Fréttablaðið - 05.03.2014, Side 4

Fréttablaðið - 05.03.2014, Side 4
5. mars 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4 LEIÐRÉTT Ranglega kom fram á mynd með frétt um niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 að Píratar fengju þrjá þingmenn miðað við stuðning í könnuninni. Rétt er að þeir fengju sex þingmenn, eins og kom fram í texta fréttar í blaðinu. 39 umsóknir bárust land-lækni um gögn til vísindarannsókna úr gagnagrunnum embættisins. Þetta er svipaður fjöldi og í fyrra, þegar 36 umsóknir bárust. Heimild: Landlæknisembættið SKIPULAG Fyrirhuguð byggð á Hlíðarenda verður fjölbreytt. Gert er ráð fyrir allt 560 íbúðum fyrir almenning, þar verða líka byggð- ar 40 námsmannaíbúðir og allt að 200 einstaklingsíbúðir fyrir náms- menn. Um helmingur íbúðanna verður tveggja herbergja, og um tuttugu prósent þriggja herbergja. „Markmiðið er að skapa fjöl- breytni í stærð og gerð íbúða fyrir ungt fólk,“ segir Brynjar Harðar- son, framkvæmdastjóri Vals- manna. Útfærsla deiliskipulags Hlíðar- enda er byggð á vinningstillögu Graeme Massie í samkeppni um nýtt skipulag fyrir Vatnsmýrina frá árinu 2008. Fjölbreytni ríkir í byggingar- stílnum, engin tvö eins útlítandi hús verða hlið við hlið og gert er ráð fyrir stórum innigörðum. Jafnframt eru húsin misjafnlega há, frá þremur upp í fimm hæðir. Verslun og þjónusta verða á jarð- hæð við breiðgötur. Við húsagötur verða neðstu íbúðirnar hálfri hæð yfir götu til að tryggja næði. Bílageymslur fyrir íbúa verða undir húsum og innigörðum. Bíla- geymslur atvinnuhúsnæðis verða fyrir aftan það, til að auðvelda lestun og losun og koma í veg fyrir truflun af völdum starfseminnar. Samhliða því sem íbúðahverfið rís verður ráðist í breytingar á íþróttasvæði Vals að Hlíðarenda, með tilfærstu á gervigrasi, fjölg- un æfingavalla og byggingu knatt- húss í hálfri stærð. johanna @frettabladid.is 600 íbúða byggð á Hlíðarenda Hafist verður handa við að byggja íbúðahverfi á Hlíðarenda næsta haust. Fyrstu íbúarnir flytja inn 2016. Um 40 íbúðir af 600 verða fyrir námsfólk. Talið er að uppbygging hverfisins muni kosta allt að 30 milljörðum króna. Hlíðarendi er erfðafestuland sem Knattspyrnufélagið Valur hefur átt frá árinu 1939. Árið 2002 samdi Valur við Reykjavíkurborg um breytta landnotkun. Hluta- félagið Valsmenn, sem stofnað var árið 1999 til að styðja uppbygginguna hjá Val, keypti landið 2005 og gekk kaupverðið til byggingar á nýju íþróttahúsi. Valsmenn telja að ekki hafi gengið sem skyldi að hefja uppbyggingu á Hlíðarenda til að fá inn tekjur. Þeir segja að það sé einkum vegna endur- tekinna breytinga og frestana vegna skipulagsmála. Valsmenn hf. eru að 40 pró- sentum í eigu Vals, 60 prósent skiptast milli 400 einstaklinga sem lagt hafa fram hlutafé frá 50 þúsund krónum og upp í eina milljón króna. Sérstakt félag, Hlíðarfótur, hefur verið stofnað um framkvæmdirnar á Hlíðarenda. Valsmenn eru hluthafar í því auk fjárfesta. ➜ Erfðafestuland Vals að Hlíðarenda „Mér er sagt að ég hafi einhvern tíma misst út úr mér að með Hlíðarendaverkefninu stæðum við frammi fyrir því að byggja síðasta hlutann af Hlíðunum eða fyrsta hlutann af Vatnsmýrinni. Við erum klárlega að sjá fyrsta hlutann af Vatnsmýrinni byggjast hér,“ sagði Dagur B. Eggertsson, for- seti borgarstjórnar. Hann sagði að á Hlíðarenda kæmi saman í eitt mikilvægi þess að samþykkja nýtt aðalskipulag, loka þriðju flugbraut- inni og loks mikilvægi þess að byggja litlar eða miðlungs- stórar íbúðir fyrir venjulegt fólk. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðismanna sagðist hlakka til að sjá hverfið verða að veruleika og sagðist sann- færður um að uppbygging þess væri eitthvað sem flokkarnir í Reykjavík gætu sameinast um. „Ég er sannfærður um að þetta skipulag mun stuðla að iðandi mannlífi á svæðinu. Menn hafa borið gæfu til að hafa þetta margbreytilega byggð, bæði í húsagerð og stærð íbúðanna,“ sagði Kjartan. ➜ Erum að byggja fyrsta hluta Vatnsmýrar DÝR FRAMKVÆMD Svona gæti ein af breiðgötunum á Hlíðarenda litið út. Upp- byggingin á Hlíðarenda er ein sú umfangsmesta sem ráðist hefur verið í. Jarðvegs- framkvæmdir munu einar og sér kosta í kringum þrjá milljarða. Gatnagerðargjöld sem byggingaraðilar þurfa að greiða munu nema að lágmarki 800 milljónum. Talið er að framkvæmdin í heild muni kosta á bilinu 25 til 30 milljarða. FRÉTTABLAÐIÐ/ALARK ARKITEKTAR ➜ Engin tvö eins útlítandi hús verða hlið við hlið og gert er ráð fyrir stórum inni- görðum. FULLBYGGT Svona á Hlíðarendahverfið að líta út þegar það verður fullbyggt árið 2020. SKIPULAGSMÁL Félagið Fylkir sem á eignina Arnarholt á Kjalarnesi hefur sótt um leyfi til að breyta byggingunum í heilsuhótel. Í Arn- arholti var um árabil endurhæf- ing fyrir geðsjúka á vegum ríkis- ins og Reykjavíkurborgar. Fram kom í Morgunblaðinu fyrir tæpu ári að Fylkir hefði þá keypt Arnarholt sem að mestu hefði staðið autt frá árinu 2005. Kaupverðið hafi verið 120 millj- ónir króna fyrir húsakostinn sem sé um 4.800 fermetrar. - gar Nýtt hlutverk geðdeildar: Arnarholt verði að heilsuhóteli Rangt var farið með nafn Árna Gunnars sonar, framkvæmdastjóra Flugfélags Íslands, í blaðinu í gær. ÍSRAEL Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, segir að Benjamin Netanjahú, forsætisráðherra Ísra- els, þurfi að taka „erfiðar ákvarð- anir“ til að ljúka friðarviðræðum við Palestínumenn. Obama vonast til að friðarsamn- ingur verði gerður fyrir 29. apríl næstkomandi en lítið hefur þokast áfram í friðarviðræðunum síðan í júlí síðastliðnum þegar þær hófust eftir þriggja ára hlé. „Það er enn mögulegt að búa til tvö ríki, gyðingaríkið Ísrael og Palestínuríki þar sem fólk lifir í sátt og samlyndi við frið og öryggi,“ sagði Obama. „En það er erfitt að framkvæma það. Báðir aðilar þurfa að gera málamiðlanir.“ Netanjahú, sem heimsótti forset- ann í Hvíta húsinu í gær, sagði að Ísraelar byggjust við því að hann stæði fastur á sínu og að Palestínu- menn hefðu ekki lagt sitt af mörk- um upp á síðkastið til að draga úr spennunni á svæðinu. -fb Barack Obama ræddi við forsætisráðherra Ísraels um framhald friðarviðræðna við Palestínumenn: Segir erfiðar ákvarðanir bíða Netanjahús RÆDDU MÁLIN Obama og Netanjahú ræddu saman í Hvíta húsinu í gær. MYND/AP VIÐSKIPTI Rekstrarafgangur Strætó á árinu 2013 nam 496 milljónum króna, sem er um 201 milljón meira en árið á undan. Í tilkynningu um ársreikning Strætó bs. kemur fram að rekst- urinn hafi í meginatriðum verið í samræmi við áætlanir. Á árinu jókst handbært fé um 84 milljónir króna og nam í lok árs um 904 milljónum króna. Þeir peningar verða m.a. notaðir til að fjárfesta í nýjum strætisvögnum og rafrænni greiðslumiðlun. - fb Ársreikningur Strætó bs.: 496 milljónir í rekstrarafgang AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundur@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ – G Ó Ð U R Á B R A U Ð – Í S L E N S K U R Elísabet Margeirsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá Föstudagur Stíf SV-átt syðra. SUÐVESTLÆGAR ÁTTIR Heldur umhleypingasamt veður þessa dagana með fremur stífum suðvestlægum áttum og úrkomu með köflum í allflestum landshlutum en síst þó um norðanvert landið. Hiti yfirleitt í kringum frostmark. 0° 3 m/s 1° 4 m/s 2° 6 m/s 4° 14 m/s Á morgun 8-15 m/s hvassast NA-til. Gildistími korta er um hádegi 2° 0° 0° -3° -2° Alicante Basel Berlín 21° 13° 12° Billund Frankfurt Friedrichshafen 9° 13° 9° Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas 7° 7° 18° London Mallorca New York 13° 21° XX° Orlando Ósló París 26° 4° 12° San Francisco Stokkhólmur 16° 4° 2° 10 m/s 4° 8 m/s 3° 7 m/s 2° 6 m/s 0° 3 m/s 1° 4 m/s -4° 7 m/s 2° 0° 1° 0° 0°

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.