Fréttablaðið - 05.03.2014, Blaðsíða 16
5. mars 2014 MIÐVIKUDAGUR| TÍMAMÓT | 16TÍMAMÓT
Frændi okkar,
ALBERT MAGNÚSSON
lést laugardaginn 1. mars á dvalarheimilinu
Hornbrekku, Ólafsfirði. Útförin fer fram frá
Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn 8. mars kl. 14.00.
Lilja Ólafsdóttir
Sigurður Pálmi Randversson
Gunnar Randversson
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
INGIRÍÐUR DANÍELSDÓTTIR
frá Kollsá, Hrútafirði,
Bólstaðarhlíð 41,
verður jarðsungin frá Prestbakkakirkju
laugardaginn 8. mars kl. 11.00. Ferð verður frá
Umferðarmiðstöðinni kl. 8. Sætapantanir í síma 822-0329.
Erla Karlsdóttir Sigurður Þórólfsson
Ásdís Karlsdóttir Eiríkur Bjarnason
Steinar Karlsson Björk Magnúsdóttir
Margrét Karlsdóttir Sigurður Þórðarson
Daníel Karlsson Helga Hreiðarsdóttir
Indriði Karlsson Herdís Einarsdóttir
Sveinn Karlsson Guðný Þorsteinsdóttir
Sigurhans Karlsson Þórey Jónsdóttir
Karl Ingi Karlsson Steinunn Matthíasdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri
SNORRI ÞORSTEINSSON
frá Hofsósi
lést í Árósum laugardaginn 1. mars.
Anne Hoffmeyer
Pauli Thorsteinsson
INGIBJÖRG BJÖRNSDÓTTIR
fyrrverandi kennari
lést á heimili sínu að Hrafnistu, Reykjavík,
28. febrúar sl.
Ragnar Jónasson Eva Örnólfsdóttir
Björn H. Jónasson Guðrún Þóroddsdóttir
Móðir okkar,
ÞORGERÐUR ÞORLEIFSDÓTTIR
Kópavogi,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju
föstudaginn 7. mars kl. 15.00.
Gísli Eiríksson
Björg Eiríksdóttir
Þorleifur Eiríksson
Ívar Eiríksson
Flosi Eiríksson
Elín Eiríksdóttir
Elskulegur bróðir okkar,
JÓN KRISTINN FRIÐGEIRSSON
er látinn. Jarðarförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hins látna.
Karlína Friðgeirsdóttir
Gunnlaugur Jóhann Friðgeirsson
Móðir okkar tengdamóðir,
amma og langamma,
RAGNHEIÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR
Heiða í Auðsholti,
er látin. Jarðarförin auglýst síðar.
Sigríður Ása Einarsdóttir Gunnar Gunnarsson
Guðmundur Gils Einarsson Jarþrúður Jónsdóttir
Unnsteinn Einarsson
Vilborg Einarsdóttir Magnús Karlsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir, afi og langafi,
BALDUR ÞORSTEINN BJARNASON
lést 1. mars á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ.
Útförin verður auglýst síðar.
F.h. fjöldskyldunnar,
Iben Sonne
Baldur Þór Baldursson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
LILJA SUMARRÓS
ÞORLEIFSDÓTTIR
frá Naustahvammi,
Mýrargötu 18, Neskaupstað,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað miðvikudaginn
26. febrúar. Útför hennar fer fram frá Norðfjarðarkirkju föstu-
daginn 7. mars nk. kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar er
bent á Hollvinasamtök Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað.
Þórleifur Ólafsson Stefanía M. Júlíusdóttir
Eiríkur Ólafsson Guðrún Þ. Níelsdóttir
Guðbjörg K. Ólafsdóttir Hjalti Þórðarson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Elskuleg móðir mín,
tengdamóðir, amma og langamma,
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR
dvalarheimilinu Grund,
áður Gnoðarvogi 32,
lést föstudaginn 28. febrúar. Jarðarförin fer
fram frá Áskirkju mánudaginn 10. mars kl. 13.00.
Guðrún R. Axelsdóttir Einar Eiríksson
Eiríkur Bergmann Einarsson Aino Freyja Jarvela
Áslaug Einarsdóttir
og barnabarnabörn.
„Ég myndi nú vilja að áhuginn sem fólk
sýnir þessu stafaði af því að ég er fær
hljómsveitarstjóri, en ekki bara af því
að ég er kona,“ eru fyrstu viðbrögð Hall-
fríðar Ólafsdóttur, sem á sunnudaginn
stjórnaði félögum úr Sinfóníuhljóm-
sveitinni fyrst íslenskra kvenna, þegar
falast er eftir viðtali um þann merka
áfanga í íslenskri tónlistarsögu.
Hallfríður hefur verið flautuleikari
í Sinfóníuhljómsveit Íslands í sautján
ár, auk þess að vera höfundur Maxí-
músar músíkúsar og hafa í tæp tíu ár
unnið við fræðsluverkefnið sem hann
stendur fyrir. Hún lærði flautuleik í
Royal Academy of Music í London og
tók þar hljómsveitarstjórn sem hliðar-
grein. „Þar fékk ég leiðsögn um þetta
fag. Síðan hef ég bara haft svo mikið
að gera sem flautuleikari en hef af og
til verið veifandi höndunum einhvers
staðar og hef mikla ástríðu til þess að
miðla tónlist. Þó þetta hafi verið litlir
hópar sem ég hef verið að stjórna þá
hef ég oft verið að vinna mjög flók-
in verkefni. Við höfum verið að spila
nútímatónlist á Norrænum músíkdög-
um, Myrkum músíkdögum og víðar og
það er alltaf gaman að gera eitthvað
sem maður finnur að maður ræður við,
það örvar mann til dáða. En ég hef ekki
lagt neina ofuráherslu á að koma mér á
framfæri sem hljómsveitarstjóra enda
haft nóg að gera við að ala upp börnin,
sinna fræðsluverkefninu með Maxímús
og spila í Sinfóníuhljómsveitinni. Þetta
tækifæri kom hins vegar á mjög hent-
ugum tíma. Ég get alveg hugsað mér að
fara að sinna þessum hluta tónlistarinn-
ar meira og var þess vegna mjög fljót
að bjóða mig fram í þetta verkefni fyrir
tónleika Kítón.“
Hallfríður segir mjög marga gera
sér grein fyrir því að tónlist kvenna fái
minni athygli en karla en það séu líka
margir sem neiti að horfast í augu við þá
staðreynd. „Það er til dæmis mjög auð-
velt að afgreiða málið með því að þetta
sé ekki eins góð tónlist en við vitum nú
flest að það er ekki málið. Kallarnir
sem ráða mestu um tónlistarumfjöll-
un muna flestir fyrst eftir strákunum
og strákarnir eru líka duglegri við að
koma sjálfum sér á framfæri. Við konur
erum varkárari með það, viljum ekki
troða öðrum um tær og erum stundum
of hógværar. Auk þess hefur verið sýnt
fram á að konur eru gagnrýnni á sjálf-
ar sig og ég er engin undantekning frá
þeirri reglu. Þess vegna var ofsalega
gaman að um leið og við vorum búin á
fyrstu æfingunni fékk ég mikinn með-
byr, bæði frá kollegum mínum sem voru
að spila hjá mér og eins frá sprenglærð-
um hljómsveitarstjóra sem sagði að ég
væri „frábær hljómsveitarstjóri“ og
hvatti mig til að gera meira af þessu.“
Konur eru ekki margar í stétt hljóm-
sveitarstjóra, þótt það sé nú hægt og
hægt að breytast, er hljómsveitarstjórn-
un kannski eitt síðasta glerþakið sem
konur þurfa að brjóta? „Já, og mér
fannst mikilvægt að við sýndum á þess-
um tónleikum að konur eru fullfærar
um að stjórna og dúndruðum hressilega
í glerþakið.“ fridrikab@frettabladid.is
Konurnar dúndruðu
hressilega í glerþakið
Á uppskeruhátíð Kítón í Hörpu á sunnudaginn stjórnaði Hallfríður Ólafsdóttir félögum úr
Sinfóníuhljómsveitinni, fyrst íslenskra kvenna. Hún lærði hljómsveitarstjórn jafnhliða námi
í fl autuleik, hefur leikið með Sinfó í sautján ár og stjórnað ýmsum tónlistarhópum.
HALLFRÍÐUR
ÓLAFSDÓTTIR
„Kallarnir sem ráða
mestu um tónlistar-
umfjöllun muna
flestir fyrst eftir
strákunum.“
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Hallfríður er mjög efnilegur stjórnandi og þetta gekk rosalega vel,“ segir Bryndís
Halla Gylfadóttir sellóleikari, ein þeirra sem voru í hljómsveitinni sem Hallfríður stjórn-
aði á sunnudaginn. „Ég hef ekki spilað hjá henni áður, en vissi að hún hefði verið
að stjórna hér og þar og var mjög tilbúin að vera með í hljómsveitinni hennar. Mér
sýndist líka vera mjög mikil ánægja með þetta framtak. Þótt það halli ekki alls staðar á
konur í tónlist þá er það tilfellið mjög víða og gott að vera meðvitaður um það.“
Gekk rosalega vel