Fréttablaðið - 20.09.2013, Page 50
20. september 2013 FÖSTUDAGUR| SPORT | 30
Mörkin: 1-0 Ellert Hreinsson (8.), 2-0 Árni
Vilhjálmss. (80.), 3-0 Guðjón Pétur Lýðsson (82.).
Breiðablik (5-3-2): Gunnleifur Gunnleifsson 6 -
Gísli Páll Helgason 6, Þórður Steinar Hreiðarsson
7, Sverrir Ingi Ingason 7, Elfar Freyr Helgason
7, Kristinn Jónsson 6– Tómas Óli Garðarsson 5
(Andri Rafn Yeoman 5), Finnur Orri Margeirsson 6,
Guðjón Pétur Lýðsson 7 (87. Jökull I Elísabetarson
-) - Ellert Hreinsson 7, *Árni Vilhjálmsson 8.
KR (4-3-3): Hannes Þór Halldórsson 4 - Haukur
Heiðar Hauksson 4, Grétar Sigfinnur Sigurðsson
5, Jonas Grönner 3, Gunnar Þór Gunnarsson 4 (72.
Guðmundur Reynir Gunnarsson 5), Jónas Guðni
Sævarsson 4, Brynjar Björn Gunnarsson 4 (66.
Bjarni Guðjónsson 5), Baldur Sigurðsson 5 - Óskar
Örn Hauksson 5, Emil Atlason 4, Gary Martin 4
(63. Kjartan Henry Finnbogason 5).
Skot (á mark): 11-4 (6-4) Horn: 2-4
Varin skot: Gunnleifur 4 - Hannes 3
3-0
Kópavogsvöll.
1930 áhorfendur
Garðar Ö.
Hinriksson (9)
Mörkin: 0-1 Sigurður Egill Lárusson (11.), 0-2
Patrick Pedersen (45.).
ÍBV (4-4-2): David James 4 (46., Guðjón Orri
Sigurjónsson 7) - Arnór Eyvar Ólafsson 6, Matt
Garner 6, Eiður Aron Sigurbjörnsson 5, Jón
Ingason 5 - Ian Jeffs 5, Tonny Mawejje 6, Gunnar
Þorsteinsson 5 (46., Víðir Þorvarðarson 5), Arnar
Bragi Bergsson 5 (71., Aaron Spear -) - Gunnar
Már Guðmundsson 4, Brynjar Gauti Guðjónsson 5.
Valur (4-4-2): Fjalar Þorgeirsson 7 - Jónas Tór
Næs 6, Magnús Már Lúðvíksson 6, Matarr Jobe
7, Bjarni Ólafur Eiríksson 6 (80., Lucas Ohlander
-) - Arnar Sveinn Geirsson 7 (89., Andri Fannar
Stefánsson -), Haukur Páll Sigurðsson 4, Kristinn
Freyr Sigurðsson 6, *Sigurður Egill Lárusson 7 -
Patrick Pedersen 7, Indriði Áki Þorláksson 6 (87.,
Stefán Ragnar Guðlaugsson -).
Skot (á mark): 7-10 (3-7) Horn: 9-4
Varin skot: James 2, Guðjón 3 - Fjalar 2.
0-2
Hásteinsvöllur
324 áhorfendur
Þorvaldur
Árnason (7)
visir.is
Allt um leiki
gærkvöldsins
visir.is
Allt um leiki
gærkvöldsins
SPORT
FÓTBOLTI Knattspyrnustórveld-
ið ÍA er fallið úr Pepsi-deildinni.
Dvölin í deild þeirra bestu var
stutt að þessu sinni eða aðeins tvö
ár. Þetta var í fjórða sinn sem ÍA
fellur úr efstu deild.
Skagamenn hafa ekki riðið feit-
um hesti frá viðureignum sínum í
Pepsi-deildinni í sumar. Þeir hafa
aðeins unnið tvo leiki af nítján og
ekki tekið nema eitt stig af þrjátíu
mögulegum á útivelli. ÍA er ein-
faldlega með lélegasta liðið í Pepsi-
deildinni í sumar.
„Við ætlum bara að klára þetta
mót áður en við hittumst, setjumst
niður og förum yfir framhaldið,“
sagði Ingi Fannar Eiríksson, for-
maður knattspyrnudeildar ÍA, súr
í bragði.
Spekingar eru á einu máli um að
ÍA hafi einfaldlega ekki sent nógu
gott lið til keppni. Hvað finnst for-
manninum?
„Það er erfitt að meta það
almennilega núna. Maður gerir
það þegar reiðin rennur af manni.
Þá er hægt að greina þetta svo eitt-
hvað vit sé í því. Það er ekki hægt
að segja neitt núna nema vera bara
í bulli.“
Það gekk mikið á hjá Akranesi
í sumar. Þórður Þórðarson hætti
að þjálfa liðið og í hans stað kom
Þorvaldur Örlygsson. Það skilaði
liðinu ekki neinu. Er eitthvað sem
stjórnin sér eftir? „Við gerðum
örugglega fullt af mistökum.“
Ingi Fannar segir að stjórnin sé
ánægð með störf Þorvalds þó svo
að úrslitin hafi ekki verið góð. For-
maðurinn vildi ekki gefa neitt upp
um hvort hann yrði áfram með
liðið.
Sú fiskisaga hefur flogið að
Skagamenn ætli sér að reyna að
fá Sigurð Ragnar Eyjólfsson, fyrr-
verandi þjálfara kvennalandsliðs-
ins, til þess að taka við liðinu.
„Ég held að þetta sé bara eitt-
hvað bull. Ég hef ekki heyrt þessa
sögu. Ég heyri þær sjaldnast
enda vinn ég í banka með tuttugu
konum. Við höfum ekkert rætt við
Sigurð Ragnar.“
Mikið hefur verið rætt um fram-
tíð fyrirliðans, Jóhannesar Karls
Guðjónssonar, en orðið á götunni
hefur verið að hann muni fara í KR
eða FH. Ingi Fannar segir að ekk-
ert verði af því.
„Hann er samningsbundinn
okkur og á eitt ár eftir af samn-
ingi. Hann er ekki til sölu. Þetta er
fyrirliði liðsins og það er ekki séns
að hann fari. Hann fær ekkert að
fara,“ sagði Ingi Fannar ákveðinn.
henry@frettabladid.is
Jói er ekki til sölu
Skagamenn segjast ekki vera farnir að leggja línurnar fyrir næsta sumar í 1.
deildinni. Menn þar á bæ eru slegnir eft ir að hafa verið sendir niður um deild
eft ir 0-5 tap gegn Ólsurum. Skagamenn ætla ekki að selja fyrirliðann sinn.
FER EKKI NEITT Skagamenn taka ekki í mál að selja fyrirliðann sinn í vetur.
Jóhannes Karl spilar því að óbreyttu í 1. deildinni næsta sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
PEPSI DEILDIN 2013
STAÐAN
KR 19 15 1 3 45-22 46
FH 20 12 5 3 41-22 41
Stjarnan 20 12 4 4 31-19 40
Breiðablik 20 10 6 4 32-22 36
Valur 20 7 9 4 39-29 30
ÍBV 20 8 5 7 23-22 29
Fram 20 6 4 10 25-33 22
Fylkir 20 5 5 10 28-31 20
Keflavík 20 6 3 11 27-42 21
Þór 20 4 6 10 28-43 18
Víkingur 20 3 8 9 20-28 17
ÍA 19 2 2 15 25-51 8
EVRÓPUDEILD UEFA
HELSTU ÚRSLIT
TOTTENHAM - TROMSÖ 3-0
1-0 Jermain Defoe (21.), 2-0 Jermain Defoe (29.),
3-0 Christian Eriksen (86.). Gylfi Þór Sigurðsson
lék allan leikinn.
MACCABI HAIFA - AZ ALKMAAR 0-1
0-1 Jóhann Berg Guðmundsson (71.). Jóhann
Berg og Aron Jóhannsson léku allan leikinn.
BETIS - LYON 0-0
VALENCIA - SWANSEA 0-3
0-1 Wilfried Bony (14.), 0-2 Michu (58.), 0-3
Jonathan de Guzmán (62.).
ZULTE WAREGEM - WIGAN 0-0
Ólafur Ingi Skúlason spilaði allan leikinn á
miðju belgíska liðsins.
DYNAMO KIEV- GENK 0-1
0-1 Julien Gorius (62.)
LAZIO - LEGIA VARSJÁ 1-0
1-0 Hernanes (53.).
STANDARD LIEGE - ESBJERG 1-2
0-1 Mick van Buren (63.), 1-1 Geoffrey Mujangi
Bia (73.), 1-2 Mushaga Bakenga (90.).
OLÍS-DEILD KARLA
AKUREYRI - FRAM 25-18 (9-6)
Akureyri - Mörk (skot): Valþór Guðrúnarsson
8 (11), Kristján Orri Jóhannsson 5 (7), Sigþór
Heimisson 3 (5), Bjarni Fritzsson 3/1 (6/1),
Þrándur Gíslason 2 (4), Gunnar Þórsson 1 (1),
Halldór Logi Árnason 1 (1), Jón Heiðar Sigurðsson
1 (1), Arnór Þorri Þorsteinsson 1 (1), Andri Snær
Stefánsson (1), Vladimir Zejak (2),
Varin skot: Jovan Kukobat 14 (32, 44%),
Fram - Mörk (skot): Sigfús Páll Sigfússon 5 (8),
Stefán Baldvin Stefánsson 4 (4), Sigurður Örn
Þorsteinsson 4 (7), Garðar B. Sigurjónsson 2 (5),
Ólafur Magnússon 2 (5), Sveinn Þorgeirsson 1
(6), Arnar Freyr Ársælsson (1), Guðmundur Birgir
Ægisson (1),
Varin skot: Steffan Nielsen 8 (30/1, 27%), Svavar
Már Ólafsson 1 (4, 25%),
HK - FH 22-22 (13-16)
HK - Mörk (skot): Daníel Berg Grétarsson 8 (11),
Atli Karl Bachmann 6 (15), Tryggvi Þór Tryggvason
2 (3), Leó Snær Pétursson 2 (3/1), Jóhann Reynir
Gunnlaugsson 2/1 (8/2), Eyþór Már Magnússon 2
(9), Davíð Ágústsson (2),
Varin skot: Björn Ingi Friðþjófsson 16/3 (37/6,
43%), Helgi Hlynsson (1/1, 0%),
FH - Mörk (skot): Einar Rafn Eiðsson 8/4 (10/5),
Ragnar Jóhannsson 3 (5), Sigurður Ágústsson 2
(2), Ísak Rafnsson 2 (3), Magnús Óli Magnússon
2 (4), Benedikt Reynir Kristinsson 2 (6/1), Halldór
Guðjónsson 1 (2), Atli Rúnar Steinþórsson 1
(3), Valdimar Fannar Þórsson 1 (5), Ásbjörn
Friðriksson (4/1),
Varin skot: Daníel Freyr Andrés. 23/1 (45/2, 51%),
VALUR - HAUKAR 27-22 (10-10)
Valur - Mörk (skot): Geir Guðmundsson 6 (11),
Elvar Friðriksson 5/2 (6/3), Guðmundur Hólmar
Helgason 5 (8), Orri Freyr Gíslason 4 (5), Jón
Björgvin Pétursson 2 (2), Finnur Ingi Stefánsson 2
(4/1), Ægir Hrafn Jónsson 1 (1), Vignir Stefánsson
1 (2), Sveinn Aron Sveinsson 1 (3), Júlíus Þórir
Stefánsson (1), Þorgrímur Smári Ólafsson (2),
Varin skot: Hlynur Morthens 13 (27, 48%), Lárus
Helgi Ólafsson 1 (9, 11%),
Haukar - Mörk (skot): Árni Steinn Steinþórsson
6 (10), Einar Pétur Einarsson 5 (6), Jón Þorbjörn
Jóhannsson 3 (4), Sigurbergur Sveinsson 3
(8), Adam Haukur Baumruk 2 (4), Elías Már
Halldórsson 2 (4), Tjörvi Þorgeirsson 1 (3),
Matthías Árni Ingimarsson (1), Þröstur Þráinsson
(2),
Varin skot: Giedrius Morkunas 14 (39/1, 36%),
Einar Ólafur Vilmundarson 1 (3/1, 33%).
KÖRFUBOLTI Ísland mun eiga tvo leikmenn
í spænsku úrvalsdeildinni í vetur eins og á
síðasta tímabili. Þetta kom í ljós í gær þegar
Hörður Axel Vilhjálmsson samdi við lið CB
Valladolid. Jón Arnór Stefánsson spilar áfram
með CAI Zaragoza í vetur en Hörður Axel
kemur í staðinn fyrir Hauk Helga Pálsson,
sem var lánaður til b-deildarliðsins Breogan
á dögunum.
„Ég setti mér markmið fyrir fimm árum
um að fimm árum seinna yrði ég að spila
í ACB-deildinni á Spáni. Hér stend ég eftir
endalausa vinnu og endalausar hindranir
með samning í höndunum. Þú getur gert
nákvæmlega það sem þú vilt með þetta líf,
fer allt eftir þínum eigin vilja og trú!“ skrifaði
Hörður Axel Vilhjálmsson á fésbókarsíðu
sína í gær þegar samningurinn var í höfn.
Hörður Axel spilaði með Mitteldeutscher
BC í þýsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili,
þar sem hann var með 9,6 stig og 3,0
stoðsendingar að meðaltali á 23,4 mínútum
í leik. Hörður Axel er 25 ára bakvörður sem
er uppalinn í Fjölni en spilaði með Njarðvík
og Keflavík áður en hann fór út.
Fyrsti leikur CB Valladolid verður á útivelli
á móti Real Madrid en fyrsti Íslendingaslagur
tímabilsins verður ekki fyrr en á milli jóla
og nýárs þegar Jón Arnór og félagar í CAI
Zaragoza taka á móti Herði og félögum. - óój
Setti sér þetta markmið fyrir fi mm árum
MARKMIÐINU NÁÐ
Hörður Axel Vilhjálms-
son.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Breiðablik vann frá-
bæran sigur á KR, 3-0, í gær og
eyðilagði í leiðinni sigurhátíð KR,
sem gat tryggt sér Íslandsmeist-
aratitilinn á Kópavogsvellinum.
Frábær frammistaða hjá Blikum
sem héldu Evrópudraumi sínum
á lífi í bili. Líklega ein versta
frammistaða KR í sumar en liðið
er samt sem áður enn með pálm-
ann í höndunum og gæti orðið
Íslandsmeistari gegn Valsmönn-
um á sunnudaginn.
„Við lékum illa alveg frá fyrstu
mínútu og út allan leikinn,“ segir
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR,
eftir leikinn í gær. KR-liðið var
meira með boltann í leiknum og
Blikarnir beittu skyndisókn-
um með fimm manna vörn fyrir
aftan sig. „Breiðablik lék virki-
lega vel í kvöld og átti sigurinn
fyllilega skilið. Við gerðum allt
of mörg mistök í þessum leik og
áttum í raun aldrei möguleika í
þessum leik,“ sagði Rúnar.
KR-ingar hafa ekki misstigið
sig oft í sumar og leikur þeirra
hefur oftast nær verið góður en
það var eitthvað allt annað uppi
á teningnum í gær hjá Vesturbæ-
ingum.
„Boltinn gekk hægt og liðið
spilaði boltanum illa. Ég er samt
sem áður óánægðastur með
lélegt vinnuframlag hjá mönnum
í kvöld.“
Íslandsmeistaratitillinn er
samt sem áður enn í sjónmáli og
þurfa KR-ingar tvö stig í næstu
þremur leikjum gegn Val, ÍA og
Fram.
„Það er kannski eðlilegt þegar
öll umfjöllun alls staðar geng-
ur út á það að við séum búnir
að vinna þennan titil að það fari
kannski inn í hausinn á mönnum
en það er bara ekki þannig og við
þurfum að sækja þessi tvö stig í
það minnsta til að tryggja okkur
titilinn.“
Árni Vilhjálmsson, leikmaður
Breiðabliks, var frábær í gær, skor-
aði eitt mark og lagði annað upp.
„Ég hef verið að bæta leik minn
jafnt og þétt í sumar og átti fínt
kvöld,“ segir Árni.
„Núna er bara einn leikur í einu
og möguleikar okkar á Evrópu-
sæti eru ekki enn farnir. Við
þurfum að vinna rest og eigum
erfiðan leik gegn Stjörnunni um
helgina,“ sagði Árni að lokum.
- sáp
Súrt tap í stað sigurveislu hjá KR-ingum
KR-ingum tókst ekki að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í gær því þeir steinlágu 3-0 á móti Blikum.
Alexander Petersson spilaði á ný með Rhein-Neckar Löwen í
gærkvöldi þegar liðið gerði 31-31 jafntefli á móti úkraínska
liðinu HC Motor Zaporozhye í fyrsta leik liðanna í Meistara-
deildinni í handbolta.
Úrslitin voru vissulega vonbrigði fyrir Guðmund Guð-
mundsson og lærisveina hans en það var gleðiefni fyrir
liðið að endurheimta Alexander. Það var vel fagnað í
höllinni þegar Alexander kom aftur inn á völlinn, enda er
hann algjör lykilmaður í liðinu. Alexander fór í aðgerð á öxl
í júní og spilaði nú aftur eftir sextán vikna endurhæfingu.
Alexander skoraði tvö mörk í gær en framkvæmdastjórinn
Thorsten Storm bjóst ekki við íslenska landsliðsmanninum
strax. „Við reiknuðum með honum í október en svona er
Alexander Petersson,“ sagði Thorsten Storm í viðtali á
heimasíðu Löwen.
Alexander sneri aft ur í gær
langt á undan áætlun
BLIKAR FAGNA Breiðablik
sýndi styrk sinn á móti
Íslandsmeistaraefnunum úr
KR á Kópavogsvellinum í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM