Fréttablaðið - 15.10.2013, Side 48
FRÉTTIR
AF FÓLKI
Mest lesið
1 Bílpróf boðin út eft ir áratug hjá
Frumherja
2 Hoppandi vitlaus ferðamaður
3 Guðmundur: Ég er mjög stoltur í dag
4 Barist um athygli Eiðs Smára
5 Breskur karlmaður handtekinn í máli
Madeleine McCann
6 Frelsið er yndislegt
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
Erna Bergmann
á von á barni
Erna Bergmann, fatahönnuður og
stílisti, á von á sínu fyrsta barni
næsta vor. Erna er kannski hvað best
þekkt úr sjónvarpi en hún annaðist
þáttinn Monitor, ásamt Atla Fannari
Bjarkasyni. Erna gat sér einnig gott
orð sem annar tveggja stjórnenda
sjónvarpsþáttarins Bak við böndin,
sem hún hafði umsjón með ásamt
Ellen Loftsdóttur.
Barnsfaðir Ernu og unnusti er tón-
listarmaðurinn Birgir
Ísleifur Gunnarsson
í hljómsveitinni
Motion Boys.
Birgir Ís-
leifur á fyrir
tvo drengi með
framkvæmda-
stýru Besta
flokksins og
fyrrverandi
aðstoðar-
konu Jóns
Gnarr, Heiðu
Kristínu
Helgadóttur.
- ósk
Gefur út nýja plötu
Emmsjé Gauti kláraði nýlega upp-
tökur á nýrri plötu sem hann mun
gefa út í nóvember ásamt útgáfu-
fyrirtækinu Red Lights. Platan ber
heitið Þeyr en með Gauta spila
Skytturnar auk þess sem bræðurnir
Logi Pedro og Unnsteinn úr Retro
Stefson spila nokkur lög.
Platan var að mestu
unnin á Íslandi en einnig
í Svíþjóð og Danmörku.
Það er í nógu að snúast
hjá Gauta þessa dagana
en á föstudaginn
munu hann og
Úlfur Úlfur
spila í Hörpu
við undirspil
hljóm-
sveitar-
innar Agent
Fresco. - eh