Fréttablaðið - 15.10.2013, Qupperneq 8
15. október 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 8
Skráðu þig á advania.is/win8
Ókeypis
örnámskeið
Windows 8umum TOK 2014Ný útgáfa af TOK bókhaldskerfinu, TOK 2014 er væntanleg um næstu mánaðarmót þar sem
helsta nýjungin er móaka og sending rafrænna reikninga.
Af þessu tilefni höldum við morgunverðarfund um nýja virkni í TOK bókhaldskerfinu
og hvernig nýta má hana sem best. Í lokin allar Ingrid Kuhlman frá Þekkingarmiðlun
um jákvæð og neikvæð samskipti.
Staður og stund:
Föstudagur 18. október, kl. 8.30-10.00 í höfuðstöðvum Advania, Guðrúnartúni 10.
Húsið opnar kl. 8 með ljúffengum morgunverði að hæi hússins.
Skráning á advania.is/fundir
Spennandi
morgunverðarfundur
www.saft.is
KENNDU BARNINU ÞÍNU AÐ
SKOÐA EFNI Á NETINU MEÐ
GAGNRÝNUM HÆTTI
AUSTURRÍKI, AP Hófleg bjartsýni
ríkir á að viðræður Írana við full-
trúa sex ríkja, sem hefjast í Vín-
arborg í dag, muni skila árangri.
Viðræðurnar munu snúast um
kjarnorkuáætlun Írans. Sex ríkja
hópurinn vill helst að Íranar hætti
allri kjarnorkuvinnslu, eða að
minnsta kosti þeim hlutum kjarn-
orkuáætlunarinnar sem hugsan-
lega gætu nýst Írönum til þess að
búa til kjarnorkuvopn.
Íranar halda hins vegar fast
í þann rétt sinn að fá að stunda
kjarnorkuvinnslu áfram í friðsam-
legum tilgangi – nefnilega til þess
að útvega landsmönnum orku.
Írönsk stjórnvöld hafa undan-
farin ár, undir forystu Mahmúds
Ahmadínedjads forseta, verið
ófáan leg til þess að ræða eftirgjöf
en nýr forseti tók við í sumar og
síðan hefur kveðið við annan tón.
Nýi forsetinn, Hassan Rúhaní,
ræddi fyrir fáum vikum símleiðis
við Barack Obama Bandaríkjafor-
seta. Það var í fyrsta sinn sem leið-
togar þjóðanna tveggja hafa skipst
á orðum í meira en þrjátíu ár.
Fáir búast reyndar við því að
viðræðurnar í dag og á morgun
skili samkomulagi sem báðir aðil-
ar geti sætt sig við. Það eitt að við-
ræðurnar séu hafnar með form-
legum hætti verður þó að teljast
mikill árangur. Þokist eitthvað í
áttina fer væntanlega allt púður
úr þrálátu tali um stríð Ísraels og
jafnvel Bandaríkjanna við Íran.
Ísraelsk stjórnvöld hafa síðustu
vikurnar ítrekað reynt að vara við
því að ekkert sé að marka sátta-
tal nýja Íransforsetans. Íranar
séu eftir sem áður mikil ógn við
öryggi Ísraels og heimsbyggðar-
innar allrar. gudsteinn@frettabladid.is
Íranar mæta
til viðræðna
Íranar mæta í dag til tveggja daga fundarhalda með
fulltrúum sex ríkja, þar sem reynt verður að komast
að einhverri niðurstöðu um kjarnorkuáætlun Írans.
Bandaríkin, Rússland,
Kína, Bretland, Frakk-
land og Þýskaland eiga
auk Írans fulltrúa á
fundunum, sem hefj-
ast í Vínarborg í dag.
Sex ríkja hópurinn er
gjarnan nefndur P5+1
vegna þess að þetta
eru fastaríkin fimm
í öryggisráði Sam-
einuðu þjóðanna auk
Þýskalands. Evrópu-
sambandsríkin tala
hins vegar stundum
um E3-3, vegna þess að í ríkjahópnum eru þrjú Evrópusambandsríki og
þrjú önnur ríki. Það er Catherine Ashton, utanríkismálafulltrúi Evrópusam-
bandsins, sem stjórnar viðræðunum.
Ríkin sex
KJARNORKUVER Í ÍRAN Umdeildasta atriðið er auðgun úrans, sem Íranar hafa
stundað í nokkur ár Bandaríkjamönnum og Ísraelum til skelfingar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FYRSTU VIÐRÆÐUR Utanríkisráðherrar Írans og
Bandaríkjanna á fundi með fulltrúum fastaríkjanna í
öryggisráði SÞ í síðasta mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/AP