Fréttablaðið - 05.03.2014, Qupperneq 8
5. mars 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 8
ÖRYGGISMÁL Aðeins ein viðbragðs-
áætlun hefur verið unnin vegna
gróðurelda á Íslandi. Búnaði til
slökkvistarfa jafnt sem þjálfun
slökkviliða er ábótavant. Þrátt
fyrir vitundarvakningu um þá
hættu sem af gróðureldum stafar
eru hendur sveitarfélaga bundn-
ar vegna fjárskorts.
„Nei, þessi áætlun er sú eina
en nokkrar eru á teikniborð-
inu,“ segir Víðir Reynisson hjá
almannavarnadeild Ríkislög-
reglustjóra, spurður hver staða
þessara mála sé, en árið 2011
var unnin ítarleg áhættuskoðun
af embætti Ríkislögreglustjóra.
Víðir vísar þar til viðbragðs-
áætlunar vegna gróðurelda í
Skorradal, sem segir fyrir um
skipulag og stjórnun aðgerða
vegna gróðurelda. Markmið
hennar er að tryggja skipulögð
viðbrögð vegna elds, koma í veg
fyrir eða takmarka tjón á gróðri
og eignum og að þolendum slíkra
hamfara berist öll nauðsynleg
aðstoð á sem skemmstum tíma.
Víðir segir að gerð viðbragðs-
áætlunarinnar í Skorradal hafi
varpað ljósi á ýmis vandamál
sem nýtist í framhaldinu.
Hann segir að þéttbýl sumar-
húsasvæði þar sem er mikill
gróður verði að ganga fyrir.
„Þetta eru þau svæði sem við
höfum langmestar áhyggjur af
og verða skoðuð kerfisbundið,“
segir Víðir. „Við erum frekar illa
stödd, mundi ég segja,“ bætir
hann við spurður um hver stað-
an sé almennt. „Bæði vegna þess
að búnaður og þjálfun slökkvi-
liðanna hafa ekki miðast við að
takast á við stóra atburði tengda
gróðureldum. Það er enn þá langt
í það að við séum vel í stakk búin
til að takast á við þetta, með vel
búnum og þjálfuðum mannskap.“
Víðir bætir við að vissulega
hafi eitt og annað verið gert, en
heildstæð nálgun sé framtíðar-
mál.
„Þetta er bara gríðarlega dýrt,
t.d. sérhæfður búnaður eins og
léttari bílar sem komast frekar
um þessi svæði. Sveitarfélögin
hafa ekki haft neina burði í slíkar
fjárfestingar, sérstaklega ekki á
undanförnum árum,“ segir Víðir.
svavar@frettabladid.is
Aðeins ein áætlun er
til vegna gróðurelda
Búnaði og þjálfun slökkviliða er ábótavant með tilliti til gróðurelda. Sveitarfélög
hafa enga burði til að bregðast við sífellt meiri hættu á miklum gróðureldum.
Aðgerða er þörf strax var mat innan fjögurra lögregluumdæma árið 2011.
Hætta á gróðureldum eykst ár frá ári,
en þangað til Mýraeldar brunnu árið
2006 var almennt ekki hugsað um að
sérstök vá stafaði frá sinu-, kjarr- og
skógareldum á Íslandi.
Í skýrslu vegna áhættuskoðunar Al-
manna varna kemur þetta skýrt fram.
„Eftir elda á Mýrum 2006 varð ljóst
að undirbúa þarf betur viðbrögð við
sinueldum og afla betri upplýsinga
um helstu áhættusvæði, sérstaklega
vegna vaxandi sumarbústaðabyggða
víða um land og oft með erfiðu að-
gengi. Landnýting hefur einnig breyst,
kjarrgróður hefur vaxið og skógi verið
plantað og með hlýnandi veðurfari
hefur áhættan aukist til muna. Talið
er líklegt að svæði fari stækkandi þar
sem mikill eldsmatur er fyrir hendi
og búast má við auknum sinueldum
með miklum umhverfisáhrifum og
tjóni í framtíðinni.“
Vegna þessa töldu forsvarsmenn í
mörgum lögregluumdæmum að mikil
eða gífurleg hætta stafaði af gróður-
eldum og aðgerðir þyrfti strax. Þetta
á t.d. við um höfuðborgarsvæðið,
Borgarfjörð og Dali og Árnessýslu.
➜ Lengi grandalaus
gagnvart hættunni
Frá því var greint í fréttum Bylgjunnar í gær að Veðurstofa Íslands, í sam-
vinnu við Mannvirkjastofnun, er að þróa aðferð til að mæla raka í gróðri
til að geta varað við hættu á gróðureldum í þurrkatíð, eins og verið hefur
suðvestanlands að undanförnu. Hafa tveir rakaskynjarar verið settir upp; á
Þingvöllum og í Húsafelli. Framtíðarsýn Veðurstofunnar er að hægt sé að
gefa út viðvaranir um gróðurelda í framtíðinni.
Veðurstofan setur upp rakamæla
SLÖKKVI-
STARF Barist
er við fjölda
gróðurelda á
ári, en nefnt er
að slökkviliðin
eiga ekki einu
sinni fatnað
sem hentar í
slík störf.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON
Við erum
frekar illa
stödd mundi
ég segja
Víðir Reynisson,
almannavarnadeild
Ríkislögreglustjóra
Kanarí
með Guðna
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
V
IT
6
80
86
3
/2
01
4
VITA er lífiðVITA
Suðurlandsbraut 2
Sími 570 4444
Skráðu þig
í netklúbbinn - VITA.is
Gott fólk 60+
Verð frá 149.900 kr.*
og 12.500 Vildarpunktar
á mann m.v. 2 í íbúð á Walkirias.
*Verð án Vildarpunkta 159.900 kr.
25. mars – uppselt
ÍÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
IS
V
IT
68
08
6
3/
20
14
ÍÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
V
IT
6
80
86
3
/2
01
4
Aukaferð 1. apríl í 12 nætur
NÝTT
Loksins á Íslandi!
Nicotinell með Spearmint bragði
- auðveldar þér að hætta reykingum
Nicotinell er samstarfsaðili
Krabbameinsfélagsins
Nicotinell Spearmint 2 mg og 4 mg lyfjatyggigúmmí. Inniheldur nikótín. Ábendingar: Til meðferðar á tóbaksfíkn en lyfið dregur úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum og það auðveldar þar með reykingarfólki sem vill hætta að reykja, að hætta og auðveldar þeim sem ekki geta hætt, eða eru tregir til þess, að draga úr reykingum. Skammtar fyrir fullorðna 18 ára og eldri: Skammta skal ákvarða út frá því
hversu háður nikótíni einstaklingurinn er. Mælt er með 4 mg lyfjatyggigúmmíi fyrir einstaklinga með mikla nikótínþörf og fyrir þá sem ekki hefur tekist að hætta með notkun 2 mg lyfjatyggigúmmís. Ef þú reykir fleiri en 30 sígarettur/sólarhring má miða við notkun 4 mg, 20-30 sígarettur/sólarhring er miðað við 2 eða 4 mg eftir þörf en ef reykt er minna en 20 sígarettur á sólarhring er æskilegt að nota
2 mg. Ef þú færð aukaverkanir við notkun stærri skammtsins (4 mg lyfjatyggigúmmí), skaltu íhuga minni skammt í staðinn. Tyggja skal eitt stk við reykingaþörf þar til finnst sterkt bragð. Þá skal láta það hvíla milli kinnar og tannholds. Þegar sterka bragðið minnkar skal tyggja aftur. Þetta skal endurtaka í 30 mín. Venjuleg notkun er 8-12 stk, þó ekki fleiri en 15 stk af 4 mg og 25 stk af 2 mg lyfjatyggigúmmíi
á sólarhring. Meðferðarlengd er einstaklingsbundin en skal í flestum tilfellum standa í a.m.k. 3 mánuði, skal þá draga smám saman úr notkun lyfjatyggigúmmísins. Meðferð skal hætt þegar neyslan er komin niður í 1-2 lyfjatyggigúmmí á sólarhring. Venjulega er ekki mælt með notkun lyfsins lengur en í eitt ár. Sumir, sem eru hættir að reykja, gætu þó þurft lengri meðferð til þess að forðast að byrja
aftur að reykja. Geyma skal afgangs lyfjatyggigúmmí þar sem reykingaþörf getur skyndilega komið upp aftur. Ráðgjöf getur aukið líkurnar á því að reykingafólk hætti að reykja. Nota má lyfið til að lengja reyklaus tímabil og draga þannig úr reykingum. Ef ekki hefur dregið úr fjölda sígaretta á sólarhring eftir 6 vikur skal leita faglegrar ráðgjafar. Reykingum skal hætt um leið og einstaklingurinn er reiðubúin
til þess, þó ekki síðar en eftir 6 mánaða meðferð. Leita skal faglegrar ráðgjafar ef ekki hefur tekist að hætta reykingum eftir 9 mánaða meðferð. Frábendingar: Ofnæmi fyrir nikótíni eða einhverju hjálparefnanna, reykleysi. Ráðfærðu þig við lækni eða lyfjafræðing því ekki er víst að þú megir nota lyfið ef þú: ert á meðgöngu eða með barn á brjósti, hefur nýlega fengið hjartabilun eða hjartastopp, ert með
hjarta- eða æðasjúkdóm, of háan blóðþrýsting, sykursýki, ofvirkan skjaldkirtil/nýrnahettur, magasár eða verulega skerta nýrna- og/eða lifrarstarfsemi eða ef þú ert yngri en 18 ára. Einstaklingum með gervitennur og þeim sem eiga í erfiðleikum með að tyggja tyggigúmmí er ráðlagt að nota önnur lyfjaform nikótínlyfja. Sjúklingar með arfgengt frúktósaóþol skulu ekki nota lyfið. Athuga ber að lyfið
inniheldur natríum og bútýlhýdroxýtólúen (E321). Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Jafnvel lítið magn af nikótíni er hættulegt börnum og getur valdið alvarlegum einkennum eða dauða. Markaðsleyfishafi: Novartis Consumer Health S.A.
Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ