Fréttablaðið - 03.12.2013, Síða 1

Fréttablaðið - 03.12.2013, Síða 1
Hakkarinn reyndi innbrot víðar Tölvuþrjóturinn sem braust inn hjá Vodafone reyndi fyrst að brjótast inn hjá öðrum íslensk- um fyrirtækjum. Erum aldrei fullkomlega örugg segir Þorleifur Jónasson, forstöðumaður hjá Póst- og fjarskipta- stofnun. 8 BÍLAR Reynsluakstur Audi A3SAAB hefur framleiðslu á ný ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2013 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Þriðjudagur Sími: 512 5000 3. desember 2013 284. tölublað 13. árgangur SPORT Íþróttafólk ársins úr röðum fatlaðra var krýnt við hátíðlega at- höfn í gær. 30 2 SÉRBLÖÐ Bílar Fólk Sími: 661 7000 // www.kaupumgull.is 3. HÆÐ Í KRINGLUNNI (Hjá Læknastöðinni) Gylfaflöt 7 112 Reykjavík 587-8700 www.krumma.is MENNING Sara María Júlíusdóttir tekur þátt í bolakeppni á vegum tón- listarmannsins Pharrells Williams. 34 SKOÐUN Efna verður strax til umræðu um Ríkisútvarpið, skrifar Guðrún Nordal. 18 Nú er opio allan sólarhringinn í Engihjalla FLUTTUR BROTT Byssumaðurinn var fluttur helsærður á Landspítal- ann eftir að hafa fengið í sig skot frá lögreglunni. SÉRSVEITIN Kallað var eftir aðstoð sérsveitarmanna til að yfirbuga manninn sem svaraði engu nema með skothríð. Bolungarvík -2° SV 8 Akureyri -2° SV 7 Egilsstaðir -3° SV 7 Kirkjubæjarkl. 0° SV 7 Reykjavík 1° SV 13 VÍÐA ÉL Í dag verða suðvestan 8-15 m/s, en 10-18 syðst. Víða él en úrkomulítið eystra. Frost víða 0-5 stig en frostlaust við suðurströndina. 4 FRÉTTIR BROTIN RÚÐA Byssumaðurinn skaut að lögreglunni út um svefnherbergisglugga sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR „Þetta er bein afleiðing af lélegu heil- brigðiskerfi fyrir geðfatlaða,“ segir Sigríður Ósk Jónasdóttir, systir mannsins sem lést í skotbardaga í Árbæ í gær. „Þetta lá í loftinu, hann var í mjög slæmu ástandi sem versnaði og versnaði,“ segir Sigríður. „Það eru engin úrræði fyrir þetta fólk og það er fullt af fólki úti um allt land sem er tifandi tíma- sprengjur.“ Sigríður segir ýmis slæm teikn hafa verið á lofti undanfarið varðandi bróður hennar. Hún hafi reynt að finna úrræði fyrir hann. „En það er einhvern veginn ekkert gert og ekki hlustað á mann fyrr en allt er komið í vitleysu,“ segir hún. Bróðir Sigríðar var á Kleppi fyrir nokkru, síðan á heimili fyrir geðfatlaða. Hann fékk svo félagslega íbúð í Hraun- bænum og var þar undir eftirliti. - ebg HANN VAR Í MJÖG SLÆMU ÁSTANDI SEGIR SYSTIR MANNSINS Hann hefði þurft að fara aftur á Klepp. Það er engin spurning. Hann er búinn að upplifa svo margt í lífinu. Það hefur ekki verið dans á rósum hjá honum.“ Sigríður Ósk Jónasdóttir, systir mannsins JÓLAGJÖFIN Þetta er gjöfin fyrir vinkon- una, mömmu , ömmu, syst- ur, frænku og allar þær sem þér þykir vænt um! Inni- heldur sturtu- sápu 150ml, líkamskrem 150ml og handáburð SPÍNAT ER H OLLT OG GOT T Nú þegar kalt er í veðri er n auðsynlegt a ð fá í sig víta mín. Spín at og annað g rænt grænme ti er mjög vítamínríkt. Í spínati er A- , C-, E- og K-v ítamín auk ka lks og fólinsýru. Spínat ætti þ ví að vera oft á borðum. Jólagjöfin í ár! Vinsælu k uldaskórn ir ð mannbr oddunum LÖGREGLUMÁL Lögregla á Íslandi varð í fyrsta sinn manni að bana er 59 ára gamall maður, Sævarr Rafn Jónasson, féll í skotbardaga í gærmorgun. Atburðurinn varð í blokk í Árbæ í Reykjavík. Nágrannar mannsins höfðu heyrt hvelli tveimur tímum áður en lögregla var kölluð til. „Þetta voru alveg nokkur skot í smá tíma þar til lögreglan kom,“ sagði sjónarvottur. Um klukkan þrjú kom lögregla á staðinn og sér- sveitin skömmu síðar. Sérsveitarmenn reyndu árang- urslaust að hafa samband við Sæv- arr. Þá var ákveðið að brjótast inn í íbúð hans en þá skaut Sævarr að sérsveitarmönnum og hæfði einn þeirra. Síðar var reynt að yfirbuga manninn með gasvopnum. Hann hóf þá skothríð að lögreglunni út um glugga. Lögreglan ákvað að sækja Sævarr inn í íbúðina en hann skaut þá á lögreglumennina sem skutu til baka. Einn lögreglu- mannanna fékk skot í höfuðið en hjálmur varð honum til bjargar. Sérsveitarmenn skutu manninn sem var úrskurðaður látinn við komu á sjúkrahús um klukkan sjö í gærmorgun. Lögreglumennirnir særðust ekki alvarlega en þeir fengu áfallahjálp. Ólafur Örn Bragason, sálfræðingur hjá ríkislögreglu- stjóra, segir að búið sé að þjálfa fjölda lögreglumanna til að veita félögum stuðning. „Þegar erfið áföll hafa orðið, eins og í gær, þá ljúkum við vöktum með viðrunar- fundi og þar er farið yfir málið,“ segir hann. Að ósk lögreglunnar mun ríkis- saksóknari gera ítarlega rannsókn á málinu. Meðal annars hafa vopn lögreglumannanna verið tekin til hliðar til rannsóknar. Þeir hafa fengið ný vopn og halda áfram störfum. Sævarr átti við geðræn veik- indi að stríða árum saman. Hann hafði áður verið ákærður í Noregi á níunda áratugnum fyrir tilraun til manndráps. - jme / sjá bls. 2, 4 og 6 Féll fyrir skotum lögreglu 59 ára gamall karlmaður lést eftir að hafa skipst á skotum við lögreglu í gær. „Það er fullt af fólki úti um allt land sem er tifandi tímasprengjur,“ segir systir mannsins. Lögreglumenn og nágrannar fengu áfallahjálp eftir atburðinn. Ríkissaksóknari hefur hafið rannsókn á málinu. Á VETTVANGI Blóð litaði innganginn í morgunsárið að Hraunbæ 20 þegar 59 ára karl- maður lést eftir að hafa skipst á skotum við lögreglumenn. Vill svör um greiðsluvanda Formaður Samfylkingarinnar vill svör um það hvað ríkisstjórnin ætli að gera fyrir fólk með lánsveð, þá sem fengu ekki úrlausn með 110 prósent leiðinni og þá sem keyptu fasteign á versta tíma. 4 Fengu ekki jólauppbót Atvinnuleitendur fengu ekki greidda desemberuppbót um mánaðamótin eins og undanfarin þrjú ár. Velferðarráðherra kveðst berjast fyrir aukafjár- veitingu. 12

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.