Fréttablaðið - 13.03.2014, Page 14

Fréttablaðið - 13.03.2014, Page 14
13. mars 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 14 Í apríl eiga öll grunn- skólabörn í Grafarvogi og á Kjalarnesi, sem eru í matar áskrift í skólunum, að fá jafnnæringarríkan mat. Í þessum hverfum verður tekið fyrsta skrefið að því að innleiða þjónustu- staðal í skólamötuneytum borgarinnar þannig að hráefni sé sambærilegt að gæðum og matseðlar næringar- útreiknaðir í samræmi við ráðlegg- ingar Embætti landlæknis. Settur verður upp sameiginlegur gagnagrunnur fyrir matseðla fyrir tiltekna daga. Yfirmenn mötuneyta munu nýta grunninn við val á upp- skriftum og matseðlum sem upp- fylla orku- og næringarþörf barna miðað við aldur. „Þetta þarf ekki endilega að vera sami réttur í grunnskólunum sama daginn, heldur verða til dæmis fiskidagarnir þeir sömu og hakkdagarnir þeir sömu. Þá er til dæmis boðið upp á spagettíbollur í einum skóla og lasanja í öðrum. Samsetning máltíðarinnar og nær- ingargildi hennar verður sambæri- legt,“ segir Helga Sigurðardóttir, næringarfræðingur og gæðastjóri mötuneyta skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur. Að sögn Helgu má með sameiginlegum gagnagrunni áætla betur hráefnismagn og ná fram hagræði í inn- kaupum. Samræmd þjónusta verður tekin upp í skóla- mötuneytum í fimm öðrum hverfum í kjölfarið. „ Áætlað er að þjónustan verði tekin upp í tveimur til þremur hverfum næsta haust. Við munum meta hvernig þetta kemur út í Grafar- vogi og á Kjalarnesi. Við gerum ráð fyrir að það verði einfaldara að inn- leiða þetta í fleiri hverfi þegar við sjáum hverju þarf að breyta. Þegar kerfið hefur verið tekið upp í öllum grunnskólum bætast leikskólarnir og frístundaheimilin við.“ Í flestum grunnskólum borgar- innar er gert ráð fyrir að börnin séu í matsal í 20 mínútur og yfir- leitt í frímínútum í 20 mínútur á undan eða eftir, að því er Helga greinir frá. „Það kemur reglulega upp umræða um að mikið álag sé í matsalnum á svona stuttum tíma. Tíminn sem þau hafa í matsalnum mætti vera lengri ef maður hugs- ar þetta frá upplifuninni að borða. Tuttugu mínútur eru ekki lang- ur tími þegar þau þurfa að standa í biðröð, setjast til borðs og ljúka máltíðinni.“ ibs@frettabladid.is Jafnnæringarríkur matur í öllum grunnskólunum Samsetning máltíðar og næringargildi verður sambærilegt. Með sameiginlegum gagnagrunni má áætla betur hráefnismagn og ná fram hagræði í innkaupum. Börnin í matsal í 20 mínútur í flestum skólum. Hálft glas af jógúrt eða skyri á dag getur dregið úr líkunum á að maður fái sykursýki 2 um fjórðung. Þetta eru niðurstöður nýrrar rann- sóknar vísindamanna við Cam- bridge-háskólann sem vitnað er í á fréttavef danska ríkisútvarpsins. Vísindamennirnir skoðuðu gögn um mataræði rúmlega fjögur þús- und einstaklinga um 11 ára skeið. Rannsóknin leiðir ekki í ljós hvers vegna sýrðar mjólkurvörur hafa þessi jákvæðu áhrif. Haft er eftir Kjeld Hermansen, lektor við Háskólann í Árósum, að það geti að hluta til verið vegna þess að lítið sé af kaloríum í sýrðum mjólkur- vörum. Ástæðan geti jafnframt verið fjöldi hollra baktería í sýrðu mjólkurvörunum. Vísindamennirnir rannsökuðu einnig tengslin milli neyslu fitu- snauðrar mjólkur, eins og undan- rennu og léttmjólkur, og hættunni á að fá sykursýki 2. Niðurstaðan var sú að 19 prósenta minni líkur voru á að fá sykursýki 2 ef slíkrar mjólkur- vöru er neytt. - ibs Niðurstöður rannsóknar í Cambridge: Skyr og jógúrt draga úr hættu á sykursýki Á fræðslufundi um læsi og les- skilning barna í leik- og grunnskól- um, sem haldinn verður í sal Garð- yrkjufélags Íslands í Síðumúla 1 þriðjudaginn 18. mars, verður rætt um málið frá reynslu foreldra og fagmanna. Fjallað verður meðal annars um niðurstöður PISA-könnunarinnar, hvernig foreldrar og kennarar skapa börnum bestu mögulegu þroskaskilyrði er varðar mál og tal og framtíðarsýn varðandi áherslur á læsi og stærðfræði í leikskólum. Jafnframt verður fjallað um framtíð lesblindra á Íslandi, kennslu gegnum leik og hreyfingu, nýjungar á markaðnum og mögu- leika fyrir öll börn, að því er segir í fréttatilkynningu frá ABC leik- föngum sem standa fyrir fræðslu- fundinum. - ibs Fræðslufundur um læsi og lesskilning: Rætt um PISA og möguleika barna Um 12 þúsund grunnskólabörn eru í mataráskrift í skólamötuneytum borgar- innar. Fjöldi hádegisverða er um 2,1 milljón matarskammtar. Samkvæmt þjónustukönnun skóla- og frístundasviðs eru 68 prósent foreldra ánægð með mötuneyti grunnskólanna. Í fjárhagsáætlun Reykjavíkur fyrir 2014 var úthlutað viðbótarfjármagni til að bæta gæði hráefnis í skólamötuneytunum. Um er að ræða 87 milljónir til grunn- skólanna. Tólf þúsund börn í mataráskrift Í SKÓLAMÖTUNEYTI Yfirmenn mötuneyta munu nýta sameiginlegan gagnagrunn við val á uppskriftum og matseðlum sem fylla orku- og næringarþörf barna miðað við aldur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON HELGA SIGURÐ- ARDÓTTIR MJÓLKURVÖRUR Neysla á jógúrt og skyri minnkar líkur á sykursýki 2 um fjórðung. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Netkórinn SYNGJUM STYRKINN INN SYNGDU „HRAUSTA MENN“ OG SENDU INN MYNDBAND ARION BANKI STYRKIR HVERJA INNSENDINGU Í NETKÓRINN WWW.MOTTUMARS.IS/NETKORINN Sá sem hættir að reykja dregur ekki bara úr hættunni á að fá krabbamein og hjarta- og lungna- sjúkdóma, heldur getur hann einnig losnað við kvíða og þung- lyndi. Þetta kemur fram í grein í British Medical Journal sem vitnað er í á fréttavef Dagens Nyheter. Rannsókn breskra vísinda- manna hefur leitt í ljós að það er gott fyrir andlega heilsu manna að hætta reykingum. Áhrifin eru sögð jafn mikil eða jafnvel meiri heldur en ef þunglyndislyf hefðu verið tekin inn. Vísindamennirnir skoðuðu gögn 26 rannsókna þar sem and- leg heilsa reykingamanna var könnuð bæði áður og eftir að þeir höfðu alveg hætt að reykja. Þátt- takendur í rannsókninni höfðu reykt um 20 sígarettur á dag og var þeim fylgt eftir í hálft ár eftir að þeir hættu reykingum. Greinileg merki sáust um að kvíði, þunglyndi og streita hafði minnkað. - ibs Þegar reykingum er hætt: Kvíði, depurð og streita minnkar REYKINGAR Áhrifin af því að hætta að reykja eru sögð jafn mikil eða jafnvel meiri heldur en ef þunglyndislyf hefðu verið tekin. NORDICPHOTOS/AFP
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.