Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.03.2014, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 05.03.2014, Qupperneq 24
FÓLK|FERÐIR Franski spítalinn á Fáskrúðsfirði, sem reistur var árið 1903 að Búð-um og var síðar nýttur sem íbúð- arhús á Hafnarnesi, fær fljótlega nýtt hlutverk þegar honum verður breytt í hótel á Fáskrúðsfirði. Spítalinn var einn þriggja spítala sem franska ríkis- stjórnin lét reisa hérlendis í upphafi síðustu aldar en þá stunduðu franskir sjómenn veiðar á Íslandsmiðum. Það er Minjavernd sem hefur haft veg og vanda af framkvæmdunum en Þorsteinn Bergsson, framkvæmda- stjóri Minjaverndar, segir félagið hafa verið að skima eftir verkefnum á landsbyggðinni þegar starfsmenn þess hnutu um spítalann þar sem hann stóð í eyði úti á Hafnarnesi. „Í fyrstu var hugmyndin að ráðast í endurbætur á húsinu þar sem það stóð en fljótlega sáum við að erfitt var að finna not fyrir húsið þar. Því var ákveðið að flytja húsið aftur til Fáskrúðsfjarðar. Upphaflega voru uppi hugmyndir um að setja það á gamla sökkulinn en við fundum betri stað á ónýttri lóð, fyrir neðan Læknishúsið sem Frakkar reistu árið 1907.“ Eftir að veiðar franskra sjómanna lögðust niður var húsið flutt sjóleiðis út á Hafnarnes árið 1939 og nýtt sem íbúðarhús og skóli. Mest bjuggu þar milli 50-60 manns. Frá árinu 1964 hefur húsið hins vegar staðið autt og nær ekkert viðhald fengið. „Ákvörðun um endurbætur var tekin árið 2008 og síðan þá hefur verk- efnið vaxið töluvert. Ekki eingöngu var spítalinn tekinn í gegn heldur einnig Læknishúsið, sjúkraskýlið sem var fyrsta húsið sem Frakkar reistu þar, kapellan frá 1898 og síðan byggðum við eftirmynd af líkhúsinu. Þannig var framkvæmdin orðin stórt verkefni sem skiptir atvinnulífið á Fáskrúðs- firði miklu máli og gerir heilmikið fyrir bæjarbraginn.“ Í sumar mun Fosshótel opna þar þriggja stjörnu hótel en húsið verður tengt við Læknishúsið með göngum. Í hótelinu verða 26 rúmgóð herbergi til að byrja með og veglegur veitinga- staður. Í Læknishúsinu og göngunum milli húsanna verður sett upp sýning um frönsku sjómennina, húsin tvö og samskipti þjóðanna undanfarnar aldir. Stefnt er að því að opna hótelið um mánaðamótin maí-júní en formleg opnun verður 14. júní. Safnið verður opnað á sama tíma en formleg opnun þess, ásamt blessun kapellunnar, verður á Frönskum dögum 26. júlí. ■ starri@365.is FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir MIKIL BREYTING Nýja hótelið verður opnað í sumar á Fáskrúðsfirði. Verið er að leggja lokahönd á framkvæmdir. MYND/EMMA INGIBJÖRG VALSDÓTTIR EYÐIBÝLIÐ Franski spítalinn stóð í eyði frá 1964 og fékk nær ekkert viðhald á þeim tíma. BREYTT BÆJARMYND Endurbætt kapella og sjúkraskýli. SPÍTALINN FLYTUR UM SET Flutningur hófst í sept- ember 2010. MYNDIR/ÞORSTEINN BERGSSON FRANSKUR SPÍTALI Í NÝJU HLUTVERKI NÝTT HÓTEL Gamalt hús fær nýtt hlutverk á Fáskrúðsfirði þegar því verður breytt í hótel. Fróðleg sýning um frönsku sjómennina verður á sama stað. Mígreni.is Þjáist þú af eða einhver sem þú þekkir Vísindalega sannað að MigreLief gagnast við mígreni Fæst í apótekum og heilsubúðum Náttúrulegt fyr i rbyggjandi v í tamín fæðubótarefni æt lað mígrenis júkl ingum fæst án ly fseði ls . Sverrir Birgir Sverrisson Sími 512 5432 sverrirb@365.is Kolbeinn Kolbeinsson Sími 512 5447 kolli@365.is NÁNARI UPPLÝSINGAR Sérblaðið Fermingar kemur út Fimmtudaginn 13.mars FERMINGAR Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 9-17. óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn... Blaðberinn bíður þín

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.