Fréttablaðið - 03.12.2013, Síða 4

Fréttablaðið - 03.12.2013, Síða 4
3. desember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4 LÖGREGLUMÁL Skotmaðurinn í Árbæ átti langan afbrotaferil að baki í Noregi. Hann var sendur til Íslands í fylgd norskra lögreglumanna sumarið 1982. Þau skilaboð fylgdu að honum hefði verið vísað ævi- langt frá Noregi vegna þjófnaðarmála. Eigi að síður hélt hann aftur til Noregs, því haustið 1986 kemur lögreglan að honum þar sem hann er að brjótast inn. Maðurinn var þá vopnaður og dró upp sjálf- virka skammbyssu og beindi henni að lögregluþjóni. Hann var í kjöl- farið ákærður fyrir tilraun til manndráps, innbrot, þjófnað og fyrir að hafa fíkniefni í fórum sínum. - jme, hh Vísað ævilangt frá Noregi vegna ýmissa afbrota: Beindi byssu að lögreglu í Noregi Tvær tegundir af níu millimetra skotvopnum eru í eigu sérsveit- ar ríkislögreglustjóra. Annars vegar er um að ræða léttar vél- byssur af gerðinni Heckler & Koch MP5, hins vegar skamm- byssur af gerðinni Glock. Flestar sérsveitir heims nota þessar tegundir skotvopna. Byssurnar sem notaðar voru í aðgerðum sérsveitarinnar í gær hafa verið teknar til hliðar á meðan saksóknari rannsakar málið. - gb Skotvopnin sem sérsveitin notaði í gær tekin til hliðar: Verða rannsökuð af saksóknara LÖGREGLAN „Við vinnum hörðum höndum að því að styðja okkar fólk,“ segir Ólafur Örn Bragason, sál- fræðingur hjá embætti ríkislögreglustjóra. Ólafur getur ekki tjáð sig um einstök mál eins og líðan lög- reglumannanna sem voru í skothríðinni í Hraunbæ í gær. Það er þó vitað að það er mjög stór streituþáttur fyrir lögreglumann þegar maður lætur lífið í aðgerð. „Við erum með skipulagðan félagastuðning, það er stuðningur félaganna á milli og virkar sem brú yfir í fagþjónustu. Alltaf þegar alvarleg atvik eiga sér stað, til dæmis dauðsföll eða ofbeldi gegn lögreglumönnum, þá virkjum við þetta kerfi.“ Ólafur Örn segir stuðning félaganna skipta miklu máli í svona aðstæðum. „Það er búið að þjálfa upp fjölda lögreglumanna við að veita félögum stuðning. Þegar erfið áföll hafa orðið, eins og í gær, þá ljúkum við vöktum með viðrunar- fundi og þar er farið yfir málið. Þannig veitum við fyrsta stuðning.“ - epg Félagastuðningur lögreglumanna mikilvægur: Dauðsfall í lögregluaðgerð er mikið áfall segir sálfræðingur STJÓRNMÁL Áhrif skuldaleiðrétt- inga á stöðu fólks í greiðsluvanda voru rædd á Alþingi í gær. Árni Páll Árnason, formaður Samfylk- ingarinnar, spurði Bjarna Bene- diktsson fjármálaráðherra hvernig ríkisstjórnin hygðist leysa vanda þeirra sem áfram munu glíma við greiðsluvanda vegna neikvæðrar eiginfjárstöðu, þrátt fyrir aðgerð- ir ríkisstjórnarinnar í þágu skuld- ugra heimila. Nefndi Árni sérstaklega þrjá hópa: fólk með lánsveð, fólk sem ekki fékk fullnægjandi úrlausn með 110 prósent leiðinni og þá sem keyptu á fasteign á versta tíma, það er tímabilinu 2005 til 2007. Fjármálaráðherra svaraði því til að aðgerðirnar gagnaðist öllum þeim sem vildu leggja eitthvað af mörkum sjálfir. „Hóparnir, sem háttvirtur þingmaður er sérstak- lega að tala um, geta einmitt létt greiðslubyrðina sína með því að fá frjálst val og skattalegan hvata til þess að setja sparnaðinn sinn inn á húsnæðislán,“ sagði ráðherra. „Það stóra sem stendur eftir er að fjármálaráðherra segir að ekki standi til að gera neitt fyrir þá sem eru áfram í neikvæðri eiginfjár- stöðu eftir þessar aðgerðir,“ segir Árni um svar ráðherra. Í gær lagði Árni fram skriflega fyrirspurn til forsætisráðherra í níu liðum um áhrif aðgerðanna út frá eignum og tekjum fólks. - eb Áhrif skuldaaðgerða á stöðu fólks í greiðsluvanda voru til umræðu á Alþingi í gær: Greiðsluvandinn enn óleystur hjá sumum ÁRNI PÁLL ÁRNASON Formaður Samfylkingarinnar vill svör um vanda þeirra sem eru með lánsveð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SÁLFRÆÐINGUR RÍKISLÖGREGLU- STJÓRA Ólafur Örn Bragason segir félagastuðn- ing lögreglumanna vera mikilvægan eftir erfið áföll. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SKOTVOPN Glock-skammbyssa og vélbyssa af gerðinni Heckler & Koch MP5. AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundur@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ Hafðu það mjúkt um jólin 100% Pima bómull 2013-2060 er gert ráð fyrir að mannfjöldi á Íslandi verði 430.545 í lok tímabilsins miðað við 321.857 íbúa 1. janúar 2013. Lægsti fjöldi landsmanna í spánni verður 387.597 íbúar 1. janúar 2060, en samkvæmt hæstu spá 490.976 talsins. Mannfjöldaspá Hagstofu Íslands LÖGREGLUMÁL Haraldur Johannes- sen ríkislögreglustjóri sagði á blaðamannafundi sem haldinn var í gær að árásin í Hraunbæ ætti sér engin fordæmi í Íslandssögunni. Meðal annars hafi verið haft sam- band við innanríkisráðherra og ríkissaksóknara, en gerð verður rannsókn á aðgerð lögreglunnar. „Hörmulegur atburður átti sér stað í nótt sem endaði með því að maður lést,“ sagði Haraldur. Þetta er í fyrsta sinn sem maður deyr af völdum skotvopna í átök- um við lögreglu. Hann var vopnað- ur haglabyssu en á fundinum var ekki hægt að upplýsa hvort hann var skráður fyrir henni sjálfur. Aðspurður sagðist Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuð- borgarsvæðinu, ekki geta sagt til um hvort aðgerðin hafi verið sú umfangsmesta í sögu lögreglunn- ar. Hann gat heldur ekki sagt til um hvort lögreglan hefði áður haft afskipti af manninum eða hvort hann hefði verið undir áhrifum vímuefna. Stefán staðfesti að mikil hætta hefði verið á ferðum. „Ég held að það sé óhætt að segja að þarna hafi allir verið í mjög mikilli hættu. Íbúar og þeir lögreglumenn sem að þessu komu.“ Fram kom að einn sérsveitarmanna hefði fengið skot í hjálm og andlit, annar í vesti og hönd. Fundað var með lögreglu- og sérsveitarmönnunum sem komu að aðgerðinni, að henni lokinni. „Að sjálfsögðu tekur þessi atburður mikið á alla sem að koma,“ sagði Haraldur. „Þeir hafa fengið aðstoð frá okkar sálfræðingum. Í raun og veru má segja að við höfum gert það sem við getum til að tryggja vellíðan okkar starfsmanna. En að sjálfsögðu er hugur okkar líka hjá ættingjum mannsins.“ Allir sérsveitarmennirnir sem komu að aðgerðinni eru enn við störf. Skotvopnin þeirra hafa verið tekin til rannsóknar og hafa þeir þegar fengið ný vopn. Engir sér- sveitarmenn fara í frí eftir atburð- inn. Þeir munu halda áfram störf- um nema þeir óski eftir öðru. Ríkissaksóknari mun rannsaka framgöngu lögreglunnar. Í til- kynningu lögreglu í gær segir að við fyrstu sýn Við fyrstu sýn verður ekki betur séð en sérsveit- armennirnir hafi farið eftir verk- lagsreglum. freyr@frettabladid.is Árásin á sér engin fordæmi á Íslandi Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri segir að árásin í Hraunbæ eigi sér engin fordæmi á Íslandi. Fimmtán til tuttugu lögreglumenn komu að aðgerðinni, auk sérsveitarmanna. Ríkissaksóknari mun rannsaka atburðarásina. Elísabet Margeirsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá Fimmtudagur 10-18 m/s A-til, annars hægari. HÖRKUFROST fram undan næstu daga og á fimmtudag og föstudag má gera ráð fyrir tveggja stafa frosttölum víða um land og allt að -20°C inn til landsins. Minnkandi él á morgun og léttir til syðra en áfram éljagangur um landið norðanvert. -2° 8 m/s 0° 9 m/s 1° 13 m/s 3° 18 m/s Á morgun 8-13 m/s, hvassast NV- og SA-til. Gildistími korta er um hádegi -10° -10° -13° -15° -14° Alicante Basel Berlín 17° 6° 4° Billund Frankfurt Friedrichshafen 7° 4° 7° Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas 7° 7° 24° London Mallorca New York 7° 17° 10° Orlando Ósló París 24° 2° 5° San Francisco Stokkhólmur 13° 6° 0° 7 m/s 1° 10 m/s -3° 7 m/s -1° 8 m/s -2° 7 m/s -2° 7 m/s -5° 10 m/s -3° -8° -4° -5° -6° Á BLAÐAMANNAFUNDI Stefán Eiríksson og Haraldur Johannessen á blaðamanna- fundinum í gær. Haraldur sagði atburðinn í Hraunbæ hörmulegan. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Að sjálfsögðu er hugur okkar líka hjá ættingjum mannsins… Stefán Eiríksson lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.