Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.12.2013, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 03.12.2013, Qupperneq 24
BÍLAR FRÉTTABLAÐIÐ 2 3. desember 2013 ÞRIÐJUDAGUR www.visir.is/bilar BÍLAR Umsjón blaðsins Finnur Thorlacius finnurth@365.is Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 Auglýsingar Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbirgir@365.is Sími 5125432 Hönnun Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is 1,4 BENSÍNVÉL, 122 HESTÖFL Framhjóladrif Eyðsla 5,0 l./100 km í bl. akstri Mengun 116 g/km CO2 Hröðun 9,3 sek. Hámarkshraði 203 km/klst Verð 4.990.000 kr. Umboð Hekla AUDI A3 AUDI A3 Finnur Thorlacius reynsluekur A udi A3 er næstminnsti fram- leiðslubíll Audi, aðeins A1 er minni. Audi A3 er nú ný- kominn af þriðju kynslóð, en sú fyrsta kom fram á sjónar sviðið árið 1996 og leysti þá af Audi 50 bílinn. Í fyrstu virðist þessi þriðja kynslóð bíls- ins ekki mjög frábrugðin afar vel heppn- aðri annarri kynslóð bílsins sem lifað hafði ótrúlega lengi, eða í tíu ár. Þegar betur er skoðað er svo til allt nýtt við þennan bíl. Með þessari þriðju kynslóð A3 býðst hann í fyrsta skipti einnig í sedan-útgáfu, auk stallbaksins sem fá má bæði 3- og 5-dyra. A3 hefur ávallt verið fallegur bíll en líklega er þessi nýjasta sedan-gerð hans, með venjulegu skotti, sú alfríðasta. Audi A3 er margverðlaunaður og nú þegar hefur þessi nýja kynslóð hans unnið til nokkurra verðlauna. Eins og títt er um bíla í stóru Volkswagen-fjölskyldunni er sami MQB- undirvagn notaður í þennan bíl og nokkrar aðrar gerðir, svo sem Volkswagen Golf. Flestallt breytt þótt það sjáist ekki Það hefur ávallt verið stefna í herbúðum Volkswagen-fjölskyldunnar að breyta ekki stórkostlega í útliti vel heppnuðum sölu- bílum og það á við um A3. Það gildir samt ekki um innihaldið því svo til allt er nýtt í þessum bíl. Það þarf samt eiginlega eig- anda af annarri gerð hans til að greina hve mörgu hefur raunverulega verið breytt. Fyrir það fyrsta er bíllinn kominn með nýjan undirvagn, allar vélarnar sem eru í boði eru nýjar eða breyttar og hann er nú mun betur búinn allri tækni. Nýi A3 er ör- lítið stærri og rýmri, en samt hefur hann lést um heil 80 kíló milli kynslóða, sem er heilmikið fyrir ekki stærri bíl. Bíllinn hefur frá upphafi verið sportlegur og fríður að ytra útliti og ekki hefur það versnað með nýrri kynslóð. Stallbakurinn lítur vel út en nýja sedan-gerð hans slær honum þó við. Það er reyndar eins gott að þessi bíll sé fallegur því hann etur kappi við engin greppitrýni, þ.e. bíla eins og BMW 1-lín- una, Mercedes Benz A-Class, Volvo V40, sem allir eru fallegir bílar. Slekkur á tveimur strokkum Margir vélarkostir eru í boði í A3, fimm gerðir bensínvéla og tvær gerðir dísil- véla. Minnsta bensínvélin er 1,2 lítra og 105 hestöfl, en 1,4 lítra vélina má bæði fá í 122 og 140 hestafla útgáfu. Þá er hann einnig í boði með 1,8 lítra og 180 hestafla vél og alöflugasta vélin er svo í S3 kraftút- gáfu bílsins, en hún er 300 hestöfl og 2,0 lítra sprengirými. Sá bíll er aðeins 5,1 sek- úndu í hundraðið. Dísilvélarnar eru 1,6 lítra og 105 hestafla og 2,0 lítra og 150 hest- öfl. Bíllinn sem prófaður var er með 122 hestafla bensínvélina. Það verður að segj- ast að undirritaður hélt að þessi vél væri skráð fyrir mun fleiri hestöflum því bíllinn er afar sprækur með henni. Vélin er tengd við 7 gíra S-Tronic sjálfskiptingu sem svín- virkar og skilar því besta úr vélarhúsinu til framhjólanna. Því er ekki endilega þörf á að kaupa sér stærri vél í þennan bíl til að njóta allra þeirra góðu aksturseiginleika sem hann hefur. Þessi vél er að auki búin afar snjöllum búnaði sem slekkur á tveim- ur af strokkum hennar ef mikils afls er ekki þörf og þá snarminnkar eyðslan. Bíllinn er með uppgefna eyðslu upp á 5,0 lítra, sem er ágætt fyrir lúxusbíl af þessari stærð. Uppgefin eyðsla dísilvélanna tveggja er 3,8 og 3,9 lítrar og er verð þeirra báðum megin við verð reynsluakstursbílsins. Hvorugur þeirra er þó jafn sprettharður og því erfitt að mæla með einni gerð um- fram aðra. Bíllinn er lipur með snarpar og nákvæmar hreyfingar og fjöðrunin hæfi- lega stíf. Óneitanlega fór reynsluökumað- ur að láta sig dreyma um að vera með enn þá fleiri hestöfl undir vélarhlífinni því undirvagn þessa bíls býður upp á ferlega skemmtilegan akstur. Innréttingin slær við þeim flestum Innréttingin í Audi A3 er eins og við má búast frá Audi mjög vel úr garði gerð. Það slá fáir Audi við þar, nema kannski Porsche. Öll stjórntæki og mælaborð eru svo notendavæn að varla er hægt að gera betur og útlitið allt hrikalega flott. Það sem kemur kannski mest á óvart við innrétt- inguna er að hún er enginn eftirbátur inn- réttinga í stærri og dýrari bílum Audi og verður það að teljast nokkuð langt geng- ið. Gott dæmi um þetta er 7 tommu skjár- inn sem sprettur upp úr miðju mælaborð- inu þegar bíllinn er ræstur. Þar má stjórna hljóðkerfi, símabúnaði og aksturstölvunni. Framsætin eru góð í bílnum og vel fer um fullorðna í aftursæti ef þeir eru ekki mjög hávaxnir. Einn af ókostum bílsins er hins vegar útsýni aftur í honum sökum smæðar glugganna. Verð Audi A3 er á pari við sam- keppnisbíla hans, Mercedes Benz A-Class, BMW 1-línuna og Volvo V40. Þeir eru allir á svipuðu verði. Ódýrasta gerð A3 er á 4.640.000 krónur en sú tala getur hækkað hratt ef bætt er í hann ýmsum þeim auka- búnaði sem í boði er. Það hefur alltaf verið einn af fáum ókostum Audi-bíla. BREYTTUR BÍLL EN ÚTLITIÐ NÁNAST EINS Virkar lítið breyttur en þegar betur er að gáð hefur flest breyst í þessum margverðlaunaða og söluhæsta bíl Audi. MYNDIR/GVA@FRETTABLADID.IS Póstdreifing | Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | postdreifing.is Við sjáum um örugga dreifingu á fjölpósti Við náum til fjöldans B ra n de n bu rg Póstdreifing dreifir fjölpósti sex daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins. Mælingar sýna að 60% landsmanna skoða fjölpóst og er hann því áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða þjónustu beint inn á heimilin. Örugglega til þín. Nánari upplýsingar veitir söludeild í síma 585 8300.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.