Fréttablaðið - 20.09.2013, Side 40
20. september 2013 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 20TÍMAMÓT
„Þessi viðurkenning sýnir okkur að
erlend markaðssetning okkar er á
heimsmælikvarða. Fyrir markaðs-
setningu á áfangastað erum við í
sama flokki og Volkswagen, Audi og
Hyundai, sem eyða milljörðum í mark-
aðsherferðir,“ segir Inga Hlín Páls-
dóttir, forstöðumaður ferðaþjónustu
og skapandi greina hjá Íslandsstofu,
um verðlaunin sem markaðsherferð-
inni Inspired By Iceland voru veitt við
hátíðlega athöfn í Brussel á miðviku-
daginn.
Herferðin hlaut hin virtu Euro
Effie-verðlaun í flokknum afþreying
og skemmtun. Verðlaunin voru veitt
sérstaklega fyrir heimboð Íslendinga
sem voru hluti af herferðinni árið
2011-2012. Er þetta í annað skipti sem
Inspired By Iceland eru veitt verðlaun-
in. Árið 2011 hlaut herferðin aðalverð-
laun fyrir notkun samfélagsmiðla og
einnig Grand Prix-verðlaun fyrir her-
ferð ársins. Euro Effie eru virtustu og
eftirsóttustu fagverðlaunin í auglýs-
ingageiranum. Það eru Samtök evr-
ópskra auglýsingastofa (EACA) sem
standa að veitingu verðlaunanna, sem
voru fyrst veitt árið 1954.
„Þetta eru ein flottustu og virtustu
auglýsingaverðlaun sem hægt er að fá
og mikil viðurkenning fyrir alla aðila að
herferðinni. Sá hluti herferðarinnar sem
verðlaunin eru veitt fyrir gekk út á það
að við biðluðum til Íslendinga að bjóða
erlendum ferðamönnum heim. Ferða-
menn sóttu um heimboðið á samfélags-
miðlum okkar og það voru um 200-300
Íslendingar sem tóku þátt í þessum með
okkur. Sem dæmi má nefna að kona frá
Bjarteyjarsandi bauð ferðamönnum að
tína krækling með sér. Forseti Íslands
bauð í pönnukökur en skemmtilegt er að
segja frá því að mæðgur komu til dæmis
sérstaklega frá Seattle í Bandaríkjunum
til þess að fá sér kaffi með forsetanum.
Jón Gnarr bauð ferðamönnum í sushi í
Höfða og svona mætti lengi telja,“ segir
Inga Hlín.
Spurð út í næstu verkefni Inspired
By Iceland segir Inga að alltaf sé unnið
með skemmtilegt þema á hverju ári
til þess að fá athygli erlendis. „Núna
vorum við að byrja vetrarherferð-
ina fyrir þetta ár þar sem við biðjum
Íslendinga að segja ferðamönnum frá
leyndarmálum. Það þarf ekki að vera
um náttúru eða staði, það má vera um
hlut, safn, uppskrift, sögu eða annað
skemmtilegt sem fólk langar til þess
að deila og telur að ferðamaðurinn eigi
að fá að upplifa um allt land. Tilgang-
ur herferðarinnar er að vekja athygli
á Íslandi yfir vetrartímann og fjölga
ferðamönnum á þeim tíma,“ segir Inga
Hlín að lokum. asa@frettabladid.is
Fékk hin virtu Effi e-
verðlaun í annað sinn
Markaðsherferðin Inspired By Iceland hlaut hin virtu Effi e-auglýsingaverðlaun í fl okknum
afþreying og skemmtun fyrir Heimboð Íslendinga.
Þennan dag árið 1934 fæddist ítalska
leikkonan Sophia Loren. Hún tók þátt í
fegurðarsamkeppni á Ítalíu árið 1949 og
fór í kjölfarið á leiklistarnámskeið sem
skilaði henni litlum hlutverkum hér og
þar. Í kringum 1950 gerði Loren samning
við kvikmyndarisann Paramount um að
leika í fimm kvikmyndum. Í kjölfarið varð
Loren heimsfræg kvikmyndastjarna og sló
hún eftirminnilega í gegn í myndunum
Houseboat, That Kind of Woman og It
Started in Naples. Árið 1962 hlaut Loren
Óskarsverðlaun fyrir leik sinn í myndinni
La ciaciara og varð þar með fyrsta konan
til að fá Óskarsverðlaun fyrir leik á öðru
tungumáli en ensku. Loren hefur einnig
hlotið Grammy- og BAFTA-verðlaun auk
fimm Golden Globe-verðlauna. Hún á
tvö uppkomin börn með eiginmanni
sínum Carlo Ponti sem lést árið 2007. Í
júlí síðastliðnum lék hún í myndinni The
Human Voice en það er hennar fyrsta
hlutverk síðan hún lék í myndinni Nine
árið 2009.
ÞETTA GERÐIST 20. SEPTEMBER 1934
Stórleikkonan Sophia Loren fæddist í Róm á Ítalíu.
VIÐ ERUM Á
HEIMSMÆLI-
KVARÐA Inga
Hlín Pálsdóttir,
forstöðumaður
ferðaþjónustu
og skapandi
greina, segir
að verðlaunin
séu mikill
heiður fyrir
markaðsherfer-
ðina Inspired By
Iceland.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ástkær maðurinn minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN GRÉTAR GUÐMUNDSSON
raffræðingur,
Miðhúsum 6, Reykjavík,
lést á Landspítalanum mánudaginn
16. september sl. Útförin fer fram
frá Grafarvogskirkju mánudaginn
23. september klukkan 13.00.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Sesselja Ólafía Einarsdóttir
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug
vegna veikinda og andláts móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
KRISTÍNAR KRISTJÁNSDÓTTUR
Strandaseli 8, Reykjavík.
Kristján B. Gíslason Guðríður Gestsdóttir
Álfgeir Gíslason Guðný Sigrún Eiríksdóttir
Ragnar Gíslason Valgerður Torfadóttir
Sigfinnur Steinar Gíslason
Ásdís Gísladóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
AUÐUR JÚLÍUSDÓTTIR
Árnatúni 4, Stykkishólmi,
lést 14. september. Hún verður jarðsungin
frá Stykkishólmskirkju laugardaginn
21. september kl. 14.00.
Jónína K. Kristjánsdóttir Bernt H. Sigurðsson
Kristján J. Kristjánsson Svandís Einarsdóttir
Þóra M. Halldórsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
SIGRÚN ÓLÖF SNORRADÓTTIR
frá Stóru-Gröf,
sem lést 11. september sl. verður jarðsungin
frá Sauðárkrókskirkju mánudaginn
23. september kl. 13.00. Þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Félag heyrnar-
lausra.
Jens Evertsson Ingibjörg Stefánsdóttir
Snorri J. Evertsson Stefanía Jónsdóttir
Jóhanna Evertsdóttir Gylfi B. Geiraldsson
Stefán Evertsson Oddný S. Magnúsdóttir
Karlotta Evertsdóttir Sverrir Elefsen
Tómas Evertsson Sunna Davíðsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts
og útfarar föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
ÓLAFS Þ. ÞÓRHALLSSONAR
Neshaga 14, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Landakoti
fyrir góða umönnun í veikindum hans.
Þorbjörg Ólafsdóttir Jón M. Benediktsson
Ólöf Þórhildur Ólafsdóttir Necmi Ergün
Júlíus Heimir Ólafsson Vigdís Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð við
andlát og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu, langömmu og langalangömmu,
LÁRU FJELDSTED
HÁKONARDÓTTUR.
Sérstakar þakkir og kveðjur til starfsfólks á
Hjúkrunarheimilinu Ísafold í Garðabæ.
Svanhildur J. Thors Örn Oddgeirsson
Þórdís Jónsdóttir Leifur Gíslason
Sigrún G. Jónsdóttir William S. Gunnarsson
Sigurður Jónsson Finnbjörg Konný Hákonardóttir
Guðlaug Jónsdóttir Guðmundur Ólafsson
Katrín Fjeldsted Jónsdóttir Magnús Ásmundsson
barnabörn, langömmubörn og langalangömmubörn.
Ástkær eiginmaður, faðir,
tengdafaðir og afi,
ÁSGEIR KARLSSON
geðlæknir,
Hofsvallagötu 49, Reykjavík,
sem lést á Droplaugarstöðum 10. september
sl., verður jarðsunginn frá Neskirkju mánudaginn 23. september
kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeir sem
vilja minnast hans er bent á góðgerðasamtök.
Guðrún Ingveldur Jónsdóttir
Karl Ásgeirsson Monika Gürke
Jón Ásgeirsson Anna Birna Jónasdóttir
Kristín Ástríður Ásgeirsdóttir Katerina Prochazkova
Ástríður Jónsdóttir
Daphne Ósk Karlsdóttir Kjartan Andreas Karlsson
Ásgeir Egill Jónsson Arnar Jónsson
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa, langafa og langalangafa,
JÓHANNS ANTONÍUSSONAR
fyrrverandi útgerðarmanns,
frá Fáskrúðsfirði.
Guðný Kröyer
Ester Jóhannsdóttir Albert Már Steingrímsson
Hilmar Jóhannsson Guðrún Helgadóttir
Björn Jóhannsson Halldóra Þorgeirsdóttir
Sigfús Jóhannsson Kristín Guðjónsdóttir
Kolbrún Jóhannsdóttir Ólafur F. Óskarsson
barnabörn, barnabarnabörn og langafabörn.
Útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
ÖNNU LAUFEYJAR
STEFÁNSDÓTTUR
fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag,
föstudaginn 20. september, kl. 15.00.
Skafti Þ. Halldórsson
Sigríður Hagalínsdóttir
Brynjólfur Gíslason Gerður Þórisdóttir
Hafdís Inga Gísladóttir Gunnar Einarsson
Vigdís Braga Gísladóttir Hlynur Ívar Ragnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Maðurinn minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURÐUR GRÉTAR
GUÐMUNDSSON
Þorlákshöfn, áður í Kópavogi,
lést sunnudaginn 8. september. Útför hans
verður gerð frá Fossvogskirkju mánudaginn
23. september kl. 13.00.
Helga Harðardóttir
Kolbrún Sigurðardóttir Kristinn Briem
Hörður Sigurðarson Hrefna Friðriksdóttir
Fjalar Sigurðarson Arna Sigrún Sigurðardóttir
Sváfnir Sigurðarson Erla Hrönn Vilhjálmsdóttir
Erpur Sigurðarson Yael Nadaf
barnabörn og barnabarnabörn.