Fréttablaðið - 03.12.2013, Blaðsíða 24
BÍLAR
FRÉTTABLAÐIÐ
2 3. desember 2013 ÞRIÐJUDAGUR
www.visir.is/bilar
BÍLAR Umsjón blaðsins Finnur Thorlacius
finnurth@365.is
Útgáfufélag
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík,
sími 512 5000
Auglýsingar
Sverrir Birgir Sverrisson
sverrirbirgir@365.is
Sími 5125432
Hönnun
Silja Ástþórsdóttir
siljaa@frettabladid.is
1,4 BENSÍNVÉL, 122 HESTÖFL
Framhjóladrif
Eyðsla 5,0 l./100 km
í bl. akstri
Mengun 116 g/km CO2
Hröðun 9,3 sek.
Hámarkshraði 203 km/klst
Verð 4.990.000 kr.
Umboð Hekla
AUDI A3
AUDI A3
Finnur Thorlacius reynsluekur
A
udi A3 er næstminnsti fram-
leiðslubíll Audi, aðeins A1
er minni. Audi A3 er nú ný-
kominn af þriðju kynslóð,
en sú fyrsta kom fram á
sjónar sviðið árið 1996 og
leysti þá af Audi 50 bílinn.
Í fyrstu virðist þessi þriðja kynslóð bíls-
ins ekki mjög frábrugðin afar vel heppn-
aðri annarri kynslóð bílsins sem lifað hafði
ótrúlega lengi, eða í tíu ár. Þegar betur er
skoðað er svo til allt nýtt við þennan bíl.
Með þessari þriðju kynslóð A3 býðst hann
í fyrsta skipti einnig í sedan-útgáfu, auk
stallbaksins sem fá má bæði 3- og 5-dyra.
A3 hefur ávallt verið fallegur bíll en líklega
er þessi nýjasta sedan-gerð hans, með
venjulegu skotti, sú alfríðasta. Audi A3
er margverðlaunaður og nú þegar hefur
þessi nýja kynslóð hans unnið til nokkurra
verðlauna. Eins og títt er um bíla í stóru
Volkswagen-fjölskyldunni er sami MQB-
undirvagn notaður í þennan bíl og nokkrar
aðrar gerðir, svo sem Volkswagen Golf.
Flestallt breytt þótt það sjáist ekki
Það hefur ávallt verið stefna í herbúðum
Volkswagen-fjölskyldunnar að breyta ekki
stórkostlega í útliti vel heppnuðum sölu-
bílum og það á við um A3. Það gildir samt
ekki um innihaldið því svo til allt er nýtt í
þessum bíl. Það þarf samt eiginlega eig-
anda af annarri gerð hans til að greina hve
mörgu hefur raunverulega verið breytt.
Fyrir það fyrsta er bíllinn kominn með
nýjan undirvagn, allar vélarnar sem eru í
boði eru nýjar eða breyttar og hann er nú
mun betur búinn allri tækni. Nýi A3 er ör-
lítið stærri og rýmri, en samt hefur hann
lést um heil 80 kíló milli kynslóða, sem er
heilmikið fyrir ekki stærri bíl. Bíllinn hefur
frá upphafi verið sportlegur og fríður að
ytra útliti og ekki hefur það versnað með
nýrri kynslóð. Stallbakurinn lítur vel út
en nýja sedan-gerð hans slær honum þó
við. Það er reyndar eins gott að þessi bíll
sé fallegur því hann etur kappi við engin
greppitrýni, þ.e. bíla eins og BMW 1-lín-
una, Mercedes Benz A-Class, Volvo V40,
sem allir eru fallegir bílar.
Slekkur á tveimur strokkum
Margir vélarkostir eru í boði í A3, fimm
gerðir bensínvéla og tvær gerðir dísil-
véla. Minnsta bensínvélin er 1,2 lítra og
105 hestöfl, en 1,4 lítra vélina má bæði fá
í 122 og 140 hestafla útgáfu. Þá er hann
einnig í boði með 1,8 lítra og 180 hestafla
vél og alöflugasta vélin er svo í S3 kraftút-
gáfu bílsins, en hún er 300 hestöfl og 2,0
lítra sprengirými. Sá bíll er aðeins 5,1 sek-
úndu í hundraðið. Dísilvélarnar eru 1,6 lítra
og 105 hestafla og 2,0 lítra og 150 hest-
öfl. Bíllinn sem prófaður var er með 122
hestafla bensínvélina. Það verður að segj-
ast að undirritaður hélt að þessi vél væri
skráð fyrir mun fleiri hestöflum því bíllinn
er afar sprækur með henni. Vélin er tengd
við 7 gíra S-Tronic sjálfskiptingu sem svín-
virkar og skilar því besta úr vélarhúsinu til
framhjólanna. Því er ekki endilega þörf á
að kaupa sér stærri vél í þennan bíl til að
njóta allra þeirra góðu aksturseiginleika
sem hann hefur. Þessi vél er að auki búin
afar snjöllum búnaði sem slekkur á tveim-
ur af strokkum hennar ef mikils afls er ekki
þörf og þá snarminnkar eyðslan. Bíllinn er
með uppgefna eyðslu upp á 5,0 lítra, sem
er ágætt fyrir lúxusbíl af þessari stærð.
Uppgefin eyðsla dísilvélanna tveggja er
3,8 og 3,9 lítrar og er verð þeirra báðum
megin við verð reynsluakstursbílsins.
Hvorugur þeirra er þó jafn sprettharður
og því erfitt að mæla með einni gerð um-
fram aðra. Bíllinn er lipur með snarpar og
nákvæmar hreyfingar og fjöðrunin hæfi-
lega stíf. Óneitanlega fór reynsluökumað-
ur að láta sig dreyma um að vera með
enn þá fleiri hestöfl undir vélarhlífinni því
undirvagn þessa bíls býður upp á ferlega
skemmtilegan akstur.
Innréttingin slær við þeim flestum
Innréttingin í Audi A3 er eins og við má
búast frá Audi mjög vel úr garði gerð.
Það slá fáir Audi við þar, nema kannski
Porsche. Öll stjórntæki og mælaborð eru
svo notendavæn að varla er hægt að gera
betur og útlitið allt hrikalega flott. Það sem
kemur kannski mest á óvart við innrétt-
inguna er að hún er enginn eftirbátur inn-
réttinga í stærri og dýrari bílum Audi og
verður það að teljast nokkuð langt geng-
ið. Gott dæmi um þetta er 7 tommu skjár-
inn sem sprettur upp úr miðju mælaborð-
inu þegar bíllinn er ræstur. Þar má stjórna
hljóðkerfi, símabúnaði og aksturstölvunni.
Framsætin eru góð í bílnum og vel fer um
fullorðna í aftursæti ef þeir eru ekki mjög
hávaxnir. Einn af ókostum bílsins er hins
vegar útsýni aftur í honum sökum smæðar
glugganna. Verð Audi A3 er á pari við sam-
keppnisbíla hans, Mercedes Benz A-Class,
BMW 1-línuna og Volvo V40. Þeir eru allir
á svipuðu verði. Ódýrasta gerð A3 er á
4.640.000 krónur en sú tala getur hækkað
hratt ef bætt er í hann ýmsum þeim auka-
búnaði sem í boði er. Það hefur alltaf verið
einn af fáum ókostum Audi-bíla.
BREYTTUR BÍLL EN
ÚTLITIÐ NÁNAST EINS
Virkar lítið breyttur en þegar betur er að gáð hefur flest
breyst í þessum margverðlaunaða og söluhæsta bíl Audi.
MYNDIR/GVA@FRETTABLADID.IS
Póstdreifing | Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | postdreifing.is
Við sjáum um örugga dreifingu á fjölpósti
Við náum til fjöldans
B
ra
n
de
n
bu
rg
Póstdreifing dreifir fjölpósti sex daga vikunnar til heimila
á stærsta markaðssvæði landsins. Mælingar sýna að 60%
landsmanna skoða fjölpóst og er hann því áhrifarík leið
til að koma skilaboðum um vöru eða þjónustu beint inn
á heimilin. Örugglega til þín.
Nánari upplýsingar veitir söludeild í síma 585 8300.