Fréttablaðið - 05.03.2014, Side 2

Fréttablaðið - 05.03.2014, Side 2
5. mars 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2 VERSLUN Eigandi verslunarinnar Antikmuna á Klapparstíg hefur ákveðið að loka versluninni eftir 40 ára rekstur í miðborginni. Versluninni verður lokað eftir næstu mánaðamót, um svipað leyti og Fríðu frænku. Eftir verða tvær antikverslanir í miðborginni, eftir því sem Fréttablaðið kemst næst. „Þegar maður stendur á kross- götum er bæði ákveðin eftirvænt- ing í því að takast á við eitthvað nýtt, en um leið söknuður eftir þessu gamla. Ég er búinn að vera hérna í rúmlega tuttugu ár,“ segir Ari Magnússon, eigandi Antik- muna. Ari segir húsnæðið einfaldlega of dýrt miðað við veltu verslun- arinnar. „Það koma alltaf tísku- sveiflur í þessum bransa, það var til dæmis mjög mikið um að vera á tíunda áratugnum,“ segir Ari. „Það komu til mín ungar athafnakonur sem leist svo vel á þennan stað og langar til að vera með verslun með hönnun fyrir túr- istana. Mér leist svo ljómandi vel á þetta að ég ákvað að leigja þeim húsnæðið,“ segir Ari. Antikmunir tóku til starfa á Laufásveginum árið 1974, en móðir Ara tók við rekstrinum tveimur árum síðar. Verslunin var svo flutt á Klapparstíginn árið 1992, en þá hafði Ari hætt á sjó og tekið við rekstrinum af móður sinni. „Við verðum með opið áfram fram í fyrstu vikuna í apríl,“ segir Ari. Hann segir mikið til af fal- legum munum og allt verði selt á útsölu áður en versluninni verði lokað. Útsalan hefst á fimmtudag. Hann segir árin í miðborginni hafa verið góð, en segir fram- kvæmdir þar hafa sett skugga á þann tíma. „Það hefur verið mjög erfitt fyrir reksturinn þegar fram- kvæmdir sem hafa verið í gangi hér hafa dregist úr hömlu.“ Ari er þó ekki alveg hættur í antikvörunum, því hann ætlar að koma sér upp aðstöðu til að gera við og verðmeta fyrir þá sem hafa áhuga á slíkri þjónustu. Antikmunir er ekki eina antik- verslunin í miðborginni sem fer að loka dyrunum í síðasta skipti. Verslunin Fríða frænka skellir í lás um mánaðamótin, segir Anna Ringsted, eigandi verslunarinnar. „Ég ætla að hætta á toppnum, mig langar til að breyta til. Það fylgir þessu brjálæðislega mikil vinna, og ég ákvað að hætta áður en ég fengi nóg,“ segir Anna. Hún segir reksturinn blómlegan og vistina í miðborginni hafa verið góða. Nú ætlar hún hins vegar að söðla um og stefnir á að opna vef- verslun með antikmuni með haust- inu. brjann@frettabladid.is Antikbúðirnar tínast burt úr miðborginni Tvær af fjórum antikverslunum í miðborginni ætla að loka um næstu mánaða- mót. Antikmunir hætta eftir 40 ára rekstur. Eigandinn segir of dýrt að reka versl- anir eins og þessa í miðbænum. Fríða frænka hættir á toppnum segir eigandinn. HÆTTIR Viðskiptavinir geta kíkt í Antikmuni út fyrstu vikuna í apríl en eftir það verður versluninni lokað eftir rúmlega 20 ár við Klapparstíginn, segir Ari Magnús- son, eigandi verslunarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Þórólfur, kostar þetta ekki gras af seðlum? „Jú, en við græðum helling.“ Þórólfur Jónsson, garðyrkjustjóri Reykjavíkur- borgar, segir stefna í kalskemmdir á túnum vegna viðvarandi klaka í borginni. Viðbúið sé að sá þurfi fræjum í sárin. STJÓRNSÝSLA Íslykill númer 100 þúsund var gefinn út af Þjóðskrá Íslands í gær. Fyrsti Íslykillinn var afhentur í apríl í fyrra, og tók því innan við ár fyrir lyklana að ná þessum áfanga, að því er fram kemur á vef Þjóðskrár Íslands. Íslykillinn er sérstakt lykil- orð á netinu tengt kennitölu sem notað er við innskráningu á vefn- um island.is, á vefjum stofnana, sveitarfélaga, félagasamtaka og fyrirtækja. Lykilinn má í dag nota á áttatíu vefsvæðum, og eru daglegar innskráningar á bilinu tíu til fimmtán þúsund á hverjum degi. Upplýsingar um Íslykla og eigendur þeirra eru dulkóðaðar og því ekki vitað hver fékk lykil númer 100 þúsund. - bj Vinsæl rafræn auðkenni: 100 þúsund Ís- lyklar afhentir LÖGREGLUMÁL Breyta þarf reglugerð um sektir við umferðarlagabrotum þannig að ekki verði lengur miðað við 35 kílómetra hámarkshraða á klukkustund, heldur verður miðað við 40 kílómetra hámarkshraða, eins og hefur til dæmis verið tekinn upp á götum í Stykkishólmi og Fjarðabyggð að ráðleggingum Vega- gerðarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá innan ríkisráðuneytinu. Þangað til breytingin gengur í gegn verður ekki til heimild í reglugerð til að sekta ökumenn vegna hrað- akstursbrota á svæðum þar sem hámarkshraðinn er 40 kílómetrar á klukkustund. Í tilkynningunni segir: „Breyting á sektarreglugerð er nauðsynleg þar sem að óbreyttu verður ekki hægt að framfylgja hraðatakmörkuninni „40“ með sektum.“ Eftir sem áður er lögreglu heimilt að beita 15.000 króna sekt vegna ökuhraða sem er ekki í samræmi við aðstæður, samkvæmt sömu reglugerð. Önnur ástæða fyrir breytingunni er sú að leiðsögu- kerfi í bílum annars vegar og hraðaskiltum hins vegar ber ekki saman um hver hámarkshraðinn er á ákveðn- um götum á vegum landsins. Innanríkisráðuneytið auglýsir nú eftir umsögnum við þessa reglugerðarbreytingu en umsagnarfrestur rennur út þann 12. mars næstkomandi. Ráðgert er að breytingin öðlist þegar gildi. - js Breyta þarf reglugerð um sektir við umferðarlagabrotum vegna ósamræmis: Lögreglu skortir sektarheimildir Þegar maður stendur á krossgötum er bæði ákveðin eftirvænting í því að takast á við eitthvað nýtt, en um leið söknuður eftir þessu gamla. Ari Magnússon, eigandi Antikmuna SVÍÞJÓÐ Lögreglan í Svíþjóð þarf að greiða manni 100 sænskar krónur í bætur, jafngildi tæpra 1.800 íslenskra króna, vegna poka með bjór og kartöfluflögum sem hvarf sporlaust. Lögreglan yfirheyrði manninn í Arvika en hann var síðan flutt- ur til Karlstad eftir handtökuna. Þegar hann var svo látinn laus var poki með téðum bjór og flög- um, sem hann hafði haft með sér, horfinn, að því er sænskir fjöl- miðlar greina frá. - ibs Handtekinn fái greiðslu: Lögreglan bæti horfinn bjór RIO DE JANEIRO K jötkveðjuhátíðinni í Ríó er nú lokið. Á ári hverju falla til býsnin öll af búningum, fjöðrum og öðrum skrautmunum sem eru notuð í hátíðahöldunum. Þetta rusl, sem skömmu áður er miðpunktur athyglinnar í hátíðahöldunum, er skilið eftir á götum úti. Í borginni er fjöldi fólks sem nýtir sér þetta fyrirkomulag og sankar að sér þessu rusli til að selja eða nýta að nýju áður en ruslabílarnir koma og hirða upp af götunum og ýmist selja eða búa til úr því nýja búninga sem notast að ári liðnu. - js Eftirhreytur kjötkveðjuhátíðarinnar í Rio de Janeiro: Gera gott úr fölnuðum fjöðrum VÍSINDI Veira sem hafði verið frosin í sífreranum í Síberíu í um 30 þúsund ár vaknaði eftir að vísindamenn þíddu hana. Þeir segja að þrátt fyrir þessa löngu vist í frystinum sé hann enn hættulegur amöbum og geti smitað. Mönnum er ekki talin stafa hætta af veirunni, en vísinda- mennirnir segja í samtali við BBC að þeir óttist að aðrar veirur sem hafa verið frosnar lengi geti valdið hættu. Sífrerinn í Síberíu er að minnka, auk þess sem námur og borholur gætu hleypt gömlum veirum á borð við bólusóttar- veiru aftur í umferð. - bj 30 þúsund ára veira vaknar: Smitar enn eft- ir vist í sífrera KJÖTKVEÐJUHÁTÍÐ Brasilísk kona situr við hrúgu af búningum, fjöðrum og munum sem fáeinum stundum áður voru miðpunktur athyglinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VIÐ MÆLINGAR Innanríkisráðuneytið leggur til breytingar á reglugerð þannig að miðað verði við 40 kílómetra hámarks- hraða í stað 35 kílómetra hraða eins og víða er í þéttbýli. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON LANDBÚNAÐUR Íslensk yfirvöld þurfa að bæta opinbert eftirlit með framleiðslu alifuglakjöts til að tryggja að það samræmist EES- reglum um matvælaöryggi, sam- kvæmt Eftirlitsstofnun EFTA, ESA. Úttekt ESA sem birt var í gær leiðir í ljós annmarka á opinberu eftir liti hér á landi. Eftirlit í slát- urhúsum er á höndum starfsmanna sem hafi ófullnægjandi þjálfun, án þess að opinberir dýralæknar séu viðstaddir. Þar að auki hafi starfs- leyfi verið veitt án þess að skilyrði EES væru að fullu uppfyllt. Meðal annars var bent á ann- marka á hönnun og viðhaldi bygg- inga og búnaðar sem og verk- ferlum við þrif. Einnig þykir örverufræðieftirlit með alifugla- kjöti og öðrum alifuglaafurðum hafa verið ófullnægjandi og innra eftirlit matvælaframleiðenda með eigin framleiðslu sé ófullnægj- andi. Matvælastofnun hefur tekið athugasemdum sem fram komu í skýrslunni til greina og sett fram aðgerðaráætlun til að bregðast við tilmælum ESA. - þj Eftirlitsstofnun EFTA gerir fjölþættar athugasemdir í nýrri úttekt: Ónægt eftirlit með alifuglarækt HÆNSNABÚ Íslensk yfirvöld þurfa að bæta eftirlit með alifuglarækt að mati ESA. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI SPURNING DAGSINS meiri orku Orkulausnir henta þeim sem glíma við orkuleysi, þrekleysi, verki eða svefnvanda. Hentar vel þeim sem vilja byggja upp orku vegna vefjagigtar eða eftir veikindi. Hefst 11. mars - 8 vikur

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.