Fréttablaðið - 23.01.2014, Page 16
„Það er vissulega dálítið keypt af
gleraugum á netinu og þetta held
ég að sé bara almenn breyting á
verslunarháttum landans,“ segir
Brynhildur Ingvarsdóttir, for-
maður Augnlæknafélags Íslands,
spurð hvort hún verði vör við að
fólk kaupi gleraugu á netinu í
auknum mæli. „En ég vinn mikið
með börnum og maður ætti ekki að
kaupa gleraugu fyrir börn á net-
inu,“ undirstrikar Brynhildur og
heldur áfram:
„Sjónin er að þroskast hjá börn-
um alveg fram til átta ára aldurs,
það eru mikilvægustu árin, og
maður á alls ekki að kaupa gler-
augu handa ungum börnum á net-
inu því það skiptir máli að þau séu
góð og að þau sitji vel á krökkun-
um.“
Brynhildur segir Augnlækna-
félagið almennt mæla með því að
fólk kaupi sín gleraugu hér heima.
„Við eigum mjög vel menntaða
augnlækna á Íslandi og eftir að
sjóntækjafræðingar fengu starfs-
leyfi til að mæla sjón þá er að koma
hérna stétt af ungum sjóntækja-
fræðingum sem eru vel menntað-
ir. Því mælum við með því að fólk
sæki til þeirra sem eru fagmennt-
aðir.“
Hrafnkell Freyr Magnússon, eig-
andi netverslunarinnar Kreppu-
gler.is, selur gleraugu sem eru
framleidd í Kína. Hann afgreiðir
að eigin sögn fleiri hundruð pant-
anir á ári.
„Þetta er búið að vera mjög stöð-
ugt hjá mér en ég hef aftur á móti
ekki auglýst síðan ég byrjaði í
þessu árið 2009. Þetta var fljótt að
stækka og salan hefur verið stöðug
síðan,“ segir Hrafnkell.
Hann segir flestar vörurnar
sambærilegar þeim sem hægt er
að kaupa í gleraugnabúðum hér
á landi. Þar sé bæði um að ræða
ódýrar umgjarðir og gler sem og
vandaðri gæðavörur.
„Það er hægt að fá hlutfallslega
dýrari umgjarðir sem eru sambæri-
legar margfalt dýrari umgjörðum
hér á landi. Enda eru margir farnir
að kaupa gleraugun beint frá Kína.“
Halldór Sigurðsson tækjastjóri
kaupir sín gleraugu á netinu og
hefur gert í mörg ár.
„Ég veit um nokkra sem hafa
gert þetta og ég hef boðið fólki
aðstoð við að kaupa gleraugu á net-
inu. Ein kona fór eftir ráðlegging-
um mínum og keypti á netinu, og
gleraugun sem hún fékk kostuðu
hingað komin 3.177 krónur í stað-
inn fyrir einhvern hundrað þúsund
kall.“ haraldur@frettabladid.is
Þetta
er búið að
vera mjög
stöðugt hjá
mér en ég hef
aftur á móti
ekki auglýst
síðan ég byrjaði í þessu
árið 2009. Þetta var fljótt
að stækka og salan hefur
verið stöðug síðan.
Hrafnkell Freyr Magnússon
23. janúar 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR NEYTENDUR | 16
Kvartað hefur verið yfir nýju 500
króna gjaldi Íslandspósts fyrir
að leita að reikningi í pökkum
til Póst- og fjarskiptastofnun-
ar. Neytendasamtökin gagnrýna
fyrirtækið harðlega fyrir að rjúfa
sátt um að veita verðbólgunni við-
nám með því að hækka ekki verð.
Þeir sem fá pakka senda frá
útlöndum þurfa að framvísa
reikningi til að sýna fram á verð-
mæti sendingarinnar svo hægt
sé að afgreiða hana í tollinum.
Hingað til hefur Íslandspóstur
innheimt 550 króna gjald fyrir
tollmeðferð. Innifalið í því verði
hefur verið sú þjónusta að opna
pakkana, óski viðtakandi þess, til
að finna reikning sem sendandinn
hefur látið með sendingunni.
Með breytingum á gjaldskrá
Íslandspósts, sem tóku gildi um
áramót, hófst innheimta 500
króna gjalds þurfi starfsmenn
að opna pakka til að finna reikn-
ing. Þeir sem vilja nýta sér þá
þjónustu greiða því 1.050 krónur
fyrir afgreiðslu pakkans, í stað
550 króna fyrir áramót.
Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri
Póst- og fjarskiptastofnunar,
segir ákveðna þætti í starfsemi
Íslands pósts heyra undir stofn-
unina. Póst- og fjarskiptastofnun
hafi borist kvartanir frá neytend-
um vegna þessarar nýju gjald-
töku, og stofnunin muni fjalla um
þær kvartanir og senda frá sér
ákvörðun.
Brynjar Smári Rúnarsson,
forstöðumaður markaðsdeildar
Íslandspósts, segir að frá ára-
mótum hafi móttakendur um 1,2
prósenta sendinga sem borist hafi
kosið að nota sér þessa þjónustu.
Það séu um 1.400 bögglar. Tekjur
Íslandspósts af gjaldinu nema því
um 700 þúsund krónum á tæpum
mánuði.
Brynjar leggur áherslu á að
þessi þjónusta sé valfrjáls. Fólk
sem panti vörur á netinu eigi að
fá reikning í tölvupósti og sé í lófa
lagið að koma afriti til póstsins.
Flestir kjósi að vísa fram reikn-
ingi en aðrir kjósi að kaupa þjón-
ustu af fyrirtækinu.
„ Neytendasamtökin hafa
áhyggjur af því að með þessu
nýja gjaldi sé póstverslun gert
enn erfiðara fyrir og gjaldtakan
muni hindra samkeppni enn frek-
ar,“ segir í frétt Neytendasamtak-
anna. Bent er á að Íslandspóstur
hafi átt fulltrúa í starfshópi stjórn-
valda sem skilaði tillögum um að
einfalda póstverslun og virkja
þannig samkeppni að utan. - bj
Neytendasamtökin gagnrýna harðlega 500 króna gjald Íslandspósts fyrir leit að reikningi í pökkum sem tekið var upp um áramót:
Neytendur kvarta yfir gjaldi á pakka hjá Íslandspósti
HÆKKAR Þjónusta við þá sem þurfa að
fá starfsmenn Íslandspósts til að opna
pakka til að ná í reikning hækkaði úr
550 krónum í 1.050 krónur um áramót.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÓR
Bestu kaup Jóhannesar Hauks Jóhannessonar,
leikara og þáttarstjórnanda á Bylgjunni, eru
árskort í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn.
„Þetta uppgötvaði ég eftir að ég flutti í
Laugardalinn og nú fæ ég ótakmarkaðan
aðgang fyrir alla fjölskylduna. Og við fáum frítt
í tækin líka þannig að þetta getur margborgað
sig,“ segir Jóhannes og bætir því við að hann
fari nú reglulega í garðinn.
„Maður veigrar ekkert fyrir sér að fara í
einhverjar stuttar hálftíma heimsóknir rétt til
þess að heilsa upp á beljurnar því það kostar
ekkert aukalega. Þetta er sérlega hentugt þegar
maður býr þarna nálægt,“ segir leikarinn.
„Verstu kaupin eru miðar sem ég fjárfesti
í til að komast á sýningu á Broadway
þegar ég fór til New York. Ég ákvað
að splæsa í dýrustu sætin, þó maður
geti auðvitað fengið ódýr sæti, og þetta
kostaði einhvern þrjátíu til fjörutíu
þúsund kall,“ segir Jóhannes og
á þá við söngleikinn Spring
Awakening.
„Hann var ömurlegur
og mér hefði þótt hann
alveg jafn ömurlegur í
ódýrara sæti þannig
að þetta var slæm
fjárfesting.“
- hg
NEYTANDINN: Jóhannes Haukur Jóhannesson
Miðar á söngleik verstu kaupin
JÓHANNES
HAUKUR
Borið hefur á skorti á eldri gerð
gashylkja fyrir Sodastream-tæki
sem Vífilfell hefur, auk annarra,
verið með í sölu.
„Það hefur verið erfitt að anna
eftirspurninni frá því Ísaga fór
að fylla á hylkin fyrir okkur seint
á síðasta ári,“ segir Stefán Magn-
ússon, framkvæmdastjóri mark-
aðs- og sölusviðs Vífilfells.
Hann segir takmarkað magn
af hylkjum í umferð, og marg-
ir kannist eflaust við að eiga
tóm hylki í geymslu. Sé þeim
ekki skilað inn fækki hylkjum í
umferð og þá geti reynst erfitt að
anna eftirspurninni. - bj
Vantar hylki í Sodastream:
Erfitt að anna
eftirspurninni
Fólk kaupi ekki gler-
augu á börn á netinu
Formaður Augnlæknafélagsins varar fólk við að kaupa barnagleraugu á netinu og
mælir með íslenskum sjóntækjafræðingum. Eigandi netverslunar sem selur gler-
augu frá Kína afgreiðir fleiri hundruð pantanir á ári og selur allar tegundir.
VERSLAÐ Á NET-
INU Netverslanir
selja oft ódýrari
gleraugu en gler-
augnaverslanir
hér á landi.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN.
Samstarfsverkefni þýskra og
íslenskra stjórnvalda, Örugg
matvæli, hefur nú verið ýtt úr
vör. Megintilgangur verkefnis-
ins er að auka matvælaöryggi
og neytendavernd á Íslandi með
því að auka vöktun á óæskileg-
um efnum í matvælum.
Í fréttatilkynningu frá Matís
segir að verkefnið hafi upp-
haflega verið hluti af IPA-
áætlun vegna aðildarviðræðna
Íslands við ESB. Verkefnið gerir
íslenskum yfirvöldum, Mat-
vælastofnun og heilbrigðiseftir-
liti sveitarfélaganna betur kleift
að framfylgja löggjöf um mat-
vælaöryggi og neytendavernd,
sem hefur nú þegar verið inn-
leidd í gegnum EES-samning-
inn.
Nýtt samstarfsverkefni:
Matvælaöryggi
verður aukið
MATARINNKAUP Með bættum tækja-
búnaði verður hægt að framkvæma
mun fleiri mælingar varnarefna í mat-
vælum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ökumenn sem leggja bílum sínum
ólöglega við Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar á Keflavíkurflugvelli eru nú
sektaðir. Í frétt á heimasíðu Isavia
segir að Bílastæðasjóður Sand-
gerðisbæjar hafi um áramótin
hafið álagningu stöðubrotsgjalda.
Slysahætta hafi oft skapast
vegna mikillar fjölgunar farþega
um flugstöðina síðustu ár og tafir
orðið vegna bifreiða sem lagt er
ólöglega. Þetta eigi sérstaklega við
um stæði fyrir framan inngang
flugstöðvarinnar.
Til þess að mæta þörfum öku-
manna sem vilja skreppa inn í
flugstöðina eru fyrstu 15 mínút-
urnar á skammtímastæðum komu-
og brottfararmegin við flugstöðina
gjaldfrjálsar. Ef þörf er á lengri
dvöl inni í flugstöðinni kostar
fyrsta klukkustundin á skamm-
tímastæðum einungis 150 krónur.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar:
Sekt fyrir að
leggja ólöglega
VIÐ FLUGSTÖÐINA Starfsmenn Isavia
annast stæðavörslu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Könnun óháðu samtakanna Natio-
nal Safety Council hefur leitt í
ljós að ökumenn sem senda smá-
skilaboð úr farsímum sínum við
akstur geta verið valdir að að
minnsta kosti 700 þúsund slysum
á ári.
Farsímar komu við sögu í að
minnsta kosti fjórðungi umferð-
arslysa í Bandaríkjunum árið
2011. Fjöldi slysa sem verða
þegar ökumenn senda smáskila-
boð kann að vera 13 prósent. Alls
tengdust farsímar 1,5 milljónum
umferðarslysa.
Könnun í Bandaríkjunum:
Fjórða hvert
slys vegna far-
símanotkunar
Allar 29 líkamsræktarstöðvar
sem Neytendastofa gerði úttekt á
í janúar voru með verðmerkingar
í lagi.
Á heimasíðu Neytendastofu er
þessu fagnað, þar sem að í sam-
bærilegri könnun árið 2009 voru
aðeins 38% stöðva með merk-
ingar samkvæmt reglum og árið
2011 þegar síðasta könnun var
gerð var hlutfallið 70%. Þessar
niðurstöður þykja sýna að reglu-
legt verðmerkingareftirlit skilar
góðum árangri. - þj
Könnun á líkamsrækt:
Verðmerkingar
eru í góðu lagi
Sígarettur eru í dag enn þá óholl-
ari en tíðkaðist fyrir hálfri öld.
Þetta kemur fram í skýrslu sem
heilbrigðisráðuneytið í Banda-
ríkjunum gaf út fyrir skemmstu.
Þar segir að þrátt fyrir að færri
reyki í dag, hafi dauðsföllum
vegna reykinga, beinna og
óbeinna, ekki fækkað. Orsaka-
valdurinn er meðal annars sá að
síur á sígarettum hleypa nú fleiri
skaðlegum efnum í gegn og auk
þess inniheldur tóbakið fleiri
krabbameinsvaldandi efni. - þj
Ný skýrsla um reykingar:
Rettur enn þá
óhollari í dag