Fréttablaðið - 11.02.2014, Side 20

Fréttablaðið - 11.02.2014, Side 20
11. FEBRÚAR 2014 ÞRIÐJUDAGUR4 ● 112 Ekki hika – hringdu til öryggis Aðstæður að vetrarlagi geta verið virkilega erfiðar og því mikilvægt að búnaður sé góður og ferðamenn hafi kunnáttu til að nota hann. Helsti búnaður göngu- manns • Fatnaður, innsta lag úr ull eða góðum gerviefnum, miðlag úr flís/ull og ysta lag úr vind- og vatnsheldu efni. • Góðir gönguskór. • Bakpoki með nesti, aukafatn- aði, fjarskiptatækjum og neyð- arskýli. • Ísöxi, mannbroddar, snjóflóða- ýlir, snjóflóðastöng og skófla. • Kort, áttaviti og GPS-tæki. • Sjúkrabúnaður. Helsti búnaður vélsleðamanns • Góður nærfatnaður (ull/gervi- efni), millilag úr flís eða ull og sleðagalli eða vatns- og vind- heldur fatnaður yst. • Góður skófatnaður, hjálmur, brynja og hnéspelkur. • Snjóflóðaýlir, snjóflóðastöng, skófla og snjóflóðabakpoki. • Áttaviti, landakort og GPS- tæki. • Jöklasprungukort sé ferðast um jökla. • Fjarskiptatæki, sími, talstöð eða annað. • Svefnpoki, varpoki eða neyð- arskýli. • Rekstrarvörur fyrir sleðann, dráttartóg og helstu verkfæri. • Sprungubjörgunarbúnaður sé ferðast um jökla. Helsti búnaður jeppamanns • Fatnaður, innsta lag úr ull eða góðum gerviefnum, miðlag úr flís/ull og ysta lag úr vind- og vatnsheldu efni. • Fjarskiptatæki, GPS-tæki, landakort, jöklasprungukort og sjúkrabúnaður. • Tappasett, góð skófla, teygju- spotti, viðgerðar- og aukahluta- sett. • Vöðlur, kastlína, járnkarl, viftu- reim, olíur. • Sprungubjörgunarbúnaður sé ferðast um jökla. • Góður félagsskapur á öðrum jeppa. Finna má ítarlegri og fleiri tegundir búnaðarlista á safetravel.is. Búnaðarlistinn þinn Hin heilaga þrenning, það er snjóflóðaýlir, stöng og skófla á alltaf að vera með sé farið til fjalla að vetrarlagi. Áður en lagt er í ferðalag, sérstaklega að vetri til, er gott ráð að kanna aðstæður með því að skoða vef Vegagerðarinnar. Þar má kynna sér færð og veður á þeirri leið sem fara á um. Ef vegfarandi er í vafa um aðstæður er ekki síður gott ráð að hringja í síma 1777 og fá nýj- ustu upplýsingar og ráðleggingar. Upplýsingaþjónustan sem svarar í síma 1777 er opin á veturna frá kl. 6.30 til 22.00. Margháttaðar upplýsingar er að finna á vefnum. Færðarkortið segir til um ástandið á vegakerfinu, er hálka, hálkublettir, er skaf- renningur eða þæfingur eða þungfært? Eða er einfaldlega ófært? Fyrir þá sem mikinn áhuga hafa á ástandinu má þarna kafa dýpra og kanna umferðina á vegunum, vindhraðann og hitastigið. Og enn má kafa dýpra í vefinn og sjá þar líka vindátt, daggarmark og fleira nokkra sólarhringa aftur í tímann. Þá er líka hægt að skoða ástandið eins og það lítur út í vefmyndavélum Vegagerðarinnar en þær er nú að finna á um 109 stöðum á landinu og mun þeim stöðum fjölga um 10-15 í ár. Vegasjá gefur einnig færi á að sjá í einni sviphendingu til dæmis hvort vindasamt sé, því ef hviður eru miklar sést það strax í sjánni. Þar má einnig komast inn á vefmyndavélarnar. Snjómokstursreglur Vegagerðarinnar eru viðamiklar og er allar að finna á vef Vega- gerðarinnar. En heppilegt getur verið að kynna sér þær vel áður en lagt er af stað til að vita hversu lengi þjónustan varir fram á kvöldið til dæmis, eða hvort þjónusta sé þann dag sem leggja á í ferðalag. Þær upplýsingar fást einnig í síma 1777. Ef búið er að loka má hringja í símsvara til að fá upplýsingar í síma 1779 fyrir íslenskan símsvara og 1778 fyrir símsvara þar sem upp- lýsingarnar eru lesnar á ensku. Gleymist þetta en snjallsími er með í för má fá stóran hluta þessara upplýsinga á far- símavef Vegagerðarinnar sem er að finna á slóðinni vegagerdin.is. Einnig má benda á vedur.is, belgingur.is og veðurappið. Upplýsingar um færð og veður Jón Albert Jónsson lenti í hrakningum á Öxnadalsheiði í desember en með góðri hjálp björgunarsveita komst hann yfir heiðina og náði meira að segja flugi í Keflavík. Hinn 3. desember 2013 var Jón Al- bert Jónsson að huga að suðurferð en hann hafði þá dvalið í nokkrar vikur með fjölskyldu sinni á Akur- eyri. Stefnan var sett á Keflavík þar sem hann átti flug klukkan 9 að morgni. „Ég ætlaði að fara af stað klukk- an 2 um nóttina. Ég fylgdist vel með vef Vegagerðarinnar og vissi að spáin var fremur leiðinleg en færðin virtist þó í lagi. Þegar ég sá að veðrið var farið að versna um kvöldið ákvað ég að fara fyrr af stað og lagði í hann klukkan hálf tólf,“ segir Jón Albert sem er sjó- maður og starfar fyrir erlent fyr- irtæki víða um heiminn og í tvo mánuði í senn. Jón Albert hefur haft það fyrir sið að leigja bílaleigubíl til að kom- ast suður enda gefur það honum aukalegan tíma með fjölskyldunni sem hann þyrfti annars að eyða í bið í Reykjavík. „Um leið og ég kom út úr bænum var komið leiðindaveð- ur og skóf mjög hratt í. Þegar ég var rúmlega hálfnaður upp Bakka- selsbrekku fann ég að ég var við það að festa mig. Til að verða ekki fyrir á veginum tók ég ákvörðun um að fara út í kant og þar kolfesti ég mig,“ lýsir Jón Albert sem var á fjórhjóladrifnum fólksbíl. Nú var illt í efni en þó vildi svo vel til að Jón Albert var vel búinn eins og hann er raunar ávallt enda vanur útivistarmaður. „Ég hringdi í 112 og þeir höfðu upplýsingar um að björgunarsveitin í Varma- hlíð væri að aðstoða fólk hinu- megin á heiðinni. Ég hef líklega beðið eftir þeim í einn og hálfan tíma en það fór ekki illa um mig enda gat ég haft bílinn í gangi. Þá komu þeir með bíl í eftirdragi yfir heiðina, skiluðu honum niður af heiðinni og komu svo að hjálpa mér,“ segir Jón Albert sem er afar þakklátur björgunarsveitarmönn- unum sem gerðu sér lítið fyrir og komu honum alla leið yfir heiðina. „Þeir höfðu fréttir af því að færð- in væri í lagi hinumegin við heið- ina og hengdu mig því aftan í hjá sér og drógu mig yfir,“ segir Jón Albert sem sjálfur sat við stýrið í þá rúmu tvo tíma sem ferðalagið tók. „Bíllinn dinglaði bara aftan í þeim enda var snjórinn svo mikill að björgunarsveitin hafði fest sig þrisvar meðan þeir voru að draga mig upp úr.“ Jón Albert þakkaði björgunar- sveitarmönnunum kærlega fyrir alla hjálpina enda þótti honum ekkert sjálfsagt að þeir nenntu að þvæla honum alla þessa leið bara til að hann næði flugi í tæka tíð. Eftir að af heiðinni var komið gekk ferðalagið ágætlega utan þess að hjólaskálar og vélarrúm bílsins voru full af snjó og því þurfti Jón Albert að stoppa á leiðinni til að ná sem mestu burt. „Hjálpin og þjónustan sem ég fékk var alveg frábær. Ég á 112 og björgunarsveitunum mikið að þakka enda ekki nema fjögur ár síðan þyrla þurfti að sækja mig inn í Glerárdal eftir að ég hrygg- brotnaði í vélsleðaslysi,“ segir Jón Albert sem rétt náði fluginu sínu til Noregs. Á 112 mikið að þakka Jón Albert er mikill útivistarmaður og stundar til að mynda vélsleðasportið af miklum móð. Hér er hann á góðri stundu með syni sínum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.