Fréttablaðið - 20.09.2013, Side 46
20. september 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING |
«81
GREEN
BULL
FYRIR
NAUTNASEGGINA
AMERICAN
STYLE
MEÐ SALATI
«94
HEALTHY
«82
GAGGALA—GÓMSÆTUR
SLICK
CHICK
SALATI
MEÐ
«95
CHICKEN
HEALTHY
STYLE
«91
SÝNDU
HOLLUSTU
Breski fatahönnuðurinn Matthew
Williamson, sem sýndi nýverið
vor- og sumarlínu sína á tískuvik-
unni í London, segist vilja breyta
um stefnu í hönnun sinni. Það sást
vel á tískuvikunni þegar hann
sýndi mun afslappaðri og klass-
ískari flíkur en áður.
Williamson segir að hann stefni
nú á að hanna föt fyrir fágaðar
konur frekar en villt partídýr,
eins og hann gerði áður. Í við-
tali við breska tískublaðið Grazia
sagði Williamson að þar sem hann
væri að eldast hefði verið kominn
tími á breytingar. Hann sagði
jafnframt að við gerð nýjustu
fatalínu sinnar hefði hann haft
konur í huga, ekki ungar stelpur. Í
framhaldi af þessum breytingum
fékk hann leikkonuna Gwyneth
Paltrow til liðs við sig.
„Fyrsta flíkin sem við hönn-
uðum saman er ólífugræn peysa
með lituðum Swarovski-kristöll-
um. Ég er rosalega ánægður með
útkomuna, þetta er hin fullkomna
haustflík,“ segir Williamson.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Paltrow fer í samstarf með þekkt-
um fatahönnuðum en hún og vin-
kona hennar, fatahönnuðurinn
Stella McCartney, gerðu fatalínu
saman sem er fáanleg á lífsstíls-
síðu Paltrow, Goop.com. Að auki
hefur Paltrow starfað með Rag
and Bone, Warby Parker og Alex-
öndru Von Furstenberg.
„Ég lít á mig sem konu sem
elskar fallega hluti og ég hef
sterkar skoðanir á því hverju
ég klæðist. Í samstarfi okkar
Williamson vil ég hafa yfirsýn
yfir hönnunina frekar en að
hanna einstaka flíkur,“ segir
Paltrow um samstarfið.
Langar að hanna
klassískar fl íkur
Fatahönnuðurinn Matthew Williamson ætlar að breyta um stefnu og hanna
fl íkur sem henta fáguðum og klassískum konum frekar en ungum stelpum.
BREYTIR TIL Fatahönnuðurinn Matthew Williamson segist vilja hanna klassískari
flíkur en hann hefur áður gert. NORDICPHOTOS/GETTY