Fréttablaðið - 20.09.2013, Síða 20

Fréttablaðið - 20.09.2013, Síða 20
FÓLK|HELGIN FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 LÍFLEGT Í TJARNARBÍÓI ● LEIKLIST Sýningum GRAL-hópsins á Eiðurinn og eitthvað eftir Guð- berg Bergsson, er að ljúka í Tjarnarbíói. Grindvíska atvinnuleikhúsið er þó ekki á förum úr Tjarnarbíói því um síðustu helgi endur- frumsýndi hópurinn fjölskyldu- leikritið Horn á höfði við mikinn fögnuð yngstu kynslóð- arinnar. Tvísýnt var um hvort yrði af sýningunni þar sem aðalleikarinn, Víðir Guðmunds- son, missteig sig illilega á lokaæfingunni. Sýningin tókst þó vonum framar. Næstu sýningar á Horni á höfði verða á sunnudaginn og 6. október. Sýningin Eiðurinn og eitthvað verður sýnd um helgina og miðvikudaginn 25. október en það eru síðustu sýningar. Listin að velja – ráðstefna um heilsu og holdafar fer fram í Salnum í Kópavogi í dag. Félag fagfólks um offitu stendur fyrir henni og eru fjölmörg áhugaverð erindi á dagskrá. Fyrir hádegi mun fagfólk sem stundar rannsóknir á offitu kynna þær og niðurstöður sínar en eftir hádegi verða fjölbreyttir fyrirlestrar á dagskrá sem eru ætlaðir öllum sem hafa áhuga á heilbrigðum lífsstíl. Þær Anna Sigríður Ólafsdóttir, dósent í nær- ingarfræði á menntavísindasviði Háskóla Ís- lands, og Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor í sama fagi á heilbrigðisvísindasviði, flytja til að mynda erindi sem ber yfirskriftina Kúrar og kolvetni – heilsa eða hætta? klukkan 14.30. „Við ætlum að ræða líf með og án kolvetna í sinni víð- ustu mynd en kolvetnasnauðir kúrar hafa verið ofarlega á baugi að undanförnu. Við ætlum að horfa sérstaklega á frúktósann eða ávaxtasykur- inn og taka fyrir hvort hann sé tengdari offitu en annar sykur. Þá komum við inn á kolvetna- snauðu kúrana, föstur og nýjar norrænar nær- ingarráðleggingar sem verða kynntar í byrjun október.“ En gera kolvetnin okkur feit? „Þetta snýst allt um samsetningu, magn og gæði. Við þurfum til að mynda mörg að auka trefjaneysluna en til þess að ná því markmiði þarf að innbyrða kolvetnarík matvæli. Fólk þarf því að geta fetað einhvern meðalveg og lært bæði að temja sér hóf og huga að gæðum matvæla. Umfram allt leggjum við þó áherslu á að fólk leiti eftir ein- staklingsmiðuðum ráðleggingum hjá fagfólki í heilbrigðisstéttum. Það sama hentar ekki öllum og það er meira en að segja það að ætla í sífellu að hlaupa á eftir nýjum og nýjum kúrum og gera hlutina alveg upp á eigin spýtur. Þetta er flókn- ara en svo og þarf að skoða út frá öllum hliðum. Það er engin töfralausn til,“ segir Anna Sigríður. Hún segir allflesta kúra snúast um að sleppa einhverju; annaðhvort ákveðnum fæðutegund- um eða að sleppa því að borða yfirleitt. „Þeir miða þó að því sama og hefðbundnar ráðlegg- ingar fyrir fólk sem vill léttast – að það nái að fækka hitaeiningum. Spurningin er hins vegar hvernig fólk ætlar að halda út og skapa sér lífs- stíl sem hentar,“ Meðal annarra erinda á ráðstefnunni má nefna fyrirlestur Guðlaugs Birgissonar, sjúkra- þjálfara á offitu- og næringarsviði Reykjalundar, um langtímaárangur af offitumeðferð á Reykja- lundi og erindi Tryggva Þorgeirssonar, læknis og lýðheilsufræðings, Skynsemin ræður – eða hvað? Nánari upplýsingar er að finna á www.ffo. is. Ráðstefnan stendur frá 9 til 16.30 en ýmist er hægt að sækja hana allan eða hálfan daginn. Skráning fer fram á ffo@ffo.is eða í síma 697- 4545. KÚRAR OG KOLVETNI HEILSA EÐA HÆTTA? Félag fagfólks um offitu stendur fyrir ráðstefnunni Listin að velja í Salnum í Kópavogi í dag. Næringarfræðingarnir Anna Sigríður Ólafsdóttir og Ingibjörg Gunnarsdóttir fjalla þar um kúra og kolvetni en auk þess verða fjölmörg önnur erindi á dagskrá. ÞAÐ SAMA HENTAR EKKI ÖLLUM Anna Sigríður og Ingi- björg leggja umfram allt áherslu á að fólk leiti eftir einstaklings- miðuðum ráðleggingum hjá fagfólki í heilbrigðis- stéttum. „Það sama hentar ekki öllum og það er meira en að segja það að ætla í sífellu að hlaupa á eftir nýjum og nýjum kúrum og gera hlutina alveg upp á eigin spýtur. Þetta er flóknara en svo og þarf að skoða út frá öllum hliðum. Það er engin töfralausn til,” segir Anna Sigríður. Ótrúlegt úrval íbúða til sölu eða leigu! STÆRSTI HÚSNÆÐISVEFUR LANDSINS

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.