Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.12.2013, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 03.12.2013, Qupperneq 32
3. desember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| TÍMAMÓT | 20TÍMAMÓT Okkar kæri bróðir, mágur og frændi, ÞÓRÐUR GUÐJÓNSSON dömuklæðskeri og bankastarfsmaður, Grettisgötu 32, andaðist á Hjúkrunarheimilinu Eir að kvöldi laugardagsins 23. nóvember. Bálför fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 4. desember kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Guðni Guðjónsson Barbara Stanzeit Guðlín Kristinsdóttir Jóna S. Sigurðardóttir Helgi Þór Guðmundsson Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og stjúpamma, SIGRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR fv. hjúkrunarkona Hamraborg 26, Kópavogi, lést föstudaginn 30. nóvember á Hjúkrunarheimilinu Grund. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 6. desember kl. 13.00. Jónas Ingimarsson Vilborg Davíðsdóttir Sigrún Ugla Björgvinsdóttir Katrín Vilborgardóttir Gunnarsdóttir Matthías Már Valdimarsson Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR ÁRNÍNA ÁRNADÓTTIR Skarðshlíð 13c, Akureyri, lést á Dvalarheimilinu Hlíð fimmtudaginn 28. nóvember. Útför hennar fer fram frá Glerárkirkju föstudaginn 13. desember kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Heimahlynningu á Akureyri og Dvalarheimilið Hlíð. Ingvi Rafn Flosason Árni Guðnason Amalía Guðnason Anna Guðrún Guðnadóttir Rúnar Egilsson Berglind S. Guðnadóttir Indriði Jóhannsson Jóhannes Rafn Guðnason Karlína Sigríður Ingvadóttir Marinó Marinósson ömmu- og langömmubörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ARNHILDAR HELGU GUÐMUNDSDÓTTUR Aratúni 32, Garðabæ. Gunnar Gunnlaugsson Gunnar Gunnarsson Harpa Karlsdóttir Irma Mjöll Gunnarsdóttir Guðjón G. Bragason Drífa Lind Gunnarsdóttir Davíð Ketilsson Þuríður Elín Gunnarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Hjartkær eiginkona mín, HALLDÓRA BERGÞÓRSDÓTTIR Litlahjalla 1, lést á heimili sínu laugardaginn 30. nóvember. Andrés Andrésson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, UNNUR KRISTINSDÓTTIR Háaleitisbraut 41, Reykjavík, lést á Droplaugarstöðum 30. nóvember. Aðalheiður Valgeirsdóttir Erlendur Hjaltason Sigríður Valgeirsdóttir Einar Olavi Mäntylä Emil Hannes Valgeirsson Arna Björk Stefánsdóttir barnabörn og barnabarnabarn. Móðir okkar, ELÍN JÓNSDÓTTIR sem lést 25. nóvember, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 5. desember kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Elínbjört Jónsdóttir Petra Jónsdóttir Arnþrúður Jónsdóttir Hermann Jónsson Faðir okkar og tengdafaðir, SIGURGEIR HALLDÓRSSON áður bóndi Öngulsstöðum Eyjafjarðarsveit, lést föstudaginn 29. nóvember. Jarðsett verður frá Munkaþverárkirkju laugardaginn 7. desember kl. 13.30. Jóhannes Geir Sigurgeirsson Ragnheiður Ólafsdóttir, Halldór Sigurgeirsson Sigríður Ása Harðardóttir Jóna Sigurgeirsdóttir Lúðvík Gunnlaugsson Snæbjörg Sigurgeirsdóttir Friðrik Friðriksson og fjölskyldur. VirðingReynsla & Þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 · 82o 3939 svafar · 82o 3938 hermann www.kvedja.is „Mér finnst gaman að halda veislur en ekki fyrir sjálfa mig og ég lagði það í hendurnar á eiginmanni mínum, Magnúsi Val Pálssyni og börnunum þremur, hvað gert yrði í dag svo ég bíð bara spennt!“ segir Jóna Guðrún Jóns- dóttir, kennari í Háteigsskóla, sem er fimmtug í dag. Hún minnist þess ekki að hafa haldið stórveislu á eigin afmæli. „En ég verð örugglega vakin með söng og góðgæti. Það er regla á mínu heimili.“ Jóna Guðrún er menntuð sem leik- ari, kennari og leiðsögumaður og kveðst hafa ástríðu fyrir því öllu. „Ég er þannig manneskja að mér finnst allt skemmtilegt sem ég er að gera í það og það skiptið,“ segir hún og er staðráðin í að verja afmælisdeginum í sínu starfi. „Það er svo gaman í vinnunni, yndis- leg börn sem ég er að kenna,“ lýsir hún og kveðst kenna 5. bekk og líka í val- fagi á unglingastigi. „Ég byrjaði hér við Háteigsskóla í haust eftir sex ára hlé en hafði verið hér í þrjú ár áður, flutti svo suður með sjó og kenndi við Fjölbrautaskóla Suðurnesja í sex ár. Er fædd og uppalin í Keflavík og kann vel við mig þar, enda mikil Suðurnesja- manneskja, ættuð þaðan í báðar ættir.“ Leiklistarferill Jónu Guðrúnar er æði fjölbreyttur þegar að er gáð. Beðin að rifja upp eftirlætisverkefni á því sviði svarar hún: „Mér fannst til dæmis rosalega gaman að leika í Kirsu- berjagarðinum og fleiri stykkjum með leikhópnum Frú Emilíu í Loftkastalan- um. Svo var ég líka í Hafnarfjarðar- leikhúsinu um tíma og lék í Himnaríki eftir Árna Ibsen. Undanfarin ár hef ég verið svolítið í kvikmyndum og sjón- varpi, myndunum Foreldrum og Maður eins og ég og þáttunum Dagvaktinni, Fangavaktinni og Fóstbræðrum svo dæmi séu tekin.“ Hún segir gaman að geta sinnt leiklist og kennslu í bland og jafnvel samþætta þær greinar. Kveðst gera talsvert af því í skólanum. „Bæði kenni ég leiklist í sérstökum tímum og nota hana í öðrum kennslustundum þegar tækifæri er til,“ segir hún og lýsir því nánar. „Í stað þess að krakk- arnir séu með bækur og blöð leyfi ég þeim að spinna út frá námsefninu.“ Á tímabili kveðst Jóna Guðrún hafa talsvert stundað leiðsögn, aðallega með hollenska hópa en minna hafa gert af því upp á síðkastið. „Það hefur bara verið svo mikið að gera í öðru.“ gun@frettabladid.is Verður örugglega vakin með söng og góðgæti Jóna Guðrún Jónsdóttir, leikari, kennari og leiðsögumaður, er fi mmtug í dag. Eft ir morgun- glaðning ætlar hún að sinna sínum yndislegu nemendum eins og á hverjum öðrum degi. AFMÆLISBARNIÐ Jónu Guðrúnu finnst gaman að geta sinnt leiklist og kennslu í bland og jafnvel samþætta þær greinar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Nýtt hjarta var grætt í mann í Höfða- borg í Suður-Afríku þennan dag árið 1967 af hjartaskurðlækninum Christian Barnard. Aðgerðin var gerð á spítalanum Groote Schuur í Höfðaborg og var sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum. Maðurinn sem aðgerðin var gerð á hét Sewis Washansky og var 53 ára. Hann var suðurafrískur kaupmaður sem var langt leiddur af hjartasjúk- dómi. Nýja hjartað var úr 25 ára konu, Denise Darvall, sem lést í bílslysi. Eftir uppskurðinn fékk Washansky lyf sem héldu ónæmiskerfinu niðri svo að líkaminn hafnaði ekki hjartanu. Af þeim sökum sýktist Washansky af lungnabólgu og lést átján dögum síðar. Nýja hjartað hafði hins vegar starfað eðlilega þessa átján daga. ÞETTA GERÐIST: 3. DESEMBER 1967 Hjarta var grætt í mann í fyrsta sinn MERKISATBURÐIR 1818 Illinois verður 21. ríki Bandaríkjanna. 1825 Tasmanía verður sjálfstæð nýlenda Breta. 1917 Goðafoss strandar við Straumnes norðan við Ísafjarðar- djúp. 1970 Verslunarmiðstöðin Glæsibær tekin í notkun í Reykja- vík. 1973 Pioneer 10. sendir fyrstu nærmyndirnar af Júpíter til jarðar. 1990 Miðneshreppur fær kaupstaðaréttindi og nefnist þá Sandgerðisbær. 1999 NASA missir samband við Mars Polar Lander áður en hann fer inn í lofthjúp Mars.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.