Fréttablaðið - 20.09.2013, Síða 26
FRÉTTABLAÐIÐ Margrét Edda Gnarr. Fataskápurinn. Götutískan. Spjörunum úr og Helgarmaturinn.
6 • LÍFIÐ 20. SEPTEMBER 2013
NAFN Margrét Gnarr.
ALDUR 24 ára.
STARF Einkaþjálfari.
HJÚSKAPARSTAÐA
Trúlofuð Birni Þorleifssyni.
Á
yngri árum æfði hún
listdans og skauta. Svo
lenti hún í hræðilegu
einelti og fór að berj-
ast við átröskun. Mar-
grét Edda hefur upplifað ýmis-
legt um ævina. Hún ákvað þó að
taka í taumana, fara í sjálfsskoð-
un og byggja sjálfa sig upp bæði
líkamlega og andlega. Hún fann
sig í taekwondo og í dag er hún
með svarta beltið í sportinu. Um
síðastliðna helgi varð hún fyrsti
Íslendingurinn sem hlýtur heims-
meistaratitilinn í bikinifitness.
Til hamingju með titilinn
heimsmeistari í bikinifitness
2013. Segðu aðeins frá keppn-
inni. „Keppnin er á vegum ISBB,
sem er stærsta og þekktasta fit-
ness-samband í heimi. Þetta er
A-mót sem er heimsmeistaramót
en þau stærstu á hverju ári eru
þetta mót og Evrópumeistaramót-
ið. Það er mjög erfitt að fá keppn-
isréttindi og í mörgum löndum
eru haldin þó nokkur úrtöku-
mót til að fá að taka þátt í þessu.
Hægt er að vinna sér inn atvinnu-
skírteini og engum Íslendingi
hefur tekist það hingað til.“
Hvernig líður þér á sviðinu,
ertu aldrei stressuð? „Jú, ég er
það, sérstaklega áður en ég fer á
svið. Þá þarf ég að vera dugleg að
minna sjálfa mig á það hve langt
ég er komin. Þegar ég labbaði á
svið í úrslitum fann ég fyrir rosa-
lega miklum stuðningi frá saln-
um sem minnkaði stressið mikið.
Hópurinn frá Bretlandi var mjög
hrifinn af mér og hin Norðurlönd-
in hvöttu mig áfram. Ég fór síðan
nánast í „blackout“ þegar fyrsta
sætið var tilkynnt á verðlaunaaf-
hendingunni. Svo þegar íslenski
þjóðsöngurinn var spilaður átti
ég ansi bágt með mig því það var
svo tilfinningaþrungin stund.“
Hvað fékkstu í verðlaun og
hvað þýðir þessi titill fyrir þig?
„Ég fékk stóran bikar og risa-
medalíu en aðalverðlaunin voru
að sjálfsögðu atvinnuskírteinið.
Þetta þýðir að nú get ég orðið at-
vinnumaður í fitness og verð því
fyrsti Íslendingurinn með þessi
réttindi. Þá get ég tekið þátt í
stærri mótum með öllum stjörn-
unum í fitness-sportinu. Þetta
hefur verið draumurinn minn
síðan ég byrjaði í þessu.“
Hve margar fóru út í keppnina
að þessu sinni? „Við vorum fjórar
sem fórum en það voru Olga Hel-
ena, Auður Jóna og Karen Lind.
Karen Lind lenti í 12. sæti. Hún
var í rosalega sterkum flokki
en það voru margar stjörnur í
hennar flokki. Þær voru rosa-
lega flottar á sviðinu en þetta
var þeirra fyrsta mót svo þær
fengu mjög góða reynslu í þess-
ari keppni. Ég fór einmitt á HM í
fyrra og það hjálpaði mér gríðar-
lega mikið núna.“
Í góðu andlegu formi
Hvaða lærðirðu af mótinu í
fyrra? „Ég hefði örugglega ekki
unnið núna hefði ég ekki farið í
fyrra og séð hvernig þetta virk-
ar. Það er allt öðruvísi standard
á þessum evrópsku mótum en
hefur verið hér á Íslandi. Íslensk-
ar stelpur eru mikið stæltari en
gengur og gerist í Evrópu eða
bara í Bandaríkjunum. Við höfum
ekki haft nóga þekkingu á þess-
um flokki, bikinifitness. Við viss-
um bara ekki betur. Maður gat
bara skoðað myndbönd og mynd-
ir, sem geta blekkt mikið. Í fyrra
var ég orðin alltof mössuð og
fékk ekki mörg stig fyrir það.“
Hvað þurftir þú að gera til að
breyta þér og hve langan tíma
tók það? „Eftir heimsmeistara-
mótið í fyrra keppti ég á bikar-
meistaramótinu og köttaði mig
ágætlega fyrir það en náði ekki
að tóna mig niður. Í hálft ár á
eftir reyndi ég að tóna mig niður
á eins heilbrigðan hátt og mögu-
legt var. Ég vildi alveg keppa á
Íslandsmeistaramótinu og fleiri
mótum en ég vildi ekki taka allt-
of harða niðurtónun. Ég fór því
að einbeita mér að brennslu og
sleppti lyftingum í tvo mánuði.
Svo byrjaði ég í þjálfun hjá Jó-
hanni Norðfjörð og hann fékk
næringarfræðing til aðstoða
mig.“
Það eru sem sagt heilmik-
il vísindi á bak við svona kropp?
„Já, líkaminn þarf tíma til að
jafna sig svo hann fari ekki í
sjokk eftir keppni. Sumar stelpur
fara að borða það sem þær vilja
eftir mót og þyngjast alltof hratt.
Ég og þjálfarinn minn erum sam-
mála því að manni á aldrei að líða
illa. Þá er verið að gera eitthvað
vitlaust. Mér hefur aldrei liðið
jafn vel og núna í niðurskurði. Ég
upplifði mig aldrei utan við mig.
Þú þarft fyrst og fremst að vera
andlega sterk. Þú ert að koma þér
í besta form lífs þíns og ert að
fara á svið og láta aðra dæma þig.
Það er alls ekki fyrir alla.“
Snertir ekki ólögleg efni
Hve lengi varstu búin að undir-
búa þig fyrir þessa keppni? „Ég
var alveg tvö ár að því, enda var
ég rosalega mjó þegar ég byrjaði
og þurfti að byrja á því að bæta á
mig vöðvamassa. Ég hef haft það
að leiðarljósi að fara alls ekki of
geyst í hlutina og vildi því byggja
þetta upp hægt og rólega. Ég hef
aldrei verið að nota nein ólögleg
efni til að hjálpa til við það eins
og sumir virðast gera.“
Er það satt að „six pack“ er
best fenginn með stífu matar-
æði? „Að öðlast flottan „six pack“
er rosalega genetískt, því miður,
og fer mikið eftir þínum íþrótt-
MARGRÉT EDDA GNARR
ÞÚ VERÐUR AÐ VERA ANDLEGA STERK
Hún er fyrsti Íslendingurinn sem hlýtur heimsmeistaratitil í módelfi tness-keppninni ISBB Womans World Championship. Fitness og taekwondo eiga hug
hennar allan þrátt fyrir ýmsa sleggjudóma. Lífi ð ræddi við Margréti Eddu um heimsmeistaratitilinn, fi tness-lífsstílinn, heilbrigt mataræði, eineltið og
hvernig það er að vera dóttir borgarstjórans Jóns Gnarr.
Margrét Edda Gnarr lifir heilbrigðu lífi og segist nánast búa í Sporthúsinu
Uppáhalds
MATUR Bleikjan á Nings og
jólamaturinn hennar mömmu.
DRYKKUR Sítrónukristall.
VEITINGAHÚS Nings.
VEFSÍÐA www.bodybuilding.
com er í miklu uppáhaldi.
VERSLUN Kiss í Kringlunni.
HÖNNUÐUR Jeremy Scott og
Jeffrey Campbell.
HREYFING Taekwondo og
lyftingar.
DEKUR Heima-spaið mitt sem
ég geri einu sinni í viku.