum er illa við að fólk tjái sig nafnlaust á netinu og vilja banna fólki það. Allt eru þetta yndislega vondar hugmyndir. Mamma hjálpar En segjum nú að hið opinbera væri fullkomlega umhyggju- samt og algjörlega laust við hvers kyns forsjárhyggjutil- burði. Væri þá ekki ágætt að slík undravera hefði fullkomnar upplýsingar um hagi og áform allra til að geta gert líf þeirra sem þægilegast? Nei, það eru til leiðir til að láta hluti gerast án þess að hafa miðlæga gagnagrunna með upp- lýsingum um allt og alla. Hve oft hefur einhver ekki getað fengið bensín á bensínstöð? Eða ætlað sér að kaupa í matinn en komist að því maturinn í búð- inni væri búinn og það kæmi ekki meiri matur fyrr en á nýju fjárlagaári? Eða komið að sumar lokun í bíói? Ha, enginn? Bíóin vita ekki hver ætlar í bíó. Matarbúðirnar vita ekki hvað hver og einn ætlar sér að borða og hvenær. Bensínstöðv- arnar vita ekki hver er að fara út á land. Jú, þessi fyrirtæki vita eflaust ýmislegt um mark- aðina sína. En þau vita ekki allt um alla. Það er alls ekki augljóst að við fengjum betri bensín- dreifingu ef við hefðum eitt rík- isolíufélag sem væri beintengt við alla bíla landsins. Eða að ríkismatardreifing yrði betri. Reynslan sýnir að hún yrði lík- lega miklu verri. Frjáls markaður er auðvitað algjör kaos. Menn keppa í stað þess að vinna saman. Allir vilja græða og hugsa bara um sig. En samt virkar þetta sundurlausa dreifingarkerfi fáránlega vel. Ekkert betra virðist vera til. Við ættum alltaf að vera á varðbergi þegar ríkið ætlar sér í massífa upplýsingasöfnun til að gera líf okkar þægilegra. Í fyrsta lagi eigum við að standa vörð um friðhelgi einkalífs- ins, án þess að skammast okkar fyrir það. Í öðru lagi er hæpið að besta leiðin að þægilegu lífi felist í því að alvitrar, elskandi stofnanir fái að leika lausum hala. Dæmin sýna annað. Að lokum Nú er búið að ákveða að ráð- ast í massífar eignatilfærslur og til að reikna út hvaða eigna- tilfærsla sé best er búið að ákveða að safna saman upplýs- ingum um skuldir allra lands- manna. Það er byrjun. Reyndar ekki sérstaklega góð byrjun. Ég myndi frekar lækka skuldir rík- issjóðs. En það er bara ég. Bara ef við vissum allt! Í DAG Pawel Bartoszek stærðfræðingur Undanfarið hafa málefni Landspít- ala verið endurtekið til umræðu í fjölmiðlum. Hæst hefur borið bráða- vanda lyflækningasviðs sem m.a. stríðir við alvarlegan skort á vinnu- afli, einkum deildarlæknum en einnig atgervisflótta sérfræðinga. Í þessari umræðu hefur ekki farið jafn hátt að ýmsar aðrar deildir spítalans eiga undir högg að sækja. Ein þeirra er myndgreiningardeild Landspítalans, sem er ein stærsta deild sjúkrahússins og jafnframt ein mikilvægasta stoðdeild þess. Þessi grein er rituð til að vekja athygli á alvarlegum vanda sem þar er við að etja. Stór hluti sjúk- linga sem koma á bráðamóttöku og nær allir sjúklingar sem leggj- ast inn á gjörgæslu, á lyflækninga- svið og skurðlækningasvið Land- spítala þurfa á myndgreiningu að halda. Á myndgreiningardeildinni eru framkvæmdar í kringum 120 þúsund rannsóknir árlega, allt frá hefðbundnum röntgen myndum af beinum og lungum til sérhæfðra segulómana af heila og hjarta. Á deildina koma einnig sjúklingar til meðferðar, t.d. á æðaþrengslum og ósæðargúlum. Starfsemi deild- arinnar er illu heilli tvískipt, ann- ars vegar í Fossvogi og hins vegar við Hringbraut. Þessi skipting hefur mikið óhagræði í för með sér, bæði hvað varðar dýran tækjabúnað sem þyrfti að vera til staðar á báðum stöðum og einnig hvað varðar mönn- un deildarinnar og fyrirkomulag vakta. Skipting deildarinnar hamlar einnig framþróun í starfi deildar- innar og nauðsynlegri sérhæfingu. Álag aukist um 50% Frá árinu 2008 hefur sérfræðilækn- um á myndgreiningardeild Land- spítala fækkað úr 19 í 14. Á sama tíma hefur fækkað verulega í hópi deildarlækna en þeir stunda fyrri hluta sérnáms síns á deildinni. Verk- efni deildarinnar hafa hins vegar aukist á síðustu árum og orðið flókn- ari. Þannig hefur mælanlegt álag á sérfræðilækna deildarinnar aukist um 50% á síðustu fimm árum. Ef heldur fram sem horfir er ljóst að myndgreiningardeildin mun ekki geta sinnt þeirri þjónustu sem henni er ætlað að veita. Slík staða hefur lamandi áhrif á greiningu og með- ferð sjúklinga sem koma á bráða- móttöku eða liggja á gjörgæslu, barnaspítala, lyf- eða skurðdeild- um og lengir innlagnartíma. Slíkt ástand er óásættanlegt fyrir mynd- greiningardeild LSH. Erlendis er myndgreining víða á meðal vinsælustu sérgreina í læknis fræði, enda í mikilli og spennandi þróun. Tækninni fleygir fram og nútímamyndgreining verð- ur sífellt mikilvægari í þjónustu við sjúklinga og meðferð sjúkdóma. Þrátt fyrir það hefur orðið fækkun deildarlækna í framhaldsnámi við myndgreiningardeildina. Þetta veld- ur verulegum áhyggjum af framtíð sérgreinarinnar hér á landi. Ljóst er að sá skortur á mannafla og aðstöðu sem nú er til staðar er ekki til þess fallinn að stuðla að nýliðun, enda hætt við að kennsla og vísindastörf sitji á hakanum við slíkar aðstæð- ur, líkt og gæða- og öryggismál. Það mikla álag sem hvílir á herðum þeirra sérfræðinga sem eru í vinnu eykur hættuna á því að fleiri úr þeirra röðum segi upp störfum eða minnki starfshlutfall sitt. Næg vinna er í boði hér heima, m.a. á einkastofum. Íslenskir sérfræðingar í myndgreiningu eru eftir sóttur starfskraftur í nágrannalöndum okkar, sérstaklega í Noregi og Svíþjóð, enda menntaðir við bestu háskólasjúkrahús erlend- is. Einnig hafa framfarir í flutningi rafrænna gagna (fjarlækningar) leitt til þess að auðvelt er að flytja myndir á netinu og eru íslenskir sér- fræðingar í auknum mæli farnir að lesa úr myndgreiningarrannsóknum frá erlendum sjúkrahúsum heima hjá sér. Samkeppnin um starfs- krafta þessara sérhæfðu lækna er því hörð og í þeirri samkeppni fer Landspítali því miður halloka. Ófullnægjandi endurnýjun Ofan á manneklu bætist að endur- nýjun tækja er ófullnægjandi. Flók- inn tækjabúnaður úreldist á fáein- um árum og há bilanatíðni eldri tækja getur skapað hættu fyrir sjúklinga. Fullkomin myndgreining- artæki eru forsenda þess að hægt sé að bjóða upp á bestu læknismeð- ferð, t.d. við greiningu og meðferð slasaðra, við greiningu sjúkdóma í hjarta, heila, lungum og melting- arfærum og við undirbúning flók- inna skurðaðgerða. Flestar deildir sjúkrahússins eru því afar háðar þjónustu myndgreiningardeildar, sem þarf að hafa nægilega mönnun og fullnægjandi tækjabúnað til að geta veitt þessa sérhæfðu þjónustu. Þessari óheillaþróun sem að ofan er lýst verður því að snúa við hið snarasta. Þótt nýlegar yfirlýsing- ar heilbrigðisráðherra og stjórn- enda LSH um aðgerðir til að bæta stöðu lyflækningasviðs séu mikil- vægt skref í rétta átt, er ljóst að þær leysa ekki vanda myndgreiningar- deildar, sem er í raun orðinn bráða- vandi. Meira þarf að koma til. Ann- ars er hætt við frekari áföllum, sem hafa lamandi áhrif á aðrar deildir sjúkrahússins sem eru þegar í miklu ölduróti og mega ekki við frekari ágjöfum. Pétur Hannesson yfi rlæknir á myndgreiningardeild LSH og klínískur dósent í myndgreiningu Maríanna Garðarsdóttir sérfræðingur og aðjúnkt í myndgreiningu og formaður Félags íslenskra röntgenlækna Brynjólfur Mogensen yfi rlæknir á LSH og dósent í bráðalækningum Gísli H. Sigurðsson yfi rlæknir á LSH og prófessor í svæfi nga- og gjörgæslulækningum Ásgeir Haraldsson yfi rlæknir á LSH og prófessor í barna- lækningum Guðmundur Þorgeirsson yfi rlæknir á LSH og prófessor í lyfl ækningum Tómas Guðbjartsson yfi rlæknir á LSH og prófessor í skurð- lækningum Myndgreining á Landspítala í kröppum sjó Það á að vera vesen að fá að ganga á mannréttindi fólks. ➜ Ef heldur áfram sem horfi r er ljóst að myndgrein- ingardeildin mun ekki geta sinnt þeirri þjónustu sem … Vítamín sem mæta þörfum allra á heimilinu ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA LITLAR TÖFLUR NÝTT OG BETRA BRAGÐ SJÁ NÁNAR Á VITAMIN.IS Icepharm a

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.