Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.02.2014, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 11.02.2014, Qupperneq 22
11. FEBRÚAR 2014 ÞRIÐJUDAGUR6 ● 112 Ekki hika – hringdu til öryggis Vegna styrkingar krónunnar býður Arctic Trucks nú hina áreiðanlegu og eyðslugrönnu FXNytro M-TX sleða með 100 þúsund króna afslætti! www.yamaha.is Arctic Trucks | Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | Sími 540 4900 María Theodórsdóttir er neyðarvörður hjá Neyðarlínunni 112. Hún segir mikilvægt að innhringjendur gefi hnitmiðaðar og skýrar upplýsingar. „Góðar upplýsingar skipta sköpum og flýta fyrir tafarlausri aðstoð,“ segir María sem flokkar mikilvægar upplýsingar frá inn- hringjendum í fjögur H. „H-in fjögur eru Hvar, Hver, Hvað og Hvenær. Hvar er mikilvægast að vita því án heimilisfangs eða staðsetningar er erfitt að senda aðstoð af stað. Því næst þarf að koma fram hvað er í gangi og meta hvort um lífs- ógn sé að ræða eða hvort aðstoðin þoli bið en góð meðvitund og eðlileg öndun eru fyrstu vísbendingar í því samhengi.“ Að sögn Maríu þarf jafnframt greinar- góðar upplýsingar um hinn veika eða slas- aða frá innhringjendum. „Til dæmis er brýnt að vita aldur og kyn þess sem þarfnast hjálpar því þá vita sjúkraflutningamenn við hverju þeir mega búast. Undirbúningur á leiðinni og fyrstu inngrip þeirra á vettvangi geta verið mis- munandi eftir því hvort nítján ára stúlka eða sextugur karlmaður er í hjartastoppi. Því er aðkallandi að innhringjendur vinni með okkur og svari mikilvægum spurning- um eftir bestu getu.“ María segir innhringjendur stundum í miklu uppnámi og eiga erfitt með að koma upplýsingum frá sér. „Við þurfum að ná tengingu við innhringj- endur og gerum það með því að fá nöfn þeirra. Með því verður auðveldara að ná til þeirra sem eru í uppnámi, fá mikilvægar upplýsingar og það hjálpar okkur að hjálpa þeim. Eins getur verið gagnlegt að fá upp- lýsingar um hvernig þeir tengjast atburði eða einstaklingi í neyð og hvort þeir þekki sjúkrasögu hans.“ Mikilvægt sé að innhringjendur haldi ró sinni og gefi skýrar og hnitmiðaðar upp- lýsingar. „Dæmi um greinargott símtal gæti verið: „Mig vantar sjúkrabíl á Sólskinsgötu 2, íbúð 202, vegna fimmtugs manns í hjartastoppi.“ Með því kæmi fram staðsetning, aldur, kyn og ástand í einni setningu og við gætum sent aðstoð strax,“ segir María sem í starfi neyð- arvarðar reynir að hafa greinargóðar upp- lýsingar til reiðu á innan við 90 sekúndum. Mikilvægt sé þó að innhringjandi slíti ekki símtali við neyðarvörð fyrr en hann hefur fengið nægar upplýsingar eða leiðbeint inn- hringjanda þar til aðstoð berst. „Sumum þykir dýrmætur tími fara í samtal við neyðarvörð á ögurstundu en við getum sent aðstoðina af stað þótt inn- hringjandi sé enn að gefa upplýsingar í síma. Við viljum svo vera með innhringj- anda í símanum þar til aðstoð berst, séu að- stæður þess eðlis, því þá getum við fylgst með atburðarás og verið innhringjanda innan handar með leiðbeiningar. Dæmi um slíka aðstoð eru leiðbeiningar um end- urlífgun, vegna aðskotahlutar í hálsi, fæð- ingar og fleira.“ Hægt er að senda SMS í 112 ef símasam- band er lélegt eða lítið eftir á rafhlöðu. Því miður er ekki hægt að senda SMS úr símum með erlend SIM-kort. „SMS var upphaflega hugsað fyrir mál- lausa og heyrnarskerta en nýtist einnig þeim sem geta ekki tjáð sig í síma vegna til dæmis ofbeldis þar sem þeir óttast frekari skaða. Það þýðir þó ekki að senda eingöngu ákallið „Hjálp!“; við þurfum sömu upplýs- ingar um Hvar, Hver, Hvað og Hvenær. Við sendum svo alltaf SMS til baka en stundum getur orðið um eintal að ræða sé símasam- band slæmt og skiptir þá máli að senda eins ítarlegar upplýsingar og kostur er til Neyð- arlínunnar,“ segir María. Hvernig talar þú við neyðarvörð 112? María Theodórsdóttir er neyðarvörður hjá Neyðarlínunni 112. MYND/GVA Við leit og björgun skiptir hver mínúta gífurlega miklu máli og hefur í því sambandi mikla þýð- ingu ef hægt er að staðsetja þann sem leitað er að með einföldum hætti. Landhelgisgæslan hefur um tíma tekið þátt í þróun og próf- un tækjabúnaðar sem mun nýtast við slíkar aðstæður. Skilyrði fyrir notkuninni er að sá týndi sé með kveikt á GSM-síma. Um er að ræða færanlega GSM- móðurstöð með fylgibúnaði sem staðsett er í þyrlu. Með búnaðin- um verður hægt að staðsetja þann týnda með töluverðri nákvæmni á skömmum tíma. Flogið er með stöðina um leitarsvæðið og búin til GSM-þjónusta til þess að vekja símann og hefur hann sjálfkrafa samband við GSM-kerfið um borð í þyrlunni. Síminn er þannig mið- aður út og eru þá björgunaraðilar komnir með staðsetningu. Í neyðartilvikum má koma upp bráðabirgða-GSM-þjónustu á leit- arsvæðinu. GSM-handtæki sem lendir í dreifigeisla móðurstöðv- arinnar skráir sig inn á hana sjálf- virkt og án aðkomu þess sem ber tækið á sér. Hugmyndina fékk Óskar Val- týsson, fjarskiptastjóri hjá Lands- virkjun, þegar hann fylgdist með umfangsmikilli leit fyrir nokkrum árum. Segir hann verkefnið hafa verið í þróun og vinnslu í rúmlega tvö ár og eru Landhelgisgæslan og Landsvirkjun bakhjarlar þess. Hugbúnaðarfyrirtækið Rögg ehf. hefur borið hita og þunga af þróun kerfisins en tryggingafélögin VÍS, TM og Vörður styrkja verkefnið. Tækjabúnaður sem flýtir leit og björgun GSM-móðurstöðin er inni í þyrlunni en loftnet er fest upp á meðan á leit stendur.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.