Fréttablaðið - 05.03.2014, Side 14
5. mars 2014 MIÐVIKUDAGURSKOÐUN
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is
DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
FRÁ DEGI
TIL DAGS
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000
eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á
landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
ISSN 1670-3871
Það er gott að búa í Kópavogi, þess vegna
bý ég þar. Það þýðir ekki að hvorki megi né
þurfi að bæta bæinn okkar, bæta þjónustu
við íbúana, bæta skólastarf og bæta húsnæð-
ismálin svo örfá dæmi séu tekin. Markmiðið
er að gera Kópavog að betri og öflugri bæ.
Húsnæðismálin eru mikilvægt úrlausn-
arefni. Nauðsynlegt er að Kópavogur stígi
inn og fjölgi búsetuúrræðum fyrir ungt
fólk sem og félagslegum íbúðum. Þróunin
á húsnæðismarkaði höfuðborgarsvæðisins
er ekki ásættanleg þar sem lífeyrissjóðir og
fjárfestingasjóðir eru að kaupa upp hundruð
íbúða. Ungt fólk má sín lítils í slíkri sam-
keppni. Það er mjög brýnt að ganga strax
í þessi mál. Það þarf að endurreisa með
einum eða öðrum hætti húsnæðiskerfi sem
núverandi ríkisstjórnarflokkar brutu niður
á sínum tíma. Andstaða núverandi bæjar-
stjóra við öflugan leigumarkað hefur komið
fram, en mikilvægt er að þau sjónarmið
verði ekki ráðandi í Kópavogi eftir kosning-
ar í vor.
Íþrótta- og tómstundamál eru meðal þess
sem sveitarfélagið á að standa myndarlega
að. Það þarf að bæta og skipuleggja íþrótta-
og tómstundastarfið með hagsmuni iðkenda
í huga, sérstaklega þeirra sem yngri eru.
Öflugt íþróttabandalag í Kópavogi tel ég að
geti orðið íþróttastarfinu til mikils fram-
dráttar.
Íþróttir og tómstundir snúa ekki einvörð-
ungu að börnum og unglingum. Þar koma
allir aldurshópar við sögu. Eldri borgarar í
Kópavogi hafa verið virkir á þeim vettvangi
og er það vel. Til að nýta enn betur þekkingu
þeirra og reynslu tel ég að koma eigi á fót
öldungaráði í bænum. Eldri borgarar myndu
þar vera umsagnaraðilar og ráðgjafar um
hvaðeina sem lýtur að aðstæðum þessa hóps
í Kópavogi. Það þarf svo sannarlega að bæta
þjónustu við þennan hóp íbúa í bænum.
Undirstaða undir allar góðar hugmyndir
fyrir betri Kópavog til framtíðar er að ná
tökum á fjármálum Kópavogsbæjar sem
sjálfstæðismenn og framsóknarmenn hafa
skilið eftir í afar slæmu ástandi. Skuldir
Kópavogsbæjar nema nú um 40 milljörðum
sem er afleitur árangur.
Nýtt fólk sem hefur gefið kost á sér á lista
jafnaðarmanna í Kópavogi er tilbúið til að
gera Kópavog að betri bæ.
Betri Kópavogur
STJÓRNMÁL
Pétur Hrafn
Sigurðsson
oddviti Samfylking-
arinnar í Kópavogi
➜ Þróunin á húsnæðismarkaði
höfuðborgarsvæðisins er ekki
ásættanleg þar sem lífeyrissjóðir
og fjárfestingasjóðir eru að kaupa
upp hundruð íbúða. Ungt fólk má
sín lítils í slíkri samkeppni.
Karlaborgin Reykjavík
Kvennabaráttan virtist litlu hafa
skilað þegar forystumenn fram-
boðanna í Reykjavík mættu í Stóru
málin á Stöð 2 í fyrrakvöld. VG er
eini flokkurinn sem er með konu í
fyrsta sætinu, Sóleyju Tómasdóttur,
og Líf Magneudóttir skipar annað
sætið. Það kom í hlut Lífar að halda
uppi merki kvenna í stjórnmálum í
þessum þætti. Ágætri konu varð að
orði að Reykjavík væri sannkölluð
karlaborg þegar hún settist fyrir
framan tækið að horfa á þáttinn.
Flokkarnir í borginni hafa
ekki tekið mikið mark
á áskorun kvenna úr
öllum stjórnmála-
flokkum og þremur
stærstu kvenna-
hreyfingunum sem
hvöttu til þess í upphafi árs að konur
yrðu valdar í forystusæti.
Svandís vill rannsókn
Svandís Svavarsdóttir, formaður þing-
flokks Vinstri grænna, vill rannsókn á
styrkveitingum forsætisráðuneytisins
til ýmissa verkefna á sviði húsfrið-
unar og menningartengdra
verkefna. Á Alþingi
kom fram í svari for-
sætisráðuneytisins við
fyrirspurn frá Brynhildi
Pétursdóttur, Bjartri
framtíð, að ráðuneytið
hafi úthlutað án
auglýsinga
rúmum
200 millj-
ónum
króna
frá því Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson varð forsætisráðherra og
rúmur helmingur fjárins hafi farið til
að styrkja ýmis verkefni í kjördæmi
forsætisráðherrans. Svandís vill að
forsætisnefnd Alþingis óski eftir
rannsókn og skýrslu frá Ríkisendur-
skoðun um málið og er óskin borin
fram fyrir hönd allra þingflokka
stjórnarandstöðunnar. Stjórnar-
andstaðan metur það svo að
svar forsætisráðuneytisins um
hvernig peningunum var varið
leiði í ljós óljósa stjórnsýslu
og ógagnsæi við úthlutun
opinbers fjár og því telja
þingflokkarnir tilefni til
að óska eftir aðkomu
Ríkisendurskoðunar
að málinu.
johanna@frettabladid.is
H
ernaðaríhlutun Rússa í Úkraínu vekur upp óþægi-
legar minningar frá síðustu öld; um valdapólitíkina,
þjóðrembuna og yfirganginn sem orsökuðu tvær
heimsstyrjaldir með tilheyrandi hörmungum og
mörg minni stríð. Tal rússneskra ráðamanna um að
þeir séu bara að vernda hagsmuni Rússa á Krímskaga er endur-
ómur af röksemdum Hitlers fyrir innlimun Súdetahéraðanna og
Austurríkis í aðdraganda seinni heimsstyrjaldarinnar.
Hafi saga tuttugustu aldar
kennt okkur eitthvað, er það að
til eru aðrar leiðir til að vernda
réttindi þjóðernisminnihluta en
tilfærsla landamæra með hern-
aðaraðgerðum. Það tók reyndar
langan tíma að læra það. Ef tog-
streita er á milli þjóðernishópa
á Krímskaga er óskandi að hægt
sé að finna á henni lausnir svipaðar þeim sem fundust á Norður-
Írlandi eða í Bosníu, bara án blóðsúthellinganna sem á undan
gengu. Það hlýtur núna að vera verkefni Vesturlanda, sem hafa
brugðizt hart við yfirgangi Rússa, að leita leiða til að leysa málið
með friðsamlegum hætti.
Vandinn er að rússnesk stjórnvöld sjá málið alls ekki í þessu
ljósi, þótt yfirskinið sé að standa vörð um réttindi þjóðernis-
minnihluta. Það hefur komið æ skýrar í ljós í valdatíð Vladímírs
Pútíns að hann sýtir mjög missi heimsveldis Rússa þegar Berl-
ínarmúrinn féll og Sovétríkin liðuðust í sundur. Hann og fylgis-
menn hans hafa átt bágt með að þola að fyrrverandi fylgiríki og
Sovétlýðveldi, til dæmis Tékkland, Pólland og Eystrasaltsríkin,
fylli nú hóp vestrænna lýðræðisríkja, hafi gengið í Evrópusam-
bandið og NATO og njóti hagsældar sem rússneskur almenningur
gerir ekki.
Stjórn Pútíns hefur alls ekki kunnað að meta tilburði Úkraínu
til að fara sömu leið. Úkraína sótti um aðild að NATO, en dró
umsóknina til baka, undir miklum þrýstingi frá Rússum, eftir að
Janúkovítsj var kjörinn forseti fyrir fjórum árum. Úkraína hugð-
ist sömuleiðis gera samstarfssamning við Evrópusambandið, en
hætti við hann vegna þrýstings og gylliboða frá Rússum. Það var
upphafið að mótmælunum, sem framkölluðu að lokum stjórnar-
skipti í landinu.
Nágrannaríki Rússlands geta alls ekki búið við þá ógn, að í
hvert sinn sem hagsmunum rússnesks minnihluta er í hættu
stefnt, að mati ráðamanna í Moskvu, sé hótað hernaðaríhlutun.
Þess vegna verður umheimurinn að gera Pútín ljóst að hann muni
ekki komast upp með þetta; að afleiðingarnar verði alvarlegar
fyrir Rússa.
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra gerði rétt í því að
kalla rússneska sendiherrann í Reykjavík á sinn fund og koma á
framfæri mótmælum við framferði Rússa í Úkraínu. Það hlýtur
hins vegar að vera umhugsunarefni fyrir utanríkisráðherra og
aðra þá sem móta – eða telja sig móta – utanríkisstefnu Íslands
hvort Rússland, sem ber æ fleiri einkenni einræðisríkis og beitir
nágrannanna ofríki og ofbeldi, sé heppilegur bandamaður til að
nudda sér utan í, til dæmis í norðurslóðamálum eða viðskiptum.
Á því hlýtur að leika djúpstæður vafi eftir atburði síðustu daga.
Rússar hafa lítið lært af sögu 20. aldarinnar:
Einræði, ofríki
og ofbeldi Pútíns
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
HALLDÓR
MOTTUMARS.IS
908 1001
Hraustir menn
HLÝÐA HREYSTIKALLINU