Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.03.2014, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 05.03.2014, Qupperneq 1
Í meira en fimmtíu ár hefur barna-vöruframleiðandinn NUK lagt ríka áherslu á að leita nýrra leiða til að gera lífið sem auðveldast fyrir foreldra og aðstoða þá við að efla þroska barna þeirra. Í rannsókþar se ar hver á annarri og eru lagaðar að hverju þroska-stigi barna, frá fæðingu til leikskólaaldurs. „Það er fátteins viðkvæ t HEITAR LAUGARÍtarleg grein um íslenskar sundlaugar birtist fyrir nokkrum dögum á vefsíðu norska blaðsins Aftenposten og er þeim mikið hrósað. Vetrarævintýri á Íslandi með öllum sínum heitu laugum er sagt frábært. Blaðið segir að 52 þúsund Norðmenn hafi heim- sótt Ísland á síðasta ári. ÞAÐ BESTA FYRIR BÖRNINAuður Hafþórsdóttir hjá Halldóri Jónssyni ehf. segir alla þá þekk-ingu sem starfsfólk NUK hefur aflað sér miða að því að veita foreldrum gleði og börnum þeirra heilbrigða framtíð.MYND/GVA FREESTYLE Þessi nýju snuð frá AÐEINS ÞAÐ BESTAHALLDÓR JÓNSSON EHF. KYNNIR Í meira en 100 löndum um allan heim hafa NUK-vörur verið partur af lífi barns á hverjum degi í margar kynslóðir. DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGISÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS Taka 12 Kg · HljóðlátStórt op > auðvelt að hlaðaSparneytin amerísk tæki.<Þvottvélin tekur heitt og kalt vatn Afkastamikill þurrkari > Þvottavél Þurrkari12 kg Amerískgæðavara Amerískgæðavara Minnum á afmælisleikinn www.facebook.com/Parisartizkan Afmælisveisla og glaðningar laugardaginn 8.mars. 11:00-16:00 Hlökkum til að sjá þig www.visir.is Sími: 512 5000 | Miðvikudagur 5. mars 2014 | 22. tölublað | 10. árgangur LEIGUFÉLAG AÐ SKANDINAVÍSKRI FYRIRMYND ➜ Sjóðir á vegum fjármálafyrirtækisins GAMMA hyggjast byggja um 850 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu næstu þrjú árin. ➜ Gísli Hauksson, forstjóri GAMMA, vill að liðkað sé til fyrir nýbyggingum á stærri einingum með minni íbúðum til hagræðingar fyrir leigjendur. SÍÐA 6-7 TAKTU GRÆNU SKREFIN MEÐ OKKUR! Viðskiptajöfnuður aldrei hærri Viðskiptajöfnuður Íslands hefur aldrei mælst hærri á einu ári en í fyrra. Það á við hvort sem litið er á jöfnuðinn með eða án innlánsstofnana í slitameðferð. Þá er útkoman mun vænlegri en búist var við. Frá þessu var greint í Morgunkorni Íslands-banka í gær og þar vísað í bráðabirgðatölur sem Seðlabanki Íslands birti í fyrradag um greiðslujöfnuð við útlönd á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Afgangur mældist á undirliggjandi viðskipta-jöfnuði á öllum fjórðungum í fyrra, sem hefur aldrei gerst áður. Í heildina var viðskiptaafgang-urinn 110,9 milljarðar króna eða 6,2 prósent af vergri landsframleiðslu. Það er mun betri niður-staða en Seðlabankinn gerði ráð fyrir í nýjustu spá sinni. - skó Langtímafjármö t ð MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Miðvikudagur 14 2 SÉRBLÖÐ Markaðurinn | Fólk Sími: 512 5000 5. mars 2014 54. tölublað 14. árgangur 600 íbúðir á Hlíðarenda Brátt verður hafist handa við að byggja nýtt íbúðahverfi á Hlíðarenda. Fyrstu íbúarnir flytja inn 2016. Þar verða um 600 íbúðir, en talið er að uppbygging hverfisins muni kosta allt að 30 milljörðum króna. 4 Átök í Úkraínu Pútín Rússlands- forseti segir beitingu vopnavalds á Krímskaga vera þrautaúrræði. Banda- ríkjamenn hafa heitið stjórnvöldum í Úkraínu aðstoð. 6 SKOÐUN Baldur Þórhalls- son fer yfir Evrópustefnu stjórnmálaflokkanna. 15 MENNING Dúndrað í gler- þakið. Hallfríður Ólafsdóttir hljómsveitarstjóri. 16 LÍFIÐ Björk og Patti Smith og fleiri á stórtónleikum í Hörpu 18. mars. 24 SPORT Karlalandsliðið í knattspyrnu ætlar sér sigur í Wales í kvöld. 26 FRÉTTIR MARKAÐURINN Samfestingur Kr. 3.990.- Jakkaföt frá kr. 19.980.- NEXT • KRINGLUNNI • SÍMI 551 3200 Endurnýjuð orka Næsta námskeið, 7. mars. Tvær vikur Sími 512-8040 KVIKMYNDIR Daði Einarsson hjá fyrirtækinu Reykjavik Visual Effects (RVX) átti stóran þátt í tæknivinnslu kvikmyndarinnar Gravity sem var sigurveg- ari Óskarsverð- launanna í ár. „Ég vann náið með leik- stjóra myndar- innar, Alfonso Cuarón, við að vinna úr hand- ritinu og stýrði hópi sem animeraði myndina frá upphafi til enda,“ segir Daði Einarsson, listrænn stjórnandi hjá RVX. Gravity hlaut sjö verð- laun, meðal annars fyrir leik- stjórn, tæknibrellur, tónlist og kvikmyndatöku. glp / sjá síðu 30 Daði Einarsson hjá RVX: Ánægður með Óskarsverðlaun DAÐI EINARSSON Bolungarvík 0° NA 3 Akureyri 0° N 3 Egilsstaðir 3° NA 7 Kirkjubæjarkl. 2° SV 10 Reykjavík 2° V 6 HVESSIR S-TIL Fremur hæg breytileg átt í fyrstu en gengur í stífa suðvestanátt syðra síðdegis og bætir í ofankomu. Úrkomulaust N-til. 4 Stofna leigufélag að norrænni fyrirmynd Sjóðir á vegum GAMMA hafa búið til Leigufélag Íslands sem á nú um 350 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu en ætlar sér að fjölga þeim um 850 íbúðir á næstu þremur árum. ÖRYGGISMÁL Aðeins ein viðbragðs- áætlun hefur verið unnin um skipulag og stjórnun aðgerða vegna gróðurelda á Íslandi auk þess sem búnaði til slökkvi- starfa og þjálfun slökkviliða er ábótavant. Þrátt fyrir vitundar- vakningu um þá hættu sem af gróðureldum stafar eru hendur sveitarfélaga bundnar vegna fjárskorts. „Nei, þessi áætlun er sú eina en nokkrar eru á teikniborð- inu,“ segir Víðir Reynisson hjá almannavarnadeild Ríkislög- reglustjóra, spurður hver staða þessara mála sé, en árið 2011 var unnin ítarleg áhættuskoðun af embætti Ríkislögreglustjóra. Víðir segir að þéttbýl sumar- húsasvæði þar sem er mikill gróður verði að ganga fyrir. „Við erum frekar illa stödd, mundi ég segja,“ bætir hann við spurð- ur um hver staðan sé almennt. „Bæði vegna þess að búnaður og þjálfun slökkviliðanna hafa ekki miðast við að takast á við stóra atburði tengda gróðureldum. Það er enn þá langt í það að við séum vel í stakk búin til að takast á við þetta, með vel búnum og þjálfuð- um mannskap.“ - shá /sjá síðu 8. Búnaði og þjálfun slökkviliða er ábótavant með tilliti til gróðurelda: Ein áætlun vegna gróðurelda STJÓRNMÁL Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segir ekki loku fyrir það skot- ið að kosið verði um áframhald viðræðna við Evrópusambandið á þessu kjörtímabili. Til að svo verði þurfi hins vegar fyrst að koma í gegn breytingum á stjórn- arskránni svo hægt sé að kalla til bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu, en ekki ráðgefandi eins og hingað til hefur tíðkast. „Ef menn eru að tala um umsókn að aðild að ESB þyrfti að vera til staðar heimild til að halda raunverulega þjóðaratkvæða- greiðslu, bindandi þjóðaratkvæða- greiðslu, ekki bara svona könnun, eða ráðgefandi,“ segir Sigmundur í samtali við Fréttablaðið. Í kosningabaráttunni lagði Framsóknarflokkurinn áherslu á að skýrt verði í stjórnarskrá hvernig hægt verði að kalla eftir þjóðaratkvæðagreiðslu og stjórn- arskrárnefnd sem nú er að störf- um hefur það verkefni meðal ann- ars á sinni könnu. Sigmundur segir að til þess gæti komið að stjórnarskránni yrði breytt á þessu kjörtímabili, en til þess að þjóðaratkvæða- greiðsla um ESB-málið kæmi til greina „þyrfti að vera til staðar heimild til að halda raunverulega þjóðaratkvæðagreiðslu, bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu“. Hann bætir við: „Eins og sakir standa þá er ekki hægt að halda bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu, eingöngu ráðgefandi og um leið kemur fram í stjórnarskrá að [þingmenn] séu ekki bundnir af neinu nema sannfæringu sinni.“ Forsætisráðherra var í við- tali í Kastljósi í gærkvöldi þar sem hann sagði meðal annars að Sjálfstæðisflokkurinn hafi í stjórnarmyndunarviðræðunum síðasta vor ekki sett fram kröfu um þjóðaratkvæðisgreiðslu um ESB-mál og að framámenn innan ESB hefðu krafist þess að Ísland myndi skýra stöðu sína gagnvart aðildarviðræðunum. - þj, js / sjá síðu 12 Opnar á þjóðaratkvæði ef stjórnarskrá verður breytt Forsætisráðherra útilokar ekki að ákvörðun um framhald ESB-viðræðnanna verði lögð í hendur þjóðarinnar. Til þess að svo verði, þurfi hins vegar að breyta ákvæðum stjórnarskrárinnar um þjóðaratkvæðagreiðslur. Spurður að því hversu þungt það vegi í huga hans að 45.000 manns hafi óskað eftir að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um hvort aðildarviðræðum verði fram haldið segir Sigmundur: „Ég hef mikinn skilning á því að fólk vilji hafa sem mest val og sé hlynnt þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég hef sjálfur barist fyrir því að fólk fengi að af- greiða mál í þjóðaratkvæðagreiðslu. Sú þjóðaratkvæðagreiðsla, […] þegar til hennar kemur, þarf að vera þess eðlis að það sé hægt að framfylgja niðurstöðunni.“ Skilur að fólk vilji sem mest val LITIÐ UPP MILLI LEIKJA Reykjavíkurskákmótið, hið fimmtugasta í röðinni, hófst í Hörpu í gær. Á meðal keppenda á mótinu eru 27 stórmeistarar og þrjátíu alþjóðlegir meistarar og því ljóst að baráttan verður afar hörð. Þessi keppandi leit stutt- lega af skákborðinu á meðan andstæðingurinn var niðursokkinn í að meta stöðuna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.