Fréttablaðið - 05.03.2014, Blaðsíða 28
| 8 5. mars 2014 | miðvikudagur
„Við vorum að skila uppgjöri sem
var býsna nálægt því sem við höfð-
um kynnt í okkar fjárfestakynn-
ingum í tengslum við útboð og
skráningu á markað, annars vegar
hvað varðar afkomu og hins vegar
tillögur um arðgreiðslur,“ segir
Eggert Benedikt Guðmundsson,
forstjóri N1, og vísar í afkomu tölur
félagsins fyrir árið 2013.
Þar kom fram að heildarhagn-
aður N1 nam 637 milljónum króna
á árinu, samanborið við rúmlega
1.190 milljónir árið 2012, og tillög-
ur stjórnar um arðgreiðslur námu
1.650 milljónum króna.
„Það er verið að leggja til býsna
háar arðgreiðslur sem skýrast af
því að hér hefur ekki verið greidd-
ur arður í mörg ár.“
Eggert var ráðinn forstjóri N1
sumarið 2012 og þá hafði hann stýrt
HB Granda í átta ár.
„Upphaflega lærði ég rafmagns-
verkfræði í Þýskalandi og starf-
aði eftir það sem verkfræðingur
hjá Járnblendifélaginu á Grundar-
tanga við rannsóknir og þróunar-
störf. Eftir fimm ár þar fluttum við
fjölskyldan til Spánar þar sem ég
tók MBA við IESE-viðskiptaháskól-
ann í Barcelona,“ segir Eggert.
Eftir MBA-námið var Eggert ráð-
inn til Philips Electronics í Belgíu
og árið 2000 til Philips í San José í
Kaliforníu þar sem hann starfaði
þangað til fjölskyldan flutti aftur
heim árið 2004.
„Þetta var gríðarlega lærdóms-
ríkur tími, sérstaklega Kaliforn-
íuárin þar sem við vorum að vinna
náið með stóru amerísku tölvufyrir-
tækjunum Dell, Apple, Hewlett
Packard, IBM og Microsoft,“ segir
Eggert.
Hann er mikill tónlistaráhuga-
maður en hann spilar bæði á gítar
og syngur í Karlakór Reykjavíkur.
Hann byrjaði í kórnum í haust og
söng fyrst opinberlega á tónleik-
um hljómsveitarinnar Skálmaldar
í Eldborgarsal Hörpu í nóvember.
„Það eru mikil plön hjá mínum
ágæta kór og það verða miklir tón-
leikar í vor og síðan er stóra planið
að fara í kórferð til Pétursborgar
í haust.“
Eggert er kvæntur Jónínu Lýðs-
dóttur, hjúkrunarfræðingi og nema
í ferðamálafræði, og á þrjú börn á
aldrinum 16 til 24 ára.
„Við hjónin reynum að ganga á
fjöll eftir því sem við getum. Und-
anfarin sumur höfum við farið
á Hornstrandir en næsta sumar
ætlum við á Lónsöræfi. Svo er
maður að dröslast í þessu golfi en
ég byrjaði í sportinu á gamalsaldri,
þannig að það hefur verið smá barn-
ingur að ná tökum á því. En það er
gaman þegar vel gengur.“
SVIPMYND
Haraldur Guðmundsson - haraldur@frettabladid.is
Söng með Skálmöld í Hörpunni
Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri N1, lærði upphaflega rafmagnsverkfræði í Þýskalandi. Hann hefur
stýrt félaginu frá sumri 2012. Eggert er mikill tónlistaráhugamaður og spilar á gítar og syngur í karlakór.
„Eggert Benedikt er eindæma
skemmtilegur félagi og drengur
góður. Hann kemur sífellt á
óvart með smellnum vísum
sem gefa lífinu lit og lyfta við-
skiptaumhverfinu á skemmti-
legt plan. Hann hefur einnig
mikla tónlistargáfu og stofnar
hljómsveitir eins og ekkert
sé, ásamt því að syngja með
Karlakór Reykjavíkur, það er því
aldrei leiðinlegt í kringum Eggert. Sjálfsagt hafa þessar
sérgáfur hans stutt við hversu vel honum hefur farnast
í íslensku viðskiptalífi, hann er laus við öll látalæti og
kemur til dyranna eins og hann er klæddur og nær því
góðum tengslum við fólk og fyrirtæki.“
„Ég kynntist Eggert í gegnum
Samtök atvinnulífsins og Við-
skiptaráð. Við vorum þar saman
í nefnd með tveimur öðrum.
Við náðum strax vel saman
enda Eggert maður sem gaman
er að vera nálægt – skemmti-
legur og málefnalegur. Karlinn
er ótrúlega hagmæltur og þegar
við kynntum niðurstöðu skýrslu
sem við unnum að var hún meira
og minna í bundnu máli. Íslandsbanki vann síðan þétt
með N1 við skráningu félagsins og var sú samvinna
frábær í alla staði. Eggert er toppmaður.“
Málefnalegur toppmaður
STJÓRNANDI Eggert hafði starfað hjá HB Granda í einungis hálft ár þegar hann var gerður að forstjóra sjávarútvegsfyrirtækisins.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Katrín Olga Jóhannesdóttir, stjórnarformaður Já.is. Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka.
Pétur Marteinsson er gestur
Klinksins á Vísir.is í þessari viku.
Pétur er einn eigenda og stofn-
enda Kex hostels á Skúlagötu,
ásamt því að stefna að opnun veit-
ingastaðarins Dills á Hverfisgötu
á næstunni.
Pétur ræddi við Klinkið um
hostel og veitingareksturinn, nýju
staðina á Hverfisgötu þar sem
einnig verður opnaður pitsustaður
en Pétur og félagar ætla að reyna
að breyta pitsumenningu landans.
Pétur er einnig ásamt vinum
sínum í Vesturbænum að stefna á
opnun kaffihúss rétt við sundlaug-
ina þar, en þeir vinir telja þörf á
slíku í hverfið þar sem íbúar geta
farið fótgangandi til að lyfta sér
upp í góðra vina hópi.
PÉTUR MARTEINSSON
Samkeppnin er orðin
mikil og ég held að
það sé af hinu góða
Fanney Birna Jónsdóttir
fanney@frettabladid.is
Viðtalið við Pétur Marteinsson
er hægt að sjá í þættinum
Klinkinu á www.visir.is.
„ÞAÐ VIRÐIST RÍKJA
ÁKVEÐIÐ GULLÆÐI Í
FERÐAÞJÓNUSTU. ÞAÐ
ER VERIÐ AÐ OPNA HÓT-
EL OG GISTIHEIMILI OG
HOSTEL ÚTI UM ALLAR
TRISSUR Í REYKJAVÍK.
ÞETTA ER ERFIÐARI BIS-
NESS HELDUR EN MARG-
IR HALDA ÞEGAR ÞEIR
ANA ÚT Í ÞETTA.“
Skemmtileg blanda af matarkrá, viðburðum og tónlist laðar til
þeirra þá ferðamenn sem jafnvel eru vanir að vera á hótelum
en gætu hugsað sér að vera á hostelinu þeirra. Pétur og félagar
hans skilgreina viðskiptavini sína ekki út frá neinum hagrænum
mælikvarða heldur frekar menningarlegum mælikvarða. Þeir
vilja viðskiptavini sem vilja vera hjá þeim – óháð efnahag.
Menningarlegur mælikvarði á viðskiptavini
Kveikjan að Kexi hosteli var spjall
Péturs og vina hans um hvað
skipti þá máli í lífinu; tónlist,
matur, drykkur, bjór og vín. Eftir að
þeir fundu húsnæðið á Skúlagötu
28 – gömlu kexverksmiðjuna Frón
– varð ekki aftur snúið.
Það sem skiptir máli í lífinu
Fyrir tveimur árum hóf
Gunnar Karl Gíslason, yfir-
kokkur á veitingastaðnum
Dilli í Norræna húsinu,
samstarf við Pétur og félaga
hans á Kexinu. Gunnar sér
um matseðilinn á Kexi og
Dill verður fljótlega flutt úr
Norræna húsinu á Hverf-
isgötu, þar sem staðurinn
verður minnkaður. Gunnar
mun einnig sjá um pitsu-
staðinn sem opnaður verður
í sama húsi.
Kex, Dill og pitsur