Fréttablaðið - 05.03.2014, Side 6
5. mars 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 6
ÚKRAÍNA John Kerry, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði í opin-
berri heimsókn sinni til Kænugarðs
í gær að Rússar hefðu skáldað upp
ástæður fyrir því að skipta sér af
ástandinu í Úkraínu. Hann sagði
hegðunina óásættanlega hjá stór-
veldi og G8-ríki eins og Rússlandi.
„Engin sönnunargögn styðja
röksemdafærslur þeirra,“ sagði
Kerry. „Rússar hafa lagt mikið á
sig til að búa til ástæðu til að ráð-
ast enn lengra inn [í Úkraínu].“
Kerry sagði þjóð sína standa með
Úkraínumönnum og hótaði því að
Bandaríkjamenn muni grípa til
refsiaðgerða ef Rússar draga ekki
herlið sitt til baka frá Krímskaga.
Talið er að eignafrysting komi þar
til greina, auk þess sem Bandaríkin
íhuga að sniðganga fund átta helstu
iðnríkja heims, sem á að halda í
Sotsjí í Rússlandi í júní.
Kerry heimsótti einnig Líkneski
hinna föllnu í Kænugarði, minnis-
varða um þá rúmlega áttatíu mót-
mælendur sem féllu í síðasta mán-
uði.
Barack Obama Bandaríkjafor-
seti sagði að menn hafi „sterka
trú“ á því að með aðgerðum sínum
í Úkraínu hafi Rússar brotið alþjóð-
leg lög. „Pútín forseti virðist hafa í
sínum röðum mismunandi lögfræð-
inga sem búa til mismunandi túlk-
anir en ég held að hann sé ekki að
gabba neinn,“ sagði Obama.
Hann bætti því við að hernaðarí-
hlutun Rússa í Úkraínu gæti orðið
til þess að fæla þjóðir frá Rúss-
landi. Hann telur jafnframt að Úkr-
aína gæti bæði orðið vinaþjóð Vest-
urlanda og Rússlands á sama tíma.
Vladímír Pútín, forseti Rúss-
lands, sakaði Vesturlönd um að
hafa stutt „uppreisn sem bryti
gegn stjórnarskránni“ í Úkraínu.
Hann bætti við að Rússland áskilji
sér rétt til að beita hervaldi til að
vernda þá Rússa sem búa í Úkraínu
en vonast til að þess gerist ekki
þörf. Þetta voru fyrstu ummæli
forsetans síðan fráfarandi for-
seti landsins, Viktor Janúkovítsj,
hrökklaðist úr embætti þegar mót-
mælin náðu hápunkti. Pútín lítur
enn á Janúkovítsj sem forseta
landsins, þó að bráðabirgðafor-
setinn Olexander Túrtsjínov, sem
nýtur stuðnings mótmælenda, hafi
tekið við embættinu.
Pútín sagði vestræn ríki ýta
undir stjórnleysi í Úkraínu með því
að lýsa yfir stuðningi við mótmæl-
endur og varaði við því að ef Vest-
urlönd gripu til refsiaðgerða myndu
þau fá það í bakið. „Við ætlum ekki
að berjast við úkraínsku þjóðina,“
sagði Pútín.
Bætti hann við að flutningur 150
þúsund manna herliðs að landa-
mærum Úkraínu hafi verið fyrir-
fram ákveðinn og tengdist ekkert
núverandi ástandi í landinu. Í gær
fyrirskipaði hann að herliðið sneri
aftur til bækistöðva sinna í Rúss-
landi. Við það hækkuðu hlutabréf
í heiminum á nýjan leik eftir að
þau höfðu tekið stóra dýfu vegna
ástandsins á Krímskaga.
Rússneskir hermenn, sem höfðu
lagt Belbek-loftvarnastöðina á
Krímskaga undir sig, skutu við-
vörunarskotum út í loftið þegar
um þrjú hundruð úkraínskir her-
menn, sem áður stjórnuðu stöðinni,
kröfðust þess að fá störf sín aftur.
Í gærkvöldi skaut rússneski her-
inn á loft langdrægri tilraunaeld-
flaug frá tilraunasvæði sínu Kap-
ustin Yar, skammt frá Kaspíahafi.
Bandaríkjamenn voru látnir vita af
flauginni, eins og alþjóðasamningar
kveða á um. freyr@frettabladid.is
1. Hvað eiga bankar og Íbúðalána-
sjóður margar íbúðir?
2. Hvernig vélum vill Atlantic Airways
lenda á Reykjavíkurfl ugvelli?
3. Hver er heiðursgestur á Reykja-
víkurskákmótinu?
SVÖR:
1. 3.400. 2. Airbus 319. 3. Garrí Kasparov.
Hágæða múrefni í Múrbúðinni
Neytendur athugið! Múrbúðin selur al lar vörur s ínar á lágmarksverði fyr ir a l la , a l l taf . Gerið verð- og gæðasamanburð!
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Deka Acryl grunnur
1 kg 1.225,-
5 kg 4.590,-
Reykjavík Kletthálsi 7. Opið má-fö kl. 8-18, laug. 10-16
Reykjanesbær Fuglavík 18. Opið má-fö kl. 8-18
Munið 5% Pallaafsláttinn.
Leitið tilboða í meira magn.
Látið fagmenn vinna verkin!
Serpo 261 trefjamúr
Fyrir múrkerfi
25 kg 3.790,-
Weber Milligróf
múrblanda
25 kg 1.795,-
Weberdur 629
gipsmúr
30 kg 2.395,-
Weber REP 980
þéttimúr grár
25 kg 3.690,-
Weber Gróf
Múrblanda
25 kg 1.645,-
Deka Latex
5 lítr. 4.690,-
Deka Hrað
viðgerðarblanda
25 kg 4.175,-
Deka Fíber trefja-
styrkt múrblanda
25 kg 3.290,-
og
SKÓLAMÁL Stjórn Foreldrafélags Fjöl-
brautaskólans við Ármúla hefur sent
foreldrum og forráðamönnum nemenda
hvatningu um að styðja vel við bakið
á börnum sínum í ljósi þeirrar óvissu
sem nú ríki vegna hugsanlegs verkfalls
kennara.
Í áskorun foreldrafélagsins er undirstrik-
að að samninganefndir kennara og ríkis-
ins fundi stíft þessa daga svo ekki liggi
fyrir hvort til verkfalls komi 17. mars.
Foreldrafélagið kemur síðan á fram-
færi skilaboðum frá umboðsmanni barna
og samtökunum Heimili og skóla. „Brott-
fall nemenda úr framhaldsskólum hefur
verið mikið áhyggjuefni hér á landi og er
hætt við að langvarandi verkfall verði til
þess að fleiri nemendur hætti í skóla og
ljúki ekki framhaldsnámi,“ vara þessir
aðilar við. „Framhaldsskólanemendur
eru hvattir til að missa ekki móðinn og
stunda nám af fullum krafti þó hætta sé
á verkfalli.“
Þá eru kennarar og annað starfsfólk
framhaldskóla hvattir til að undirbúa
nemendur eins vel og mögulegt er og gera
allt til að koma í veg fyrir að nemendur
flosni upp úr námi. - gar
Foreldrar og starfsmenn framhaldsskóla fá hvatningu frá umboðsmanni barna og Heimili og skóla:
Styðjið framhaldskólanema á óvissutímum
Bandaríkin ætla að veita Úkraínu, sem er afar illa stödd fjárhagslega, eins
milljarðs dala fjárhagsaðstoð vegna orkumála. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
er einnig að undirbúa fjárhagsaðstoð sem er hugsuð sem langtímalausn.
Fjármálaráðherra Úkraínu telur að landið þurfi á 35 milljörðum dala að
halda til að komast í gegnum þetta ár. Á sama tíma hafa Rússar dregið til
baka afsláttinn sem þeir höfðu gefið Úkraínumönnum á gasverði.
Þurfa 35 milljarða dala í fjárhagsaðstoð
Skáldaðar ástæður fyrir afskiptum
John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, var harðorður í garð Rússa í heimsókn sinni til Kænugarðs í gær. Hann telur að þeir hafi
skáldað upp ástæður fyrir því að skipta sér af málefnum Úkraínu. Pútín sakar Vesturlönd um að hafa ýtt undir stjórnleysi í Úkraínu.
FJÖLBRAUTA-
SKÓLINN VIÐ
ÁRMÚLA
Verkfall kennara
í framhaldsskól-
um gæti hafist
17. mars.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
GLAÐBEITTIR Í KÆNUGARÐI John Kerry ásamt bráðabirgðaforsetanum Olexander
Túrtsjínov og forsætisráðherranum Arsení Jatsenjúk í Kænugarði í gær. MYND/AP
© GRAPHIC NEWSHeimild: IISS *Eingöngu flotinn í Svartahafi Myndir: Getty Images
Úkraínumenn myndu líklega eiga við ofurefli að etja ef Rússar myndu auka
hernaðarumsvif sín enn frekar á Krímskaga. Úkraínski herinn, sem býr
við fjárskort, er mun fámennari er hinn rússneski auk þess sem hann hefur yfir
miklu færri skriðdrekum, herþotum, herþyrlum og herskipum að ráða.
R Ú S S L A N D
H E R M E N N
S K R I Ð D R E K A R
H E R Þ OT U R
H E R ÞY R LU R
H E R S K I P
Ú K R A Í N A
Hermenn að
störfum
845.000
Hermenn til vara
2.000.000
= 10,000
= 100
= 50
= 50
= 2
Hermenn að
störfum
129.950
Hermenn til vara
1.000.000
Herstyrkur Rússlands og Úkraínu borinn saman
250.000
64.750
2.750 1.150
1.571 231
392 139
25* 12
VEISTU SVARIÐ?