Fréttablaðið - 20.09.2013, Qupperneq 24
FRÉTTABLAÐIÐ Tíska og make up. Margrét Edda Gnarr. Fataskápurinn. Götutískan. Spjörunum úr og Helgarmaturinn.
4 • LÍFIÐ 20. SEPTEMBER 2013
TÍSKA HVER ER UPPÁHALDSFLÍKIN?
Nokkrir vel valdir og áhugaverðir karlmenn voru fengnir til að tjá sig klæðaburð sinn og segja frá uppáhaldsfl íkinni sinni.
SOKKARNIR
Hvernig myndir þú lýsa stílnum þínum?
„Dagsdaglega er hann nokkuð casual og smart en ég hef mikið
dálæti á að klæðast jakkafötum um helgar og þegar færi gefst.“
Af hverju eru þessir sokkar uppáhalds?
„Það er svolítið erfitt að velja alveg eina uppáhaldsflík en
þessa dagana eru litríkir sokkar í miklu uppáhaldi hjá mér
og þá sérstaklega einir fjólubláir.“
Hvar eru sokkarnir keyptir?
„Þeir heita Happy Socks og ég keypti þá í Dr. Denim á
Laugaveginum.“
LEÐURJAKKINN
Hvernig myndir þú lýsa stílnum þínum?
„Ég klæðist bara því sem mér finnst flott og því
sem fer mér vel. Skyrtur, rúllukragabolir, peys-
ur og jakkar. Ég kaupi oft frá sömu merkjun-
um. Ég á til dæmis allar týpurnar af Farmers
Market-buxunum af því að þær passa mér vel.
Af hverju er þessi jakki í uppáhaldi?
„Hann er í uppáhaldi vegna þess að ég er búinn
að eiga hann svo lengi. Ég keypti hann þegar ég
var sextán og hann er búinn að ganga með mér
í gegnum súrt og sætt. Hann hefur farið með
mér fimm sinnum á Hróarskeldu, þrisvar á Old
Trafford og hundrað sinnum á Bakkus svona
til að nefna eitthvað. Hann var eiginlega fyrsti
töffarajakkinn minn og mætti kannski segja að
hann hafi markað ákveðið upphaf hjá mér hvað
fatavalið snertir.
Hvar var hann keyptur?
„Ég keypti hann í Spútnik á 17.900 árið 2006.
Mér fannst það rosalega mikið þá en hann er
alveg búin að borga fyrir sig og rúmlega það.“
RÓBERT RÓBERTSSON
STARFAR Á KAFFIHÚSINU
KAFFI KOMPANÍIÐ
Á KJARVALSSTÖÐUM.
BOMSURNAR
Hvernig myndir þú lýsa stílnum þínum?
„Ég á einar góðar brúnar buxur sem ég miða allt út frá. Öll föt sem
ég kaupi passa við þær. Með þessu passa öllu föt sem ég á saman og
ég þarf því aldrei að eyða tíma fyrir framan klæðaskápinn.“
Af hverju eru bomsurnar flík uppáhalds?
„Sorel-bomsurnar eru eins og að vera á 38“ breyttum jeppa, það er
ekkert sem stoppar mig. Ég hlakka til vetrarins og sérstaklega asa-
hlákudaga þegar ég ryð mér leið eins og loðfíll í gegnum miðbæinn.“
Hvar voru þær keyptar?
„Í Ellingsen.“
STEINARR LÁR
EIGANDI KÚKÚ CAMPERS
HÚSBÍLALEIGUNNAR.
EINAR SMÁRASON
VARAFORMAÐUR
STÚDENTAFÉLAGS HR.
„Besta meik sem ég hef notað um
ævina er MAC Face and body
foundation. Það er engin spurn-
ing. Það er svo ótrúlega þunnt og
létt, rétt eins og þunnur vökvi. Það
er mjög auðvelt að dreifa því jafnt
þannig að maður verður aldrei
flekkóttur.
Ég las einhvers staðar að þeir
sem væru með brún augu ættu að
prófa gylltan augnskugga svo ég
keypti mér MAC honey lust Lustre
Eye Shadow þegar ég var í Lond-
on í sumar. Þetta er eini augn-
skugginn sem ég hef virkilega
notað. Ég set þennan á mig þegar
ég fer eitthvað sérstakt.
Ég er með frekar löng augnhár
en Volume million lashes, maskar-
inn frá L´Oréal, þykkir vel. Hann
er ódýr og mjög góður svo ég hef
notað hann mjög lengi.
Ég er alltaf með eyeliner á mér
og nota þennan, L‘Oréal Carbon
Black Lineur Intense (felt tip liquid
eyeliner). Hann er eins og penni
og mjög auðveldur í notkun.
Ég skiptist á að nota bleika Viva
Glam Nicki Minaj frá Mac og
Chatterbox frá Mac. Þeir eru báðir
svona ljósbleikir, sem að mínu mati
klæðir mig best. Ég er mjög sjald-
an með sterka eða dökka varaliti.“
SNYRTIBUDDAN GYLLTUR
AUGNSKUGGI FYRIR BRÚN AUGU
Dóra Júlía Agnarsdóttir er í Háskóla Íslands að læra listfræði og er danskennari
hjá World Class. Tíska er mikið áhugamál og hana dreymir um starf hjá Vogue.
Varalitur, augnskuggi,
maskari og eyeliner eru
meðal helstu nauðsynjanna.
Þessir voru að
detta í hús!
Gyllti kötturinn
Austurstræti 8-10
101 reykjavík
S: 534-0005
www.gylltikotturinn.is
OPIÐ ALLA DAGA
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA